Morgunblaðið - 14.03.1978, Síða 47
47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1978
Hrydjuverkamennimir
æptu: Palestína! Arafat!
Lýsing á mestu hryðju-
verkaárás í sögu ísraels
Tel Aviv, 13. marz, AP.
Gúmbátarnir tveir veltust í krappsævinu áður en pá bar
hljóðlega aö ströndinni nokkur hundruð metra frá
aðalbrautinni milli Haifa og Tel Aviv. Aöeins nokkrum
mínútum síöar áttu eftir að eiga sér stað fjöldamorð á
pjóðveginum, sem hvergi eiga sér hliöstæðu í sögu
hryöjuverka.
Níu karlmenn og tvær konur stigu á land, en í nokkurri
fjarlægð stigu 63 ísraelskir ferðalangar upp í áætlunarbifreið
í góöu skapi eftir skoöunarferð á hvíldardegi sínum s.l.
laugardag.
í Tel Aviv ræsti bílstjóri rútu númer 901 vélarnar eftir að
tuttugu manns höföu sezt í sæti sín. Klukkan var rúmlega
fjögur síðdegis samkvæmt ísraelskum tíma og í 65
kílómetra fjarlægð biðu hryðjuverkamennirnir. Sjóferð
Þeirra hafði síður en svo verið ánægjuleg. Þeir höföu ætlað
sér að lenda 37 mílum sunnar við Tel Aviv en óveður neyddi
Þá til að sigla í fjörur nálægt litla sjávarÞorpinu Maagan
Mikhael.
Þar varð kona á vegi peirra, sem peir skutu niöur
samstundis án pess að nokkur annar yrði peirra var. Því
næst fengu peir far með leigubíl í gegnum fólkvanginn upp
að aöalbrautinni. Leigubílstjórinn hélt að petta væru
hermenn vegna kakiklæðnaöar peirra. Þegar fólkiö var fariö
úr bílnum heyrði hinn 47 ára gamli bílstjóri skothríð, sem
beint var aö rútunni númer 901. Skelfingu lostinn flúði hann
bíl sinn, stakk sér í nálæga tjörn og synti burt í ofboöi.
hægöi hann ferðina og fann um leið
kúlnahríðina á bílnum.
„Faöir minn dró móöur mína út úr
bílnum. Sjálfur hljóp ég æpandi yfir
mela um leiö og skothríðin dundi allt í
kringum mig. Ég hrasaöi, datt, lokaði
augunum og þeir hljóta aö hafa haldiö
mig dauöan, því kúlnahríðin hætti"
sagöi einn farþeganna.
Hryöjuverkamennirnir fluttu nú
fimmtán farþega úr rútu númer 901 yfir
í hinn langferöabílinn. Bundu þeir fólk
við sætin og æþtu á bílstjórann: „TKIL
Tel Aviv!"
Vítisferö hófst nú hjá hinum sjötíu
skelfingu lostnu ísraelsmönnum. Eftir
stóö rúta númer 901, eins og sundur-
tætt tík.
Og lögregluþjónn var
keyrður niður
Furðulostið lögregluliö geröi sér allt í
einu Ijóst klukkan fimm síödegis að
ekki var allt með felldu þegar rúta kom
á ofsa hraöa eftir aöalbrautinni meö
skothríö og sprengjukerti út um
gluggana. Ungur maöur, sem reyndi aö
feröast á þumalfingrinum va%ð þ%umu
lostinn þegar bílstjóri nokkur stöövaöi
bifreið sína til þess eins aö fá kúlu í
höfuðið. Ökumaör annarrar fólksbif-
reiöar leit viö og sá baksæti bílsins
sundurtætt og foreldra sína ataða í
blóöi.
Lögreglujeppi æddi af staö rétt áöur
en rútan kom til bæjarins Netanya 40
kílómetra frá Tel Aviv en var brátt
stöövaður með skothríö frá hryðju-
verkamönnunum sem brutu afturglugga
rútunnar.
Annar lögreglubíll reyndi að stöðva
rútuna með því aö leggja bílnum
þversum á veginum. En rútan 'k fram
hjá á ofsahraða, og lögregluþjónn var
keyrður niður.
Yfirvöld geröu nú ráð fyrir því aö
rútan brunaði inn í Tel Aviv á hverri
stundu. Og sú tilhugsun að eiga von á
hóp morðingja inn í stórborgina var
vægast sagt hræðileg.
Jeppar og lögreglulið tóku sér stööu
á þjóðveginum þrjá kílómetra norður
af Tel Aviv.
Begin forsætisráöherra kallaði á sinn
fund helztu ráðgjafana til að fylgjast
meö framhaldinu.
Fyrstu tveir lögreglujepparni% sem
eltu rútuna komust skammt. Sá fyrri
var sprengdur í loft upp og hinn, sem
kom í kjölfarið á þeysingshraða, ók
beint inn í flak fyrri jeppans.
„Kúlnahríðin dundi rétt við eyrun á
manni,r, sagði einn gíslanna.
Klakkan 5.25 stöðvaði rútan rétt hjá
félagsheimili, í námunda við lögreglulið-
ið. Rútan varð að nema staðar vegna
þvergirðingar lögreglu og jeppa á
veginum. Þar hóf lögreglan skothríð á
bíldekk rútunnar og þeirri skothríð var
svarað harkalega af hryðjuverkamönn-
unum.
Eftir stóð rúta
eins og
sundurtætt tík
í rútunni númer 901, sem nú var
komin til Maagan Mikhael var einn
farþeganna 45 ára gömul kona, Rina
Nini á leiö til Haifa að heimsækja
ættingja. Hún segir: „Hryðjuverka-
mennirnir ruddust inn í bílinn og æþtu:
Palestína! Arafat! Þeir miðuöu byssu að
höfði bílstjórans og skipuðu honum að
snúa aftur til Tel Aviv. Hann hlýddi og
tók U-beygju. Hryðjuverkamennirnir
æptu á farþegana og sögöu þeim að
halda ró sinni. Sumir farþeganna höfðu
þegar orðið fórnarlömb fyrstu kúlna-
hríðarinnar, hinir voru skelfingu lostnir,
of hræddir til að opna bæklingana, sem
hryöjuverkamennirnir afhentu en í þeim
stóö eitthvað um frelsun aþalestínu
undan Zíonistum" sagði frú Nini.
Á meðan á þessu stóð, var hin
áætlunarbifreiöin komin til Givat jolga,
60 kílómetra frá Tel Aviv. Þegar bílstjóri
þeirrar bifreiðar kom auga á rútua
númer 901, þar sem hún stóð kyrrstæö,
Einn hryðjuverkamannanna, aem náö-
ust, fluttur særður i spítala.
Einn hinna særðu fluttur á spítala.
Slökkviliösmenn kæfa síðustu eldtungurnar í rútuflakinu.
I rútuflakinu
voru 25 manns að
steikjast lifandi
„Ég kastaði handtöskunni minni út
um gluggann, svo aö það mundi vitnast
að ég hefði veriö einn gíslanna", sagði
Rina Nini, „Fólk reyndi að ýta börnum
sínum út um gluggana. Einhver æpti að
við skyldum stökkva út, sem ég og
geröi.“
„Nokkrir hryðjuverkamannannanna
lögöu á flótta og földu sig í runnum við
veginn. Ég sá einn og skaut. Hann
kastaði handsprengju á móti. Ég lá
kylliflatur og sprengjan sprakk rétt hjá
mér. Þegar hann stóð upp og gerði.
tilraun til að kasta annarri skaut ég
hann", sagði einn lögreglumannanna.
Inn í rútunni var handsprengjum
varpað í gríð og erg. einn farþeganna
náði byssu fallins hryðjuverkamanns og
skaut tvo hryðjuverkamenn áður en
hann komst í skjól. Hann var skotinn í
augaö og öxlina.
Rútan sprakk í loft upp og allt fylltist
af reyk, og óþef af brennandi líkum.
Fólkið lá á víð og dreif á jörðinni, sumir
alvarlega særöir og aðrir illa brenndir.
Inn í eldhafi rútuflaksins voru 25 manns
að brenna lifandi.
Hryðjuverkamennirnir komu á land
rétt hjá sjávarporpinu Maagan
Mikhael. Önnur rútan sem peir náðu
á vald sitt sprakk í loft upp rétt hjá
Herzlia.
Tuttugu mínútum síöar þagnaði
skothríðin. Níu hryðjuverkamenn voru
dánir, þótt israelsmenn óttuðust í fyrstu
að þrír hefðu sloppið. Einn hinna dánu
hryðjuverkamanna var kona. Á líki
hennar var hálsmen, í það var grafiö
nafnið DALAILAH.
Svæðiö var flóölýst og við leit fannst
lík eins arabanna í runna skammt frá.
Tveir skæruliðar náðust og var þeim
hent upp í iögreglubíl.
Aðeins klukkustund og fjörutíu mín-
útur voru liðnar frá því að gúmbátarnir
komu aö landi. Þrjátíu og tveir
ísraelsmenn höföu á þessum skamma
tíma fallið í verstu hryðjuverkaárás, í
sögu ísraels.
Átta ára drengur, sem borinn var í
burtu, heyrðist muldra lágri röddu:
„Mennirnir með þykku yfirvaraskeggin
skutu á okkur." Kona æpti: „Ekki skjóta
á okkur, Við erum Gyöingar!"
Begin frestaði viðræðum sinum við
Jimmy Carter Bandaríkjaforseta.
Fólk þusti út á stræti Tel Aviv og æpti
á hefnd.
Rina Nini, sem hér hefur verið vitnað
í sagði að ósköpunum afstöðnum:
„Fyrir tveimur tímum síöan var ég á leið
til Haifa og átti von á ánægjulegu kvöldi
meö ættingjum mínun og þar var þessi
rúta, — útbrunnið flak.“
r
Hermdarverk gegn Israel
SVO virðist sem árás Palestínumanna á fólksflutningabifreiðina nálægt Tel Aviv um helgina þar sem
meira en tuttugu ísraelsmenn létu lífiö sé afturhvarf til skipulagðra hryðjuverka af pví tagi sem
tíðkuðust ekki alls fyrir löngu. Aöfarir þessar voru oft framkvæmdar af sjálfsmorðsdeildum og svöruöu
ísraelsmenn oft fyrir sig vöflulaust. Eftirfarandi er yfirlit yfir nokkra helztu slíka viðburði:
27. nóvember, 1969. Fimmtán særö-
ust, þar af elnn tveggja ára gamall
drengur alvarlega, þegar handsprengja
sprakk í farþegahópi á alþjóöaflugvell-
inum í Aþenu. Tveir menn meö jórdönsk
vegabréf voru teknir höndum og
baráttu samtök Palestínumanna lýstu
ábyrgöinni af atburöinum á hendur sér.
8. maí, 1972. Palestínskir flugræningj-
ar hrifsa í sínar hendur flugvél
„Sabena“-flugfélagsins á leiö frá Bríiss-
el til Tel Aviv. ísraelsk hersveit leggur
til atlögu viö ræningjana jafn skjótt og
vélin lendir. Tveir flugræningjanna
drepnir og einn farþegi lætur lífið.
30. maf, 1972. Augsýnilega í því skyni
aö hefna ófaranna réðu Palestínumenn
þriggja manna japanska sjálfsmorös-
sveit úr hópi hins vinstri sinnaöa
„Rauða-hers á mála. Flugu þeir til
aþjóölega flugvallarins fyrir utan Tel
Aviv, drógu handsprengjur og riffla upp
úr farangri sínum og réöust á 250
manna hóp, drápu 27 og særöu 80.
Frelsisher Palestínumanna gekkst viö
verknaðinum.
5. september, 1972. Arabískir hryöju-
verkamenn ráöast á ólympíuþorpið í
Miinchen og taka gísla úr hópi
ísraelsmanna. Kröföust þeir þess aö
200 palestínskir fangar í Israel yrðu
látnlr lausir úr haldi. Endi var bundinn
á atburö þennan í skotbardaga á
flugvellinum 23 tímum síöar, þar sem
ellefu ísraelsmenn, fjórir hryðjuverka-
menn og einn iögreglumaöur lét lífiö.
11. aprfl, 1974. Þrír arabískir Inn-
rásarmenn ráðst inn í íbúðarhús í Quirat
Shemona noröarlega í Galíleu og drepa
18 íbúa, flesta konur og börn. Alþýöu-
fylkingin fyrir frelsun Palestínu lýstl sig
ábyrga.
15. maí, 1974 Þrír arabískir innrásar-
menn hernema skóla í Maalot í N-ísrael.
Tuttugu nemendur, fjórir aörir ístaels-
menn og þrír hryöjuverkamenn létust er
her ísraelsmanna gerði skyndiárás á
skólann, en 85 gíslum var bjargað.
25. júní, 1975. Þrír rsraelskir, óbreyttir
borgarar og einn hermaöur eru drepnir
Framhald á hls. 31