Morgunblaðið - 14.03.1978, Qupperneq 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
53. tbl. 65. áre.
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
mánuðum til að binda enda á
borgarastríðið í landinu.
Átta fórnarlamba árásarinnar
voru lagðir til hinztu hvíldar í dag
í Ashdod, Haifa, Tel Aviv og
Tiberias. í minningarræðu um 22
ára hermann, Yaaqov Pax, sem
féll er hann var í leyfi, sagði Haim
Corfu, þingmaður: „Ástandið hef-
ur verið tiltölulega rólegt að
undanförnu og það blekkti okkur:
Þessi fyrirlitlegu morð vöktu
okkur til meðvitundar um raun-
veruleikann. Við munum ekki
fyrirgefa þessar blóðsúthellingar.
Begin forsætisráðherra sagði í
þinginu, Knesset, að árásin væri
áfellisdómur yfir þeim Vestur-
löndum sem vildu ekki fordæma
samtök skæruliða og veittu jafnvel
uppörvun þessum samtökum sem
væru fyrirlitlegri en nokkur sam-'
tök sem saga mannsins greindi frá
fyrir utan nazista. PLO, Frelsis-
samtök Palestínu, ráðast ekki á
fólk eða staði þar sem hermenn
eru, sagði Begin, samtökin hafa
einsett sér að myrða aðeins
óbreytta borgara.
Við útför Oav Mishkal, sem var
sex og hálfs árs, sagði Yitzhak
Peretz aðstoðariðnaðarráðherra,
að djöfullinn hefði ekki fundið upp
Framhald á bls. 30.
Tveir teknir
fyrir mannrán
Genf, 13. marz. AP.
LÖGREGLAN í Genf tilkynnti í
kvöld að tveir ungir ítalir hefðu
verið handteknir vegna ránsins á
fimm ára frænku „tinkúngsins“
Antenor Patino, Graziella
Ortiz-Patino, sem var látin laus
gegn tveggja milljón dollara
lausnargjaldi 11 dögum eftir að
henni var rænt í október í fyrra.
Þriðji ítalinn. sem var viðriðinn
ránið, beið bana skammt frá
París í desember.
Ísraelskur hermaður hlúir að konu sem tók þátt í árásinni í ísrael.
Flugrán í
Kaliforníu
Washington, 13. marz. Reuter.
FLUGVeL frá bandaríska flugfé-
laginu United Airlines.var rænt í
dag á leið frá San Francisco til
Seattle og flugræninginn sagðist
vopnaður sprengju og haldinn
ólæknandi sjúkdómi að sögn banda-
rísku flugmálastjórnarinnar.
Flugvélin er af gerðinni Boeing
727 og með henni voru 68 farþegar,
sem fengu að fara úr vélinni ásamt
þremur af áhöfninni í Oakland í
Kaliforníu þar sem flugstjórinn lenti
samkvæmt skipun flugvélarræningj-
ans.
Hann krafðist þess að vélin fengi
eldsneyti og hefur enn þrjá af
áhöfninni í gíslingu. Vélin fékk
seinna eldsneyti og flaug til Denver,
Colorado.
aðeins 1.1% meira fylgi en hægri-
menn og það telja stjórnmálasér-
fræðingar of lítinn mun til þess að
vinstrisinnar geti verið vissir um
sigur í síðari umferðinni á sunnu-
daginn. Þangað til í kvöld hafa
kommúnistar ekkert viljað um það
segja hvort þeir væru reiðubúnir
til að láta frambjóðendur sína
víkja fyrir frambjóðendum jafn-
aðarmanna og róttækra í kjör-
dæmum þar sem þeir eru sterkari
í síðari umferðinni.
Verðbréf hækkuðu um 9% í
verði í dag þar sem mörgum þykir
einsýnt að vinstrimenn bíði ósigur
í síðari umferðinni og frankinn
Framhald á bls. 30.
Biðröð við kjörstað í París.
ands og Roberts Fabre,
leiðtoga róttækra vinstri-
manna. Flokkarnir hafa
ekki getað komið sér saman
um sameiginlega stefnuskrá
í sex mánuði.
í sameigihlegri tilkynningu
flokksleiðtoganna segir að flokk-
arnir muni berjast saman fyrir
síðari umferðina á sunnudaginn og
sitja saman í ríkisstjórn ef þeir
fari með sigur af hólmi. Sam-
komulag varð um að aðeins einn
vinstriframbjóðandi yrði í kjöri i
hverju kjördæmi í síðari umferð-
inni. „Ekki eitt einasta atkvæði
má fara til spillis. Gera verður allt
sem hægt er til að sigra hægri-
menn,“ segir í tilkynningunni.
I fyrri umferð kosninganna í
gær fengu vinstrisinnar til samans
París, 13. marz. Reuter AP.
FLOKKAR jafnaðarmanna
og kommúnista í Frakk-
landi samþykktu í kvöld að
snúa bökum saman gegn
samsteypu mið- og hægri
flokka í síðari umferð
frönsku kosninganna á
sunnudaginn.
Samkomulagið var til-
kynnt að lokum þriggja og
hálfs tíma fundi kommún-
istaleiðtogans Georges
Marchais. jafnaðarmanna-
leiðtogans Francois Mitter-
72 gíslar á valdi
6 Suður-Mólúkka
Assen, 13. marz. AP. Reuter.
VOPNAÐIR Suður-Mólúkkar
sem kalla sig sjálfsmorðssvcit
réðust í dag inn í stjórnarbygg-
ingu í bænum Assen í
Norður-Hollandi tóku alls 72
manns í gíslingu og skutu á
fólk sem reyndi að flýja úr
byggingunni að því er tals-
maður hollenzku stjórnarinnar
skýrði frá í dag. Þeir settu
frest til kl. 2. e.h. f dag til að
gengið yrði að kröfum þeirra.
Talsmaðurinn sagði, að sex
Mólukkar hefðu gert árásina.
Fyrsti árásarmaðurinn kom í
leigubíl og hafði meðferðis
vélbyssu sem hann faldi á sér.
Hann neyddi leigubílastjórann
til að koma með sér inn í
*
aðalinngang byggingarinnar
sem er nýtýzkulegtskrifstofuhús
næði þar sem fylkisstjórnin í
Drent er til húsa. Maðurinn hóf
síðan skothríð.
Skömmu síðar ruddust hinir
Suður-Mólukkarnir inn í bygg-
inguna. Þeir skutu á furðu
lostna starfsmenn fylkis-
Framhald á bls. 30.
Begin sker upp
herör gegn PLO
Tel Aviv, 13. marz. AP. Reuter. |Sjá grein á bls. 47.)
ÍSRAELSMENN syrgðu í dag fórnarlömb árásar palestínslfra hryðjuverkamanna um
helgina, mestu hryðjuverkaárásar sem hefur verið gerð á ísrael, og Menachem Begin
forsætisráðherra hét því að ganga milli bols og höfuðs á skæruliðasamtökum
Palestínumanna sem hafa lýst því yfir að þau hafi borið ábyrgð á árásinni.
Jafnframt er mikill viðbúnaður meðal Palestínumanna í Líbanon þar sem talið er líklegt
að ísraelsmenn grípi til hefndaraðgerða. Óbreyttir borgarar hafa verið fluttir frá
hafnarhverfum borganna Tyrus og Sidon í SuðurLíbanon, skólar hafa verið lokaðir og
hundruð manna hafa flúið frá svæðum sem hugsanlegt er talið að ísraelsmenn ráðizt á
úr lofti eða af sjó.
ísraelsmenn segja að 37 hafi
beðið bana og 76 særzt þegar
skæruliðar AI Fatah lögðu undir
sig tvo langferðabíla og tóku tugi
gísla á strandveginum fyrir norð-
an Tel Aviv á laugardaginn, en
tölur ísraelsmanna eru á reiki og
Palestínumenn segja að mann-
tjónið hafi verið helmingi meira
en Israelsmenn vilji láta í veðri
vaka. Palestínumenn segja að
árásarmennirnir hafi verið úr
neðanjarðarsamtökum skæruliða í
Israel, en Israelsmenn segja að
skæruliðarnir hafi komið í land í
gúmmíbátum og gert árásina frá
Líbanon sem þeir segja að beri
ábyrgð á árásinni.
Stjórn Elias Sarkis forseta í
Líbanon hefur beðið stórveldi
heims um stuðning til þess að
afstýra hefndaraðgerðum Israels-
manna. Sýrlendingar hafa flutt
langdrægar fallbyssur og eld-
flaugaskotpalla til strand-
lengjunnar sunnan við Beirút og
menn eru viðbúnir fyrstu hernað-
arítökum Sýrlendinga og ísraels-
manna síðan Sýrlendingar skárust
í leikinn í Líbanon fyrir 16
Vinstri flokkar vinna
saman í síðari umferð