Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978 21 Ásgeir Bjarnason, forseti Sam- einaös Þings, flutti eftirfarandi minningarorð á AIÞingi í gær: „Karl Kristjánsson fyrrverandi al- þingismaöur andaöist í gær, þriðju- daginn 7. mars, í Borgarspítalanum eftir nokkurra mánaöa sjúkralegu, hátt á átttugasta og þriöja aldursári. Til þessa fundar er boöað til að minnast hans. Karl Kristjánsson var fæddur í Kaldbak viö Húsavík 10. maí 1895. Foreldrar hans voru Kristján bóndi þar, síðast í Eyvík á Tjörnesi Sigfússon bónda í Sultum og á Bangastöðum í Kelduhverfi Sigurðs- sonar og kona hans, Jakobína Jósíasdóttir bónda og sjósóknara í Kaldbak og víðar Rafnssonar. Hann stundaöi nám í unglingaskóla í Húsavík veturinn 1909—1910, hóf Karls Kristjánssonar, fyrrverandi alþingism. minnzt á Alþingi gagnfræöanám á Akureyri haustið 1914 og lauk gagnfræðaþrófi vorið 1916. Næstu árin vann hann á búi foreldra sinna, en var jafnframt barnakennari í Tjörneshreppi vet- urna 1916—1920. Á þeim árum var hann valinn ti I forustu í félagsmálum sveitar sinnar. Hann var formaður Ungmennafélags Tjörnesinga 1916—1930, og deildarstjóri í Tjör- nesdeild Kaupfélags Þingeyinga varð hann áriö 1918. Á árinu 1920 hóf hann búskap í Eyvík, og á næsta ári, 1921, var hann kosinn í hreppsnefnd Tjörneshrepps og átti sæti í henni þar til hann lét af búskap og fluttist til Húsavíkur árið 1935. Oddviti var hann frá 1928 og sýslunefndarmaður frá 1931. Hann var annar af tveimur gæslustjórum Kaupfélags Þingeyinga 1920—1925 og var kosinn í stjórn Kaupfélagsins árið 1925. Forstjóri Sparisjóös Kaupfélags Þingeyinga var hann frá 1932—1965. Hohum var falin framkvæmdastjórn Kaupfélags Þingeyinga á þrengingatímum þess 1935—1937, og hann var kosinn í hreppsnefnd Húsavíkurhrepps og var qddviti hennar 1937—1949. Við upphaf Húsavíkurkaupstaðar í árs- byrjun 1950 var hann kjörinn í bæjarstjórn og átti sæti í henni til 1970. Jafnframt var hann fyrsti bæjarstjóri Húsavíkur til hausts 1950. Forseti bæjarstjórnar var hann 1950—1954 og 1955—1962. Karl Kristjánsson var kjörinn alþingismaður Suður-Þingeyinga ár- iö 1949, var síðar þingmaður Norður- landskjördæmis eystra og átti sæti á Alþingi samfellt til vors 1967, sat á 19 þingum alls. Hann var alla sína þingmannstíð skrifari í efri deild, var á tímabili varaforseti sameinaös Alþingis og aldursforseti síöustu árin. Hann átti löngum sæti í fjárveitinga- nefnd og fjárhagsnefnd. Áriö 1939 var hann skipaður formaður endur- skoðunarnefndar löggjafar um sveit- arstjórnarmál. Hann var skipaður í endurskoðunarnefnd löggjafar um skattamál árið 1952. Um þær mundir átti hann sæti í stjórnarskrárnefnd og lagði þar fram tillögur sínar í stjórnarskrármálinu í ársbyrjun 1953. Árið 1957 var hann skipaður í endurskoðunarnefnd vinnulöggjafar- innar og á sama ári formaður endurskoðunarnefndar lagaákvæða um skattamál hjóna. Þingkjörinn endurskoöandi Utvegsbankans var hann 1959—1971. Hann var skipaö- ur í samninganefnd um kísilgúrverk- smiöju árið 1965 og átti sæti í stjórn kísilgúrverksmiðjunnar og síöar Kísil- iðjunnar 1966—1971. Karl Kristjánsson var mikill félags- maður. Hér hefur verið drepið á ýmislegt af störfum hans að félags- málum og þó eigi nærri allt taliö. Ungur var hann talinn til foringja fallinn. Um hálfa öld var hann forustumaður í sveitarstjórnarmálum heima í héraöi. Hann var einn forgöngumanna að stofnun Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og átti sæti í fulltrúaráði þess frá stofnun sambandsins til þess er hann lét af sveitarstjórnarstörfum vegna aldurs. Var hann þá kjörinn heiöursfélagi sambandsins. Hann gjörþekkti sögu sveitarmálefna á heimaslóðum sín- um, og bæjarstjórn Húsavíkur fól honum aö draga saman efni í sögu sveitarfélagsins. Var þaö aöalstarf hans síöustu æviárin, og vann hann að því verki svo lengi sem starfs- kraftar entust. Karl Kristjánsson var samvinnu- maður og gegndi margs konar forustustörfum í Kaupfélagi Þingey- inga. Naut það mannkosta hans lengi og vel, og var hann kjörinn heiðursfé- lagi Kaupfélagsins á 90 ára afmæli þess. Karl Kristjánsson var atgervismað- ur. Hann var góðbóndi um skeiö, hafði gott fjárbú og naut hesta- mennsku bæði þá og síðar, var ágætur tamningamaður. Hann kunni margar aðrar íþróttir, var rammur aö afli, stundaði glímu og var alla tíð áhugamaður um glímuíþróttina. Orðsins list var honum töm. Hann var Ijóðelskur, skáldmæltur og hagorður, orti fleygar stökur og ritaði íslenskt mál með glæsibrag. Hann var listaskrifari, vandaði allt, sem hann lagöi hönd að. Ræðumennska hans var gjörhugsuð og rökföst. í einni vísu sinni líkti hann lífi mannsins viö ástæður þess manns, sem fer á skóg með eina ör, á þessa leið: „Dauðinn kemur, dýrt er fjör, dagsins stutt aö njóta, sá, sem hefur eina ör, ei má gálaust skjóta." Ég vil biöja háttvirta alþingismenn að minnast Karls Kristjánssonar meö því að rísa úr sætum Matthías Bjarnason heilbrigðismálaráðherra: Stj ómarfrumvarp um þroskaþjálfa Matthías Bjarnason heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra mælti í gær fyrir stjórnarfrumvarpi um þroskaþjálfa í efri deild Alþingisi menntun. starfssvið og starfsréttindi. Framsaga ráðherrans fer hér á eftir. Þroskaþjálfar menntun og réttindi Frumvarp það, sem hér liggur fyrir um þroskaþjálfa er samið í heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu eftir beiðni Félags þroska- þjálfa og er að miklu leytí byggt á tillögum félagsins. Frumvarp þetta er að flestu leyti samhljóða öðrum lögum, sem sett hafa verið á undanförnum árum til þess að tryggja hinum ýmsu heilbrigðisstéttum lögvernduð starfsréttindi. Stétt þroskaþjálfa er tiltölulega ung hér á landi. Það mun hafa verið árið 1958 að settur var á stofn við Kópavogshælið svo nefndur Gæslusystraskóli Islands. Einn helsti hvatamaður að stofnun skólans var Björn Gestsson, for- stöðumaður Kópavogshælis og var hann fyrsti skólastjóri óg gegndi því starfi allt til ársins 1977. í fyrstu var það fyrst og fremst hlutverk þroskaþjálfa að veita skjólstæðingum sínum líkamlega aðhlynningu og hjúkrun. Gengu þær konur, er þessum málum sinntu undir nafninu gæslusystur. í dag eru störf þroskaþjálfa ekki síður uppeldisstörf. Má þannig segja að nafnbreyting, þ.e.a.s. úr gæslusystur yfir í þroskaþjálfa endurspegli breytt viðhorf almennings gagnvart þroskaheft- um og auknum mannréttindum þeim til handa. Það eru ekki síst þroskaþjálfar, sem stuðlað hafa að þessum breyttu viðhorfum. Þroskaþjálfar eru eina starfs- stéttin hér á landi, sem sérstaklega er menntuð til þess að þjálfa, ala upp og veita þroskaheftum um- önnun. Gert er ráð fyrir að þroskaþjálfar starfi með þroska- heftum einstaklingum hvar sem þeir dveljast. Þannig er starf þroskaþjálfa ekki eingöngu við það miðað að þeir starfi inni á stofnunum þar sem slíkir ein- staklingar eru vistaðir. Þroska- þjálfar eru ennfremur eina starfs- stéttin, sem sérstaklega er mennt- uð til þess að veita stofnunum fyrir þroskahefta forstöðu, þar sem Þroskaþjálfaskóli Islands er eini skólinn hér á landi, sem veitir markvissa kennslu í uppbyggingu og starfsemi slíkra stofnana. Engum blandast hugur um það, að störf þroskaþjálfa eru nijög vandasöm og krefjast einstakrar þolinmæði. Er því mjög brýnt að gerðar séu sérstakar kröfur um þjálfun og menntun þeirra aðila er slík störf stunda. Þroskaheftir og samíélagið Þroskaþjálfaskóli íslands hefur á undanförnum misserum tekið miklum breytingum. I upphafi var námið að mestu leyti þundið við vangefna og störfuðu þroskaþjálf- ar í fyrstu nær eingöngu með vangefnum einstaklingum. Fljót- Matthías Bjarnason heilbr. og tryggingaráðherra. lega urðu þroskaþjálfar eftirsóttir til starfa með því fólki, sem víkur frá því eðlilega á einhvern hátt, andlega eða líkamlega. Þroska- þjálfaskólinn hefur fylgt þessari þróun og miðast námið nú við fleiri tegundir fötlunar en vangefni. Það skal þó skýrt undirstrikað, að starf með vangefnum er, og verður aðal starfsvettvangur þroskaþjálfa. Starf með þroskaheftum er ekki lengur afmarkað innan þröngra veggja stofnana. Sífellt eru gerðar meiri kröfur til þess, að þroska- heftir einstaklingar fái að taka þátt í samfélaginu, að svo miklu leyti, sem þeir eru færir um það sökum fötlunar sinnar. Samfélagið sem slíkt er að mörgu leyti vanbúið til þess að taka á móti þroskaheft- um og þarf að gera mikið átak til þess að berjast gegn gömlum fordómum, sem beinast gegn þroskaheftum, en sem eru nú á öru undanháldi. Það er ekki síst hlutverk þroskaþjálfa að berjast f.vrir breyttum viðhorfum sam- félagsins svo að þroskaheftir njóti þeirra þjóðfélagsréttinda, sem þeir að sjálfsögðu hafa jafnt og aðrir samfélagsþegnar. Þroskaþjálfar, sem starfa á stofnunum, þurfa að sjá til þess að öllum störfum skjólstæðinga þeirra sé fullnægt, bæði andlegum og líkamlegum. Auk þess að sjá um alhliða velferð þeirra þurfa þroskaþjálfar að einbeita sér að hverjum og einum og skipuleggja þjálfunaráætlun fyrir hvern ein- stakling. Slíkar áætlanir ná yfir vítt svið allt frá frumstæðustu athöfnum, og upp í það að undir- búa hann til að flytja á fjölskyldu- heimili eða að fara í störf á hinum almenna vinnumarkaði. Það er ennfremur í verkahring þroska- þjálfans að annast undirbúning til þess að hinir þroskaheftu ein- staklingar geti tileinkað sér bók- legt nám. Hvað snertir bóklega kennslu sérstaklega, þá hefur þeirfi reglu verið fylgt að þroska- þjálfi starfi sem aðstoðarmaður sérkennara. Sérmenntað og sérþjálfað íólk Hvað snertir hjúkrun sérstak- lega, þá er hún undirstaða tilveru þroskaheftra og ómissandi undir- búningur fyrir alla aðra meðferð og þjálfun. Það er í verkahring þroskaþjálfa að veita þessa hjúkr- un. Ennfremur verður hann að fylgjast vel með breyttri líðan einstaklings og gera grein fyrir þeim við lækni og annað sam- starfsfólk og á stundum að taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi meðferð. Störf þroskaþjálfa eru ennfrem- ur í flestum tilfellum verkstjórnar- störf, þar sem langflestir þroska- þjálfar veita forstöðu deild eða annarri einingu innan stofnunar, t.d. vinnustofu, leikskóla eða veita heilli stofnun forstöðu. í námsskrá Þroskaþjálfaskóia íslands- er sér- staklega gert ráð fyrir undir- búnings menntun til þessara starfa. Eitt hið mikilvægasta í þessum málum er að gott samstarf mynd- ist milli foreldra og aðstandenda og má segja að það sé einhver nauðsynlegasta forsenda til þess að markviss árangur náist í þjálfun. Það er ekki hvað síst hlutverk þroskaþjálfans að vinna að og efla tengsl milli foreldra og stofnunar. Ýmist vinnur þroskaþjálfi að þessu einn eða í samvinnu við sér- fræðinga. Með hliðsjón af framansögðu er augljóst að störf þroskaþjálfa eru viðtæk og ekki á færi nema Framhaid á bls. 28 Sjá eim þingef á bls, 34 og 35 Þingmannafrumvarp: Ríkisendurskoðun skal óháð, ríkis- stjóm, ráðuneytum og ríkisstofnunum Heyri beint undir Alþingi og lúti þingkjörinni stjórn. Sinni ríkisbönkum og hlutafélögum, sem ríkiö er aöili að HALIiDÓR Ásgrímsons (F) hefur lagt fram á alþingi frumvarp til laga um ríkisendurskoðun. Sam kvæmt frv. verður ríkisendur- skoðunin sem stofnun óháð rfkis- stjórn, ráðuneytum og öðrum opinberum stofnunum og fyrir- tækjum. en heyrir beint undir Alþingi. Stjórn ríkisendurskoð- unar skal skipuð sex mönnum. Rfkisendurskoðandi skal vera formaður hennar en Alþingi kýs 5 stjórnarmenn úr hópi þing- manna. Stjórnin ræður ríkis- endurskoðanda og vararíkis- endurskoðanda og skuiu báðir vera löggiltir endurskoðendur og óháðir í starfi sínu. Ríkisendur- skoðandi ræður starfsfólk til ríkisendurskoðunar. er hafi til þess sérþekkingu og sé með öllu óháð ráðuncytum og ríkisstofn- unum, sem það vinnur að endur- skoðun hjá. Ríkisendurskoðun skal byggð upp í tveimur starfs- deildumi endurskoðunardeild og skipulagsdeild. Skipulagsdeild vinni að skipulagningu f starf- semi ríkisins m.a. í því skyni að bæta nýtingu fjármuna og ná auknum sparnaði í rekstri. Ein- stök ráðuneyti og stofnanir skulu leita til skipulagsdeildar varð- andi skipulagsverkefni. Ríkisendurskoðun skal annast endurskoðun ríkisreiknings; stöfn- ana, sjóða og annarra þar sem kostnaður eða reikningslegt tap er greitt af ríkissjóði skv. fjárlögum eða af öðrum tekjum skv. sérst. lögum; fyrirtækja eða stofnana, sem rekin eru á ábyrgð ríkissjóðs eða ríkisstjóður á meiri hluta í, þar með talin ríkisbankar ög hlutafélög; reikningsskila Alþing- is. Endurskoðun skal einkum ná til: a) hvort reikningsskil gefi glögga mynd af rekstri og efna- hag, b) hvort þeir gerningar og starfsemi, sem reikningsskil fjalla um, séu i samræmi við heimildir fjárlaga, annarra laga, fyrirmæla og almennar starfsvenjur, c) mat skal á það lagt, hvort nauðsynleg Framhald á bls. 33.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.