Morgunblaðið - 09.03.1978, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 09.03.1978, Qupperneq 7
1 MORGUNBLAÐIÐ.'FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978 7 Ummæli um vísitöluna. Vísir fjallaði nýverið í ieiðara um vísitölumál og sagði m.a. orðrétti „í framhaldi af mis- hcppnuðum. ólöglegum verkfallsaðgerðum forystumanna Alþýðu- sambandsins og Banda- lags starfsmanna rfkis og bæja, er eðlilegt að í alvöru verði farið að huga að nýju vísitölu- kerfi. Skerðing verðbóta- vísitölunnar var óneitan- lega það tilefni sem for- ystumenn þessara stóru launþegasamtaka notuðu í því skyni að hvetja til þessara ólöglcgu upp- lausnaraðgerða. Þó að þessar aðgerðir hafi að meira og minna leyti misheppnast er full ástæða til að taka vísi- tölumálin til sérstakrar meðferðar. bað er ein- faldlega kórrétt, sem Þjóðviljinn sagði fyrir nokkrum árum, að vísi- tölukerfið ætti stóran þátt í því, að verðbólgan hefur verið meir hér en í nálægum löndum undan- farna áratugi. f byrjun stjórnartíma- bils núverandi ríkis- stjórnar var formaður Alþýðubandalagsins þeirrar skoðunar, að koma yrði í veg fvrir að kaup æddi upp a eftir verðlagi eftir einhverjum vísitölureglum eins og þeim, sem við höfum búið við, því að það kippti stoðunum undan eðlileg- um atvinnurekstri. Þó að Lúðvik Jóseps- son sé annarrar skoðun- ar um þessar mundir, sýna þessi ummæli, að hann hefur sýnt þessu vandamáli skilning við aðrar pólitískar aðstæður en nú eru, þegar skammt er til kosninga. Leiðtogar annarra stjórnmála- flokka hafa á hinn bóg- inn að undanförnu látið í Ijós ákveðinn áhuga á nýju vísitölukerfi.“ Ummæli Gylfa Þ. um vísitöluna. Gylfi Þ. Gíslason hefur itrekað látið í ljós áhuga á kaupgjaldsvísitölu, sem byggði á þjóðhagsvísi- tölu, þ.e. þjóðartekjum og verðhreyfingum útflutningsafurða okkar. Um þetta efni segir Vísir í tilvitnuðum leiðarai '1 Láðvtk Jósepsson. „Dr. Gylfi Þ. Gfslason skrifaði m.a. mjög athyglisverða grein í Vísi fyrir skömmu um vísi- töiukerfið og sýndi með skýrum rökum fram á galla þess. Það mælir t.d. rýrnandi viðskiptakjör til hærri launa, og aukin framlög til opinberrar þjónustu eins og heilsu- gæslu hafa sömu áhrif. Þegar til lengdar lætur stendur verðmæta- sköpunin ekki undir þessari sjálfvirku krónu- tölufjölgun. Og þá er verðlausum krónum stungið f launaumslögin. Kjarni málsins er sá, að menn verða að átta sig á því í eitt skipti fyrir öll að þessar verðlausu verðbólgukrónur bæta alls ekki lífskjörin. Stundum er því haldið f am að deilur um vfsi- tölukerfið séu þáttur í hagsmunaágreiningi vinnuveitenda og laun- þega. betta er þó blekk- ing, þvf að þegar allt kemur til alls er þetta kerfi andstætt hagsmun- um beggja.“ Fara saman við sjónarmið stjórnar- flokka. Enn segir Vísiri „Afstaða stjórnmála- manna til vísitölukerfis- ins hefur ekki ráðist af ólfkum grundvallarhug- myndum, heldur flokks- pólitfskum aðstæðum. Þar hefur spurningin um hlutverk stjórnar og stjórnarandstöðu svo og nálægð kosninga ráðið miklu meira um eins og dæmin sýna. Sjálfstæðisflokkurinn er næst stærsti flokk urinn innan verkalýðs- hreyfingarinnar og á auk þess sterkust ítök meðal atvinnurckenda á frjáls- um markaði. Formaður þessa flokks hefur marg- sinnis lýst áhuga sfnum á Framhald á bls. 33. RR BYGGINGAVÖRUR HE Suöurlandsbrau t 4. Simi 33331. (H. Ben. húsiö) STÁL OG EMELERAÐIR ELDHÚSVASKAR Emeleruðu vaskarnir eru fáanlegir í brúnum, grænum og gulum lit. Svipmyndir á svipstundu Svipmyndir í hvert skírteini Svipmyndir sf. Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjóðleikhúsinu SKÍÐAMÓT ÍSLANDS 1978 fer fram í Reykjavík, dagana 21. — 26. marz. Dagskrá: 21. marz kl. 1 4 mótssetning kl. 15, 1 5 km ganga 20 ára og eldri 10 km ganga 17—19 ára 22. marz kl. 1 4 skíðastökk 20 ára og eldri Skíðastökk 17—19 ára Norræn tvíkeppni 23. marz kl. 1 3 stórsvig, konur kl. 1 4 boðganga kl. 1 5 stórsvig karla 24. marz Skíðaþing 25. marz kl 1 1 svig, konur, karlar, fyrri ferð. kl. 1 3 30 30 km ganga kl. 1 5 svig, kónur, karlar, seinni ferð. 26. marz kl. 1 3 flokkasvig Þátttökutilkynningar skulu hafa borist mótsstjóra Halldóri Sigfússyni, Vesturbergi 84, fyrir kl. 18, föstudaginn 12. marz, ásamt þátttökugjaldi. Nafnakall fer fram á mótsstað, hverju sinni 1. klst. fyrir keppni, nema i stórsvigi, 2 klst. fyrir keppni. Mótsstjórn I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.