Morgunblaðið - 09.03.1978, Page 4
4
■ blMAR
IO 28810
car rental 24460
bilaleigan
GEYSIR
BORGARTUNI 24
LOFTLEIDIR
TS- 2 1190 2 11 38
Fjórir hestar
brunnu inni
Akureyri, 7. marz.
ELDUR kviknaði í hesthúsi ofan
við Akureyri skömmu eftir mið-
nætti í nótt með þeim afleiðing-
um að þar brunnu inni fjögur
hross. Eigandi hesthússins og
hestanna, sem þar voru, var að
þýða frostna vatnsleiðslu með
kósangastæki, þegar hann allt í
einu missti eldinn í plasteinangr-
un hússins, svo að hún fuðraði
upp og húsið var nær alelda á
skammri stund. Maðurinn gat
bjargað sex fullorðnum hestum
út úr húsinu en hins vegar tókst
honum ekki að hleypa út einu
trippi og þremur folöldum, sem
voru í annarri stíu, svo að þau
brunnu inni.
Hesthúsið sem var járnvarið
timburhús stendur að vísu uppi,
en er afar mikið skemmt. Aföst
hlaða slapp hins vegar svo og
heyið sem í henni var. Hesthúsið
var óvátryggt og hestarnir
einnig.
- Sv.
Rækjuveiði
hafin .
í Eskifirði
Eski/irði 28. febrúar.
HÉR Á Eskifirði er búið að taka
á móti 32.654 lestum af loðnu
það sem af er vertíðinni, þar af
er búið að írysta um 26 tonn og
er þetta meira magn en kom hér
á land alla vertíðina í fyrra.
Bræðsla í verksmiðjunni gengur
mjög vel og munu afköst vera
helmingi meiri en fyrir stækk-
unina sem gerð var í vetur.
Búuð er að skipa út 1850
tonnum af mjöli og 500 tonnum
af lýsi. Tveir bátar eru byrjaðir
með net en afli hefur verið rýr til
þessa, þó kom Vöttur með 22
lestir úr róðri.
Nýlunda er að rækjuveiði er
hafin í firðinum og afli hefur
verið góður af fallegri rækju.
Hafa Sátarnir verið með upp í
800 kg eftir daginn. Rækjan er
flutt til Djúpavogs til vinnslu en
trúlega hugsa einhverjir til
hreyfings með rækjuvinnslu hér.
Ákveðið verður í kvöld í verka-
lýðsfélaginu hvort verkfall
verður hér á morvun.
Ævar.
AKil.YSINf, \
SIMINN F.R:
22480
útvarp Reykjavík
FIIV14ÍTUDKGUR
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15
og 10.0.
Morgunleikfimi kl. 7.15 ol
9.05.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
9.15> Guðrún Ásmundsdótt-
ir heldur áfram að lesa
„Litla húsið í Stóru-Skóg-
um" eftir Láru Ingalls
Wileer (9). Tilkynningar
kl. 9.30. Þingfréttir kl.
9.45. Létt lög milli atr. Um
fæðingarhjálp og foreldra-
fræðslu kl. 10.25i Hulda
Jensdóttir forstöðukona
Fæðingarheimilis Reykja-
víkurborgar flytur annað
erindi sitt. Tónleikar kl.
10.45.
Morguntónleikar kl. ll.OOi
Vladimír Horowitz leikur
Píanósónötu nr. 10 op. 70
eftir Alexander Skrjabín/
Werner Richter, Ándor
Karolyi og Hans Eurich
%eika Serenöðu í G-dúr
fyrir flautu, fiðlu og lág-
fiðlu op. 141 a eftir Max
Reger/ Aimée van de Wiele
og hljómsveit Tónlistar-
skólans í París leika
„Concert Champétre" fyrir
sembal og hljómsveit eftir
Francis Poulenct Georges
Prétre stj. ^
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.25 Verðurfregnir og frétt-
ir. Tilkynningar.
Á frívaktinni Sigrún
Sigurðardóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Um skólamál
Fjórði og síðasti þáttur
fjallar um stuðnings-
kennslu og ráðgjöf.
Umsjónarmaðurt Karl
Jeppesen.
15.00 Miðdegistónleikar
Sinfóníuhljómsveit
Lundúna leikur „Drekana
frá Villars", forleik eftir
Aimé Maillarti Richard
Bonynge stj. Renata
Tebaldi syngur aríur úr
óperum eftir Giuseppe
Verdi. Ríkishljómsveitin í
Brnö leikur „Nótnakverið"
ævintýraballettsvítu eftir
Bohuslav Martinúi Jirí
Waldhans stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Verðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.30 Lagið mitt
Hclga Þ. Stephensen
FÖSTUDAGUR
10. mars
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá
20.35 Prúðu leikararnir (L).
Leikhrúðurnar skemmta
ásamt Bernadette Peters.
Þýðandi Þrándur Thorodd-
sen.
21.00 Kastljós (L). Þáttur um
innlend málefni. Umsjón-
armaður Guðjón jeinars-
son.
22.00 Tungiið og tícyringur
(The Moon and Sixpence).
Bandarísk bíómynd frá
árinu 1942, bygg ásam-
sam nef sögu eftir Somer-
set Maugham, sem komið
hefur út í íslenskri þýð-
ingu Karls fsfelds. Aðal-
hlutverk George Sanders
og Ilerbert Marshall.
Verðbréfasalinn Charles
Strickland lifir fáhreyttu
lífi þar til dag nokkurn, að
hann yfirgefur konu sina,
heldur til Parísar og tekur
að fást við málaralist.
Þýðandi Heba Júh'usdóttir.
23.25 Dagskrárlok.
kynnir óskalög barna inn-
an tólf ára aldurs.
18.10 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Daglegt mál
Gísli Jónsson menntaskóla-
kennari flytur þáttinn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja
20.15 Leikritið Reíurinn eftir
D. H. Lawrance. Þýðandi
og leikstjóri Ævar R. Kvar-
an.
21.25 Einleikur í útvarpssal.
21.55 Þingkosningarnar í
Frakklandi. Friðrik Páll
Jónsson fréttamaður flytur
erindi.
22.20 Lestur Passíusálma
Þórhildur Ólafs guðfranii-
nemi les 38. sálm.
22.30 Verðurfregnir. Frétt-
ir.
22.50 Spurt í þaula
Einar Karl Haraldsson
stjórnar umræðuþætti, þar
sem Vilmundur Gylfason
situr fyrir svörum. Þáttur-
inn stendur allt að klukku-
stund.
Fréttir. Dagskrárlok.
Leikrit vikunnar
Vinkonurnar
og hermaðurinn
Vilmundur Gylfason
Spurt t
þaula
Klukkan 22.50 í kvöld er
þátturinn „Spurt í þaula“ í
útvarpi. Einar Karl Haralds-
son stjórnar umræðuþætti, þar
sem Vilmundur Gylfason
menntaskólakennari situr fyrir
í kvöld klukkan 20.10
verður flutt í útvarpi Ieikrit-
ið „Refurinn" eftir D.H.
Lawrence. Þýðandi er Ævar
R. Kvaran, og er hann
jafnframt leikstjóri. Hlut-
verk eru þrjú og leikendur
eru Margrét Guðmundsdótt-
ir, Helga Bachmann og
Bjarni Steingrímsson.
„Refurinn" er raunar
byggður á samnefndri skáld-
sögu Lawrence, en David H.
Godfrey hefur búið efnið til
flutnings í útvarpi. Vinkon-
urnar Ellen March og Jill
Banford búa saman í litlu
húsi í sveitaþorpi. Þangað
kemur ungur maður, sem
gegnt hefur herþjónustu,
Henry Grenfel að nafni.
Hann er að leita að afa
sínum, sem búið hafði í
húsinu. Henry sezt að hjá
þeim vinkonunum, enda hef-
ur hann fengið augastað á
Ellen.
Þetta er sérstætt leikrit,
þar sem draumur og veru-
leiki blapdast saman. Refur-
inn, sem Ellen er að eltast
við, er raunverulegt mein-
dýr og táknmynd í senn.
David Herbert Lawrence
fæddist í Eastwood í Eng-
landi árið 1885 og lézt í
nágrenni Nizza árið 1930.
Ungur gerðist hann kennari,
en veiktist af berklum og
varð að hætta því starfi.
Fyrsta skáldsaga hans,
„Hvíti páfuglinn", boðar að
vissu leyti nýja stefnu,
meira frjálslyndi í kynferð-
ismálum, gagnrýni á þröng-
sýni og tepruskap. Frægasta
bók Lawrence, „Elskhugi
lafði Chatterleys", þykir
varla nein klámsaga nú á
dögum, en hún var bönnuð í
Englandi um árabil. Önnur
þekkt saga er „Synir og
elskhugar", sem byggir að
nokkru á atburðum frá
æskuárum höfundar. Law-
rence skrifaði „Refinn“ árið
1923 og lætur hann gerast
'nokkrum árum fyrr, eða í
lok heimsstyrjaldarinnar
fyrri. Auk skáldsagnanna
orti Lawrence ljóð og sendi
frá sér smásögur. Þetta er
annað leikritið, byggt á
sögum D.H. Lawrence, sem
útvarpið flytur. Hitt var
„Tengdadóttirin" 1976.
Ævar R. Kvaran
Margrét Guðmundsdóttir
Helga Bachmann