Morgunblaðið - 09.03.1978, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978
—ÁLHAMÍX
„Brýnasta verkefni Íslendinga á næstu árum er að
umbótanna eru rækilegar umræður."
Eftir Hannes Hólmstein Gissurarson.
Vandi sjávarútvegsins
Að taka ákvörðun i stjórnmálum er oftast að
velja um óþægilegan kost og annan óþolandi,
sagði Edmund Burke Það er satt, að þessi
heimur er ófullkominn, kostir hans sjaldan
góðir Nýlegar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar i
efnahagsmálum eru dæmigerðar Þær eru
óþægilegar, en að öðrum kosti blasti við 40%
verðbólga og 5000 millj. kr halli á rekstri
þjóðarbúsins Ég ætla að fara örfáum orðum
um ráðstafanirnar og tillögur stjórnarandstöð-
unnar i þessari grein, þvi að brýnasta verkefni
íslendinga á næstu árum er að bæta hagskipu-
lagið, og undanfari umbótanna eru rækilegar
umræður Ráðstafanirnar eru til skammtíma-
lausnar hins venjulega vanda sjávarútvegsins
Hvers vegna er vandi sjávarútvegsins venjuleg-
ur? Vegna þess að þessi atvinnugrein er
mjólkurkýr íslendinga, og þeir blóðmjólka
hann, ef svo má taka til orða Framleiðni er
miklu meiri í sjávarútvegi en öðrum atvinnu-
greinum, því að fiskimiðin eru einu umtals-
verðu auðlindir íslendinga (að orkulindunum
undanteknum) íslendingar nota í vissum skiln-
ingi verðbólgu til að færa fjármagn frá honum
til annarra atvinnugreina: Fiskverðshækkun á
útlendum markaði eða aflaaukning (eða hvorar
tveggja) valda launahækkun sjómanna og fisk-
verkunarmanna Launahækkun þeirra veldur
eftirspurnaraukningu þeirra, launahækkunar-
kröfum í öðrum atvinnugreinum og launa-
hækkunum bænda (en laun bænda eru tengd
með lögum við laun sjómanna) Launa-
hækkunarkröfum i öðrum atvinnugreinum en
sjávarútvegi er flestum eða öllum sinnt vegna
einokunarvalds verkalýðsrekendanna, þó að
framleiðni í þessum atvinnugreinum gefi ekki
tilefni til þeirra, og þær valda vöruverðs-
hækkunum En vöruverðshækkanirnar valda
launahækkunarkröfum. sem enn er sinnt
vegna einokunarvaldsins Komið er í víta-
hring verðbólgunnar Aðstaða sjávarútvegsins
á útlendum markaði versnar við allar
kostnaðarhækkanirnar. en aðstaða útlendra
fyrirtækja á innlendum markaði batnar
Rekstrarhalli verður i sjávarútvegi og á þjóðar-
búinu, því að fiskverðshækkun á útlendum
markaði og aflaaukning halda að lokum ekki í
við hækkanirnar innan lands Fiskverðshækk-
un og aflaminnkurt valda einnig verðhækkun-
um, þvi að verkalýðsrekendurnir þola fyrir-
tækjunum ekki lækkun launa i peningum svo
að nauðsynlegt er að fella peningana i verði
Ráðstafanir ríkisstjórnarinnar i efnahagsmálum eru til þess að jafna halla þjóðarbúsins,
tryggja afkomu útflutningsfyrirtækjanna og fulla atvinnu launþega, halda almennum lifskjör-
um óbreyttum, en bæta lífskjör láglaunamanna. Þær eru óþægilegar, en að öðrum kosti blasti
við 40% verðbólga og 5000 millj. kr. halli á rekstri þjóðarbúsins.
Halda lýðskrumararnir, að hægt sé að hækka rauntekjur almennings um 40—50%, þegar
þjóðartekjur hækka um 7%? Halda þeir, að rétta ráðið til að hægja á verðbólgu vegna
umframeftirspumar sé að auka þessa eftirspurn með niðurgreiðslum? Halda þeir, að vandi
atvinnuveganna verði leystur með aukinni skattlagningu á þá?
bæta hagskipulagið, og undanfari
skatts" og annars sliks Þessar tillögur eru
fráleitar Til þess eru margar ástæður I fyrsta
lagi eru útflutningsfyrirtækin rekin með halla
vegna innlendra kostnaðarhækkana.en þó ætla
stjórnarandstæðingar að leggja á þau og önnur
fyrirtæki) 10% aukaskatt og veltuskatt! Veltu-
skattur er langranglátasti skattur, sem til er á
fyrirtæki, þvi að ekki er lagt á hreinar tekjur
fyrirtækisins, heldur á stærðina eina. skattur-
inn hvetur þess vegna til óhagkvæmra
rekstrarstærða. kemur illa niður á stórum fyrir-
tækjum með slæma afkomu. í öðru lagi eru
kostnaðarhækkanirnar einkum launahækkanir
(bæði launahækkanir i sjávarútveginum sjálf-
um og verðhækkanir á vörum frá öðrum at-
vinnugreinum vegna launahækkana i þeim
atvinnugreinum), en litið sem ekkert á að gera
við þeim! í þriðja lagi ætla þessir menn að
greiða vörur niður um 3200 millj. kr. og auka
þannig eftirspurn. þegar verðbólgan er vegna
umframeftirspurnar! í fjórða lagi eru allar
aðrar fjáröflunartillögur þeirra óra unhæfar,
bæði 1 500 millj. kr lækkun rikisútgjalda og
1000 millj. kr. hækkun rikistekna Nægilega
vandasamt verður að nota heimild rikisins til
1000 millj. kr útgjaldalækkunar
Aðferð sina kalla stjórnarandstæðingar
„niðurfærsluaðferð" en hún er réttnefnd
„undanfærsluaðferð" Að þessum tillögum
standa að minnsta kosti tveir hagfræðingar, dr.
Gylfi Þ. Gíslason, formaður þingflokks Alþýðu-
flokksins. og Ásmundur Stefánsson, hagfræð-
ingur Alþýðusambands íslands Báðir kenna
þeir i viðskiptadeild Háskóla íslands Geta þeir
horft framan i nemendur sina sem fræðimenn
eftir að hafa gert þessar fráleitu tillögur sem
stjórnmálamenn? Sannleikurinn er sá. að þetta
lýðskrum nær ekki nokkurri átt Halda lýð-
skrumarnir, að hægt sé að hækka rauntekjur
almennings um 40—50%, þegar þjóðartekjur
hækka um 7% Halda þeir, að rétta ráðið til að
hægja á verðbólgu vegna umframeftirspurnar
sé að auka þessa eftirspurn með niðurgreiðsl-
um? Halda þeir, að vandi atvinnuveganna
verði leystur með aukinni skattlagningu á þá? í
óskalandi stjórnarandstæðinga gerast krafta-
verkin, kostnaðarhugtakið er ekki notað, lifs-
gæðin eru ótakmörkuð En það er ekki á
þessari jörð Eina aðferðin til að gefa þessum
lýðskrumurum jarðsamband er líklega sú að
leyfa þeim að vinna fyrir sér með öðru en
Ráóstafanir ríkisstjómarinnar
Verðbólgan er notuð vegna þeirrar leikreglu
hagsmunahópanna. að launin lækki alls ekki
(þótt kaupmáttur þeirra lækki) Allt kemur í
sama stað niður í íslenzka hagkerfinu. og vandi
sjávarútvegsins er verðbólgan, þegar hún færir
of mikið fjármagn frá honum til annarra
greina
Óumflýjanleg gengisfelling
Hvernig er hægt að jafna rekstrarhalla
sjávarútvegsins? Hvernig er með öðrum orðum
hægt að færa fjármagn frá öðrum atvinnu-
greinum til sjávarútvegsins? Þrjár aðferðir eru
til aðferð niðurfærslu, millifærslu og upp-
færslu. Niðurfærsluaðferðin er almenn, inn-
lend verðlækkun, bæði lækkun og verðs
vinnuafls (launa), verð á innlendum vörum er
fært niður. Millifærsluaðferðin er stofnun
styrkjakerfis. fjármagn er fært á milli atvinnu-
greina Uppfærsluaðferðin er gengisfellmg auk
annarra ráðstafana. verð á útlendum vörum er
fært upp. Flestir eru sammála um, að niður-
færsluaðferðin sé æskileg frá fræðilegu sjónar-
miði og að millifærsluaðferðin hafi reynzt ís-
lendingum mjög illa En niðurfærsluaðferðin er
allt að því óframkvæmanleg vegna aðstæðna á
íslandi. og því hefur uppfærsluaðferðin oftast
verið notuð síðustu tvo áratugina Ríkisstjórnin
núverandi kaus enn þá aðferð til að jafna
fyrirsjáanlegan rekstrarhalla sjávarútvegsins.
hún notaði gömlu úrræðin vegna gömlu vand-
ræðanna. felldi gengið um 13% Enginn mað-
ur með fullu viti efast um það. að gengisfell-
ingin var óumflýjanleg Að henni gengu allir
menn í verðbólgunefnd rikisstjórnarinnar visri
Gengið var i rauninni fallið, en ekki fellt. Það
fellur, ef og þegar þjóðarbúið er rekið með
halla, ef og þegar eftirspurn eftir útlendum
gjaldeyri er meiri en framboð hans Réttara er
þvi að ræða um gengisfall en gengisfellingu
Aðgerðir
ríkisstjórnarinnar
Skrásetning gengisfalls („gengisfelling") er
ekki nægileg, ráðstafanir í efnahagsmálum eru
nauðsynlegar i framhaldi hennar Rikisstjórnin
fór i flestum efnum að ráðum sérfræðinganna i
verðbógunefnd, Jóhannesar Nordals, Jónasar
Haralz og Jóns Sigurðssonar, reyndi að gera
málamiðlun efnahagslegra takmarka Hverjar
eru aðhaldsaðgerðir rikisstjórnarinnar. og til
hvers eru þær gerðar? (1) Þær eru helmingun
samningsbundinna verðbóta á laun á þessu ári
til þess að brjóta vitahring verðhækkana og (2)
sala spariskirteina fyrir 1 500 millj. kr. til þess
að draga úr umframeftirspurn Þessar aðgerðir
tryggja hallalausan rekstur fyrirtækjanna á
þessu ári og halda verðbólgunni óbreyttri Auk
þeirra var ætlunin að taka óbeina skatta úr
visitölureikningi á næsta ári til þess að auka
ráðrúm rikisstjórnarinnar til hagstjórnar með
fjárlögum, en fallið var frá því til þess að friða
verkalýðsrekendurna, sem létu öllum illum
látum vegna helmingunar verðbótanna Hverj-
ar eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar til þess að
tryggja hag almennings? Þær eru (1) 5%
hækkun barnabóta. (2) 2% lækkun vörugjalds,
(3) lækkun vöruverðs með 1300 millj kr
niðurgreiðslum, (4) hækkun tryggmgabóta um
sama hlutfall og hækkun launa. (5) viðbótar-
hækkun við almennar bótahækkanir láglauna-
fólks, (6) lágmarkshækkun verðbóta láglauna-
fólks Þessar aðgerðir tryggja einkum hag
láglaunafólks. en almennur kaupmáttur ráð-
stöfunartekna helzt óbreyttur Fjár til þessara
aðgerða hyggst rikisstjórnin afla með 1000
millj. kr. lækkun rikisútgjalda og bmdingu
10% tekna félaga og stofnana i rikissjóði
Flestar eru þessar ráðstafanir óumflýjanlegar.
og rikisstjórnin þorði að leysa vandann til
skamms tima þrátt fyrir væntanlegar þingkosn-
ingar, en hún verður að minu mati að fylgja
þeim eftir með ströngum aðgerðum til verð-
jöfnunar i peningamálum. einkum hækkun
vaxta og jöfnun allra lánskjara opinberra sjóða
Óþægilegur kostur samningsrofs var að þessu
sinni tekinn fram yfir óþolandi kost verðbólgu
og rekstrarhalla þjóðarbúsins. niðurfærsluað-
ferðin var tekin fram yfir undanfærsluaðferð
lýðskrumaranna Hitt er annað mál. að finna
má að þessum ráðstöfunum Allt er verðbóta-
kerfið meingallað, það er engin vörn gegn
verðbólgu, eins og reynslan hefur sýnt Var
helmingunin nægileg? Verðbætur eða visitölu-
tryggingar launa eru alls ekki leyfðar með þeim
vestrænu þjóðum, sem búa við mesta vel-
megunina Liklega eru aðgerðir ríkisstjórnar-
innar til þess að tryggja óbreyttan hag almenrv
ings allt of rausnarlegar. ef verðbólgan á að
hjaðna, rikisstjórnin hefur tekið vonina um
vinnufrið fram yfir verðhjoðnun Sjálfsagt var
reyndar að hækka lágmarkstekjur láglauna-
fólks En önnur launajöfnun er varasöm.
Niðurgreiðslur rikisins voru og eru mjög
óhyggilegar að mínu mati, þvi að þær auka
eftirspurn, en verðbólgan er vegna umfram-
eftirspurnar Á öllum þessum ráðstöfunum er
einnig sá annmarki frá sjónarmiði frjálshyggju-
manna, að þær færa rikinu aukin völd, samrv
ingar á vinnumarkaðnum eru rofnir og ráð-
stöfunarfé rikisins aukið En auðveldara er i
orði en verki að virða frelsi atvinnurekenda og
verkalýðsrekenda til þess að semja verðbólgu-
sammnga Að gefnum aðstæðum varð að hafa
vit fyrir þeim Með þvi að frjálshyggja er ekki
algeng skoðun með íslendingum og lýðræði er
aðferð samkomulags, ber frjálshyggjumönnum
að sætta sig við þessar ráðstafanir þrátt fyrir
allar fræðilegar aðfmnslur og reyna að vinna
skoðun sinni fylgi Stjórnmálin eru í vissum
skilnmgi list hins framkvæmanlega. eins og
stundum er sagt
Tillögur
lýðskrumaranna
Lýðskrumararnir hafa gjammað fram i þær
umræður um efnahagsmál. sem timabærar
voru á íslandi, þeir flaðra upp um lýðinn að
venju Hverjar eru tillögur stjórnarandstæð
inga til lausnar efnahagsvandanum? Þeir
gerðu þær i verðbólgunefnd og tóku upp i
fjölmiðlum við fögnuð allra ábyrgðarleysingj
anna Þeir ætla að lækka verðlag vara (annarra
en vinnuafls) með niðurfellingu 6800 millj. kr
vörugjalds og 3200 millj.kr aukningu niður-
greiðslna Fjár til þessara aðgerða hyggjast
stjórnarandstæðingar afla með 10% hækkun
skattsfyrirtækja,10%bindingu tekna fyrirtækja,
4300 millj. kr hækkun veltuskatts. 1500
millj kr lækkun rikisútgjalda, 2000 millj kr
sölu spariskirteina og 1000 millj. kr tekju-
hækkun rikisins „vegna betri innheimtu sölu-
þrætubókarlestri og fjölmiðlafleipri — að fella
þá með öðrum orðum i kosningum
Viðbrögð
verkalýðsrekendanna
Árangur ríkisstjórnarinnar (að visu við góðar
aðstæður) i efnahagsmálum fyrstu ár hennar er
umtalsverður, verðbólgan hjaðnaði úr 53% í
26% Verðbólgusamningarnir á síðasta ári
gera þennan árangur að engu, ef þeir halda
gildi sínu Verðbólgan er verðfall peninga.
peningarnir falla i verði, ef og þegar fleiri
kröfum hagsmunahópanna er sinnt en hægt er
innan takmarka þjóðartekna Tekjuskiptingin
er með öðrum orðum framkvæmd með verð-
bólgu. ríkið kaupir frið á vinnumarkaðnum
með aukningu peningamagns En verðbólgan
er óhagkvæmt tæki til tekjuskiptmgar og veld-
ur ranglæti, kemur niður á láglaunamönnum.
lifeyrisþegum og sparifjáreigendum Hún hef-
ur stórlega hægt á hagvexti siðasta aldarfjórð-
unginn. dregið úr raunverulegum lífskjarabót-
um alls almennings Kjósa verkalýðsrekendur
— þeir, sem selja vinnuafl og kalla einokunar-
hring sinn „verkalýðshreyfingu" — og
stjórnarandstæðingar að halda í þetta verð-
bólgukerfi?
Dólgsleg viðbrögð þeirra við ráðstöfunum
rikisstjórnarinnar og tilraunum hennar til mála-
miðlunar stafa annað hvort af vanþekkingu
þeirra á efnahagsmálum eða af ótta um valda-
stöðu þeirra Valdastaða verkalýðsrekendanna
er bundin þeirri blekkingu, sem almenningur
trúir, að kjarasamningar ráði öllu um raunveru-
leg lifskjör launamanna. en þjóðartekjur engu
(Almenningur á vegna trúgirni sinnar eins sök
á verðbólgunni og foringjar hagsmunahóp-
anna) Rikisstjórnin gerir það auðvitað sér til
gaman að rjúfa kjarasamninga skömmu fyrir
kosningar að sögn lýðskrumaranna! Lýð-
skrumararnirstefna að verðbólgu, og verðbólg-
an breytist i óðaverðbólgu, hún veldur atvinnu-
leysi, þegar til lengdar lætur. og að lokum
þjóðargjaldþroti, ef ekki verður að gert Skolla-
leikur hagsmunahópanna er harmleikur allrar
þjóðarinnar Mál er að linni