Morgunblaðið - 09.03.1978, Page 1
48 SÍÐUR
49. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Muzorewa á von
á stuðningi eftir
fund með Vance
NKOMO LEGGUR VIÐ HLUSTIR — Þjóðernisleiðtoginn Joshua Nkomo hlýðir á umræður í
Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um Rhódesíumálið á þriðjudag.
Símamynd AP
WashinKton. Salisbury, 8. mars. Reuter.
AREL Muzorewa. biskup og leiðtogi þjóðernissinnaðra blökku-
manna í Rhódesíu, sagðist í dag vera vongóður um að
Bandarikjamenn styddu samkomulagið sem hann og aðrir
blökkumannaleiðtogar undirrituðu með Ian Schmidt í síðustu viku.
Muzorewa var nýkominn af fundi með bandaríska utanríkisráðherr-
anum. Cyrus Vance. sem hann sagði að hefði verið uppörvandi og
gagnlegur.
Síðustu fréttir herma að tveir
þriðju hlutar Öryggisráðs S.Þ.
Sómalíumenn játa
ósigur siirn í Jijiga
Nairóbí — Róm. 8. mars. AP. Reuter. #
TALSMENN sómalskra uppreisnarmanna í Ogadenauðn viðurkenndu 1 fyrsta skipti a
miðvikudag að þeir hefðu tapað orrustunni um borgina Jijiga og að Eþíópíumenn hefðu
náð tangarhaldi á borginni á nýjan leik.
Eftir hatrömm átök í eyði-
mörkinni, sem nú hafa verið í
hápunkti í tvær vikur, sagði
talsmaður frelsishers Sómala að
herinn hefði nú hörfað til fjall-
anna og út í sveitirnar til að
þjappa sér saman um frekara
viðnám.
Stjórnin í Eþíópíu tilkynnti á
sunnudag að herir hennar hefðu
unnið Jijiga en borgin liggur um
64 kílómetra frá landamærum
Sómalíu. í árásinni á borgina
notuðu Eþíópíumenn skriðdreka,
orrustuflugvélar og eldflaugar og
sagði talsmaður Frelsishersins,
að stórfellt tjón hefði orðið af
árásinni á eignum og mannvirkj-
um. Eftir sigurinn hafa Eþíópíu-
menn nú aðstöðu í þremur mjög
hernaðarlega mikilvægum borg-
um í Ogaden. Sómalíumenn höfðu
haft borgina á valdi sínu síðan í
september.
Með því að ná Jijiga á sitt vald
hafa Eþíópíumenn í fyrsta skipti
náð verulegum árangri síðan þeir
hófu gagnsókn sína 22. janúar
með dyggilegri aðstoð Sovét-
manna og Kúbana. Er ekki að efa
að áfanginn mun hafa hvetjandi
áhrif á liðsanda Eþíópíumanna
eftir að þeir misstu skriðdreka-
og ratsjárstöð sína eftir uppreisn
í hernum í september. Hernaðar-
sérfræðingar telja margir, að
þessi sigur þeirra geti haft þau
áhrif að stór hluti herliðs Sómal-
íumanna króist af í fjöllum
Austur-Eþíópíu án birgða og
vista.
Sendiráð Eþíópíumanna í Róm
skýrði frá því á miðvikudag að
hermenn frá Egyptalandi, Iran
og Saudi-Arabíu streymdu nú til
Mogadishu Sómalíumönnum til
aðstoðar. Talsmaður sendiráðsins
sagði að þvílík hræðsla hefði
gripið um sig í liði Sómalíu-
manna eftir ósigurinn að þeir
hefðu jafnvel drepið sína eigin
menn á flóttanum.
Hæsta verð
á gulli
í þrjú ár
London. 8. marz. Reuter.
DOLLARINN lækkaði gagn-
vart japanska yeninu í dag og
gull seldist á hæsta verði sem
hefur fengizt fyrir það í þrjú
ár.
í London hækkaði gull um
næstum því fjóra dollara
únsan í 190.5 dollara únsan.
Gull seldist síðast fyrir
meira en 190 dollara únsan 23.
desember 1974. Það seldist sjö
dögum síðan á hæsta verði
sem hefur fengizt fyrir það
fyrr eða síðar eða 197.50
dollara únsan.
Dollarinn lækkaði í Tokyo í
235.00 yen, sem er met. Dollar-
inn lækkaði jafnvel meira
gagnvart yeninu í Evrópu.
Athyglin virðist hafa beinzt
frá svissneskum frönkum og
vestur-þýzkum mörkum þar
sem gengi yens virðist of lágt
skráð gagnvart dollar miðað
við skráningu svissneskra
franka og marksins gagnvart
dollarnum.
hafi í dag undirhúið áskorun til
Breta um að kalla saman ráð-
stefnu um Rhódesíu sem allir
aðilar sem hagsmuna eiga að
gada ættu þátt í.
Ekki er talið að á fundi sínum
með Muzorewa hafi Vance gefið
nein fyrirheit en eftir fundinn
sagði biskupinn: „Ég útskýrði
sjónarmið okkar mjög gaumgæfi-
lega fyrir honum og hann gaf
mér fulla ástæðu til að halda að
hann hygðist íhuga málið alvar-
lega.“
Leiðtogar Föðurlandsfylk-
ingarinnár sátu hins vegar við
Tító talar
við þing-
foringja
Washinífton. 8. mars. Reutcr.
TÍTÓ marskálkur, forseti Júgó-
slavíu. ræddi á miðvikudag við
ýmsa forystumenn í bandaríska
þinginu um ólíkustu málefni.
þ.á m. vandamál þriðja heims-
ins, hugsanlega vopnasölu
Bandarikjamanna til Júgó-
slavíu. Mið-Austurlönd og
Ogadendeiluna.
I veizlu, sem Carter hélt Tító í
Framhald á bls. 26
Loks náðist samstaða
um ríkisstjóm á Ítalíu
Myndin sýnir loftvarnabyssu,
sem notuð er í æfingastöðvum
Sómalíumanna í Halane i
Mogadishu.
Róm. 8. mars. Reuter—AP.
ENDI var loks bundinn á 51
dags stjórnarkreppu á ítaliu í
kvöld er samstaða náðist meðal
fimm flokka um ráðstafanir til
myndunar nýrrar minnihluta-
stjórnar kristilegra demókrata
en samningurinn var gerður
með þátttöku kommúnista.
Fulltrúi væntanlegs forsætis-
ráðherra, Guilos Andreottis,
skýrði frá því að flokkarnir hefðu
samþykkt stefnuskrá um aðgerð-
ir til að ráða niðurlögum atvinnu-
leysis í landinu og rás atburða á
Suður-Ítalíu. Samkvæmt áreið-
anlegum heimildum var búist við
því að Andreotti gengi á fund
forseta landsins, Giovanni Leone,
á laugardag og tilkynnti honum
að samstaða hefði náðst. Sam-
komulagið náðist með kommún-
istum, sósíalistum, jafnaðar-
mönnum og lýðveldissinnum og
mun tryggja kommúnistum
sterkari áhrif innan stjórnarinn-
Framhald á bls. 26
Stjómarandstaðan
veitist hart að Begin
Jerúsalem — Gení.
8. mars. AP.
BEGIN, forsætisráðherra ísra-
elsmanna, hvikaði hvergi af
spori sfnu varðandi stefnu í
friðarumleitunum í Mið-Austur-
löndum, þótt hann yrði fyrir
hörðu aðkasti í ísraelska þing-
inu af stjórnarandstöðu í dag.
Fyrrverandi utanríkisráðherra
landsins, Yigal Allon, leiðtogi
stjórnarandstöðu og Verka-
mannaflokksins, sagði að Israel
stafaði stórfelld hætta af stefnu
Begins. Gagnrýnin kom fram í
umræðutíma þar sem rætt var
um samþykkt S.Þ. númer 242, en
grein þessi hefur verið skoðuð
sem grundvöllur friðarumleitana
í Mið-Austurlöndum. Begin hefur
viljað líta svo á að samþykktin
þýði að ísraelsmenn hafi áfram
hernaðarleg yfirráð yfir vestur-
Framhald á bls. 26
Andreotti
Prófessor hvarf
í Austur-Berlín
VesturBerlín. 8. mars. Reuter.
NÁINN samstarfsmaður
austur-þýzka forsætisráð-
herrans Willis Stoph og áhrifa-
maður í sáttaviðræðum við
Vestur-Þjóðverja er horfinn
sporlaust í Austur-Berlín og er
mönnum ekki grunlaust um að
hann hafi verið numinn á brott
til yfirheyrslna að því er
áreiðanlegar heimildir hermdu í
dag.
Síðast sást til prófessors Ter-
mann von Bergs í annarri viku
janúarmánaðar, en þá var hann
óforvarandis sendur í „viðskipta-
leiðangur" til Moskvu. Sam-
kvæmt heimildum Reuters
virðist mönnum nú að sú för hafi
aldrei verið farin. Fimm vikum
síðar var íbúð hans í úthverfi
Austur-Berlín sett undir yfirlit.
Prófessorinn, sem er 45 ára
Framhald á bls. 26