Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978
47
ÞJÚÐVERJARNIR
SIGRUÐU RÚSSA
NOKKRIR vináttulandsleikir í
knattspyrnu fóru fram í gær-
kveldi, og vakti leikur heims-
meistaranna VÞjóðverja við
Sovétríkin mesta athygli.
Leikur V-Þjóðverja og Sovét-
manna fór fram í Frankfurt og
sigruðu heimsmeistararnir 1—0.
Það var Riissmann, leikmaður
Schalke 04, sem skoraði sigur-
markið á 47. mínútu leiksins með
glæsilegum skalla, eftir vel tekna
aukaspyrnu hjá Flohe.
Austur-Þjóðverjar sigruðu
Svisslendinga á Karl Marx Stadt
í Austur-Þýzkalandi með 3 mörk-
um gegn 1. Voru öll mörkin
skoruð í fyrri halfleik. Fyrir
Þjóðverja skoraði Hoffman 2 og
Riediger eitt mark. Mark Sviss
skoraði Sulser.
í París léku Frakkar við
Portúgal og sigruðu 2—0. Léku
þeir allan tímann mun betur og
var sigur þeirra sanngjarn, það
var á áttundu mínútu sem
Baronchelli skoraði fyrra markið,
en Berdoll bætti svo öðru við rétt
fyrir lok hálfleiksins og í leikhléi
var staðan 2—0 Frökkum í hag.
í seinni hálfleik áttu Frakkar
fjölda góðra tækifæra en tókst
ekki að skora.
Einn landsleikur fór fram á
Englandi. í Manchenster léku
landslið Englands og Ítalíu, 21
árs og yngri. Fengu Englendingar
dálitla uppreisn æru, lið Eng-
lands sigraði 2—1. Það voru ítalir
sem slógu Englendinga út í
forkeppni heimsmeistarakeppn-
innar.
DERBY VANN
LIVERPOOL 4-2
í GÆRKVELDI fór fram
einn leikur í 1. deildinni
ensku, Derby sigraði Liver-
pool 4—2 og má segja að
með þessum ósigri sé Liver-
pool úr leik í keppninni um
enska meistaratitilinn í
knattspyrnu. Nú munar 9
stigum á forystuliðinu Nott-
ingham Forest og Liverpool.
Liverpool lék í gær án
markvarðar síns, Ray Cle-
mence, og leikurinn varð
martröð fyrir hinn unga
Steve Ogrozovic, sem lék sinn
fyrsta leik með liðinu. Andy
Crawford skoraði á 28. mín-
útu fyrir Derby og þannig var
staðan í leikhléi. Derby yfir-
spilaði Liverpool í seinni
hálfleik og Gerry Daly skor-
aði tvennu og staðan var
3—0. Þá tókst Fairclough að
gera mark fyrir Liverpool.
Charlie George, sem átti
snilldarleik með Derby, bætti
fjórða markinu við 4—1.
Tveim mínútum fyrir leikslok
skoraði svo Kenny Dalglish,
svo að lokastaðan varð 4—2
eins og áður segir.
FH STEFNIR
ENN AÐSIGRI
í BIKARNUM
NÚVERANDI bikarmeistarar
FH sigruðu ÍR í bikarkeppni HSÍ
á þriðjudagskvöld í Hafnarfirði
17:14. FH liðið lék vel í vörn og
sókn í fyrri hálfleik liðanna og
tryggði sér gott forskot í leikn-
um, staðan í leikhléi var 9 mörk
gegn 4.
IR-ingar mættu hinsvegar
mjög ákveðnir til leiks eftir hlé
og fljótlega breyttist staðan í 10
mörk gegn 8. Þegar átta mínútur
voru til leiksloka var staðan jöfn,
13—13, og spenna komin í leik-
inn. En á lokakaflanum var
FH-liðið sterkara eins og oft áður
og sigraði 17—14.
í liði FH voru þeir bestir Geir
Hallsteinsson og Magnús mark-
vörður Ólafsson. Markhæstir
FH-inga voru Þórarinn og Geir
með 5 mörk hvor. Hjá IR var
markvörðurinn snjalli, Jens
Einarsson, besti maður liðs síns
og varði snilldarlega vel, flest
mörk ÍR skoraði Vilhjálmur
Sigurgeirsson, 5 talsins.
BARIZT í I.
DEILD í KVÖLD
TVEIR leikir verða í 1. deild
Islandsmótsins í handknattleik í
I.augardalshöllinni í kvöld. Vík-
ingar leika á móti Ármanni
klukkan 20 og klukkan 21.15
heíst leikur Fram gegn FH. Lið
Vfldngs og FII eru sigurstrang-
Rgri í þessum leikjum enda tvö
efstu liðin í 1. deildinni. Ármann
<>g Fram eru hins vegar í neðstu
Nætunum. cn það verður að
segjast eins og er að handknatt-
lcikurinn undanfarnar vikur
hefur verið óútreiknanlegur.
Óvæntir hlutir hafa gerzt hvað
eftir annað og flestir leikjanna
hafa unnizt með litlum mun. Til
dæmis lauk þeim þremur leikj-
um, sem fram fóru um sfðustu
helgi í 1. deildinni. með aðeins'
eins marks mun.
Á föstudag leika Stjarnan og
Þróttur í 2. deildinni í Garðabæ
og sigur í þeim leik tryggir
Þrótti rétt til að leika gegn IIK
um annað sætið í 2. deild. Þá
leika einnig á föstudaginn lið
Þórs og Ilauka í 1. deild kvenna.
Þessar þrjár skiðakonur hafa verið í fremstu röð í svigi og stórsvigi í vetun Ilanni Wenzel, Perrine
Pelen og Fabienne Serrat.
Wenzel féll - sigraöi samt
LISE-MARIE Morerod sigraði í stórsvigskeppni heimsbikarsins í Waterville í Bandarfkjunum í
fyrradag og tryggði sér þar með sigur í stórsvigskeppni heimsbikarsins. í keppninni um bikarinn
í alpaþrfkeppninni hefur Ilanni Wenzel hins vegar þegar tryggt sér sigur. Annemari Moser Pröll
var sú eina sem gat ógnað sigri Wenzel en er þær íéllu báðar í stórsvigskeppninni í fyrradag varð
ljóst að sigurinn var stúlkunnar
íþróttanna í vetúr með frábærri
5 efstu í stórsviifinu ( fyrradagi
Lise-Marie Morerod, Sviss 2i24.50
Becky Dorsey, USA 2.26.75
Fabienne Serrat. Frakkl. 2.27.73
Viki Fleckenstein, USA 2.27.92
Cindy Nelson, USA 2.28.21
frá smáríkinu Liechtenstein, sem
frammistöðu skíðafólks þaðan.
Staðan ( stórsvigskeppni stúlknanna.
Lise-Marie Morerod 115
Hanni Wenzel 106
Marie Epple 77
Monika Kaserer 62
Fabienne Serrat 60
Staðan í keppninni um heimsbikarinn
hefur vissulega stækkað í heimi
í svigi, stórsvigi og bruni.
Hanni Wenzel 154
Lise-Marie Morerod 135
Annemarie Mosei-Pröll 126
Fabienne Serrat 105
Perrine Pelen 96
Marie Epple 94