Morgunblaðið - 14.03.1978, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1978
Spassky efst-
ur í Bugojno
Bugojno, Júgóslavíu, 13. marz.
SOVEZKI stórmeistarinn Boris
Spassky hefur forystuna á
alþjóðaskákmótinu í Bugojno að
12 umferðum loknum. Skák sína
á móti Gligoric, scm frestað hafði
verið úr 12 umferð, vann Spassky
og þar með tók hann forystuna í
sínar hendur.
Önnur úrslit úr 12. umferð
urðu þau. að Karpov vann Hort,
Balashov vann Vukic, en skákum
þeirra Miles og Portischs, Timm-
ans og Ljubojevics, Bukics og
Larsens. Byrnes og Ivkovs og
Iliihners og Tals lauk með jafn-
tefli.
RÆKJUAFLI var yfiileitt góður
hjá Vestfjarðahátum í fehrúar á
þeim þremur veiðisvæðum. þar
sem rækjuvciði var stunduð. í
fehrúar stunduðu 55 bátar veið-
arnar og nam heildarafli þeirra
908 lestum en í fyrra var afli 65
háta 1111 lestir í febrúar. _A
þessum þremur veiðisvæðum eru
hátar yfirleitt langt komnir með
að veiða í leyfilegan hámarks-
kvóta.
F'rá Bíldudal reru nú 7 bátar og
öfluðu 71 lest, en í fyrra var afli
10 báta, sem reru frá Bíldudal, 176
Iestir. Aflahæstu bátarnir voru
Helgi Magnússon með 15,5 lestir,
Vísir 14,1 lest og Höfrungur 11,4
IIEILDARFRAMLEIÐSLA
kindakjiits á s.I. ári var 13.694
lestir. þar af var dilkakjiit 12.150
lestir. Þetta er 100 lestum meira
af dilkakjöti en árið áður. en 122
lestum minna af kjöti af full-
orðnu. Sala innanlands á s.l. ári
var 7.192 lestir af dilkakjöti og
1.531 lestaf kjiiti af fullorðnu.
Þetta er tæpu 1% minna en árið
áður. segir í frétt frá upplýsinga-
þjónustu landbúnaðarins.
Flutt var út 5.191 lest af
kindakjöti, þar af voru 4.726 lestir
af dilkakjöti. Birgðir af dilkakjöti
1. janúar s.l. voru 9.076 lestir en
1.142 lestir af kjöti af fullorðnu. A
s.l. ári var slátrað 873.225 dilkum
og 70.679 fullorðnu fé. Meðalfall-
Pinochet
slakar á
í Chile
Santiagao, 13. marz. Reuter.
Umsátursástandi, sem verið hefur
í gildi í Chile síðan herinn steypti
marxista-stjórn Allendes forseta
1973, verður aflétt á laugardag, að
því er forseti landsins. Augusto
Pinochet, tilkynnti' dag.
Forsetinn sagði að neyðar-
ástandið, sem lýst var yfir á sama
tíma, myndi vera áfram í gildi, til
að tryggja að friður héldist í
landinu.
Pinochet hershöfðingi stóð fyrir
byltingunni 1973, en þá hafði
Allende ríkt í 34 mánuði í Chile.
Allende var myrtur í byltingunni.
Á sunnudag voru tefldar bið-
skákir og aðrar skákir sem þurft
hefði að fresta og urðu úrslit þá
sem hér segir: Balashov vann
Miles, Vikic og Larsen gerðu
jafntefli og einnig Hort og Ivkov.
Staðan að loknum 12. umferðum
er því þessi:
1. Spassky 8 v.
2. -3. Karpov og Timman 7*/2 v.
4.-5. Ljubojevic og Tal 7 v.
6. Hort 6V2 v.
7. —11. Ivkov, Portisch, Húbner,
Miles og Balashov 6 v.
12. Larsen 5 '/2 v._
13. —14. Gligoric og Byrne 4‘A v.
15.—16. Bukic og Vukic 4 v.
lestir. Leyfilegur afli á vertíðinni
er 600 lestir, en af því magni er
eftir að veiða 258 lestir.
Frá verstöðvunum við Isafjarð-
ardjúp reru 38 bátar og öfluðu 645
lestir, en í fyrra var afli 42 báta
743 lestir í febrúar. Gert er ráð
fyrir að rækjuvertíð ljúki í marz
frá flestum verstöðvunum við
ísafjarðardjúp, þar sem langleið-
ina er komið að veiða leyfilegt
aflamagn, sem er 2500 lestir.
F'rá Hólmavík og Drangsnesi
reru 10 bátar og öfluðu 192 lestir,
en í fyrra öfluðu 13 bátar einnig
192 lestir í febrúar. Aflahæstu
bátarnir voru Hilmir með 21,0
lestir, Grímsey 20,8 lestir og
Ásbjörg 20,3 lestir.
þungi dilka reyndist vera 14.26
kíló, en það er 120 grömmum
minna en árið áður. Að lokum
segir í fréttinni að gert sé ráð fyrir
að flytja út 2.600 lestir af dilka-
kjöti til viðbótar á þessu ári af
framleiðslu síðasta árs.
Ekið á bíl í
Efstalandi
LAUGARDAGINN 11. marz s.l.
milli klukkan 6 og 13 var ekið á
bifreiðina R-57429, sem er Fiat 125
P, árgerð 1978, drapplituð, þar sem
hún stóð í bifreiðastæði við
Efstaland 12. Vinstri hlið bifreið-
arinnar hafði verið skemmd en
tjónvaldur stungið af. Það er ósk
lögreglunnar, að þeir sem telja sig
geta veitt upplýsingar í þessu máli
hafi samband við slysarannsókna-
deild lögreglunnar.
— Landsbanka-
málið
Framhald af bls. 48
banka í Sviss. Samkvæmt
heimildum, sem Mbl. hefur
aflað sér, neitar deildarstjórinn
fyrrverandi enn að gefa upplýs-
ingar, sem skýrt geti þessa
fjármagnsflutninga. Við upp-
kvaðningu síðasta gæzluvarð-
haldsúrskurðar, yfir Hauki
Heiðari var það talin ein af
meginástæðunum fyrir áfram-
haldi gæzluvarðhalds að skýr-
ing hafði ekki fengizt á þessum
þætti málsins.
— Dollarinn
Framhald af bls. 29.
Fjármálaráðherra Vest-
ur-Þýzkalands, Hans Matt-
höfer, skýrði blaðamönnum frá
því að ráðstafanirnar sýndu að
Bandaríkjamenn væru stað-
ráðnir í að grípa til dugandi
aðgerða í því skyni að verja
gjaldmiðil sinn, sem féll um
16% gagnvart markinu á síð-
asta ári.
í gjaldeyrisdeildum banka í
Frankfurt sagði hins vegar að
margir hefðu vænzt ráðstafana,
sem væru annað og meira en
skammtímaáætlanir til að
öngla saman nægum erlendum
gjaldeyri til að hefta hrap
dollarans. Einnig kom fram
meðal ráðamanna í New York
að ráðstafanirnar væru tæp-
lega nógu víðtækar til að reisa
skorður við þeirri spákaup-
mennsku, sem leitt hefur til
rýrnunar dollarans að undan-
förnu.
Áður en tilkynningin kom út
mun verð dollarans í London
hafa verið um 2.800 mörk, en
féll síðan í 2.0525 mörk síðdegis
í dag.
— Góðviðri
Framhald af bls. 2
ar. Ofært var orðið fyrir Tjörnes
og þungfært í Mývatnssveit.
Stórum bílum var í gær talið
fært um Kelduhverfi og allt til
Raufarhafnar, en ófært var austan
hennar og stórhríð á Þórshöfn.
Var færð farin að þyngjast á
vegum í Vopnafirði.
I gærmorgun var mokstur haf-
inn á Fjarðarheiði, en þar varð
aftur frá að hverfa vegna veðurs
og er þar ófært. Aftur var
Oddsskarð fært og einnig ófært í
Borgarfjörð eystri. Síðan er vært
suður með fjörðum og um alla
suðurströndina til Reykjavíkur.
— Frakkland
Framhald af bls. 1.
hækkaði gagnvart dollar um sem
svarar 15 centum og öllum öðrum
gjaldmiðlum. „Ég hef aldrei vitað
annað eins í 50 ár,“ sagði verð-
bréfasali nokkur.
I stórum dráttum fengu stuðn-
ingsflokkar stjórnarinnar 48.4%
greiddra atkvæða, vinstrisinnaðir
stjórnarandstæðingar, þar á með-
al öfgamenn og fleiri, 49.5% og
ýmsar
umhverfisverndunarhreyfingar
2.1%.
Jafnaðarmenn flýttu sér að
halda þvi fram að þeir væru orðnir
fjölmennasti flokkurinn, en opin-
berar tölur sýndu að gaullistar
fengu aðeins fleiri atkvæði en þeir,
22.6% miðað við 22.5% atkvæði
jafnaðarmanna. Fylgi kommún-
ista minnkaði um hálfan af
hundraði og þeir fengu 20.5%
atkvæða.
Samkvæmt skoðanakönnunum
síðustu mánuði hefur því stöðugt
verið spáð að vinstrimenn fengju
um 5—6% meira fylgi en stjórnar-
sinnar í fyrri umferðinni og
jafnaðarmenn hafa gert ráð fyrir
því að fá allt að 28% atkvæða. En
Mitterand flýtti sér að halda því
fram að vinstri menn hefðu sýnt
að þeir væru stærsta stjórnmála-
aflið í Frakklandi og hann sagði að
flokkur hans mundi áreiðanlega
ná því takmarki sínu að fá
stuðning sjö milljóna kjósenda
sem eru 35 milljónir alls.
Raymond Barre forsætisráð-
herra, einn tólf ráðherra sem var
endurkjörinn með hreinum meiri-
hluta, lét í ljós hóflega bjartsýni
í dag um stjórnarsigur á sunnu-
daginn. I fyrri umferðinni var
kosningaþátttaka 83% sem er met
og Barre sagði að ef þátttakan yrði
eins mikil á sunnudaginn yrði
Frakklandi bjargað frá „alvarleg-
um afleiðingum sameiginlegrar
stefnuskrár" vinstri manna.
Gaullistaleiðtoginn Jacques
Chirac sagði að hægt væri að sigra
vinstrimenn á sunnudaginn en
baráttan yrði erfið. Embættis-
menn í Elysee-höll sögðu að
kjósendur hefðu greinilega orðið
við áskorun Valerý Giscard
d.Estaing í sjónvarpsræðu daginn
fyrir kjördag, beitt skynseminni
og forðast að stofna velmegun
Frakklands í hættu.
Franska innanríkisráðuneytið
birti endanleg úrslit fyrri umferð-
arinnar í dag og þau eru svohljóð-
andi.
Á kjörskrá: 39,179,654
Kosningaþátttaka: 19.125.025
(82.7%)
Gild atkvæði: 28.541.062 (81.1)
Auð atkvæði: 6.054.629 (17.2P)
Vinstra bandalagið: 45.1%
Kommúnistaflokkurinn: 5.870.340
(20.5%)
Sósíalistaflokkurinn: 6.450.134
(22.5%)
Róttækir vinstri menn: 603.932
(2.1%)
Stjórnarflokkarnir: 46.5%
Gaullistar: 6.451.454 (46.5%)
Miðjumenn: 6.122.180 (21.5%)
Óháðir: 684.985 (2.4%)
Vinstriöfgamenn: 952.661 (3.3%)
Umhverfisverndarmenn: 612.100
(2.1%)
Ýmsir: 793.276 (3.0%)
— Lugmeier
Framhald af bls. 48
ljós, eftir að Lugmeier var
dæmdur í 12 ára fangelsi, að
hann hafði miklu meiri fjárráð
en talið var að hann gæti haft
vegna þeirra bankarána, sem
hann hafði verið orðaður við. Er
og talið að einhverjir aðilar
hérlendis kynnu að hafa vitn-
eskju, sem skýrt gæti ýmis
atriði í rannsókn vestur-þýzku
rannsóknarlögreglunnar á þessu
sakamáli. Þess vegna munu
Þjóðverjarnir komnir til lands-
ins nú.
Svo sem menn rekur minni til
var Lugmeier handtekinn hér í
ágústmánuði síðastliðnum eftir
tilvísun pilta, sem fannst grun-
samlegt, hve maður honum
kunnugur hafði mikil fjárráð.
Funduzt hjá Lugmeier 300 þús-
und vestur-þýzk mörk, sem
munu hafa verið hluti af ráns-
feng, en Lugmeier framdi vopn-
að rán í Frankfurt 1973. Var
hann síðan handtekinn ári síðar
í Mexikó, en tókst að strjúka úr
réttarsal í F'rankfurt. Næstu
þrjú árin flæktist hann síðan
um heiminn, unz hann kom til
Islands og þá undir dulnefninu
John Michael Waller og þóttist
hann vera Iri. Hérlendis dvald-
ist hann í um það bil hálft ár og
mun á þessum tíma hafa haft
samneyti við fólk hérlendis.
— Mólúkkar
Framhald af bls. 1.
stjórnarinnar sem stukku út um
glugga og létu sig síga niður
með brunaslöngu til þess að
komast undan. Talsmaðurinn
segir, að nokkrir hafi særzt og
verið fluttir í sjúkrahús.
í Haag sagði talsmaður dóms-
málaráðuneytisins að bréf hefði
verið afhent með kröfum um að
árásarmennirnir yrðu fluttir úr
landi í flugvél ásamt gíslunum
og öðrum Mólukkamönnum sem
sitja í fangelsum í Hollandi.
Hann sagði að 21 Mólukkamað-
ur sæti í hollenzkum fangelsum,
þar á meðal sjö menn ssem voru
dæmir í allt að níu ára fangelsi
fyrir árásir á járnbrautalest og
skólahús í maí í fyrra.
Lögregla umkringdi bygging-
una í Assen með brynvörðum
vögnum, en komst ekki inn í
bygginguna fyrir stöðugri skot-
hríð frá Mólukkunum. Hollenzk-
ir embættismenn segja að náðst
hafi einu sinni samband í síma
við hryðjuverkamennina.
Sjónarvottur segir að
Mólukkarnir hafi hrópað: „Sitjið
öll kyrr, annars skjótum við
ykkur“, þegar þeir ruddust inn
í bygginguna. Sjónarvotturinn,
F.G. Kragter, skrifstofumaður,
sagðist hafa laumazt frá mót-
tökusal til matstofu og komizt
út um glugga á jarðhæð og heyrt
skothríð þegar hann komst út.
Talsmaður bæjarstjórnarinn-
ar sagði, að af sex sem hefðu
særzt væri einn skólapiltur sem
varð fyrir kúlum á götunni fyrir
utan bygginguna.
Árásin var gerð þegar setja
átti fund í fyikisstjórninni og
samkvæmt óstaðfestum fréttum
eru tveir úr fylkisstjórninni
meðal gíslanna. Talið er að
Mólukkarnir hafi ætlað að ræna
fylkisstjóranum, frú Tinneke
Schilthuis, en hún flúði út um
glugga.
Starfsmenn hollenzka dóms-
málaráðuneytisins segja að
hryðjuverkamennirnir vilji að
flugvél verði höfð til taks á
Schiphol-flugvelli í Amsterdam
til að flytja þá úr landi með
gíslunum, en ekki er vitað hvert
þeir vilja fara.
Leo G. Klok skrifstofumaður
sagði fréttamönnum, að hann
hefði verið að drekka kaffi
þegar hann heyrði einhver læti
fyrir utan bygginguna.
Ég fór út úr skrifstofu minni
og gekk niður stigann. Ég komst
niður á fyrstu hæð ásamt
nokkrum öðrum og þá var skotið
á okkur. Ég sá einn Mólukku-
manninn og hann var með hjálm
á höfði.
Við hlupum aftur upp stigann
og fundum brunaslöngu sem við
köstuðum út um gluggann. Við
létum okkur síga og stukkum
þegar við nálguðumst jörðina.
Síðan hlupum við eins og
fætur toguðu. Þegar við hlupum
yfir lóðina fyrir aftur bygging-
una urðu tveir félagar mínir
fyrir skothríð en hvorugur
særðist alvarlega," sagði Klok.
r
— Israel
Framhald af bls. 1.
hefnd sem væri nógu hræðileg til
þess að hefna morðs á litlu barni
en ekki yrði látið undir höfuð
leggjast að hefna blóðs ísraelskra
barna. Aðrir ráðherrar sem fluttu
útfararræður hvöttu til nýrrar og
algerrar styrjaldar gegn skærulið-
um.
Begin tilkynnti að skipaðar yrðu
tvær nefndir til að rannsaka
árásina á laugardaginn. Lögreglan
telur að herinn hafi komið of seint
til aðstoðar, en lögreglan hefur
verið gagnrýnd fyrir að hafa farið
vitlausa leið þegar hún reyndi að
aka í veg fyrir langferðabílinn sem
var rænt. Yfirmaður lögreglunnar
sagði á blaðamannafundi að lög-
reglan yrði að fá fleiri farartæki,
betri fjarskiptakerfi og nok rar
þyrlur til að berjast gegn hryðju-
verkamönnum.
Hann skýrði ennfremur frá því,
að tveir skæruliðar hefðu drukkn-
að þegar gúmbát þeirra hvolfdi um
220 metra frá ströndinni og þar
með er ljóst að þrír gúmbátar voru
notaðir í árásinni. Hann sagði að
skæruliðar hefðu verið á siglingu
í tvo daga eftir að þeir yfirgáfu
móðurskip sitt og átt í erfiðleikum
vegna slæms veðurs þar til þeir
stigu á land nálægt samyrkjubú-
inu Maagdn Michael um 35 km
suður af Haifa.
Þeir ætluðu að taka gísla í Tel
Aviv, sem er um 50 km sunnar, og
höfðu meðferðis flugmiða þar sem
sagði á lélegri hebresku: „Markmið
okkar er að frelsa bræður okkar
sem hafa sætt pyntingum í fang-
elsum ykkar í 10 ár.“ Á flugmiðun-
um var hótað að myrða gíslana ef
þeir sýndu mótþróa og sendiherrar
Rúmeníu, Bretlands og Sameinuðu
þjóðanna voru beðnir að fara með
þeim. Skæruliðaflokkurinn kallað-
'ist „sveit fórnarlamba Kafr Kas-
sem“. Kafr Kassem er ísraelskt
þorp þar sem hermenn skutu 43
þorpsbúa sem óafvitandi rufu
útgöngubann 1956.
Begin sagði í þingræðu sinni, að
árásin væri eitthvert mesta ódæði
allra tíma. Hann sagði að Rússar
og Austur-Evrópuþjóðir hefðu séð
PLO fyrir um það bil tólf æfinga-
búðum. Hann benti á að Yasser
Arafat, yfirmaður PLO, hefði
verið fyrir nokkrum dögum í
Moskvu þar sem honum hefði verið
sýndur mikill sómi og spurði:
Hvað talaði hann um þar?
Þeim, sem úthella saklausu
blóði, verður ekki þyrmt, sagði
Begin. Við munum verja borgara
okkar, konur og börn:
Begin frestaði fyrirhugaðri ferð
sinni til Bandaríkjanna vegna
árásarinnar. I dag var tilkynnt í
Washington að hann kæmi þangað
21. marz.
Góður rækjuafli
hjá Vestfjarða-
bátum í febrúar
13.694 lestir af
kindakjöti fram-
leiddar á s.l. ári