Morgunblaðið - 09.03.1978, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978
Menntaskólanemar í Hamrahlíð efndu í gær til góðaksturs-
keppni á lóð skólans í löngu frímínútunum. Ellefu bifreiðar
tóku þátt í keppninni sem flestir nemendur skólans horfðu
á. Þessa mynd tók RAX af einum þátttakenda.
Búnaðarþing:
Átelur drátt á
breytingu Stofn-
lánardeildarlaga
Flugfélag Austurlands:
Áætlunarflug til
Breiðdalsvíkur og
Fáskrúðsfjarðar
MEÐAL þeirra mála. sem bún-
aðarþing afgreiddi á fundum
sínum var ályktun þar sem
þingið átelur. að lögum um
Stofnlánadeild landbúnaðarins
skuli enn ekki hafa verið breytt
til samræmis við tillögur nefnd-
ar þeirrar. sem vann að endur-
skoðun iaganna og skilaði áliti
til landbúnaðarráðherra
snemma á sl. ári. Segir í
ályktuninni að þingið. telji að
mál þetta þoli enga bið og
skorar á landbúnaðarráðherra
— Vinnustöðv-
un 16. marz
Framhald af bls. 48
Örn Johnson, forstjóri Flug-
leiða, sagði, að hann tæki kröfur
FÍA sem merki þess, að flugmenn
væru ekki tilbúnir til samninga
ennþá, þar sem kröfur þeirra
varðandi takmarkanir á flugtíma
þýddu í raun, að félagið yrði að
stórfjölga flugmönnum á flugvél-
um Flugfélags íslands. Varðandi
launaliðinn sjálfan sagði Örn, að
flugmenn vísuðu til launahækk-
ana, sem almennt hefðu orðið í
landinu.
Ön sagði að Félag Loftleiða-
flugmanna hefði lagt kröfur
sínar fram mun seinna en FÍA.
Kröfur Félag3 Loftleiðaflug-
manna sagði Örn ekki ganga eins
langt varðandi beytingu á vinnu-
stundum og kröfur FIA, en hins
vegar kvaðst hann telja að
varðandi launaliðinn sjálfan
væru kröfur Félags Loftleiða-
flugmanna eitthvað meiri. Örn
sagði, að ekki hefði verið um að
ræða samningafundi við Félag
Loftleiðaflugmanna, en kvaðst
telja, að nú væru þeir að fara í
gang.
Þegar Mbl. spurði, hver laun
flugmanna væru nú, svaraði Örn,
að þau væru mjög mismunandi,
bæði eftir flugvélategundum og
starfsaldri,en um allt að árlegar
hækkanir væri að ræða allt til 25
ára starfsaldurs.
Hæstu launin sagði Örn að þeir
fengju,sem flygju stærstu flug-
vélunum, DC 8 þotum Loftleiða,
og væru hæstu mánaðarlaun
þeirra á níunda hundrað þúsund
króna á mánuði. Þeir sem fljúga
Boeing 727-þotum Flugfélagsins
fá 94% af kaupi DC 8 flugmanna
og þeir, sem fljúga Fokker
Friendship-flugvélum Flugfélag-
rns fengju 92% af launum
Boeing-flugmannanna.
að hlutast til um, að lögunum
um stofnlánadeildina verði
breytt á því Alþingi, er nú situr.
Þá var samþykkt ályktun þar
sem því er beint til menntamála-
ráðuneytisins að það láti hið
fyrsta gera ýtarlega könnun á
ástandi hreindýrastofnsins í
landinu með tilliti til, hvort um
offjölgun hreindýra sé að fæða.
Þingið mælti með því að Alþingi
samþykkti framkomið frumvarp
um búnaðarfræðslu.
Einnig samþykkti búnaðarþing
ályktun í frumvarpsformi um
eftirlit með framleiðslu og verzl-
un á fóðurvörum, áburði og
sáðvörum. Er þar gert ráð fyrir
að eftirlitsdeild Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins sinni, auk
eftirlits með fóðurvörum eins og
nú er, eftirliti með áburði og
sáðvörum.
Loðnan;
27 skip með
11.200 tonn
TUTTUGU og sjö skip höfðu
tilkynnt loðnunefnd um afla
klukkan 22.30 í gærkvöldi,
samtals 11.200 tonn, en þá voru
nokkur fleiri skip að búast til
lands frá miðunum við Stokks-
nes.
Skipin, sem tilkynnt höfðu um
afia, voru Guðfinna Steindórs-
dóttir, 150 og 160 tonn, Arney
150, Steinunn 140, Þórkatla 180,
Skarðsvík 560, Örn 550, Fífill 500,
Glófaxi 120, Helga Guðmunds-
dóttir 570, Grindvíkingur 540,
Súlan 550, Arnar 140, Óskar
Halldórsson 400, Vonin 180,
Gunnar Jónsson 270, Alberg 570,
Gjafar 260, Ljósfari 320, Húna-
röst 620, Hrafn 630, Helga 240,
Börkur 1030, Gullver 550, Hákon
700, Eldvík 500 og Guðmundur
650.
Flest þessara skipa fóru til
Austfjarðahafna og var í gær-
kvöldi í fyrsta skipti á vertíðinni
allt orðið fullt frá Seyðisfirði og
suður úr.
Leiðrétting
í BLAÐINU í gær misritaðist
nafn Ólafar K. Harðardóttur
undir mynd í tónlistargagnrýni.
Blaðið biðst velviröiiigar á þeim
mistökum.
FLUGFÉLAG Austurlands fór í
fyrsta áætlunarflugið til Breið-
dalsvíkur og Fáskrúðsfjarðar á
þriðjudag og er ætlunin að
fljúga þangað tvisvar í viku til
að byrja með. Guðmundur Sig-
urðsson. framkvæmdastjóri
Flugfélags Austurlands, sagði.
að svo miklar annir væru hjá
félaginu. að „það fer að líða að
því að við bætum við okkur
annarri tveggja hreyfla vél og
hclzt þyrfti það að gerast í vor“.
Sagði Guðmundur að helzt væri
rætt um flugvél af gerðinni
Piper Navajo. en flugvélar
þeirrar tcgundar taka 7 — 10
farþega.
Flugfélag Austurlands fékk 9
farþega flugvél af Islandergerð í
júní í fyrra og sagði Guðmundur
að geysilegur fjörkippur hefði
komið í starfsemina með tilkomu
Kvikmyndasýnmg
F'ÉLAGIÐ Ísland-DDR efnir til
sýningar á kvikmynd frá fimleika
hátíðinni SPARTAKIADE DDR í
Leipzig 1977, fimmtudag 9. mars
n.k. að Hótel Loftleiðum kl. 20.30
í ráðstefnusal hótelsins. Dr.
Ingimar Jónsson mun kynna
kvikmyndina og segja frá íþrótt-
um í DDR.
Allsherjarmót unglinga og
barna hafa verið haldin síðan
1965 og sýna þá miklu áherslu,
sem lögð er á íþróttaiðkun og
iíkamsuppeldi barna í DDR.
Kvikmyndin sýnir marga heims-
fræga íþróttamenn.
Fréttatilkynning
— Muzorewa
Framhald af bls. 1.
sama keip er þeir ræddu við
blaðamenn í Washington í dag.
Kom það fram hjá Nkomo og
Mugabe að þeir ætluðu ekki að
ræða við þá sem undirrituðu
samkomulagið og ásökuðu þeir
Breta um að reyna að vinna
Sameinuðu þjóðirnar til fylgis við
það. Þeir sögðu að stríðið myndi
halda áfram svo lengi sem ekki
yrði unnið að lausn, sem Föður-
landsfylkingin gæti fellt sig við.
Báðir leiðtogarnir létu í ljós
vanþóknun á þeirri uppástungu
Davids Owen, utanríkisráðherra
Breta, að leiðtogar þjóðernissinn-
aðra Rhódesíumanna fengju að
leggja mál sitt fyrir öryggisráð
S.Þ. Búizt var við að þeir Nkomo
og Mugabe myndu ávarpa örygg-
isráðið á miðvikudag, en báðir
sögðu að málflutningur þeirra
yrði ekki í neinum tengslum við
tillögu Owens.
Ríkisstjórn hvítra manna í
Rhódesíu vakti athygli á því í dag
að innrás Rhódesíumanna inn í
Zambíu á mánudag, þar sem þeir
felldu að minnsta kosti 38 skæru-
liða, sýndi fram á að það væri
árangurslaust fyrir skæruliða-
sveitir utan landamæranna að
ala þá von í brjósti að þeir gætu
þust inn í Rhódesíu og gert að
engu samkomulag sem innlendir
fulltrúar þjóðerníssinna hefðu
undirritað.
Ýmsir hafa orðið til að gagn-
rýna innrás Rhódesíumanna og
fordæmdi aðalritari S.Þ., Kurt
Waldheim, t.d. innrásins harð-
lega í tilkynningu í dag og sagði
að slík tilþrif væru til þess eins
að spilla friðarhorfum. Þá sagði
forseti Zambíu, Kenneth Kaunda,
frá því á miðvikudag að hann
hygðist senda utanríkisráðherra
sinn til aðalsföðvá S.Þ. til að
mótmæla árásinni.
vélarinnar. Auk þess á félagið
eins hreyfils flugvel, Cessna 185,
sem nú er mest notuð sem
varavél. Tveir fastráðnir flug-
menn starfa hjá félaginu, en
viðhald og viðgerðir annast
tæknideild F'lugleiða.
Auk áætlunarflugsins, sem
hófst á þriðjudag, flýgur félagið
þrisvar í viku til Vopnafjarðar og
Bakkafjarðar, sex sinnum í viku
til Borgarfjarðar, tvisvar í viku
til Seyðisfjarðar, tvisvar í viku til
Norðfjarðar og tvisvar í viku til
Djúpavogs og Hafnar í Horna-
firði.
— Italía
Framhald af bls. 1.
ar en þeir hafa átt að fagna síðan
1947.
Það kom ekki fram hjá fulltrú-
anum hvort sú uppástunga hefði
orðið að veruleika að setja á stofn
nefnd viðkomandi flokka, sem
hafa myndi nánar gætur með
aðgerðum stjórnarinnar. Hins
vegar sagði leiðtogi jafnaðar-
manna, Pierugi Romita, að hann
hefði sett fram kröfur um náið
samstarf stjórnar og forystu-
manna flokkanna og sérfræðinga
þeirra. Slík samráð mundu gefa
kommúnistum mun meiri áhrif
en þeir áttu kost á undir síðustu
minnihlutastjórn kristilegra
demókrata, sem þeir studdu á
óbeinan hátt.
Það tók Andreotti 51 dag að
komast að samkomulagi við hvort
tveggja sína eigin flokksbræður
og kommúnista. Honum tókst að
halda í skefjum 100 flokksbræðr-
um, sem hótuðu að gera uppreisn
yrði af samstarfi við stærsta
kommúnistaflokk á Vesturlönd-
um. Einnig tókst honum að fá
kommúnista til að láta af kröfu
sinni um ráðherrastóla. Hafa
kommúnistar kallað stjórnina
neyðarstjórn, sem nauð reki þá
til að styðja í versta félags- og
fjármálaöngþveiti á Italíu síðan á
stríðsárunum.
— Guðmundur
og Friðrik
Framhald af bls. 2
til þátttöku í skákmóti. Lítið
er vitað um mótið og þátt-
takendur í því nema vitað
var að stórmeistararnir
Geller og Pannó yrðu meðal
keppenda.
Mótinu í Klombíu lýkur 30.
marz og hefur Guðmundur
hug á því að fara beint þaðan
til þátttöku í skákmóti í Lone
Pine í Bandaríkjunum, sem
hefst 2. apríl. Á þessu móti
verður Friðrik Ólafsson að
öllum líkindum meðal þátt-
takenda ásamt 20—30 stór-
meisturum öðrum. Þarna
verða tefldar 9 umferðir
samkvæmt sVissneska kerf-
inu og eru mjög góð verðlaun
í boði eða samtals tæplega 10
milljónir króna. Það er
amerískur milljónamæringur
sem fjármagnar mótið.
— Títo
Framhald af bls. 1.
Hvíta húsinu, hélt Carter ávarp
og skjallaði Júgóslava sem sanna
vini bandarísku þjóðarinnar.
Hann sagði að sjálfstæði og
heilindi Júgóslava væru ein af
máttarstoðum friðar í heiminum
nú og síðar. Þá beindi Carter því
á óbeinan hátt til Sovétmanna, að
þeir héldu sig í fjarlægð frá
Júgóslavíu eftir að marskálksins,
sem nú er 86 ára gamall, nýtur
ekki lengur við.
I ávarpi Títós við sama tæki-
færi komu einnig fram ýmsar
skorinorðar yfirlýsingar og vék
hann m.a. að veru Sovétmanna og
Kúbana í Eþíópíu og sagði, að það
væri öllum fyrir beztu að þeir
hypjuðu sig á brott þaðan. Tító
átti 90 mínútna langan fund með
Carter á þriðjudag og er búizt við
að hann muni eiga frekari
viðræður við hann á fimmtudag,
en þá lýkur för hans til Banda-
ríkjanna. Talið er að á þeim fundi
muni forsetarnir leiða talið að
vopnasölu Bandaríkjamanna til
Júgóslavíu, en talið er að stjórn
Carters hafi fullan hug á að efla
hina sjálfstæðu stefnu, sem
Júgóslavar hafa kosið meðal
kommúnistaríkja, með því að sjá
þeim fyrir nokkrum eldflaugum
og ratsjárkerfum. Varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, Harold
Brown, mun einnig verða við-
staddur fundinn.
— Prófessor
hvarf
Framhald af bls. 1.
gamall, var í nokkur skipti
sendur í leynilegar ferðir til
. Vestur-Þýzkalands á sjöunda
áratugnum og í byrjun þess
áttunda og flutti hann þá orð-
sendingar Stophs til leiðtoga í
Bonn, þegar vænlega þótti horfa
í sáttaumleitunum.
Dr. von Berg kom mjög við
sögu, þegar fundum var í fyrsta
skipti komið í kring milli forystu-
manna í Vestur- og Aust-
ur-Þýzkalandi, t.d. þegar Willi
Stoph kom að máli við Willy
Brandt 1970.
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins í Austur-Berlín var að því
spurður hvað hæft væri í þeim
orðrómi, að prófessorinn hefði
verið tekinn höndum. Sagði hann
að sér væri ókunnugt um slíkar
aðgerðir gegn von Berg. Leiða
menn nú líkur að því, að ástæðan
fyrir hvarfi hans sé missætti í
efstu röðum kommúnistaflokks-
ins.
— Begin
Framhald af bls. 1.
bakka Jórdanár.
Bandarísk stjórnvöld telja hins
vegar að túlka beri samþykktina
á þann veg að Israelsmenn dragi
allt lið sitt til baka frá þeim
svæðum, er þeir unnu af Aröbum
1967. Samþykkt 242 hvetur ísra-
elsmenn til að hverfa „af löndum,
sem þeir nýlega hafa hernumið"
en samþykktin var gerð fimm
mánuðum eftir lok stríðsins.
Begin heldur því fram að þar
sem samþykktin segir ekki „af
öllum löndum" hljóti hún að þýða
„af sumum löndum".
í ræðu í þinginu sagði Allon að
þessi skoðun Begins væri ein-
kennileg og áhyggjuefni. „Heim-
urinn mun ekki fallast á stjórn
Israelsmanna yfir einni milljón
Palestínuaraba á hernumdu
svæðunum," sagði Allon.
Talið er að samþykkt 242 verði
einhver mesti agnúinn í viðræð-
um þeirra Begins og Carters, en
fyrirhugað er að þeir hittist í
næstu viku. Þetta atriði hefur
einnig iðulega borið á góma í
sendiför erindreka Bandaríkja-
stjórnar í Mið-Austurlöndum,
Alfreds Athertons. Atherton hélt
heimleiðis í dag og átti í kvöld
viðræður við utanríkisráðherra
Saudi-Arabíu, Saud al-Faisal,
prins, í Genf.
Varnarmálaráðherra ísraels-
manna, Ezer Weizman, hélt í dag
áfram viðræðum sínum við ráða-
menn hersins í Washington til að
reyna að fá þá til að semja um
sölu á vopnum til ísraelsmanna
um níu ára skeið fyrir jafnvirði
13,5 milljarða Bandaríkjadala.