Morgunblaðið - 14.03.1978, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1978
29
4 ófundnir eftir
mikil snjóflóð
Les Mosses, Sviss 13. marz AP.
FJÓRIR eru enn ófundnir
eftir mikil snjóflóð, að sögn
lögreglunnar, eftir nætur-
langa leit, þar sem upphaf-
lega var óttazt að 69 skíða-
menn og ferðalangar hefðu
látið lífið nálægt skíðalyftu
á þessum skíðastað í Alpa-
fjöllum.
Yfir þrjú hundruð her-
menn og aðrir sjálfboðaliðar
leituðu á stóru svæði í alla
nótt með aðstoð sporhunda.
Snjóskaflarnir, sem leitar-
mennirnir þurftu að brjót-
ast yfir, voru um átta metra
háir.
Snjóskriðan féll kl. 2 síðdegis á
sunnudag, einmitt á þeim tíma
Miklir jarð-
skjálftar á
Suður-Ítalíu
Messina. Sikile.v’ 13. marz AP.
HARÐIlt jarðskjálftar urðu
á Sikiley og syðst á Ítalíu á
laugardagsnótt með þeim
afleiðingum að tugir þús-
unda flýðu heimili sín f
ofboði.
Tvö gamalmenni létu lífið
vegna hjartaáfalla og marg-
ir særðust í ringulreiðinni
sem varð er fólk flýði nötr-
andi byggingar á jarð-
skjálftasvæðunum, að sögn
lögreglunnar.
Nokkur hundruð smáhýsi
jöfnuðust við jörðu og fjöldi
manna þurfti að yfirgefa
hús sín af öryggisástæðum.
Hélt fólk til á götum úti til
dagrenningar.
Áreiðanlegar heimildir herma
að tuttugu og tveir jarðskjálfta-
kippir hafi átt sér stað á tólf
tímum en mannfjöldinn hafi að-
eins fundið fyrir einum þeirra. Sá
stóð yfir í tíu sekúndur og átti
upptök sín um sextán kílómetra
suð-austur af strönd Sikileyjar þar
sem bærinn Taormina stendur,
nálægt eldfjaliinu Etnu.
Jarðskjálftinn mældist sex stig
á Mercaliikvarða, sem samsvarar
fimm stigum á Richterkvarða og
getur valdið mikiu tjóni.
Bærinn Ferruzzano í Kalabríu-
héraði syðst á Italíu fór verst út
úr skjálftanum, þar sem sjötíu
prósent húsanna jöfnuðust við
jörðu.
Mikill jarðskjálfti varð á þessu
svæði 1908 en þá létu lífið þrjátíu
þúsund íbúa Messinaborgar á
Sikilev.
sem svæðið var fullt af skíðafólki •
frá Lausanir og Genf, í aðeins 80
kílómetra fjarlægð, Fyrstu fregnir
hermdu að sextíu manns væru
týndir en síðar á sunnudag höfðu
aðeins borizt tilkynningar frá
aðstandendum fjórtán skíða-
manna. Sú tala minnkaði óðum og
enn er ríkjandi von um þá týndu
þar sem dæmi eru til um að fólk
hafi verið grafið lifandi úr snjó-
sköflum eftir sólarhringslegu eða
Dollarinn
fellur þrátt
fyrir gagn-
ráðstafanir
Bonn, 13. marz, Reuter.
VESTURÞjóðverjar og
Bandaríkjamenn komu sér í
dag saman um aðgerðir til að
stemma stigu við íalli dollar-
ans, sem engu að síður tók
dýfu á gjaldeyrismörkuðum
jafnt skjótt og fregnin um
aðgerðirnar barst út.
Viðskiptamenn lýstu yfir
óánægju með ráðstafanirnar
og reyndir bankamenn í
London lýstu þeim scm of
grunnfærnum og siðkomnum.
Embættismenn höfðu haft á
orði að viðræður hefðu farið
fram um helgina milli Wash-
ington og Bonn um „raunhæf-
ar ráðstafanir" og hækkaði
dollarinn í verði er það frétt-
ist.
í sameiginlegri tilkynningu,
sem gefin var út í Bonn og
Washington, var látið uppi að
ákveðið hefði verið að láta
bandarískum yfirvöldum eftir
meiri erlendan gjaldeyri til að
gera þeim kleift að kaupa
dollara ef óreiða yrði á mörkuð-
um. Ennfremur kom fram að
löndin hefðu fyllsta hug
náinni samvinnu.
Framhald á bls. 30.
Leitað að fólki þar sem snjóskriða féll nálægt Col des Mosses í Sviss.
Owen ræðir við
skæruliðaforingja
London, 13. marz, Reuter AP.
BREZKI utanríkisráðherr-
ann, David Owen, átti í
kvöld fyrsta fund sinn með
leiðtogum Rhódesískra
skæruliða sfðan samkomu-
lagið um lausn Rhódesíudeil-
unnar var samþykkt. Tveir
af fjórum aðilum, sem hlut
áttu í samkomulaginu, höfn-
uðu í dag tilmælum Breta og
Bandaríkjamanna um nýja
íriðarráðstefnu, sem full-
trúar skæruliða tækju þátt í.
Nkomo og Mugabe, leiðtogar
skæruliða í hópi blökkumanna,
komu til London í dag til viðræðna
við Owen, en þeir komu frá
Bandaríkjunum þar sem þeir
ræddu við bandaríska utanríkis-
ráðherrann, Cyrus Vance, og
ávörpuðu Öryggisráð S.Þ. Fund
þeirra með Owen sótti einnig
sendiherra Bandaríkjanna í
London, Kingman Brewster.
Owen hefur að undanförnu legið
undir ákúrum íhaldsmanna fyrir
að neita að lýsa yfir fullum
stuðningi við samkomulagið, sem
ríkisstjórn Ian Smiths og þrír
fulltrúar hófsamra þjóðernisleið-
toga undirrituðu. Brezki utanríkis-
ráðherrann hefur hug á að gert sé
nýtt samkomulag með þátttöku
Föðurlandsfylkingarinnar.
Afríska þjóðaráðið, sem Abel
Muzorewa, biskup, veitir forstöðu
hafnaði í dag hugmyndinni um
frekari samningaviðræður um
framtíð landsins, og sagði í
tilkynningu, að samkomulag, það,
sem undirritað var 4. marz, kæmi
nægilega til móts við hugsjónir
blökkumanna. Einnig var búizt við
því, að annar aðili, er hlut átti að
samkomulaginu, Jeremiah Chirau,
forseti öldugardeildarinnar, héldi
til Bretlands á mánudag til að afla
fylgis við fyrirliggjandi samkomu-
lag uin meirihlutastjórn.
Enginn vildi verja
Rauðu herdeildina
Torínó, 13. marz, Reuter
ÞESS var farið á leit við
forseta ítalsks lögfræðinga-
félags í dag að hann tæki að
sér að vera verjandi hryðju-
Nær
valdi
öll Ogaden á
Eþíópíumanna
Nairobi, Kenya, 13. marz. AP.
SÓMALSKIR hermenn
kveiktu í dag í þorpi í
Ogaden-eyðimörkinni rétt
við landamæri Kenya, en
Sómalíuher er nú á undan-
haldi fyrir herjum Eþíópíu í
Ogaden.
Opinber fréttastofa Kenya
skýrði frá því, að sómalskir
hermenn hefðu kveikt í
landamærabænum Mandera
og að fólk handan landa-
mæra Kenya hefði heyrt
sprengidrunurnar þegar
skotfæri sprungu. Fregnir
hermdu að flest hús í bænum
hefðu verið brennd.
Eþíópíumenn sögðu í gær, að
herir þeirra hefðu náð borgunum
Kebri Dehar og Warder Awari í
suðvesturhluta Ogaden og að
annar her hefði náð borgunum
Dolo og Boko Ayo við landamæri
Kenya á sitt vald. I fréttum
Eþíópíustjórnar var hvergi minnzt
á neina mótspyrnu, og er því ljóst
að herir Sómalíu hörfuðu áður en
Eþíópíar létu til skarar skríða.
verkamanna, sem skutu
fyrirrennara hans til bana
fyrir fimm dögum, en
hrýðjuverkamenn þessir
ganga undir nafninu
„Rauða herdeildin“.
Var þetta til þess gert, að
réttarhöld gætu fario fram
yfir Renato Cucio og fjórtán
af liðsmönnum hans, en
menn þessir eiga yfir höfði
sér allt að 20 ára fangelsis-
dóm fyrir tilraunir til að
skapa upplausn í ítölsku
félags- og stjórnmálalífi.
Guido Barbaro, dómari,
skýrði frá því að hann ætti
einskis annars úrkosta en
fara þess á leit við forseta
lögfræðingafélagsins,
Gianvittorio Gabri, að hann
tæki starfið að sér þ^r eð
aðrir lögfræðingar á N-Italíu
hefðu færzt undan því að
gegna því hver á eftir öðrum.
Flýtti fyrir dauða
eiginkonu sinnar
London 13. marz. AP.
Lögregluyfirvöld
sögðu í dag, að þau
hefðu sent mál
Derek Humhrys
áleiðis til saksókn-
ara, sem síðan
ákveður hvort
draga eigi Ilumphry
fyrir rétt. Hum-
phry, sem er blaða-
maður við brezka
blaðið „Sunday
Times“, sagði í sjón-
varpsþætti á sunnu-
dagskvöldið, að
hann hefði gefið
konu sinni banvæn-
an skammt, af
svefnlyfjum og
verkjalyfjum og
þannig flýtt fyrir
dauða hennar, en
hún þjáðist af
krabbarúeini.
Humhry sagði að þetta
hefði átt sér stað í marz I
1975, og að hann hafi
gefið konu sinni lyfin í
drykk. „Það er kominn
tími til að þú farir og
náir í eitthvað handa mér
að drekka“, á eiginkona
Humhrys að hafa sagt
við hann.
Lögregla hefur beðið
sjónvarpsstöðina, sem
sjónvarpaði þættinum,
sem Humphry kom fram
í, að láta sig fá myndseg-
ulband jneð þættinum, en
ekki er enn vitað hvort
Humphry verður dreginn
fyrir rétt. Talsmaður lög-
reglunnar sagði, að lög-
reglan hefði ekki haft
minnstu hugmynd um
líknarmorðið fyrr en
Humphry sagði frá því í
sjónvarpinu.
Verði Humphry sekur
fundinn um aðstoð við
sjálfsmorð getur hann
átt yfir höfði sér allt að
14 ára fangelsi
Skæruliðaforingjar sögðu í gær,
að undanhald Sómalíumanna
breytti ekki þeirri stefnu skæru-
liða að berjast gegn Eþíópum. Enn
er ekki vitað hve öflugur sá
skæruhernaður yrði, en hernaðar-
sérfræðingar telja að barátta
skæruliðanna gæti haldið áfram
um nokkurra ára skeið. Ef svo
væri þyrftu um 11.000 kúbanskir
hermenn-og 1.000 sovézkir hernað-
areérfræðingar a3ð halda kyrru
fyrir í landinu.
Milos Minic utanríkisráðherra
og varaforsætisráðherra Júgóslav-
íu, er væntanlegur til Eþíópíu
innan skamms og mun hann eiga
viðræður við stjórnvöld um horfur
í málefnum Eþíópíu og Sómalíu.
Tito forseti Júgóslavíu átti í gær
viðræður við Minic og er gert ráð
fyrir að hann hafi þar skýrt Minic
frá stefnu Bandaríkjamanna í
málinu, en Tito er nýkominn úr
heimsókn til Bandaríkjanna.
Nýr sendiherra
Svía í Reykjavík
Frá fréttaritara Mbl.
í Stokkhólmi S. Jónssyni, 13.
marz.
í FUfcTTATILKYNNINGU frá
sarnska utanríkisráðuneytinu
fyrir helgi sagði að Olof Kaijser.
sem vcrið hefur sendiherra í
Reykjavík. hafi verið skipaður
forstöðumaður svonefndrar
B deildar utanríkisráðuneytisins.
sem annast verkefni. sem upp
koma þegar samska ríkið tekur
að sér að gæta hagsmuna annars
ríkis á erlendri grund.
Nýr sendiherra í Reykjavík
hefur verið útnefndur og er það
Ethel Wiklund, sem áður hefur
gegnt störfum í þágu utanríkis-
þjónustunnar. Hún er fyrsta kon-
an í hópi stjórnarerindreka sem
skipaður er sendiherra.