Morgunblaðið - 09.03.1978, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978
Frjálsíþróttafólk undirbýr sumarið af kostgæfni
^" * v8, ^
■ 'v
■ - w
9L.
.
'mJrm »
Í4- * ♦
J9i
#
v4femmZ.
Tveir beztu hástökkvarar allra tíma í kvennaflokki, María Guðnadóttir (t.v.) og Þórdís
Gísladóttir IR.
Nokkrir frjálsíþróttamenn kætast að lokinni keppni, (f.v) Erlendur Valdimarsson, Óskar Ingunn Einarsdóttir tekur hér við einum
Jakobsson. Gunnar P. Jóakimsson og Ágúst Ásgeirsson. ,A af fjölmörgum verðlaunum sem hún
Ljosm. r.Þ.O. hefur unnið um dagana.
Ljósm. Birgir Jóakimsson.
Leggja land undirfótog
æfa og keppa erlendis
ÍSLENSKT frjálsíþróttafólk
verður talsvert á faraldsfæti
í sumar og hefst flækingur
þeirra í raun og veru um
þessa helgi með þátttöku
þriggja íþróttamanna í
Evrópumeistaramótinu
innanhúss. Allt bendir nú til
að margt af qkkar sterkasta
frjálsíþróttafólki verði fjar-
verandi á mótunum framan
af sumri.
Þ;;u þrjú sem keppa á Évrópu-
ineistaramótinju sem háð verður
um helgina í Mílanó á Italíu eru
þau Ingunn Einarsdóttir IR, Lilja
Guðmundsdóttir ÍR og Jón Dið-
riksson UMSB. Óhætt er að segja
að þetta fólk á að geta auðveld-
lega sett íslandsmet í sínum
greinum, því það hefur búið sig
dyggilega undir mótiö. Farar-
stjóri verður Friðrik Þór Óskars-
son.
í framhaldi af móti þessu
munu Ingunn og Jón ásamt
Friðriki Þór Óskarssyni ÍR, Jóni
Sævari Þórðarsyni ÍR og Erlendi
Valdimarssyni leggja leið sína til
Formía skammt frá Róm og
dvelja þar í æfingabúðunr ítalska
frjálsíþróttasambandsins frá
15.—30. marz.
Frá Formía halda Ingunn
Einarsdóttir og Jón S. Þórðarson
til Kölnar í Þýzkalandi og dvelja
þar við æfingar og keppni fram
í lok ágúst mánaðar. Jón.Diðriks-
son heldur frá Formía til
Glasgow og hieypur þar í Víða-
vangshlaupi heimsins ásamt Sig-
fúsi Jónssyni IR og 5 öðrum
hlaupurum sem valdir verða eftir
Víðavangshlaup Islands sem
fram fer í Reykjavík um þessa
helgi.
í lok apríl heldur 10—12
manna hópur frjálsíþróttafólks
úr Ungmenna- og íþróttasam-
bandi Austurlands til þriggja
vikna æfingabúðadvalar á Spáni.
Þjálfari og fyrirliði UIA fólksins
verður Stefán Hallgrímsson sem
gekk í raðir sinna fyrri félaga um
áramótin. Stefán sagði í viðtali
við Mbl. að dvalið yrði í
Estepona sem eru æfingabúðir
sem margt af bezta frjálsíþrótta-
fólki Evrópu dvelur í yfir vetrar-
mánuðina.
Við nám og æfingar á erlendri
grund í dag eru þau Vilmundur
Vilhjálmsson KR, Jón Diðriksson
UMSB, Sigfús Jónsson ÍR, Lilja
Guðmundsdóttir ÍR, María
Guðjohnsen IR og Högni Oskars-
son KR. Allt bendir til að þessi
hópur stækki verulega í byrjun
sumars, því margt af því frjáls-
íþróttafólki sem heima dvelur
hyggur á lengri eða skemmri
æfinga- og keppnisdvalir erlend-
is, einkum í V-Þýzkalandi.
Sigurður Geirdal fram-
kvæmdastjóri UMFÍ tjáði Mbl. í
gær að þegar væri ákveðin
æfinga- og keppnisför stórs hóps
frjálsíþróttafólks á vegum sam-
bandsins til Danmerkur í sumar.
Til fararinnar verður valið eftir
Landsmót UMFÍ sem fram fer á
Selfossi í júlí. Tveir beztu í hverri
grein mótsins verða valdir til
fararinnar. Utan verður farið 30.
júlí og komið heim 8. ágúst.
íþróttafólkið mun taka þátt í
tveimur keppnum ytra við beztu
aðstæður og þess á milli æfa með
góðum dönskum þjálfurum og
frambærilegu íþróttafólki. Dvel-
ur íþróttafólkið ytra á vegum
Arhus Amts Gymnastyksforen-
ing og keppir m.a. við lið
íþróttafólks þess sambands á
nýrri danskri íþróttamiðstöð í
Fulgse.
Sigurður sagði að auk þessarar
farar væru alltaf að berast
fyrirspurnir til UMFÍ frá héraðs-
samböndunum út um land þar
sem sambandið er beðið um að
athuga með dvalir íþróttafólks
hjá félögum úti um lönd.
Sigurður sagði ekkert ákveðið
enn í þessum efnum, málin væru
á athugunarstigi.
— ágás
Sportblað-
ið eins árs
SPORTBLAÐIÐ hóf göngu sína fyrir
réttu ári síöan og nýlega er annaö
tölublað annars árgangs komíð út.
Er blaðið hið líflegasta eins og
jafnan og í leiðara bess egir að
fyrsta ár pess hafi verið stanzlaus
sigurganga. Útgefandi Þess og
ritstjðri er Sígmundur O. Steinars-
son.
Undanfariö hafa birzt í blaðinu
greinar um Albert Guðmundsson og
feril hans með mörgum pekktustu
knattspyrnufélögum í heimi. í nýj-
asta eintaki Sportblaðsins er fjðrða
greinin um Albert og sú síðasta í
pessum greinaflokki birtist í næsta
blaði. Greinar eru um ensku knatt-
spyrnuna, leikmenn og félög.
SPORT blaðið EINS ARS!
"3 Aðeins eittfélag í 2.deild
á eftir að ráða þjálfara!
NÍU af félögunum 10 í 2. deildinni í knattspyrnu hafa nú ráðið pjálfara fyrir næsta keppnistímabil. Töluverðar
breytingar hafa orðið á pjálfurum félaganna frá pví í fyrra og samkvæmt upplýsingum Morgunbiaðsins eru aðeins
tveir pjálfarar áfram með lið sín frá pví sem var í fyrra. Hér fer á eftir listi yfir pjálfara liöanna í 2. deild, en
Völsungur á Húsavík mun ekki vera búinn að ráöa pjálfara enn sem komið er. Innan sviga eru pjálfarar liðanna
1977:
Armann — Arnar Guðlaugsson (Jón Hermannsson)
Austri — Hlöðver Rafnsson (Leifur Helgason)
Fylkir — Theódór Guðmundsson (Axel Axelsson)
Haukar — Þráinn Hauksson (Sami)
ÍBÍ — Gísli Magnússon (Gunnar Gunnarsson)
KR — Magnús Jónatansson (Tom Casey)
Reynir — Eggert Jóhannesson (Sami)
Þór — Allan Rogers (Doug Reynolds)
Þróttur, Nk. — Helgi Ragnarsson (Magnús Jónatansson)
I fyrra léku KR og Þór frá Akureyri í 1. deild, en féllu
niður og leika KR-ingar í fyrsta sinn í sögunni í 2. deild
í knattspyrnu í sumar. Efst í 3. deild í fyrra urðu lið Fylkis
og Austra frá Eskifiröi.
Töluvert hefur verið um félagaskipti leikmanna, sem
í fyrra léku með liöunum, sem nú eru í 2. deild. Þannig
má nefna að KR-ingar hafa misst Hálfdán Örlygsson til
Vals og Jóhann Torfason til Víkings. Akureyrar-Þór
héfur misst Sigþór Ómarsson til Akraness á ný svo
eitthvað sé nefnt.
— éij
HINN kunni ítalski knattspyrnumað-
ur, Giarini Rivera, valdi fyrir skömmu
lið sem hann taldi getað sigrað hvaða
lið sem væri í heimsmeistarakeppn-
inni sem framundan er í Argentínu. í
liði Rivera eru meðal annars fjórir
Brasilíumenn, tveir Vestur-Þjóðverjar
og tvær enskar stjörnur. Eini ítalinn
sem Rivera valdi í liðið var félagi hans
úr Milan, Ricky Albertosi. Annars var
liðiö skipað eftirtöldum leikmönnum:
Markvörður Albertosi ítalíu, Neal,
Englandi, Vogts, V-Þýskalandi, Tres-
or, Frakklandi, Russmann, Þýska-
landi, Zico, Brasilíu, Keegan, Eng-
landi, Carezo, Brasilíu, Roberto,
Brasilíu, Rivelino, Brasilíu, og Cruyff,
Hollandi.
HM
í
K
N
A
T
T
S
P
Y
R
N
U
'EtaOk ocr OiO^tVEKlA
ÉALLAST '\ F=Ae>MA
O t=iÓSOlOO