Morgunblaðið - 09.03.1978, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978
Framsaga menntamálaráðherra;
Embættisgengi kenn-
ara og skólastjóra
Ýmis nýmæli í fræðslukerfínu
VILHJÁLMUR Hjálmarsson, menntamálaráðherra, mælti
nýverið fyrir fraumvarpi til laga um embættisgengi
kennara og skólastjóra, sem felur í sér ýmiss konar nýmæli.
Frumvarpið varðar fjölmenna starfsstétt í þjóðfélaginu og
raunar þjóðina alla þar sem fræðslukerfið varðar hvert
heimili í landinu. Þingsíða Mbl. birtir því ræðu ráðherrans
í heild, m.a. til þess að lesendur þess geti gert sér glögga
grein fyrir efnisatriðum frv. meðan það er enn til umræðu
og meðferðar á Alþingi.
Aðdragandi
Aödragandi að gerð og flutningi
þessa frv. um embættisgengi kenn-
ara og skólastjóra er orðin nokkuð
langur. Er hann rakinn ítarlega í
athugasemdum við lagafrumvarp
þetta. Verður sú saga ekki endurtek-
in hér, en geta vil ég um eftirfarandi:
Hinn 9. desember 1970 skipaði
þáverandi menntamálaráðherra
nefnd til þess að semja eins og þar
stendur „tillögur í frumvarpsformi
um ákvæði varðandi skilyrði, sem
fullnægja þarf til þess að vera settúr
eða skipaður kennari við skyldu-
námsskóla og framhaldsskóla, þ.á m.
menntaskóla og sérskóia".
Um þessar mundir voru í smíðum
frumvörp til laga um Kennarahá-
skóla Islands, um skólakerfi og um
grunnskóla. Frumvarpið um
Kennaraháskólann varð að lögum á
þinginu 1970 — 1971, en hin
frumvörpin hlutu ekki afgreiðslu á
Alþingi fyrr en í maí 1974.
Nefndin skilaði endanlegum tillög-
um 1972, en þar sem frumvörpin um
skólakerfi og um grunnskóla höfðu
ekki náð fram að ganga, mun ekki
hafa þótt tímabært að leggja fram
frumvarp um embættisgengi kenn-
ara að svo stöddu. Málið var því lagt
til hliðar um sinn.,
I lok ársins 1974 var aftur tekið til
við málið. Þá var leitað til sömu
aöila og upphaflera höfðu átt sæti í
nefndinni og farið yfir frumvarpið
með þeim og jafnframt leitað
umsagna hjá háskólunum báðum. Þá
fjallaði einnig samstarfsnefnd
menntaskólastigsins um frumvarpið,
en það er nefnd, sem skipuð er
rektorum og skólameisturum
menntaskólanna og ráðuneytisstjóra
og fleirum úr menntamálaráðuneyt-
inu. Endurskoðun þessi fæddi af sér
nokkrar breytingartillögur. Og eftir
að frumvarpinu hafði verið breytt í
einstökum atriðum án þess þó að
breyta meginstefnu þess, þá var það
sent ýmsum samtökum skólafólks og
fleirum til umsagnar. Enn bárust
nokkrar umsagnir og athugasemdir.
Var það allt yfirfarið vandlega og
leitazt við að samræma fram komin
sjónarmið, sum nokkuð mismunandi
og jafnframt voru höfð í huga ýmis
raunhæf og aðkallandi vandamál,
sem komið geta upp við ráðningu
skólastjóra og kennara.
Það er Ijóst af því sem ég hef nú
greint, að þetta mál hefur fengið
mjög ýtarlegan undirbúning, enda er
frumvarpið eins og það er nú flutt
töluvert breytt frá upphaflegri gerð
þess, enda þótt meginstofninn sé
hinn sami eins og ég drap á áðan.
Námseiningar og
matsnefnd
Frumvarpinu er skipt í þrjá kafla
og eru í honum 1. almenn ákvæði
ýmisleg.
í fyrstu grein er fjallað um nám
kennara almennt og svo fyrirmælt,
að það skuli metið í námseiningum.
Mat samkvæmt slíku einingarkerfi
skal staðfest af matsnefnd, sem
menntamálaráðuneytið skipar þann-
ig að fulltrúar komi frá Háskóla
Islands og Kennaraháskólanum og
loks þriðji nefndarmaðurinn frá
ráðuneytinu skipaður án tilnefning-
ar.
Kennarasamtökin hafa lagt á það
áherslu að eiga fulltrúa í nefndinni.
En eðlilegt þótti að þau væru fyrst
og fremt samráðsaðilar.
I athugasemdum með frumvarp-
inu er þess getið, að tilgangur
greinarinnar sé að stuðla að því, að
allt kennaranám, hvort sem það fer
fram á námskeiðum eða í reglulegum
skélum verði metið á sama- veg.
í þessum 1. kafla eru einnig
ákvæði um það, að allir kennarar
skuli ljúka lágmarksnámi í uppeldis-
og kennslufræðum óháð því skóla-
stigi sem þeir ætla að kenna á. Er
hér bæði átt við fræðilegt nám í
nefndum greinum og svo hagnýt
atriði, sem snerta kennsluaðferðir og
kennslutækni.
Þá er í kaflanum ákvæði, það er
í 3. grein, sem ætlað er að hvetja
kennara til að afla sér aukinnar
menntunar, m.a. að því er varðar
nýjungar í námsefni og kennsluað-
ferðum. En í þessari grein segir, að
kennarar, sem auka við menntun
sína á einhvern hátt, fái þá viðbóta-
menntun viðurkennda, ef fullnægt er
tilteknum skilyrðum.
I frumvarpinu er svo fyrirmælt, að
menntamálaráðuneytið eða ráðherra
setji og skipi yfirkennara og skóla-
stjóra við grunnskóla og framhalds-
skóla alla. En í gildandi lögum eru
þess dæmi, þó að ekki sé það almenn
regla, að forseti Islands skipi
skólastjóra við framhaldsskóla.
Félag menntaskólakennara hefur
gert athugasemd við þetta. Virðist
þó eðlilegt, að samræma þessi
ákvæði og sama regla gildi um alla
skóla í þessu efni.
I þessum 1. kafla frumvarpsins er
að finna ákvæði þar sem bent er á
nokkur þau atriði, sem miða skal við,
þegar gert er upp á milli umsækj-
enda og mælt er fyrir um það, að
allir umsækjendur um stöðu, sem
fullnægja þeim kröfum sem gerðar
eru, komi til álita við veitingu.
Haldið er þeim ákvæðum núgild-
andi laga, að starf sem skipað er
kennara án fyllstu réttinda, skuli
auglýsa árlega.
Kennsluréttindi á
grunnskólastigi
II. kafli laganna fjallar um
grunnskólastigið og er þar kveðið á
um, hvað þurfi sérstaklega til að
vera skipaður kennari við grunn-
skóla. Almenna skilyrðið er að
sjálfsögðu það að hafa lokið námi við
Kennaraháskóla íslands og svo
fullgildum prófum þar og eins
kennaranámi á háskólastigi ásamt
fullgildum prófum, sem miðast við
kennslu í grunnskóla. En auk þessa
eru svo ýmis önnur skilyrði, þegar
um er að ræða kennslu við sérstakar
stofnanir, t.d. stofnanir vegna af-
brigðilegra barna, og til þess að
kenna tilteknar greinar, handmennt,
tónmennt, íþróttir o.fl. Skulu þau
ákvæði ekki rakin nánar hér. Þó vil
ég geta þess, að sérstaklega er tekið
fram, að heimilt sé að ráða að
forskóla fóstrur eða aðra starfsmenn
með menntun, sem menntamála-
ráðuneytið viðurkennir. 1) Ákvæðið
um fóstrur er samhljóða ákvæði í
grunnskólalögunum um sama efni.
SIB hefur sett fram þá kröfu að
fóstrur skildu aðeins starfa undir
eftirliti kennara. En hæpið er að
binda slíkt í lögum.
Framhaldsskólastigið
I III. kafla frumvarpsins er svo
loks fjallað um framhaldsskólastig-
ið. En til þess að verða skipaður
kennari í bóklegum greinum við
framhaldsskólastigið verður um-
sækjandi að hafa lokið námi á
háskólastigi er jafngildi tilteknum
námseiningafjölda ásamt fullgildum
prófum og þar af skal tiltekinn fjöldi
eininga vera nám í uppeldis- og
kennslufræði eða þá í sérgrein, ef um
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra
það er að ræða. í umsögnum frá
Háskóla íslands og Félagi mennta-
skólakennara var talið hæfilegt að
miða við 150—180 einingar (5—6 ára
nám í háskóla) í stað 120. Ef farið
er að tillögum þessara aðila er
líklegt að það stuðli að stéttarlegu
misræmi innan skóla, t.d. fjöl-
brautarskólanna og er þá haft í huga
hvaða menntun aðrir kennarar en
háskólakennarar eiga völ á.
Síðan er í þessum kafla fjallað
nánar um nauðsynleg skilyrði til
þess að öðlast stöðu við ýmsa
sérskóla á framhaldsskólastigi eins
og íþróttakennaraskóla íslands og
verkmennta og listaskóla, iðnskóla,
skóla fyrir afbrigðilega eða þroska-
hefta nemendur o.s.frv.
Við gerð tillagna fyrir sérskóla
hafði nefndin, sem samdi frumvarp-
ið upphaflega, þann hátt á að teknar
voru upp viðræður við skólastjóra
og/eða skólastjórn viðkomandi skóla
og hlutaðeigandi fagkennarafélög,
þar sem um þau var að ræða. Þessum
aðilum voru kynntar tillögur
nefndarinnar um menntun og rétt-
indi kennara í bóklegum greinum við
grunnskóla, framhaldsdeildir gagn-
fræðaskóla (þær urðu síðar felldar
brott úr tillögunum sem sérstakt
skólastig) og menntaskóla og þess.
farið á leit að þeir gerðu hliðstæðar
tillögur um kennara við sérskólana.
Ákvæði frumvarpsins um þessa
skóla eru m.a. byggð á upplýsingum,
sem fengnar voru á þennan hátt.
Nefndin skilaði ekki tillögum um
menntun kennara við þessa skóla:
Fósturskólana, Hjúkrunarskólann,
Húsmæðraskólana og Húsmæðra-
kennaraskóla Islands, en hún taldi
sig ekki hafa forsendur til þess.
Kennarar við þessa skóla hafa sótt
menntun sína til annarra landa og er
þar af leiðandi nokkur mismunur á
menntun einstakra kennara, en
ákvæði gildandi laga eru óljós í
þessu efni. Þegar gengið var frá
frumvarpinu í ráðuneytinu þótti
óeðlilegt að geta þessara skóla (eða
námsbrauta) að engu en jafnillt að
setja inn einhver ákvæði sem væru
óraunhæf. Varð því að ráði að kveða
svo á að hlutaðeigandi kennarar
þyrftu að hafa lokið kennaraprófi
sem menntamálaráðuneytið viður-
kenndi (sjá 15. gr. f- og g-lið og 16.
gr. e-lið). í raun er hér ekki um að
ræða neina breytingu á þeim venjum
og reglum sem miðað hefur verið við
þegar kannarar hafa verið ráðnir að
þessum skólum. Af þessum sökum
þótti ekki brýn ástæða til að hafa
samráð við hlutaðeigandi skóla.
Vera má að síðar verði ástæða til
að breyta þessum ákvæðum og kveða
skýrar á um réttindi og menntun
þessara kennara t.d. ef aðstæður
skapast til að mennta þá hérlendis.
Rétt þótti að fara nokkrum orðum
um þetta atriði serstaklega, en allt
er þetta ítarlega rakið í frumvarpinu
og fylgja allnákvæmar útskýringar
við hverja einstaka þætti nánar, en
vísa til frumvarpsins og athuga-
semdanna, sem því fylgja.
Það gefur nokkra bendingu um
þörfina fyrir löggjöf af því tagi, sem
þetta frumvarp fjallar um, að með
því, ef að lögum verður, verða felld
úr gildi eigi færri en 16 tilgreind lög
eða einstakar greinar úr lögum um
einstakar skólastofnanir. Verður því
stórum hagfelldara að vinna að
ráðningum kennara og skólastjóra
eftir en áður.
Réttindi og
réttindaleysi
I ákvæði til bráðabirgða segir svo
í 19 gr.:
„Þeir sem við gildistöku þessara
laga hafa starfað sem settir kennar-
ar við skyldunámsskóla 6 ár eða
lengur, en fullnægja ekki skilyrðum
laganna til að hljóta skipun í stöðu,
skulu eiga kost á að ljúka námi á
vegum Kennaraháskóla íslands til
að öðlast slík réttindi. Um tilhögun
námsins og mat á fyrri menntun og
starfsreynslu skal setja ákvæði i
reglugerð."
Þetta ákvæði varðar hina marg-
umtöluðu réttindalausu kennara.
Samhljóða ákvæði er í fraumvarpi
til laga um Kennaraháskóla íslands.
Þessari grein, 19. gr. fylgja svohljóð-
andi athugasemdir:
„Á undanförnum árum hefur orðið
að setja til kennarastarfa allmargt
manna, sem ekki hafa full kennslu-
réttindi samkvæmt gildandi lögum
og geta því ekki hlotið skipun í
kennarastöður. I umræðum um þessi
mál hefur verið bent á, að æskileg-
asta lausnin á vanda þessara kenn-
ara sé að greiða þeim leið til að afla
sér fullra réttinda með viðbótanámi.
I þessari grein er gert ráð fyrir
sérstöku átaki við gildistöku laga um
embættisgengi kennara á þann veg,
að þeim sem þá hafa starfað sem
settir kennarar við skyldunámsskóla
sex ár eða lengur, verði gefinn kostur
á að ljúka á vegum Kennaraháskól-
ans réttindanámi, er verði sérstak-
lega skipulagt í því skyni. Er þá haft
í huga, að m.a. gæti orðið um að
ræða sumarnámskeið og bréfaskóla."
Ég vil benda á það sérstaklega, að
her muni í framkvæmd verða tekið
fullt tíllit til þess náms, sem þessir
kennarar hafa stundað hvort sem
heldur er við sókn á fasta skóla
ellegar á námskeiðum og að einnig
verður tekið mikið tillit til starfs-
reynslu viðkomandi kennara, sem
margir hverjir hafa kennt um langa
hríð. Þetta er nýmæli. Tilsvarandi
ákvæði hefur ekki verið að finna í
íslenskri löggjöf að því er ég bezt
veit.
Það hefur mikið verið rætt og
ritað um aðstöðu hinna svonefndu
réttindalausu kennara, og er það að
vonum. í mörgum tilvikum eru þetta
menn, sem starfað hafa árum saman
við ágætan orðstír og beinlínis
AIMAGI
AIMAGI
bjargað við barna- og uhglinga-
fræðslunni í sínum byggðarlögum.
Um skeið var nokkuð rætt um það
að hafa ákvæði í frumvarpinu um
heimild til að skipa til starfa slíka
menn eftir að þeir höfðu kennt í
tiltekinn árafjölda. En horfið var frá
þessu, enda er það almennur vilji
kennara að auka við menntun sína
og engin tregða á því hjá hinum
réttindalausu nema síður sé. En vert
er að benda á það, að nám þeirra
styttist verulega við langan starfs-
tíma.
Ég vil vekja sérstaka athygli á
töflu yfir menntun starfandi kenn-
ara á yfirstandandi skólaári, en hún
er prentuð í athugasemdum með
þessu frumvarpi. í þessari skýrslu
kemur glöggt fram, að starfandi eru
margir kennarar án þess að hafa full
réttindi til þeirra starfa. Ég hef áður
haldið því fram, að orsakir kennara-
skortsins sé m.a. óánægja með
launakjör, að kennaramenntun nýt-
ist mjög vel til fleiri starfa en til
kennslu, almenn tregða fólks í
sumum starfsgreinum við að fara út
á land, en kennarastöður eru einmitt
mjög margar, því að stéttin er
fjölmenn. Áuk þess eru skólar úti á
landi stundum styttri og laun þá
lægri af þeim sökum og eykur það
tregðu manna við að taka störf að
sér undir þeim kringumstæðum. Enn
tel ég, að ónógir möguleikar fyrir
eldri kennara, réttindalausa, að afla
sér viðbótarmenntunar og fullra
réttinda valdi hér nokkru um og svo
tímabundin fækkun brautskráninga
úr Kennaraháskóla íslands. Það er
talið, að um þessar mundir sé aðeins
um 55.5% starfandi af þeim kennur-
um, sem útskrifast hafa síðustu 10
árin úr kennaraskóla, svo að margt
kennaramenntað fólk er raunar til í
landinu. En það er skylt að geta þess
jafnframt, að miklu hærra hlutfall
er í kennslu af síðustu árgöngunum
úr Kennaraháskólanum. Þar er
hlutfallið mjög hátt. Og einnig má í
þessu sambandi minna á það, að
aðsóknin að Kennaraháskólanum
hefur vaxið gífurlega nú síðustu
árin.
t. Ég vil nota tækifærið að benda á
varðandi hæfni kennara án fullra
réttinda, að liðlega 9% eru sér-
menntaðir í kennslugrejn sinni en
skortir próf í uppeldis- og kennslu-
fræði. Sem dæmi má nefna háskóla-
próf í tungumálum og fleiri greinum,
próf frá tækniskólum og iðnskplum,
listaskólum, verslunarskólum og
fleira. Ætla má, að þetta fólk sé
allvel í stakk búið til að kenna sín
sérstöku fög. Þess ber einnig að geta,
að fullur helmingur þeirra 90
kennara, sem aðeins hafa lokið
landsprófi eða gagnfræðaprófi, hefur
kennt í fimm ár eða lengur og þar
af 25 í meira en 10 ár. Reynsla
þessara manna ásamt viðbótar-
fræðslu á námskeiðum, sem flestir
þeirra hafa aflað sér, hjálpar
auðvitað mikið til að gera þá hæfa
til kennslustarfa. Mér fannst ástæða
til að rifja þetta upp, því þetta er
mikilsvert, þegar rætt er um hæfni
hinna réttindalausu. En markmiðið
er auðvitað, að allir kennarar hafi
hlotið tilskilda menntun.
Ég hef gerzt svo fjölorður um
réttindalausu kennarana vegna þess
hvað kennaraskorturinn hefur verið
mikið í sviðsljósi að undanförnu. Ég
bið háttvirta þingdeildarmenn þó að
minnast þess, að megintilgangurinn
með flutningi þessa frumvarps er sá
að færa saman á einn stað og í
aðgengilegu formi þau ákvæði, sem
varða embættisgengi kennara og
skólastjóra við grunnskóla og fram-
haldsskóla. Jafnframt eru svo þessi
atriði öll yfirfarin vandlega og löguð
eftir þeim aðstæðum, sem nú ríkja
á hinum ýmsu skólasviðum. Þetta er
auðvitað mergurinn málsins og svo
að þjappa þessum ákvæðum öllum
saman og gera þau aðgengileg og
tilgangurinn með því aftur á móti að
treysta enn betur en nú að starfandi
kennarar hafi sem bezta menntun og
öll fylstu réttindi til að gegna sínum
ábyrgðarmiklu störfum.
Þótt nokkuð sé liðið á þingtímann,
þá vil ég nú biðja háttvirta mennta-
málanefndarmenn og svo aðra þing-
deildarmenn að hefjast handa um
efnislega meðferð þessa máls og
gaumgæfa sérstaklega, hvort eigi er
unnt að ljúka henni á þessu þingi og
afgreiða frumvarpið sem lög áður en
þingi lýkur. Ég er að sjálfsögðu ekki
að gefa háttvirtum þingdeildar-
mönnum nein fyrirmæli um vinnu-
brögð, en leyfi mér þó að fara þess
á leit að allir möguleikar á afgreiðslu
málsins verði athugaðir.
Herra forseti. Ég legg svo til, að
framvarpinu verði að lokinni þessari
umræðu vísað til 2. umræðu og
menntamálanefndar.