Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978 45 moðreyknum eða gerðu lítið með hann. Annað atriði er að furðulegt mætti telja ef Þingeyingar hefðu á sínum tíma skapað eitthvað af engu. Það getur enginn nema Guð þeirra manna sem trúa sköpun- arsögunni í Biblíunni. Prumleik- ur Þingeyinga við höfundarskap á bænaskrám var fyrst og fremst fólginn í sívakandi áhuga, stíl- skipun og orðfæri, ásamt síaukn- um þroska. Enda áttu þeir síðar auðvelt með að tileinka sér boðskap þann er Benedikt frá Auðnum skrifaði í athugasemd- um sínum á spássíur hverrar erlendrar bókar sem hann útveg- aði. Þá er um Kristján á Illugastöð- um að segja að fjárkaup hans hjá bændum virðast í meginatriðum ekki hafa verið einkafyrirtæki. Alkunna var að kaupmenn höfðu beyg af Kristjáni sökum harð- fylgis hans. Fénaður bænda sem lítils máttu sín var þarna seldur á betra verði. Til hliðsjónar má hafa ofurlkla smásögu af Kristjáni hreppstjóra. Ekkja nokkur komst í fjárhagsvand- ræði. Svo fór að sökum embættis síns varð Kristján að taka frá henni einu kúna sem hún átti. Hreppstjóri gerði konunni við- vart: Nú skalt þú láta sem ekkert sé, þótt ég taki kúna. Svo sjáum við til. Sögur fara ekki af því hvernig Kristján setti sölu belj- unnar á svið, en eflaust hefir hann haft einhver handföst tök á kröfuhafanum. Og kýrin var skömmu síðar komin á sinn vanabás sem full eign ekkjunnar. Viðvíkjandi Jóni á Gautlöndum þá er það alveg óviðunandi að dæma hann snauðan af list. Mér finnst að allt hans líf hafi verið mikil list. Svo er það jafnan hjá hinum varfærnu en dugmiklu mönnum. Að sigla milli skers og báru samtíðar í nokkru uppnámi krefst mikillar listar. Næstu kynslóðir hófu ákveðn- ari og breytta baráttu eftir daga Jóns á Gautlöndum. Þjóðlið og Huldufélag urðu eflaust til vegna óánægju með seinsigrað íhald þjóðfélagsins alls. En skrítin tilfyndni virðist það verið hafa að einmitt til Huldafélagsins þing- eyska var síðan, viljandi eða óviljandi, sótt að forminu til fyrirmyndin að laumusamtökum tveKgja — jafnvel þriggja stjórn- málaflokka gegn Jónasi Jónssyni — að tilefnislitlu nema ef vera skyldi varfærni. Sigurður Draumland.“ Þessír hringdu . . . • Myndi það spara? Sjónvarpsáhorfanaii — Mig minnir að einhvern tíma hafi þeirri hugmynd verið skotið fram, hvort það myndi vera sparnaður hjá sjónvarpinu ef útsendingarkvöldum yrði fækkað, t.d. um eitt. Þá myndi vissulega þurfa minna starfsfólk eða yfirvinna sparast og væri þá hugsanlegt að verja því fjár- magni til þess að efla t.d. íslenzka kvikmyndagerð, eins og margir eru að tala um að nú þurfi að efla. Að vísu má segja að það sé ekki eingöngu og ekki beinlínis hlutverk sjónvarpsins að styðja kvikmyndagerð, en þó.að nokkru leyti. Ég held að ekki myndu margir sakna þess þó að fækkað SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á Evrópumeistaramóti ungl- inga í Groningen í Hollandi um síðustu áramót kom þessi staða upp í skák þeirra Pedersens, Danmörku, og Tillers, Noregi, sem hafði svart og átti leik: HÖGNI HREKKVÍSI yrði um eitt útsendingarkvöld en það er náttúrlega ekki á færi nema sjónvarpsmanna að'segja til um hversu mikið myndi sparast ef það er eitthvað. En hitt er ég nokkuð viss um að allir samþykkja að meira yrði gert af því að flytja innlent efni, ekki endilega reyfarakennd leikrit heldur miklu fremur heimildar- og fræðslumyndir um margs konar atvinnuhætti og líf hér og þar á landinu, ýmislegt sem talað er um að þurfi að varðveita og gæta að ekki týnist algjörlega niður með nýjum kynslóðum. Eins og sjá má getur svartur unnið skákina á mjög einfaldan hátt með 18.... Rxg3+!, 19.1ixg3 — Hf5. í stað þess lék hann 18.... Hf5?? og tapaði skákinni fljótlega eftir 19. Re4 — Dd4, 20. h3 og hvítur vinnur mann. Jafnir og efstir á mótinu urðu þeir Taulbut, Englandi, Dolmatov, Sovétríkjumrm, og Georgiev, Búl- garíu, allir með 9 v. af 13 mögulegum. Taulbut var síðan úrskurðaður sigurvegari, þar eð hann var talinn hafa mætt sterkustu andstæðingunum, af þeim þremur. Morgunblaðið óskar eftir blaðburðarfólki VESTURBÆR Sörlaskjól Lynghagi AUSTURBÆR Ingólfsstræti, Lindargata, Hverfisgata 63—1 25, Hverfisgata 4—62. Upplýsingar í síma 35408 Byggingamenn Múrhúðunarnet fyrirliggjandi frá Bekaert i Belgíu, sér- hannað fyrir íslenskar kröfur. Verð pr. rúllu 1 1 890 — 50 Im. cSb Nýborg ÁRMÚLA SÍMI 85090 — 86755. H 1 x 2 - 1 x 2 27. leikvika — leikir 4. marz 1978 Vinningsröð: 1X1 — 1XX — X2X — 1XX 1. vinningur: 10 réttir — kr. 1 39.000.— 7610 (Rvk) 30846 (Kpv) 32712 (Rvk) 34646 (Árns) 54682 (Kóp) 2. vinningur: 9 réttir — kr. 4.400.— 2. vinningur: 9 réttir — kr. 4.400.— 65 6541 + 10427+ 31816 32818 391 6571 10462 31980 32820 1014 6887 30164 32062 32949 1906 + 7609 30318+ 32183 33073 + 2801 8586 30511 2/9) 32521 (2/9) 33075+ 3892 9131 30828 32525 33144 4439 9913 31089 32690 33268+ 4971 10161 31171 32739 + 33293 5448 10345 33194 32745 33581 33582 40586 33584 (3/9) 40826 + 33832 41108 + 34338 41162 34645 54330 34646 (2/9) 43580 40371 54580 40438 54604 54675 Kærufrestur er til 27. marz kl. 1 2 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga, sem er 28. marz. GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK kominí kjörgarö HAGKAUP > -">V ''X ' V.NV <}." \' ' ' ' ' «

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.