Morgunblaðið - 14.03.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1978
17
Kaupmaxmasamtök-
in mótmæla
lækkun verzlun-
arálagningar
Á aðalfundi Kaupmannasam-
taka Islands s.l. fimmtudag voru
samþykktar fimm ályktanir; um
álagningarlækkun, innheimtu,
söluskatts, gjaldeyrisréttindi til
handa Verzlunarbankanum, lána-
máli og nýja verðlagslöggjöf. Fara
þessar samþykktir hér á eftir:
Álagningar-
iækkun mótmælt
Aðalfundur Kaupmannasam-
taka Islands 1978, haldinn að
Hótel Sögu 9. marz, ítrekar fyrri
ályktun framkvæmdastjórnar og
fulltrúaráðs samtakanna og mót-
mælir harðlega þeirri ákvörðun
stjórnvalda að lækka verzlunar-
álagningu í smásölu, samfara
síðustu gengisfellingu. Fundurinn
telur að með ákvörðun þessari séu
virt að vettugi staðfest rök opin-
berra embættismanna og stofnana
um stöu verzlunarinnar á s.l.
ári. Ennfremur bendir fundur-
inn á að með síendurteknum
gengisfellingum hefur átt sér stað
stórfelld eignaupptaka á vöru-
birgðum verzlana í landinu, sem
byggist á því að bannað hefur
verið að hækka vörubirgðir til
samræmis við hækkað innkaups-
verð.
Fundurinn telur að með
ákvörðunum þessum sé ekki farið.
að gildandi lögum um verðlagsmál.
Innheimta
söluskatts
Aðalfundur Kaupmannasam-
taka íslands 1978, haldinn að
Hótel Sögu 9. marz, beinr þeim
tilmælum til ríkisstjórnarinnar,
að verzlunin fái nú þegar endur-
greiddan þann mikla kostnað, sem
hún leggur af mörkum vegna
innheimtu söluskatts.
Fundurinn bendir á að kostnað-
ur verzlunarinnar við innheimtu
söluskattsins hefur stóraukist í tíð
núverandi ríkisstjórnar.
Gjaldeyrisréttindi
Verzlunarbankans
Aðalfundur Kaupmannasam-
taka íslands 1978, haldinn að
Hótel Sögu 9. marz, beinir.þeim
tilmælum til Alþingis og ríkis-
stjórnar, að Verzlunarbanki ís-
iands h/f fái nú þegar rétt til sölu
erlends gjaldeyris.
Lánamál
Aðalfundur Kaupmannasam-
taka íslands 1978, haldinn að
Hótel Sögu 9. marz, vill vekja
ath.vgli á því misræmi, sem ríkir
í lánamálum atvinnuveganna í
landinu.
Fundurinn telur, að allir aðalat-
vinnuvegir þjóðarinnar eigi að
sitja við sama borð í þessu efni, og
beinir því þeim tilmælum til
stjórnvalda, að sett verði nú þegar
löggjöf, sem tryggi framgang
tillagna félagssamtaka
verzlunar nnar
um lánasjóð verzlunarinnar. Með
löggjöfinni verði sjóðnum tryggð-
ur öruggur tekjustofn til
frambúðar.
Ný
verðlagsliiggjöf
Aðalfundur Kaupmannasam-
Framhald á bls. 36
Frá sýningardeild Iðunnar á International Knitwear Fair í
London.
Prjónastofan Iðunn
nær góðum árangrí
í FRÉTT frá Útflutningsmið-
stöð iðnaðarins segir, að Prjóna-
stofan Iðunn hafi náð mjög
góðum árangri á prjónavörusýn-
ingunni International Knitwear
Fair í London, nýverið, en auk
Iðunnar tóku þátt fyrirtækin
Álafoss, Les-prjón. Iðnaðardeild
Sambandsins og Röskva. Hinn
góði árangur Iðunnar var fyrst
og fremst í formi sölu á
Acrylpeysum.
Þá segir í fréttinni að þessu
árangur sé ekki aðeins eftir-
tektarverður fyrir hina góðu sölu
heldur hefur prjónastofan Iðunn
sýnt fram á það með góðri
hönnun og vandaðri vöru, að
hægt er að selja til útflutnings
fatnað úr erlendum hráefnum.
Þetta er sérstaklega athyglisvert,
því að senn hlýtur að koma að því
að íslenzka ullin verði fullnýtt, ef
um áframhaldandi söluaukningu
á ullarfatnaði verður að ræða.
Auk þeirra fimm fyrrgreindu
fyrirtækja tók þátt í sýningunni
umboðsmaður prjónastofu
Borgarness, en Útflutningsmið-
stöðin sá um skipulagningu
vegna sýningarinnar fyrir flest
fyrirtækin. Öll sýndu þessi fyrir-
tæki eingöngu ullarvörur nema
prjónastofan Iðunn, sem sýndi
Acryl-peysur, en hún var einnig
með peysur úr svokallaðri „super-
wash“ ull.
Sambyggt
útvarp/kassettutæki
;»*
Lang
og miðbylgja
Bæði fyrir rafhlöður
eða venjulegan straum
Verð aðeins kr. 42.260,
Du„,nc heimilistæki sf -
KPIILI K5 HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
Ronson
handblásarinn
Nytsöm og skemmtileg gjöf fyrir
ungu stúlkuna. Nýr, kraftmikill 700
w handblásari með tilheyrandi
greiðum, og greiðslubursta, sem
bæði má nota á blásaranum og á
sérstöku handfangi.
RQNSON