Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978 31 „Með heiminn í kokinu” Opið bréf til Kristjáns Jóhannssonar frá Guðrúnu Á Símonar Kæri Kristján Jóhannsson. Þakka þér fyrir síðast, það var á Akureyri fyrir 5 árum. Eg myndi nú gefa þér eitt gott ráð, þó svo ég sé ein af þessum minni spámönnum sem þér er mjög tíðrætt um: Þú skalt ekki reyna að hlaupa áður en þú getur gengið: Það var rétt sem Demitz sagði við þig, þú ættir heldur að þegja en syngja meira. Demitz hefur vitað hvað hann var að segja, en ég efast um að þú hafir skilið það, þá hefðir þú ekki endur sagt þessa setningu. Það er leiðinlegt, þegar efnileg- ir söngvarar fara til náms erlendis en koma svo heim eftir nokkra mánuði fullir af lofti og kunnáttu að eigin áliti en er auðvitað mikil vanþekking, og byrja að níða eldri og yngri söngvara, sem hafa staðið vel fyrir sínu, bæði erlendis og hérlendis. Þjóðleikhúsið fékk sinn skerf, eins og við þessir litlu spámenn þínir, frá hinum mikla spámanni. -Sum leikrit, að þínu mati, áttu vart heima í bílskúr. Þú virðist hafa stundað Þjóðleikhúsið fyrst þú leggur svona harðan dóm á óperu- og leikritaval þess. Þar hafa verið færð upp verk eftir Mozart, Verdi, Puccini, Ibsen, Strindberg, Miller, Shakespeare, o.fl. og fl. Þetta eru bara litlir spámenn í augum þess mikla söngvara, sem þú telur sjálfan þig vera. Þú gætir lært mikið af frænda þínum Magnúsi Jónssyni söngvara með meiru, þó ekki væri nema hógværð og lítillæti. Þú gætir verið stoltur, ef þú hefðir tærnar þar sem Magnús hefur hælana. Ég varð þess aðnjótandi að hlusta á söng þinn í útvarpi 1. marz, sl. Þú átt mikið eftir að læra, og ef þú heldur áfram að spenna röddina svona, þá gef ég þér aðeins nokkur ár í viðbót sem söngvara, og finnst mér ég vera mjög rausnarleg með mína spá. Það er ekki nóg að hafa rödd og gaspra út í loftið. Þú hefðir átt að heyra Magnús Jónsson syngja Rodolfo í „La Boheme" og Maurico í „II Trovatore". Þá var hann yngri en þú ert núna. Þessar upptökur eru til á segulböndum, voru þær teknar upp frá útvarpinu af fólki úti í bæ, en þá voru óperurnar fluttar í gegnum útvarpið frá sviðinu. Auðvitað á útvarpið ekki þessar upptökur, en þeir gætu verið stoltir af að flytja þessar upptökur í útvarpið núna, og hvíla sig á þessum „heimsfrægu söngvurum“. Guðrún Á. Símonar. Þessir spilarar koma til með að vera þátttakendur í undanúrslitum íslandsmótsins. Talið frá vinstrii Stefán Guðjohnsen, Hjalti Elíasson, Jóhann Jónsson og Ásmundur Pálsson. Myndin er tekin á Hótel Loftleiðum en þar fara undanúrslitin fram. íslandsmót í sveitakeppni, undanúrslit Um páskana fara fram und- anúrslit íslandsmótsins í sveita- keppni og er væntanlega lokiö undankeppni víös vegar um landiö en alls taka 24 sveitir þátt í undanúrslitunum, og þar af 10 sveitir úr Reykjavík. Spilaö veröur á Hótel Loft- leiðum sem hér segir: 1. umf. miövikud.22/3 kl. 20.00 2. umf. fimmtud.23/3 kl. 13.15 3. umf. fimmtud. 23/3 kl. 20.00 4. umf. föstud.24/3 kl. 13.15 5. umf. föstud.24/ kl. 20.00 Réttur hvers svæöis til þátttöku í undanúrslitunum veröur þessi: sveitir Reykjavík 5 + 5 = Reykjanes 3 + 2 = Suöurland Austurland Noröurland A. Norðurland V. Vestfiröir Vesturland íslandsmeistarar f. árs 10 5 2 1 1 1 1 2 1 Samtals 24 Varasveitirnar: 1. varasveit Reykjavík 2. varasveit Reykjanes 3. varasveit Suöurland 4. varasveit Vestfiröir 5. varasveit Vesturland 6. varasveit Noröurland A. 7. varasveit Austurland 8. varasveit Noröurland V. Vmsar upplýsingar fyrir væntanlega þátttakendur: Keppnisgjöld eru kr. 18 þúsund fyrir sveit aö undan- skildum íslandsmeisturum fyrra árs sem ekki borga. Nöfn spilara skulu tilkynnt eigi síöar en 10 dögum fyrir mót. Spilurum er skylt aö leggja fram kerfiskort er umferö hefst. Eyöublöö veröa hjá keppnis- stjóra áöur en viðkomandi mót hefst. Þeim þátttakendum utan af landi sem hugsa sér aö búa á hótel Loftleiðum meðan á mótinu stendur skal bent á aö mótstjórn hefur samið um lækkaöan dvalarkostnaö. For- maöur mótanefndar er Tryggvi Gíslason, Reykjavík. Bridge Umsjón ARNÓR RAGNARSSON Bridgefélag Kópavogs Fimmtudaginn 2. mars hófst 2 kvölda einmenningskeppni hjá Bridgefélagi Kópavogs, sem jafnframt er firmakeppni félags- ins. Gildir samanlagður árangur bæöi kvöldin í einmennings- keppninni, en í firmakeppninni árangur hvers kvölds fyrir sig og er þar keppt um farandbikar sem Sparisjóöur Kópavogs gaf. Spilaö var í tveimur riölum. í A-riöli náöu besta árangri: Árni Jónasson, Toyotaumboöiö Kristinn Gústafsson, Verkfr.st. Magnúss. Sigríður Rögnvaldsdóttir, Trésmiöja Austurbæjar 102 Guömundur Baldursson, Neon-þjónustan 102 Gunnlaugur Sigurgeirsson, Blómaskálinn 95 í B-riðli náöu besta árangri: stig Haukur Hannesson, Sparisjóöur Kópavogs 114 Haukur Ingason, Hlaöbær 101 Runólfur Pálsson, Sólning h/f 100 Sævin Bjarnason, Fasteignas. Eignaborg 99 Keppninni veröur haldiö áfram í kvöld, 9. mars, kl. 20:00 í Þinghóli Hamraborg 11. Bridgefélag kvenna: Parakeppni félagsins hófst s.l. mánudag 6. marz, og taka Framhald á bls. 28 Stig 106 Guöm. 103 Þinn bíll 15. apríl n.k., - sértu hinn heppni áskrifandi Dagblaðsins. Verðmæti er 4.4 miljónir króna. Gerstu áskrifandi að Dagblaðinu strax í dag. Áskriftarsími 27022. Opiö til 10 í kvöld. MMBUUJIÐ Irjálst, ahað dagblað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.