Morgunblaðið - 14.03.1978, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1978
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen.
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjöm Guðmundsson
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, simi 10100.
Aðalstræti 6. simi 22480.
Áskriftargjald 1 700.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 90 kr. eintakið.
Gerdir Alþýdu-
bandalags vor-
ið 1974
Alþýðubandalagið telur sig vera helzta málsvara launþega
í baráttu gegn þjóðfélagsöflum, sem vilji launþegum allt
hið versta. Alþýðubandalagið heldur uppi harðri baráttu gegn
ríkisstjórninni vegna ráðstafana í efnahagsmálum, sem höfðu
í för með sér helmingun kaupgjaldsvísitölu. Hver er fortíð
Alþýðubandalagsins í þessum efnum?
Vorið 1974 lögðu ráðherrar Alþýðubandalagsins fram tillögu
í ríkisstjórn þeirri, sem þá sat, um almenna kauplækkun. Allir
þeir, sem höfðu fengið meira en 20% kauphækkun skyldu sæta
því að kaup þeirra yrði lækkað á ný. Jafnhliða því að leggja
fram þessa tillögu samþykktu ráðherrar Alþýðubandalagsins
mikla skerðingu á kaupgjaldsvísitölu. Eftir að tillöguflutning-
ur þeirra Lúðvíks Jósepssonar og Magnúsar Kjartanssonar í
ríkisstjórninni varð opinber varð mikið uppistand í
Alþýðubandalaginu og ráðherrar þess féllu frá tillögu sinni og
stuðningi við aðrar tillögur, sem þeir höfðu samþykkt.
Þáverandi forsætisráðherra tilkynnti þá ráðherrum Alþýðu-
bandalagsins, að hann mundi biðjast lausnar fyrir ráðuneyti
sitt. Ráðherrastólarnir reyndust ráðherrum Alþýðubandalags-
ins svo kærir, að þeir kúguðu flokksmenn sína til hlýðni og
stóðu að því að vinstri stjórnin lagði fram á Alþingi
iagafrumvarp um almenna kauplækkun og vísitöluskerðingu.
Þetta frumvarp náði aldrei fram að ganga, , þing var rofið
og efnt til kosninga. En nokkrum dögum seinna stóðu
ráðherrar Alþýðubandalagsins að gengislækkun og síðan
afnámi vísitölubóta á laun, sem áttu að koma hinn 1. júní þá
um vorið. Hluta þeirrar vísitöluhækkunar, sem þá átti að koma
og nam 17—18%, ákvað vinstri stjórnin að'greiða niður með
peningum, sem ekki voru til og engar tillögur voru gerðar um,
hvernig skyldi afla en að öðru leyti var þessi vísitöluhækkun
einfaldleg tekin af launþegum.
Vorið 1974 lagði Alþýðubandalagið sem sagt til kauplækkun,
stóð að gengislækkun og afnámi vísitölú. Þá brá hins vegar
svo við, að ASÍ undir forystu Alþýðubandalagsmannsins
Snorra Jónssonar lét sér nægja að mótmæla í orði. Nú á
þessum vetri hefur gengi krónunnar verið lækkað, kaupið
hefur hins vegar ekki verið lækkað eins og Alþýðubandalagið
lagði til vorið 1974 og kaupgjaldsvísitalan hefur ekki verið
afnumin eins og Alþýðubandalagið stóð að þá, heldur hefur
vísitöluuppbót launa á þessu ári verið helminguð og skerðingin
þó mun minni hjá þeim lægst launuðu.
Þegar þessi fortíð Alþýðubandalagsins í kjaramálum ér höfð
í huga verður auðvitað alveg ljóst, að Alþýðubandalagið getur
ekki sett sig á háan hest og talið sig sérstakan málsvara
launþega gegn vondum þjóðfélagsöflum, sem vilji þeim allt illt.
Alþýðubandalagið hefur staðið að margfalt harkalegri
aðgerðum en þeim, sem nú hafa verið gerðar.
Nú er hins vegar um það að ræða að gerðar hafa verið
ráðstafanir, sem eiga að koma í veg fyrir atvinnuleysi, eða
draga úr líkum á því að til atvinnuleysis komi. Þær aðgerðir
eru því launþegum í hag. Andstaða Alþýðubandalagsins við
þessar ráðstafanir er ekki launþegum í hag, heldur í óhag.
Miðað við það, sem á undan er gengið, ætti Alþýðubandalagið
að hafa hægt um sig í umræðum um kjaramál launþega. Fortíð
þess í þeim efnum er ekki slík, að það eða forystumenn þess
hafi efni á að veitast að öðrum með stóryrðum. Morgunbiaðinu
dettur ekki í hug að halda því fram, að Alþýðubandalagið og
vinstri stjórnin hafi vorið 1974 viljað launþegum illt. Vinstri
stjórnin greip til þeirra ráðstafana, sem ráðherrarnir komu
sér saman um. Með sama hætti er hægt að ætlast til þess af
þeim, sem kröfðust kauplækkunar vorið 1974 en samþykktu
gengislækkun og afnám vísitölubóta á laun, að þeir ætli þeim,
sem nú stjórna landinu, annað en beinan fjandskap við
yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar!
..J__________________________________
Þýzkir gestir á
óperutónleikum
ÖPERUTONLEIKAR Sinfóníu-
hljómsveitar Islands verða n.k.
fimmtudai' og síðan aftur n.k.
lauKardag. en á þessum tón-
leikum verða eingöngu flutt
atriði úr einni óperu Beethov-
ens og fjórum óperum Wagn-
ers. — úr Fidciio eftir hinn
fyrrnefnda og síðan úr Tristan
ok ísold. Meistarasönjfvurun-
um. Ilollendingnum fljúandi og
Valkyrjunum. Stjórnandi og
báðir einsöntívararnir á þess-
um tónleikur koma frá Þýzka-
landi á þessa tónleika.
Stjórnandi á þessum tónleik-
um er Wilhelm Bruekn-
er-Riiiígeberg. Hann hefur um
árabil verið einn af aðalstjórn-
endum við óperuna í Hamborg
og hefur stjórnað þar meira en
2500 sýningum. Auk þess hefur
hann oft stjórnað við stærstu
óperuhús Þýzkalands og er
ennfremur tíður gestur í Suður-
Ameríku. Brukner-Riiggeberg
var hér á landi fyrir 20 árum
og stjórnaði m.a. óperunni
„Carmen", sem þá var flutt í
konsertformi í Austurbæjarbíói
11 sinnum fyrir fullu húsi.
Bruckner-Riiggeberg er nú pró-
fessor við tónlistarháskólann í
Hamborg og stjórnandi sinfón-
íska kórsins þar í borg.
Operusöngvararnir Astrid
Schirmer og Heribert Steinbach
eru, eins og stjórnandinn,
Bruckner-Riiggeberg, bæði þýzk.
Hún er fastráðin við óperuna í
Mannheim en hann við óperuna
í Diisseldorf. Þau syngja oft sem
gestir við öll stærstu óperuhús
Evrópu, svo sem London, París,
Lissbon, Munchen, Vín og Róm,
svo eitthvað sé nefnt.
Þýzka sendiráðið í Reykjavík
og Goethe-stofnunin i Miinchen
hafa haft milligöngu um ráðn-
ingu þessara söngvara og greiða
þeim ennfremur fyrir söng
þeirra hér. Þessum aðiljum er
hér með þakkað innilega.
Karlakór Reykjavikur tekur
einnig þátt í þessum tónleikum
og syngur tvo kóra úr óperunni
Fidelio og Hollendingnum
fljúgandi. Einsöngvarar með
kórnum eru þeir Friðbjörn G.
Jónsson og Hreiðar Pálsson, en
Páll P. Pálsson hefur æft
kórinn.
Áskrifendum skal bent á, að
tónleikarnir eru, eins og að
framan greinir, n.k. fimmtudag
16. mars en ekki 15. mars eins
og auglýst hefur verið í efnis-
skrá og á áskriftarskírteinum.
Þessir óperutónleikar verða
endurteknir laugardaginn 18.
mars kl. 15.00 í Háskólabíói.
Míkrófilmur að leysa pappír
af hólmi í tölvuvinnslunni?
SKÝRSLUVÉLAR ríkisins og
Reykjavíkurborgar, Reiknistofn-
un hankanna og tölvudeildar
Flugleiða og SÍS hafa undan-
farna mánuði gert tilraun með
tölvuhúnað, sem myndar míkró-
filmur eftir tölvugögnum. í lok
reynslutímans hefur rúmlega 130
stofnunum og fyrirtækjum verið
boðið að senda fulltrúa til sér-
stakra kynningarfunda. Niður-
stöður tilraunannar og undirtekt-
ir gesta á fundinum benda
ótvírætt til að notkun mikrófilma
almennt og í tengslum við tölvu-
vinnslu eigi framtíð fyrir sér,
segir í frétt frá undirbúningsaðil-
um. sem jafnframt boðuðu í gær
til hlaðamannafundar til að
kynna þessa nýjung enn frekar.
A blaðamannafundinum kom
fram, að á s.l. tveimur áratugum
hafi verið þróuð allsérstæð tækni
í þeim tilgangi að leysa pappír af
hólmi í tölvuvinnslu, sem nefnist
á erlendu máli „Computer Output
microfilm-COM“. Listar eru
myndaðir beint úr tölvu á míkró-
filmur án þess að þeir komi
nokkurn tíma á pappír. Myndun-
artækin eru mjög hraðvirk, eða
geta myndað um 12.000 línur á
mínútu. Það er um tífaldur hraði
töivuprentara og er myndun afrita
jafnvel enn fljótari.
Einn þáttur gagnavinnslu í
tölvum er prentun lista og skila-
greina á pappír. Nokkur hluti þess
pappírs lendir í höndum hins
almenna borgara. Launaseðlar,
skattskýrslur, reikningar, gíró-
seðlar og álagningarseðlar eru
nokkur dæmi þar um.
Árlega er prentað á 200—300
tonn af pappír í tölvuvinnslu
hérlendis. Söluverðmæti pappírs-
ins er 150—200 milljónir króna. Á
hverjum virkum degi er notað um
það bil eitt tonn af pappír, sem
kostar 700 þúsund krónur. Þetta
mikla pappírsmagn er þegar orðið
mikið vandamál og mikil vinna er
samfara hágnýtingu þeirra upp-
lýsinga sem þar eru. Lauslega
áætlað kostar 3 kr. að geyma
Unnið að mótun
B-listans í
Reykjavík
UPPSTILLINGARNEFND l’ram-
sóknarflokksins, sem ganga á frá
listum flokksins i Reykjavík til
alþingiskosninga og borgar-
stjórnarkosninga er að störfum
um þessar mundir, að sögn Jóns
Kjartanssonar, forstjóra ÁTVR,
sem er formaður nefndarinnar.
Jón sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að stefnt yrði að því
að ganga frá listunum sem fyrst,
en hann kvað málið ekki vera
komið á ákvörðunarstig enn.
meðalstóra pappírsörk í eitt ár.
Af því sem hér hefur verið talið
er ljóst, aö notkun míkrófilma við
tölvuvinnslu býður upp á veruleg-
an sparnað, meiri vinnsluhraða og
bætta möguleika á leitun og
uppflettingu í skrám. Sama gildir
um notkun mígrófilma við vörslu
venjulegra skjala og leitun í skrám
með þeim.
Að síðustu er rétt að vekja
athygli á því öryggi, sem mígró-
filmur veita. Auðvelt er að taka
afrit af míkrófilmum á nýjar
filmur. Gömlu filmurnar má síðan
geyma á öruggum stað fjarri
notkunarstað. Sökum lítillar fyrir-
ferðar eru öruggar geymslur fyrir
míkrófilmur hlutfallslega mjög
ódýrar.
Niðurstöður tilraunareksturs
tækjanna eru í stuttu máli þær, að
unnt er að mynda míkrófilmur í
þeim á hagkvæman hátt hérlendis.
Þrjú af þeim fyrirtækjum, sem
áður voru nefnd, Skýrsluvélar
ríkisins og Reykjavíkurborgar, SÍS
og Flugleiðir, hafa unnið að
könnun á, hvernig þau gætu unnið
saman að rekstri þessa tækjabún-
aðar til frambúðar. Tillögur liggja
nú fyrir um samstarf þeirra um
rekstur COM tækjasamstæðu. Þær
eru til umfjöllunar hjá viðkom-
andi aðilum og mun endanleg
ákvörðun væntanlega liggja fyrir
innan skamms.