Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978 19 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI — EFNAHAGSMAL — ATHAFNALlF. Umsjón: Sighvatur Blöndahl Sviss: V erdbólgan þad eina sem lækkar í AUGUM aðkomumanna virðist Sviss vera óhemjudýrt land, hátt verðlag samfara mjög sterkum gjaldmiðli, sem hefilr styrkst um 85% á s.l. sex árum. Því er það sem Svisslendingar eru jafnan spurðir: „Hvernig í osköpun- um er hægt að lifa hér?“ — Svarið er einfalt: Svisslend- ingar hafa vel efni á því að borga eigin verðlagningu, því þeir eru alltaf í hæsta flokki hvað varðar launagreiðslur í hinum vestræna heimi. Sem dæmi um þetta má nefna að byrjunarlaun múrara eru rúmlega 2000 íslenzkar krón- ur á tímann, en hækka síðan verulega. Arslaun sporvagns- stjóra eru frá 6 milljónum íslenzkra króna. Á sama tíma og þetta skeður er Sviss með langlægstu tölu verð- bólgu í heiminum eða 1,3% árið 1977, 1,7% árið 1976 og í ár er reiknað með að hún fari enn lækkandi og verði í kringum 1,0% á árinu. Hvað varðar verðlag almennt stendur það mikið til í stað, hefur síðan 1974 aldrei farið upp fyrir kauphækkanir launa- fólks i landinu. AtJandshafsflug- fargjaldastríðið enn í algleymingi HAFT er eftir áreiðanlegum heimildum f Hvíta húsinu, að Bandaríkjastjórn hyggist taka mun fastari tökum flugfargjaldamálin yfir Atlantshafið milli Banda- ríkjanna annarsvegar og Bretlands og annarra Evrópulanda hins vegar og jafnvel fara fram á endur- skoðun samnings þess er Bandaríkjamenn og Bretar gerðu með sér s.l. sumar. En á sama tima og þetta kemur fram. kemur bandaríska flugfélagið Seaboard World Airlines með allægsta tilboð í flugfargjaldið milli New- York og London til þessa eða 100 bandaríkjadollarar aðra leið eða 200 bandaríkja- dollarar báðar leiðir sem er 36 bandaríkjadollurum und- ir því fargjaldi sem nú er lægst boðið af brezka fyrir- tækinu Laker. SWA hyggst flytja farþega sína í Jumbo-þotum sínum sem til þessa hafa eingöngu verið notaðar til vöruflutninga. Sá mikli órói sem ríkir í þessum málum kemur mjög glögglega fram í máli bandaríska flugfélagsins Braniff Airwyas nýverið. Bandarísk flugmálayfir- völd neituðu félaginu um að hefja áður auglýstar ferðir frá Dallas í Bandaríkjunum til Gatwick- flugvallar í London vegna þess að bandarísk flugmálayfirvöld töldu H.U SHm J1 JU.v jJ .1J. ,, l-fU'J'i SL'JiU'- i. fargjald Braniff vera of hátt, en félagið hafði þá nýverið hækkað fargjöld sín að skipan breskra flugmálayfirvalda sem töldu þau of lág. í framhaldi þess að Banda- ríkjamenn hafa óskað eftir endurskoðun samnings þess er þeir gerðu við Breta s.l. sumar gera ráðamenn sér nú vonir um að einhvers konar samkomulag náist fyrir 1. apríl n.k. Almennt eru áætlunarflugfé- lögin á Altantshafsleiðinni langt frá því að vera ánægð með útkomuna á þessu flugi, og telja sig af illri nauðsyn hafa þurft að lækka fargjöldin óeðlilega mikið. Þau ná sínu marki engan veginn á þessari leið og hafa jafnframt um 12,5% rekstrarafgang þegar upp er staðið. Að meðaltali er talið að þau hafi þurft að greiða um 65 bandaríkjadollara með hverjum einasta farþega á þessari leið á s.l. ári vegna tilkomu þessara „tombólu" far- gjalda eins og þeir nefna þau og farþegafjöldi áætlunaflugfélag- anna hefur lækkað gífurlega á síðustu mánuðum. Vegna þessa ástands er nú ríkjandi töluverð ringulreið innan IATA, alþjóðasamtaka flugfélaga, og var m.a. haldinn allsherjarfundur aðildarfélaga í þriðja sinn síðan í haust, þar sem þessi mál voru til umfjöllunar. Þar kom fram að aðeins fimmti hver farþegi á Atlantshafsleið- inni borgaði á árinu 1977 fullt fargjald og á þessu ári er talið að þetta hlutfall lækki verulega. » •ji'*. * »* «"■ ' * ' *,“' * »' •í' Sumir versla dýrt — aðrir versla hjá okkur. Okkar verð eru ekki tilboð heldur árangur af hagstæðum innkaupumi Allt í páskamatinn Lambakjöt: Folaldakjöt: Úrbeinaðir hryggir fylltir / ófylltir. Úrbeinuð læri fyllt / ófyllt. Úrbeinaðir frampartar, fylltir / ófylltir. Lambabuff. Londonlamb. Léttreyktir hryggir. Innralærisvöðvar. Mörbráð File. Vöðvar. Buff. Gúllas. Hakk. Karbonaði. Nýreykt folaldakjöt. Saltað folaldakjöt. Nýreykt: |\|ýtt svínakjöt: Hangilæri. Úrbeinað hangilæri Hangiframpartar. Úrbeinaðir hangiframpartar. Nýsviðin svið. Hreinsuð svið. Hryggir. Kótelettur. Læri. Bógar. — úrbeinað og með beini. Kjúklingar: peykt svínakjöt Urvlrlol/nil/lmnor ■ ^ Holdakjúklingar Kjötkjúklingar. Grillkjúklingar. Kjúklingalæri. Kjúklingabringur. Rjúpur hamflettar. Rjúpur óhamflettar. Hamborgarhryggir. Hnakkar. Læri. Bógar. Bayonnesskinka — úrbeinað og með beini. STARMÝRI 2 AUSTURSTRÆTI 17 jf*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.