Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978 Ávarp „lýðræðissinnaðra kommúnista" í Austur-Þýzkalandi — 4. grein Atburöimir frá 17. júní 1953, Þegar uppreisn gegn hinum kommúmsku yfirvöldum braust út í Austur-Berlín, eru enn í minnum hafðir bæði í Austur- og Vestur-BÞýzkalandi. Sovézkar skríödrekasveitir komu fljótlega aftur á „röð og reglu“. Myndin sýnir unga verkamenn frá Austur-Berlín Þramma gegnum Branden- borgarhliðið til Vestur-Berlinar. I þessum hluta ávarps „Samtaka lýðræðissinnaðra kommúnista“ gera austur-þýzku andófsmennirnir innan Flokksins og stjórnarinnar grein fyrir stefnu sinni í málefnum Þýzkalands. Pólitískur framtíðardraumur „Samtaka lýðræðissinnaöra kommún- ista“ í Austur-Þýzkalandi: „ ... Þá væri ekki lengur knýjandi nauðsyn fyrir milljónir Austur-Þjóðverja að flýja Þýzka AlÞýðulýð- veldiö og kommúnísk yfirvöld Þar í landi“. Mynd frá flóttamanna- búðum í Vestur-Berlín á meðan fólkið gat ennbá „greitt atkvæð meö fótunum" eins og Lenin komst að orði á sínum tíma. Allt Þýzkaland 1. Enn hafa sovétmenn ekki náð því takmarki sinu að skipt- ing Þýzkalands skuli vara um aldur og æfi. Stefna foringja kommúnistaflokksins SED í þýzkalandsmálunum hefur hingað til beðið skipbrot. Engin pólitísk aðgerð gat leyst spenn- una við landamærin, né heldur þá spennu sem skapaðist vegna landamæranna. Engar hálfgild- ings fræðilegar hártoganir og vangaveltur yfir þýzku þjóð- inni binda í eitt skipti fyrir öll enda á vandamál þjóðarinnar, sem enn eru með öllu óleyst. öll valdabarátta innan stjórn- málanefndar Flokksins — Ackermann, Zaisser, Herrn- stadt, Oelssner, Schirdewan og Ulbricht gegn Erich Honeeker — var tengd þýzka þjóðar- vandamálinu. Þar með helzt áfram við lýði þessi óróaupp- spretta, sem þrátt fyrir slökun- arstefnuna, er hættuleg heims- friðnum. Sú sögulega reynsla, sem fengist hefur í Ráðstjórn- arríkjunum, Víetnam og Kóreu, sannar réttmæti þeirra fræði- legu alhæfinga hjá sovézkum vísindamönnum, að hinn þjóð- ernislegi þáttur sé langlífari en hinn þjóðfélagslegi. Kenningar og aðgerðir stjórn- málanefndar austur-þýzka kommúnistaflokksins, SED, undir forystu Honeckers eru öndverðar við kenningar og að- gerðir kommúnistaflokkanna í áðurnefndum ríkjum. „Lýðræðissinnaðir kommún- istar“ geta því aðeins komizt til pólitískra áhrifa í Þyzkalandi, að þeir geri kröfu Karls Marx í byltingunni 1848 að sinni eigin kröfu og haldi fast við hana, jafnvel svo áratugum skipti, nefnilega að „allt Þýzkaland verði lýst sameinað, óskiptan- legt lýðveldi“. Breyttar aðstæður 2. Þróun mála að undanförnu gerir það að verkum, að nýjar hugmyndir og ný viðhorf hafa skapast í málefnum Þýzka- lands. Við erum fylgjandi fram- sækinni þýzkri þjóðarpólitík, þ.e. pólitískri stefnumörkun, sem hefur endursameiningu Þýzkalands að markmiði, þar sem jafnaðarmenn, sósíalistar og lýðræðissinnaðir kommún- istar eru í meirihluta gagnvart hinum ihaldssömu öflum. Það yrði stærsta framlagið af Þýzkalands hálfu til að tryggja frið í Evrópu. Þetta Þýzkaland getur og verður að mynda brú milli austurs og vesturs, og myndi eiga snaran þátt i að treysta friðinn i heiminum. A-þýzka markið gjaldgengt erlendis 3. Til þess að undirbúa þessa þróun máia, er hugsanlegt að gera fjölda margar af tillögum austur-þýskra vísindamanna að veruleika + Austur-Þýzkaland gerist meðlimur í Greiðslubandalagi Evrópu. + taki upp samvinnu við Al- þjóóabankann, + austur-þýzka markið verði skráð J erlendum gjaldeyris- mörkuðum og verði gjaldgengt erlendis. 1 reynd er a-þýzka markið þegar orðió gjaldgengt í því formi sem intershopbúðirn- ar og exquist-verzlanirnar eru reknar, svo og með hinum leyfi- lega innflutningi á erlendum gjaldeyri, + tekió verði upp sérstakt berlínar-mark sem gildi i báð- um þýzku ríkjunum og hafi sama verðgildi og mark vestur- þýzka Sambandsbankans. Austur-þýzkir milljónamæringar Þessar efnahagsaðgerðir geta verið bráðabirgða ráðstafanir, til þess gerðar að koma á einum þýzkum gjaldmiðli. Þessum að- gerðum verður svo að fylgja eftir með eigna-upptöku hjá skriffinnum stjórnfnálanefndar Flokksins og austur-þýzkum milljónamæringum. Hinir um það bil 90 milljarð- ar austur-þýzkra marka á bankareikningum þessara manna eru ekki afrakstur heið- arlegrar vinnu, heldur frá vissri upphæð talið, til komnir með arðráni og hreinni spá- kaupmennsku. Til þess að unnt sé að koma á fót sama gjald- miðli fyrir báða hluta Berlínar og gera austur-þýzka markið auk þess gjaldgengt erlendis, verður fyrst að binda endi á skuldasöfnun austur-þýska rík- isins og falla frá verðstöðvunar- aðgerðum gegn verðbólgunni, sem alltaf kraumar undir niðri. Pólitísk hjálp við flokksfélagana Þessar breytingar mundu þýða pólitískt, að hínn svo- nefndi „raunverulegi sósíal- ismi“ gæti loksins lagt niður þennan ómannúðlega svip sinn með Berlinar-múr, deyðingar- útbúnað og jarðsprengjubelti við landamæri Austur- og Vest- ur-Þýzkalands, vegna þess að þá væri ekki lengur fyrir hendi hin knýjandi nauðsyn fyrir milljónir austur-þjóðverja að flýja Þýzka Alþýðulýðveldið og yfirvöldin hér i landi. Þessi ráð- stöfun yrði raunveruleg hjálp i hinni hörðu pólitísku baráttu skoðanabræðra okkar erlendis, og það ekki einungis í Vestur- Evrópu. Nýja tækni og gæðavörur til Austur-Evrópu Hagur sá, sem viðskiptalönd þýzka Alþýðulýðveldisins í Efnahagsbandalagi Austur- Evrópu hefðu af þessari ný- sköpun mála, yrði fljótlega aug- ljós. Austur-Evrópulöndin gætu þá tryggt sé vörur i hæsta gæðaflokki og háþróaðar tækni- vörur, sem meira að segja bærust þeim í hendur á réttum afgreiðslutíma. Vestur-Þýzks efnahags- og atvinnulífs biði nýtt blómaskeið við að hressa upp á hið slælega rekna þróunarland DDR. Ríkjum Vestur-Evrópu mundu opnast greiðar og beinar verzlunar- leiðir inn á austur-evrópskan markað. Og loks gæti tekizt bein samvinna á milli stórfyrir- tækja í Austur- og Vestur- Þýzkalandi á vísindalegum, tæknilegum, efnahagslegum og persónulegum grundvelli. 4. Samfara þessum efnahags- legu ráðstöfunum þurfa einnig að koma til framkvæmda póli- tískar ráðstafanir. I þeim efnum krefjumst við: Komið verði á fullu ferðafrelsi milli Austur- og Vestur- Þýzkalands og öll ónauðsynleg formsatriði við tollskoðun og eftirlit með ferðum fólks milli landshluta verði lögð niður. Við krefjumst sem bráðabirgða- lausnar, að aldurstakmarkið til ferðaleyfa í vesturátt verði lækkað úr 65 niður i 35 ára aldur, þar sem þessir gamlingjar, sem sitja í stjórn- málanefnd Flokksins, geta þó tæplega neitað hálffertugu fólki um sjálfsákvörðunarrétt. Endurgreiðsla vegna menntunar og starfsþjálfunar Það ætti að gera samkomulag milli Bonnstjórnarinnar og stjórnarinnar í Austur-Berlín, sem geri ráð fyrir að fyrirtæki því, sem annast hefur menntun og starfsþjálfun starfskrafts, sem svo síðar flyzt milli lands- hluta og tekur að starfa hjá öðru fyrirtæki, verði greitt að fullu allur sá kostnaður sem fyrirtækið hafði af menntun og starfsþjálfun viðkomandi. Vestur-þýzkir atvinnuleysingjar til Austur-Þýzkal. Þetta samkomulag gæti einn- ig tekið til miðlúnar á vinnu- stöðum handa atvinnulausum vestur-þjóðverjum í austur- þýzkum fyrirtækjum, og alveg sérstaklega til miðlunar á vinnustöðum handa vestur- þýzku æskufólki, sem þarfnast starfsþjálfunar. Reynsla sú, sem júgóslavar hafa fengið af framkvæmd þessara mála sýnir, að verka- menn frá hinum sósíalísku löndum sem starfa í fyrir- tækjum vestrænna auðhringa, öðlast oftast nær víðtækari póli- tíska reynslu og aukna hagnýta þekkingu í fagi sinu. Við krefjumst auk þess ferða- frelsis innan Berlínar, og að DDR-verksmiðjur taki við at- vinnuleysingjum frá Vestur- Berlín og greiði þeim eftir sömu launatöxtum, en það yrðu verkalýðsfélögin að semja um. Quislingar í Flokksstjórninni Þýzkir verkamenn eru eit órofa stétt, og það verða þeir að vera áfram. Full samstaða verður því að ríkja með þeim. Hvorki heimsvaldasinnuð valdapólitík né heldur quislingarnir í stjórnmala- nefnd Flokksins geta gert alda- langa þýzka hefð að engu, og slitið blóðbönd. Sumarleyfi í austri og vestri 5. Það ætti að koma á sam- vinnu-tengslum á breiðum grundvelli á milli vestur-þýzkra verzlanahringa og þjónustufyr- irtækja annars vegar og austur- þýzkra neytendasamtaka hins vegar. Koma ætti á gagnkvæm- um skiptum milli starfsfólks í fyrirtækjum, sem eru i eigu verkalýðsfélaga í Vestur- Þýzkalandi, jafnaðarmanna- flokksins, SPD, og vestur-þýzka ríkisins og starfsfólks í austur- þýzkum ríkisfyrirtækjum, auk þess ætti að koma þannig skipt- um milli félaga i austur-þýzka alþýðusambandinu og í hinu vestur-þýzka, sérstaklega að því er varðar sumarleyfi og hressingardvalir. Hið sama gildir um æskulýðssamtök, íþróttafélög og samtök kvenna. Hiö pólitíska forystulið Þýzka AlÞýðulýðveldisins, stjémmálanefnd Flokksins (Politburo), fær heldur nöturlegar kveðjur frá „Samtökum lýðræðissinnaðra kommúnista“. SAMEINING ÞÝZKALANDS Ferðafrelsi 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.