Morgunblaðið - 14.03.1978, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1978
Samstaða um
stiórn á Ítalíu
Róm, 13. marz. AP. Reuter.
Forsætisráðherra Ítalíu,
Giulio Andreotti, gekk í gær
á fund forseta landsins,
Giovanni Leone, og tilkynnti
honum, að hann gæti mynd-
að stjórn með stuðningi
kommúnista, sósíalista,
sósíaidemókrata og repú-
blikana. Er þar með endi
bundinn á einhverja lengstu
stjórnarkreppu á Ítalíu frá
því eftir stríð. Þrátt fyrir að
kommúnistar hafi heitið
Andreotti stuðningi sínum,
gagnrýndu þeir í gær ráð-
herraval Andreottis og mál-
gagn komnúnista, L‘Unita,
sagðii „Einu sinni enn hefur
það sýnt sig, að Andreotti er
ekki fær um að mynda
stjórn með nýjum, dugmikl-
um ráðherrum í stað hinna
gömiu, sem þegar hafa sung-
ið sitt síðasta*4.
Hin nýja stjórn Andreottis er öll
skipuð ráöherrum úr flokki krist'i-
legra demókrata, og voru þeir allir
í stjórninni er fór frá 16. janúar,
utan tveir sem eru nýir.
Einn ráðherra úr fyrri stjórn
Italíu var rekinn, en sá hafði oft
verið harðlefja gagnrýndur af
kommúnistum. Þá færði Andreotti
einnig tvo ráðherra til innan
stjórnarinnar, en þeir höfðu einnig
verið gagnrýndir af kommúnist-
um, en Arnaldo Forlani fer sem
fyrr með embætti utanríkisráð-
herra.
Þó svo allir ráðherrarnir séu
kristilegir demókratar hafa allir
flokkarnir fimm mótað stefnu
stjórnarinnar í sameiningu.
Nokkrir flokksmenn Kristilega
demókrataflokksins hafa gagnrýnt
stjórnarmyndunina, en talið er að
Andreotti hafi myndað stjórnina
til að draga athyglina frá kosning-
um, sem verða á næsta ári.
I síðustu kosningum í júní 1976
hlutu kristilegir demókratar 38%
atkvæða, fjórum prósentum meira
en kommúnistar.
í dag sór stjórn Andreottis
embættiseið, en gert er ráð fyrir
að Andreotti biðji þingið um
Framhald á bls. 31
Vegfarendur skýla sér bak við bifreið er Suður-Mólukkar skjóta úr stjórnarbyggingunni í Assen.
Lafði
Tweeds-
muir látin
London, 13. marz, Reuter.
LAFÐI Tweedsmuir, fyrr-
verandi formaður efnahags-
bandalagsnefndar lávarða-
deildar brezka þmgsins og
sú, sem samdi við íslendinga
í þorskastríðinu 1973, er
iátin, 63 ára að aldri.
Stjórnmálaferill hennar hófst
árið 1946. Hún varð snemma
fulltrúi í Evrópuráðinu og var ætíð
hlynnt samstarfi Breta við Efna-
hagsbandalagslöndin. Lafði
Tweedsmuir átti stærstan þátt í
samninguin Breta við Islendinga
til að binda enda á þorskastríðið
árið 1973.
Áriö 1948 gekk laföin í hjóna-
band með Tweedsmuir lávarði,
syni rithöfundarins John Buchan.
Lafði Tweedsmuir var þingmaður
brezka Ihaldsflokksins frá árinu
1946. Hún neyddist til að hætta
þátttöku sinni í Evrópuráði á s.l.
ári vegna slæmrar heilsu. Hún lézt
á heimili sínu í Aberdeenshire s.l.
laugardag eftir langa legu.
Lafði Prieilla Tweedsmuir var
tvígift, fyrri maður hennar féll í
Normandí árið 1944. Hún varð
þingmaður í neðri deild brezka
þingsins 31 árs göniul og hélt því
sæti næstu tuttugu ár, þar til 1966.
Það ár varð hún fyrst kvenna
framkvæmdastjóri Cunard-skipa-
útgerðarinnar. Hún sneri sér aftur
að stjórnmáluni árið 1970, þegar
hún var gerð að barónessu.
Lafði Tweedsmuir var aðstoðar-
ráðherra í Skotlandsmálaráðu-
Sakharov atyrtur
við mótmælagöngu
Lafði Tweedsmuir.
neytinu og utanríkisráðuneytinu.
Hún var fulltrúi Breta hjá Sam-
einuðu þjónunum 1960. Þá starfaði
hún sem blaðafulltrúi, blaðamaður
og kom oft fram í útvarpi og
sjónvarpi.
Hún átti dvær dætur af fyrra
hjónabandi og eina með síðari
eiginmanni sínum.
Moskva, 12. marz, Reuter
NÓBELSHAFINN Andrei
Sakharov fylkti í dag liði
mótmælenda, sem flestir
voru Gyðingar, til að and-
mæla árás Palestínumanna í
ísrael og stuðningi Kreml-
verja við frelsisher Pal-
estínumanna, PLO.
Alls voru mótmælendurn-
ir í hópnum um 37 talsins og
kyrjuðu þeir „vei sé barna-
morðingjunum“ og „vei sé
morðingjaverndurum“ fyrir
framan „Erlenda vinahúsið“
í Moskvu. Urðu þeir fyrir
aðkasti vegfarenda, sem
hrifsuðu af þeim mótmæla-
spjöld, en augsýnilegt var að
þeim var ókunnugt um til-
efni mótmælagöngunnar
þar eð ekki hafði verið
greint frá árásinni á fólks-
flutningabifreiðina i ísrael f
sovézkum fjölmiðlum.
í yfirlýsingu, sem erlendum
fréttamönnum var látin í hendur
þar sem mótmælagangan fór
fram, komst dr. Sakharov svo að
orði að þessi „hræðilegi glæpur"
hefði verið unninn aðeins tveimur
dögum eftir að leiðtogi PLO,
Yasser Arafat, átti fund með hátt
settum sovézkum ráðamönnum.
„Vei sé skipuleggjendum, upphafs-
mönnum og aðstandendum glæps-
ins. Vei sé barnamorðingjunum.“
sagði í tilkynningunni.
Þar sem vegfarendur gerðu hróp
að mótmælendunum æpti kona í
mótmælendahópnum: „Arafat er
að drepa börn okkar. Þið gefið
Arafat vopn“. „Af hverju farið þið
þá ekki til Israels", hrópaði
einhver til baka. „Af því þið leyfið
okkur ekki að fara“, var svarið.
Greinilegt var að mótmæla-
gangan kom lögreglu í opna
skjöldu og kom hún á vettvang
nokkrum mínútum síðar. Enginn
mun þó hafa verið tekinn höndum.
Mótmælaspjöld þátttakenda voru
brennd.
Samið um laun
og kjör í Svíþjóð
Frá fréttaritara Mbl. í Stokkhólmi, 13. marz.
ÞAÐ VAR kunngert s.l.
sunnudag að þeir, sem harð-
ast hafa deilt undanfarið um
kaup og kjör í Svíjóð, At-
vinnurekendasambandið,
SAF, og launþegasamböndin
tvö, Alþýðusambandið, LO,
og Samband starfsmanna
einkafyrirtækja, PTK, hefðu
komizt að samkomulagi.
Ljóst þykir að samkomulag-
ið er engan veginn fullnægj-
andi fyrir LO og PTK, sem
segja að það tryggi ekki
óbreyttan kaupmátt og
kref jast launþegasamböndin
þess, að ríkisstjórnin grípi
til verðstöðvana og sölu-
skattslækkana til að koma í
Þetta gerðist
1977 Tilraun til að ráða
af dögum Sanjay Gandhi,
son Indíru Gandhi, for-
saetisráðherra Indlands,
fer út um þúfur.
1976 Forseti Egypta-
lands, Anwar Sadat, biður
egypzka þingið að fresta
því að samþykkja samn-
ing við Sovétríkin.
1974 Eftir margra ára
deilur samþykkir stjórn
Quebecs að lýsa frönsku
opinbera tungumálið í
fylkinu.
1968 — Varaforsætisráð-
herra Tékkóslóvakíu,
Vladimir Janko, fremur
sjálfsmorð eftir að í ljós
kom að hann var tengdur
hershöfðingja sem flúði
til Bandaríkjanna.
1965 — Ríkisstjórn ísra-
els ákveður formlega að
taka upp fullt stjórnmála-
samband við Vest-
ur-Þýzkaland.
1945 — Bandarískir her-
menn ná Kyrrahafseyj-
unni Iwo Jima á sitt vald
eftir haröa bardaga við
Japani.
1915 — Áhöfn þýzka
beitiskipsins „Dresden"
gefst upp fyrir brezkum
veg fyrir aukna verðhækk-
un.
Samkomulagið, sem fellur úr
gildi í október 1979, felur í sér 5
prósent launahækkun fyrir með-
limi LO auk sérstakrar láglauna-
uppbótar, en PTK fær launahækk-
un sem nemur 4,2 prósentum. Auk
þess náðist samkomulag um að ef
verðhækkanir fara upp fyrir 7,25
prósent markið á árinu 1978 en 5
prósent 1979, hafi launþegasam-
böndin rétt til að kerfjast nýrra
Framhald á bls. 31
Veður
víða um heim
Amsterdam 9 skýjað
Apena 13 heióskírt
Berlín 10 rigning
Briissel 10 sólskin
Chicago 6 rigning
Frankfurt 14 skýjaö
Genf 12 skýjaó
Helsinki 0 skýjaö
Jóh.b. 21 sólskin
Kaupmannah. 6 skýjaö
Lissabon 16 sólskin
London 12 sólskin
Los Angeles 19 heióakírt
Madrid 14 sólskin
Malaga 16 lóttskýjaó
Miami 25 skýjað
Moskva 3 heiðskírt
New York 13 heióskírt
Ósló 3 rigning
Palma 16 lóttskýjað
París 13 sólskin
Róm 16 sólskin
Stokkhólm. 5 skýjaó
Tel Aviv 15 skýjaó
Tokýó 9 heiðskírt
Vancouver 9 skýjaö
Vínarborg 10 sólskin
her í heimsstyrjöldinni
fyrri.
1912 — Forseti Banda-
ríkjanna, Taft, bannar
vopnaflutninga frá
Bandaríkjunum til Mexi-
co.
1647 — Frakkland og
Svíþjóð skrifa ásamt kjör-
furstanum af Bæjaralandi
undir friðarsamninginn
við Ulrn.
í dag eiga almælii Karl
Phillipp Emanuel Bach,
þýzkt tónskáld (1714 —
1788), Maxim Gorki, rúss-
neskur rithöfundur (1868
— 1936), Albert Einstein,
þýzk-ættaður vísindamað-
ur (1879 — 1955), Johann
Strauss, austurrískt tón-
skáld (1825 - 1899), Rita
Tushingham, bre/.k leik-
kona (1942 — ...) og
Albert Grimaldi, erfingi
Monaco (1958 — ...).
Ilugleiðing dagsinsi
„Óréttlát lög eru verri en
versta harðstjórn." Ed-
mund Burke, írskur
stjórnmálamaður (1729 —
1897). ■
Námumenn neita
að mæta til vinnu
AP.
kolanámumcnn
New York, 13. marz.
BANDAlíISKIR
komu ekki til vinnu sinnar í dag,
þrátt fyrir að Bandaríkjastjórn
hefði skipað þeim að mæta
samkvæmt ákvæðum Taft-
Hartley-laganna. Liigregla sagði
að kyrt hefði verið á flestum
námusvæðunum. en verkfallið
hefur nú staðið í þrjá mánuði.
„Við áttum von á þessu," sagði
einn kolanámueigendanna, f„eng-
inn mætti til vinnu." Á sunnudag
var námuverkamönnum tilkynnt,
að þeim bæri að koma til vinnu
daginn eftir, en aðeins örfáir
mættu og gat kolávinnslan því
ekki hafizt. Lögregluyfirvöldum
kemur þó yfirleitt saman um, að
allt hafi verið með ró og spekt, og
ekki er vitað til þess, að neins
staðar hafi orðið átök.
Samningaviðræður um lausn
vinnudeilunnar héldu áfram um
helgina og tóku sáttasemjarar frá
ríkinu þátt í þeim. Eitthvað miðaði
í samkomulagsátt i helgarviðræð-
unum, en talið er að enn beri mikið
á milli.