Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 48
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 P»t«nn6I«kit FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978 Lokun á Eyjaveitu frestað: Ríkisstjóm og bank- ar athuga fjárhags- vanda frystihúsanna ..1>ESSI fjárhagsvandi frystihús- anna í Vestmannaeyjum er nú til meðferðar hjá ríkisstjórninni og hönkunum og meðan verið er að revna að finna lausn á vandan- um þótti rétt að fara fram á það við Rafmagnsveitur ríkisins að þær frestuðu innheimtuaðgerð- 60 eyjar i Breiða- firði seld- ar í einu í VIKUNNI var gengið frá sölu á helmingi eign- arinnar Skáleyjar á Breiðafirði en hér mun vera um að ræða rúmlega 60 eyjar auk hlunninda ýmiss konar. Eign þessi var auglýst til sölu í Morgunblaðinu á sunnu- daginn. Að sögn Bergs Guðna- sonar hdl., sem annaðist söluna, er kaupandinn Reykvíkingur. Hann mun ekki hafa í hyggju að búa þarna. Mikil hlunnindi fylgja með í kaupunum m.a. æðarvarp, selveiði og þangfjörur um sínum um nokkra daga. sagði Gunnar Thoroddsen. iðnaðarráðherra. í samtali við Mbl. í gærkviildi. en að beiðni iðnaðarráðuneytisins féllust Rafmagnsveitur ríkisins á að fresta innheimtuaðgerðum sín- um gegn Vestmannaeyjaveitu, en lokun til hennar átti að koma til framkvæmda á hádegi í dag. Af þeim sex rafmagnsveitum, sem sérstakar innheimtuaðferðir áttu að koma til framkvæmda gegn nú, höfðu allar nema Vestmannaeyjaveitan gert ráð- stafanir í gær til þess að ekki kæmi til lokunar á þær. Gylfi Þórðason, fjármálastjóri Rafmagnsveitna ríkisins, sagði Mbl. að skuldir sex rafmagns- veitna við Rafmagnsveitur ríkis- Framhald á bls. 27 Lending Ljósm. Mbl.i Friðþjófur Félag Loftleiðaflugmanna boðar vinnustöðvun 16. marz — vegna „mistúlkaðra samninga” m.a. um flug hjá Air Bahama FÉLAG Loftleiðaflug- manna hefur boðað verk- fall hjá Flugleiðum frá og með 16. marz. n.k. Örn Johnson, forstjóri Flug- leiða, sagði í samtali við Mbl. í gær, að hann vissi Rarik skuldar Landsvirkjun 700millj. króna „RAFMAGNSVEITUR ríkisins skulda Landsvirkjun nú um 700 milljónir króna. l>ar af eru 550 milljónir í vanskilum, en 150 milljónir gjaldfalla á næstu mánaðamótum.“ sagði Eiríkur Briem. framkvæmdastjóri Landsvirkjunar, í samtali við Mbl. í gær. „Það er þó nokkur bót í þessu máli,“ sagði Eiríkur, „að ríkis- ábyrgðarsjóður hefur frestað innheimtu á lánagreiðslum Landsvirkjunar, sem nú er orðið samtals um 300 milljónir króna. Þetta er þó engan veginn skemmtileg lausn og að sjálf- sögðu álls ekki fullnægjandi. Þetta ástand . veldur Lands- virkjun miklum áhyggjum, enda hefur fyrirtækið orðið að fjár- magna þetta með fé, sem ætlað er til framkvæmda og fengið er með erlendum lánum." ekki af hverju þessi vinnu- stöðvunarboðun stafaði, þar sem hún stæði að hans mati ekki í sambandi við kjarasamninga félagsins. Alfreð Elíasson, forstjóri Flugleiða, sagðist hins vegar telja að vinnustöðv- unin væri til komin vegna einnar ákveðinnar flug- leiðar, sem ekki telst til áætlunarflugs Flugleiða sjálfs. Þegar Mbl. spurði Skúla Guðjónsson, for- mann Félags Loftleiða- flugmanna, hvort vinnu- stöðvunin stæði í sam- bandi við kröfur félags- manna um að fá að fljúga á flugleiðum Air Bahama, dótturfyrirtækis Flug- leiða, en flugmenn þess eru Bandaríkjamenn og Bahamamenn, svaraði hann. „Þessi vinnustöðvun er boðuð vegna þess að það hafa verið gerðir ýmsir samningar, sem hafa verið mistúlkaðir, og varða meðal annars þetta atriði.“ Annað kvaðst Skúli ekki vilja segja að svo stöddu. Samningar Flugleiða og flug- manna hafa verið lausir frá 15. október sl. Flugmenn á vélum Flugfélags íslands eru í Félagi íslenzkra atvinnuflugmanna, sem er samningsaðili fyrir þeirra hönd, en flugmenn á vélum Loftleiða tóku sig út úr því félagi og stofnuðu Félag Loftleiðaflug- manna, sem er þeirra samnings- aðili. Samningar eru nú í gildi við flugfreyjur, flugvirkja og flugvél- stjóra og eru flugfreyjur á vélum beggja félaganna í sama stéttar- félagi og sömuleiðis flugvirkjar og flugvélstjórar. Frosti Bjarnason, flugmaður, sem sæti á í samninganefnd Félags íslenzkra atvinnuflug- manna, sagði í samtali við Mbl. að engar samningaviðræður hefðu átt sér stað milli FÍA og Flugleiða síðustu þrjár vikurnar. Þar áður hefðu verið haldnir 5 fundir án þess nokkur hreyfing kæmist á málin. Um kröfur flugmannanna sagði Frosti, að hvað beina launahækkun varðaði færu flugmenn fram á „það sama og aðrir hafa fengið" auk þess sem þeir hafa sett fram ýmsar kröfur um takmarkanir á flug- tíma og um aukinn hvíldartíma, til dæmis fleiri fríhelgar, sem nú væru aðeins ein í mánuði. Engar vinnustöðvunaraðgerðir hjá Flugfélaginu hafa verið ræddar. Framhald á bls. 26. Stofna starfsmannafélög bæjarfélaga landssamband? A ADALFUNDI Starfsmannafélags Reykjavikurborgar, sem haldinn var síðastliöinn laugardag, kom fram tillga um að fundurinn fæli stjórn félagsins að taka Þegar upp nánar viðræður við fulltrúa annarra starfs- mannafélaga bæjarfélaga í landinu með pað fyrir augum aö stofnað yrði Samband bæjarstarfsmannafélaga. Hlutverk pessa sambands verði aö vinna sem sjáffstæöur aðílí að sameiginlegum hagsmunamálum starfsmanna bæjarfélaga, par á meðal stefnumörkun í kjaramálum og öðrum málum, er snerta faglega og kjaralega stööu pessara starfs- manna. í tillögunni er stjórn Starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar jafnframt falið aö endurskoöa aöild félagsins aó BSRB og leggja fram álitsgerö *um eftirfarandi þrjú atriöi: a) Hvort Samband bæjarstarfsmanna- félaga, ef stofnað verður, skuli eiga sjálfstæða aðild að BSRB. b) Hvort stefnt skuli að því, að slíkt samband segi sig að fullu úr BSRB. c) Hvort aðild Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar aö BSRB skuli veröa áfram með sama hætti og verið hefur, ef ekki kemur til stofnunar Sambands bæjarstarfs- mannafélaga. Geröi tillagan ráö fyrir að niöurstaöa álitsgerðar þessarar skyldi liggja fyrir eigi síðar en í október 1978. Flutningsmaöur tillögunnar var Hinrik Bjarnason, framkvæmdastjóri Framhald á bls. 27 Reglugerð um verðbótaákvæði gefin út i Forsætisráðuneytið gaf í gær út reglugerð um verðbótaákvæði á grundvelli laga um efna- hagsráðstafanir. í frétt forsætisráðuneytisins segir að tilgangur með setningu reglugerðarinn- ar sé að auka verðbætur til þeirra lægstlaunuðu. í upphafi var áætlað, að með starfsmönnum fjár- málaráðuneytis ynnu að gerð reglugerðarinnar fulltrúar launþega og vinnuveitenda en fulltrú- ar launþega höfnuðu því boði. Var þá ákveðið að starfsmenn fjármála- ráðuneytis skyldu í sam- ráði við aðra sérfróða menn vinna að gerð reglugerðarinnar. Tilkynning forsætis- ráðuneytisins er birt í heild á bls. 22 og á bls. 5 er fréttatilkynning frá ASI vegna reglugerðar- innar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.