Morgunblaðið - 09.03.1978, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978
25
AF-myna.
Japanska lögreglan á hér í höggi viö fólk sem batzt samtökum um að mótmæla lagningu flugvallar
í nágrenni Tókýó. Flugvöllurinn var lagður fyrir nokkrum árum og hefur um tíma verið tilbúinn
til notkunar. Taka á flugvöllinn formlega í notkun 30. marz, en til að reyna að fresta þeirri athöfn
reyndu mótmælendurnir að koma í veg fyrir að flugvélaeldsneyti yrði flutt til vallarins.
Kuwait vill að
olíuverð hækki
Kuwait. Nikósíu. 8. marz. AP.
Olíumálaráðherra Kuwait vill,
að olíuframleiðslulöndin í OPEC
hækki verulega olíuverð þar sem
tekjur olíuframleiðenda hafa
rýrnað vegna lækkunar Banda-
ríkjadals á gjaldeyrismarkaði.
Auk þessarar kröfu vilja fleiri
arabískir olíumálaráðherrar að
hætt verði að miða olíuverð við
dollar. en líklega verða Saudi-
Efnir Jörgensen
til þingkosninga?
Kaupmannahöfn. 8. mars. AP.
EFTIR að ljóst er að Jafnaðar-
mannaflokkur Ankers Jörgen-
sens vann góðan sigur í dönsku
sveitarstjórnar kosningunum á
þriðjudag velta menn nú
vöngum yfir því hvort forsætis-
ráðherrann muni færa sér upp-
reisnina í nyt og efna til
þingkosninga síðar á árinu.
í einu af blöðum stjórnar-
andstöðunnar segir á miðvikudag
að það hljóti að freista Jörgen-
sens á „yfirþyrmandi hátt“ að
efna til kosninga eftir að flokkur
hans vann 37,4% allra atkvæða,
en Jafnaðarmannaflokkurinn
náði 33,2% atkvæða í síðustu
sveitarstjórnarkosningum 1974.
Undir venjulegum kringum-
stæðum þykja sveitarstjórnar
kosningar í Danmörku ekki mjög
þungvægar í þjóðmálabaráttu
landsmanna, en úrslit ksoning-
anna á miðvikudag renna stoðum
undir niðurstöður, er skoðana-
kannanir hafa sýnt, að Jafnaðar-
manna flokkurinn myndi að
Anker Jörgensen
öllum líkindum vinna góðan sigur
færu þingkosningar fram nú.
Þegar úrslitin lágu fyrir var þó
ekki að heyra á forsætisráð-
herranum að hann hefði í bígerð
að láta skyndikosningar fara
fram. I þingsölum var þó
auðheyrt á miðvikudagsmorgunn
að nálægar kosningar væru
mönnum ofarlega í huga.
Alls greiddu 70% þeirra, sem
kosningarétt hafa atkvæði í
sveitarstjórnarkosningunum en
það er 10% fleiri en 1974. í
kosningunum kom góð frammi-
staða íhaldsflokksins einnig heim
og saman við skoðanakannanir.
Hann hlaut 13,6% greiddra at-
kvæða. Enn hallaði undan fæti
fyrir Vinstri flokknum og var
útkoma hans aðeins 15,5%.
Framfaraflokkur Mogens
Glistrups fékk 8% greiddra
atkvæða en flokkurinn hiaut 16%
atkvæða í síðustu þingkosning-
um.
Jafnaðarmenn unnu 26 sæti í
Kaupmannahöfn og bættu við sig
fjórum. Vantar þá því aðeins tvö
þingsæti til að ná þar meirihluta.
Veður
víða um heim
Amsterdam 9 rigning
Apena 18 skýjaó
Berlin 8 rigning
Briissel 10 skýjað
Chicago +2 skýjað
Frankfurt 7 skýjað
Genf 5 mistur
Helsinki 2 skýjaó
Jerúsalem 23 sólskin
Jóhannesarb. 23 sólskin
Kaupmannah. 6 skýjað
Lissabon 20 sólskin
London 13 skýjað
Los Angeles 24 skýjaó
Madrid 15 sólskin
Malaga 17 skýjað
Míami 23 skýjað
Moskva 1 skýjað
New York 3 skýjað
Ósló 6 skýjað
Palma 15 léttskýjað
París 12 léttskýjað
Róm 15 heiöríkja
Stokkhólmur 1 skýjað
Tel Aviv 24 sólskin
Tókýó 15 sólskin
Vancouver 12 skýjað
Vínarborg íf skýjað
Arabar andvígir þeirri hug-
mynd.
Fjármálaráðherra Kuwait hélt
óvænt til Saudi-Arabiu í dag til
fundar við leiðtoga landsins.
Fjármálaráðherrann ráðgast við
leiðtoga Saudi-Arabíu um
hvernig bregðast skuli við tekju-
tapinu sem olíuframleiðendur
hafa orðið fyrir.
Vegna lækkunar dollarans eru
tekur Kuwait af ólíu nú einni
milljón dollara lægri í dag en
áður. Ali Khalifa Al-Sabah olíu-
málaráðherra landsins vill að
olíuverð hækki vegna tekju-
tapsins og í því sambandi farið
fram á að OPEC-löndin fundi hið
fyrsta.
Margir arabískir leiðtogar hafa
tekið undir kröfur Khalifa, og
segja að rýrnun dollarans kippi
grundvellinum undan olíuverðs
ákvörðunum á Caracas ráðstefnu
OPEC í desember. Einnig vilja
ráðamenn að látið verði af því,
a.m.k. að hluta, að miða verð olíu
við Bandaríkjadal.
Nektin leggst á
þann siðvanda
Duhlin. 8. marz. AP
HELZTI baráttumaður gegn klámi
á írlandi. Joseph B. Murray að
nafni. fékk hjartaáfall er hann sá
hálfnakinn kvenmann hirtast á
sjónvarpsskerminum. Hann er
sagður þungt haldinn. en þetta var
annað áfallið sem hann verður
fyrir.
Joseph, sem er sjötugur að aldri,
fékk sitt fyrra hjartaáfall er hann
horfði á framhaldsmyndaþátt í
sjónvarpi, sem í augum margra íra
jaðraði við ósiðsemi. Vegna mót-
mæla presta var sýningum á þeim
hætt. Murray, sem er talinn siða-
vandastur allra manna á írlandi, er
talinn í lífshættu eftir þetta annað
hjartaáfall.
7 millj. manna vannærð-
ar í Sahel-eyðimörk
Tveir myrtir
á N-írlandi
Róm. 8. marz. Reuter.
SJÖ milljónir manns þjást af
vannæringu í Saheleyðimörk-
inni í Afríku. Til að afstýra
varanlegum erfiðleikum á
svæðinu þarf að koitia til meiri
háttar alþjóðlegt endurreisnar-
starf. að því er Edouard Saouma
framkvæmdastjóri Matvæla-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
(FAO) skýrði frá í dag.
Sahel-eyðimörkin nær yfir átta
lönd og sagði Saouma, að ástand-
ið á svæðinu væri nú jafn
alvarlegt og þegar miklir þurrkar
geisuðu þar 1973.
Edouard Saouma skoraði á
ríkari þjóðir heims að standa að
hjálparstarfi í Saheí-eyðimörk-
inni. Hann sagði að þörf væri
fyrir a.m.k. 457,000 lestir af
matvælum þangað en enn vantar
180,000 lestir í viðbót við það sem
nú er tryggt.
Ríkari þjóðir heims hafa gefið
Matvælastofnuninni 500 milíjón-
ir Bandaríkjadala á síðustu 5
árum, en stofnunin áætlaði að
þörfin .væri um 7,5 milljarðar.
Eduardo sagði ástandið í Sahel
átakanlegt dæmi um að heiminn
skorti enn í dag matvælaforða-
búr.
Protadown. 8. marz. AP.
TVEIR kaþólskir menn voru
skotnir til þana í Portadown
á Noröur-írlandi í dag, að
sögn lögeglu.
Mennirnir tveir, sem báðir
voru rúmlega tvítugir, létust
samstundis er þeir urðu fyrir
kúlnahríð snemma í dag.
Morðingjarnir komust undan
á mótorhjóli.
Móðir annars hinna myrtu
var myrt fyrir þremur árum
en eiginmaður hennar slapp
alvarlega særður úr þeirri
árás. Nokkrum mánuðum
eftir þá árás var einn sonur
þeirra drepinn í sprengjuárás
á heimili hans.
Þetta gerðist
Fjöldahandtökur
Rawalpindi. 8. marz Reuter.
LÖGREGLA hóf í dag fjölda-
handtökur f bænum Lahor á
stuðningsmönnum AIi Bhuttos
fyrrum forsætisráðherra
Pakistans. að því er áreiðanleg-
ar heimildir hermdu.
Talið var að yfir 100 manns
hefðu verið handteknir.
Handtökurnar í Lahore eiga
sér stað aðeíns þremur dögum
áður en Ali Bhutto verður leiddur
fyrir rétt ákærður um að misnota
opinbera sjóði sjálfum sér og
flokki sínum til framdráttar.
Réttarhöldin fara fram í fangelsi
því þar sem Bhutto er í haldi.
Verða þau fyrir luktum dyrum að
því undanskildu að tíu blaða-
menn fá að vera viðstaddir.
1977 — Carter forseti af-
léttir banni við ferðum Banda-
ríkjamanna til Kúbu, Víetnam,
Norður-Kóreu og Kambódíu.
1971 — John Gorton lætur
af starfi forsætisráðherra
Ástralíu.
1963 — Georges Bidault,
andstæðingur De Gaulles,
handtekinn í Þýzkalandi.
1959 — Hermannauppreisn
bæld niður í Mosul í Irak.
1956 — Makaríos erkibiskup
fluttur frá Kýpur til Seychell-
es-eyja.
1942 — Japanir ná Jövu á
sitt vald.
1916 — Mexíkanar undir
forystu Pancho Villa ráðast á
Columbus í Texas.
1905 — Japanir sigra Rússa
við Mukden.
1876 — Tyrkir byrja fjölda-
morðin á Búlgörum.
1862 — Fyrsta viðureign
brynvarinna skipa: Suðurríkja-
freigátan „Merrimack" hörfar
fyrir „Monitor" við Hampton
Roads í Virginíu.
1860 — Fýrsti sendiherra
Japana í Bandaríkjunum kem-
ur til San Fransisco.
1846 — Fyrsta Sikhastríðinu
lýkur með Lahore-samningn-
um.
1796 — Napoleon kvænist
Jósefínu.
1661 — Mazarin kardináli
devr og einræðisstjórn Loðvíks
XIV hefst.
1556 — David Rizzo, ritari
Maríu Skotadrottningar,
myrtur.
Afmæli eiga. Edmund Wall-
er, enskt skáld (1606—1687) —
Americo Vespucci, ítalskur
landkönnuður sem Ameríka
heitir eftir (1451—1512) —
Ernest Bevin, enskur stjórn-
málamaður (1881 — 1951) —
Vyacheslav Molotov rússnesk-
ur stjórnmálamaður (1890----)
— Samúel Barber, bandarískt
tónskáld (1910---).
IlugieiAing dagsins.
Hugsaðu umfram allt sjálf-
stætt þótt þér geti skjátlast —
Goothold Lessing, þýzkt leik-
ritaskáld (1729-1781).