Morgunblaðið - 14.03.1978, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1978
+ Móðir okkar, tengdamóðir og amma ÞÓRA GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Hraunstíg 2, Hafnarfirði lézt aðfaranótt 1 1 marz I Borgarspítalanum Þórarinn Sigurjónsson, Jónina Sigurjónsdóttir, Ingólfur Sigurjónsson. Sigurlín Hermannsdóttir, Sigurjón Hermann Ingólfsson. Leó Gunnar Ingólfsson.
t Móðirsystir okkar og frænka, ÞORBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR, frá Viðivöllum, lést i Elliheimilinu Grund föstudaginn 1 0 marz, s I Inga Karlsdóttir Steingrimur Karlsson Erla Thomsen
Kveðjuathöfn eftir KARL KRISTJÁNSSON fyrrverandi alþingismann fer fram í Fossvogskirkju miðvikudaginn 1 5. marz 1 978, klukkan 3 e.h. Jarðarför hans verður gerð frá Húsavikurkirkju laugardag 18. marz. klukkan 2 e.h. Pálina Jóhannesdóttir börn og tengdabörn.
+ Maðurmn minn og faðir okkar. THEÓDÓR ÞORLÁKSSON, frá Laugalandi, Reykhólasveit, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16 3 kl 3 Helga lllugadóttir og synir.
+ Móðir min og tengdamóðir, ÁSTRÍOUR ÓLAFSDÓTTIR, fyrrum húsfreyja á Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju miðvikudaginn 1 5 marz kl 2 e h Gunnar Gunnarsson Steinunn Eyjólfsdóttir.
+ Maðurinn minn og faðir okkar JÓN ÞORKELSSON, Miklubraut 80, Reykjavik, andaðist að Hrafnistu laugardaginn 1 1. marz Sigurlaug Daviðsdóttir og dætur.
Faðir okkar, JÓN GÍSLASON, múrari, Skipasundi 5, lézt i Landspítalanum, laugardaginn 1 1 marz Gunnar L. Jónsson, Birgir Jónsson.
+ Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, fósturmóður', tengdamóður og pmmu, KRISTÍNAR VILHJÁLMSDÓTTUR, Guðrún S. Jóhannsdóttir, Kristín Friðriksdðttir, Benedikt B. Blöndal, Sigþrúður G. Blöndal, Jóhann Pétursson, Kristín Svavarsdóttir, og barnabörn.
+ Kveðjuathöfn um móður okkar, tenqdamóður oq ömmu, JÓRUNNIHANNESDÓTTUR, frá Sauðárkróki, fer fram frá Dómkirkjunni i Reykjavik miðvikudaginn 15 marz kl 1 3 30 Jarðsett verður frá-Sauðárkrókskirkju laugardaginn 18 marz kl 14 00 Ástrún Jónsdóttir Sivertsen Marteinn Sivertsen Helga Jónsdóttir Sveinn Þorsteinsson Sigfús Jónsson Þórunn Friðfinnsdóttir Herdis Jónsdóttir Guðgeir Magnússon og barnabörn
Sigurást Guðvarðar-
dóttir - Minningarorð
Sigurást Guðvarðardóttir, hús-
freyja að Laugateigi 58, andaðist
í Borgarspítalanum þann 6. þ.m.
eftir langa sjúkdómslegu. Útför
hennar verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 3.
Ásta, eins og hún jafnan var
kölluð, var fædd hér í Reykjavík
þann 14. maí 1910, næst yngst átta
barna foreldra sinna, Guðvarðar
Vigfússonar, sjómanns, og Guðlín-
ar Helgadóttur konu hans. Tvö
systkina hennar eru nú á lífi.
Eftiriifandi eiginmanni sínum,
Þorvaldi Brynjólfssyni, yfirverk-
stjóra Landssmiðjunnar, giftist
hún þann 10. október 1910 og áttu
þau því hátt í hálfrar aldar
hamingjusamt hjónaband að baki.
Börn þeirra eru fjögur, Ingiberg,
rafvirkjameistari hér í borg,
kvæntur Ingu Valdísi Pálsdóttur.
Þau eiga þrjú börn. Guðlín, gift
Hans Ragnari Linnet, skrifstofu-
manni. Þau eru búsett í Sydney í
Ástralíu og eiga fjögur börn.
Kolbrún, gift Guðmundi Helga
Gíslasyni, stýrimanni. Þau eiga
þrjú börn og eru búsett hér í
Re.vkjavík. Ásta, gift Halldóri
Waagfjörð, vélstjóra. Þau eru
búsett í Vestmannaeyjum og eiga
tvö börn.
Á heimili þeirra Ástu og Þor-
valds var gott að koma, enda áttu
margir leið þangað, bæði skyldir
og vandalausir. Húsmóðirin var
létt í lund og átti auðvelt með að
miðla öðrum af þeim hæfileika
sínum og að gleðjast með vinum
sínum þegar svo bar undir. Frá
slíkum gleði- og hátíðarstundum
eiga vinir hennar um hana margar
og góðar minningar. En sem að
líkum lætur þekkti hún einnig
alvöruhliðar lífsins og hafði ríka
samúð með öllum, sem áttu við
.vandamál að stríða. Fullyrða má
að hún hafi orðið mörgum að liði,
er svo var ástatt um.
Ásta starfaði í einni af kvenna-
stúkum Oddfellowr.eglunnar hin
síðari ár og þar mun hún efalaust
hafa fundið viðfangsefni . við sitt
Herdís Jóhannes-
dóttir -Mmnmgarorð
Fædd 21. apríl 1894
Dáin 3. marz 1978
Þann þriðja þessa mánaðar
andaðist á heimili sínu, Brávalla-
götu 44, Herdís Jóhannesdóttir á
átttugusta og fjórða aldursári.
Herdís var fædd að Dunk í
Hörðudal, Dalasýslu, 21. apríl
1894. Foreldrar hennar voru hjón-
in Anna Guðmundsdóttir og Jó-
hannes Einarsson er þar bjuggu.
Þau hjónin eignuðust fimm börn.
fjóra syni og eina dóttur, Herdísí.
Heimasætan að Dunk ólst upp hjá
ástríkum foreldrum, ásamt bræðr-
um sínum.
Að kvöldi miðvikudags 1. þ.m.
komum við tvær vinkonur hennar
í heimsókn, og tók hún vel á móti
okkur eins og hennar var vandi.
Tveim dögum sðar var hún öll,
hafði lagt sig um miðjan dag og
vaknaði ekki aftur til þessa lífs.
Gekk á fund feðra sinna sæl og
glöö, sátt við allt og alla. Þannig
vildi hún hafa það.
Hún hafði á orði við okkur að
mikið væri gott að fá að sofna
svefninum langa, þegar maður
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
JÚLÍUS RÓSINKRANSSON
fyrrum fulltrúi,
Eskihlíð 12 B,
sem lést að heimili sínu hinn 4 marz, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 1 5. marz kl 1 3.30
Sigríður Jónatansdóttir,
Anna Júlfusdóttir Smári, Bergþór Smári,
Jón Júliusson, SignýUnaSen
og barnaborn.
t
Maðurinn minn, faðir og tengdafaðir
HANS NIELSEN
mjólkurf ræðingur,
Háagerði 14.
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16 marz kl 1 0 30
Hallfríður Nielsen
Alice B. Nielsen Örn Steingrimsson
Lillian B. Nielsen Steinar Halldórsson
Kristján Friðrik Nielsen Pálina Arnarsdóttir
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
ÞORSTEINS GÍSLASONAR,
Brandsbæ, Hafnarfirði,
Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrunarliði og starfsfólki St.
Jósefsspítala Hafnarfirði, fyrir góða umönnun
Gunnþórunn Viglundsdóttir
og aðrir aðstandendur.
væri orðinn það lítilfjörlegur, að
vera upp á aðra kominn með alla
aðdrætti. Hún fékk svo sannarlega
ósk sína uppfyllta, svo er Guði
fyrir að þakka.
Herdís var einstaklega nett og
fínleg kona, hlédræg, heiðarleg og
hæfi. Félagsstystur hennar þar
kveðja hana með virðingu og þökk.
Um leið og við hjónin kveðjum
þessa góðu vinkonu okkar og
þökkum henni tryggð og vináttu í
meira en þrjátíu ár, sendum við
Þorvaldi, börnum þeirra og
skylduliði öllu innilegar samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Haraldur Sigurðsson.
trúverðug. Vann öll sin vérk
hávaðalaust.
Herdís fór fljótt að vinna. Um
tvítugt yfirgaf hún æskuheimili
sitt og sveitina sína, sem hún alla
tíma unni svo mjög og minntist
með virðingu og stolti.
Leiðin lá fyrst í Stykkishólm,
þar sem hún lærði karlmannafata-
saum. Síðar fór hún hingað suður
og réð sig í vistir á góð heimili,
m.a. á heimilum Geirs Thorsteins-
sonar og Lofts Guðmundssonar
ljósmyndara. Hún minntist oft á
hvað hún hefði verið heppin með
húsbændur. Einnig vann hún
nokkur ár á Elliheimilinu Grund
og mötuneytinu á Gimli. Því næst
tíu ár í eldhúsinu á Vífilsstöðum.
En síðustu níu árin í Melaskóla,
þar til hún hætti um sjötugt.
011 verk hennar voru unnin af
einstakri nákvæmni og vandvirkni
að undrun sætti, hvort sem það
var matargerð, bakstur eða handa-
vinna. Og munu mörg heimili í
Reykjavík og víðar bera vot um
hennar fagra handbragð, sem var
listaverki fíkast.
Herdís giftist aldrei né eignaðist
börn, en frændliði sínu var hún
einstök og bar mikla umhyggju
fyrir öllu sínu fólki. Ekki síst fyrir
nöfnu sinni Herdísi Leópoldsdótt-
ur og hennar fjölskyldu, sem býr
í Bandaríkjunum. Ég veit hún
þakkar þeim, er lögðu henni lið,
Ágústu mágkonu hennar og Siggu
og ekki síst bróðursyninum Baldri
Leópoldssyni, sem annaðist
frænku sína til hins síðasta —
þökk sé þeim öllum.
Ég veit að Herdísi hefði ekki
líkað nein lofræði um sig. Tii þess
var hún of lítillát. Ég veit hún
fyrirgefur mér, því þetta er aðeins
fátæklegur þakklætisvottur fyrir
alla tryggð og góðvild er hún sýndi
mér.
Um leið og ég kveð og þakka
Herdísi samfylgdina í 22 ár,
þökkum við Sigurlaug allar yndis-
legu stundirnar, sem við áttum
áheimili hennar. Við biðjum henni
Guðs blessunar.
Eg votta öllum aðstandendum
samúð mína.
Far þú í friði.
friður Guðs þÍK blessi,
hafðu þökk fyrir allt ok allt.
I.S.
Afmælis- og
miimiiigargremar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
línubili.