Morgunblaðið - 23.03.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1978
Dregur að lokum
loðnuvertíðarinnar
BRÆLA var á loðnumiðunum í
gær og engin veiði en nokkrir
bátar tilkynntu afla frá deginum
áður. Á þriðjudaginn var sæmileg
veiði en þá fengu 24 bátar 8,600
lestir. Loðnuna íengu bátarnir
undan Ingólfshöfða og sigldu
þeir aðallega með aflann til
Vestmannaeyja og Faxaflóa-
hafna. Samkvæmt upplýsingum
Andrésar Finnbogasonar hjá
loðnunefnd er töluvert farið að
bera á hrygndri loðnu í aflanum
og sagði hann að margt benti til
þess að nú drægi að lokum
loðnuvertíðarinnar. Fituinnihald
loðnunnar hefur lækkað mjög að
undanförnu og var um helgina
orðið 2,9% en var hæst 12,5% í
byrjun vertíðar. Loðnuverðið
hefur lækkað hlutfallslega og er
nú rúmlega 5 krónur kflóið.
Kirkjukvöld
Bræðrafélags
Dómkirkjunnar
HIÐ árlega kirkjukvöld
Bræðrafélags Dómkirkjunnar
verður á skírdagskvöld kl. 20.30
í Dómkirkjunni.'
Efni kvöldsins að þessu sinni
verður „Kærleikur og mannleg
samskipti". Hilmar Helgason
formaður S.Á.Á. er aðalræðu-
maður kvöldsins.
Kristinn Bergþórsson syngur
sálmalög eftir Sigfús Halldórs-
son tónskáld með undirleik
organista og Jónasar Dag-
bjartssonar fiðluleikara.
Lokaorð og bæn flytur séra
Hjalti Guðmundsson, dóm-
kirkjuprestur.
Vítffl
í-öíj m
»Ö6ÍÓMK'(J
teíW/ltó®
Heildaraflinn frá vertíðarbyrjun
er orðinn um 466 þúsund lestir.
Á þriðjudaginn tilkynntu 24
bátar afla, samtals 8,600 lestir.
Þeir voru:
Hrafn 600 lestir, Pétur Jónsson
450, Rauðsey 470, Eldborg 450,
Grindvíkingur 570, Bára 70, ísleif-
ur 200, ísleifur IV 100, Kap II 150,
Ársæll 250, Óskar Halldórsson
170, Sæbjörg 450, Arney 240, Örn
550, Helga 250, Hilmir 510, Huginn
580, Gísli Árni 460, Eyjaver 270,
Svanur 250, Fífill 520, Harpa 350,
Þórður Jónasson 340,' Bergur II
400.
í gær höfðu 14 bátar tilkynnt
afla, samtals 3,150 lestir:
Ólafur Magnússon 60, Helga II
290, Albert 330, Sigurbjörg 500,
Arnarnes 130, Árni Sigurður 430,
Gullberg 320, Súlan 300, Andvari
100, Þórshamar 120, Hákon 220,
Húnaröst 140, Isafold 40 og
Stapavík 170 lestir.
' Ljósm. Óskar Sæmundsson.
Aðal loðnuveiðisvæðið hefur að undanförnu verið við Ingólfshöfðann. bessi mynd var tekin þar fyrir
nokkrum dögum og sýnir nokkra báta moka loðnunni upp úr sjónum.
BSRB hyggst greiða félög-
um sínum 15 til 20 milljónir
Féð tekið úr sjóðum bandalagsins, söfnun hleypt af stað
STJÓRN BSRB samþykkti á
fundi sínum hinn 21. marz, þar
sem einnig voru boðaðir formenn
aðildarfélaga bandalagsins á
höfuðborgarsvæðinu, ályktun,
þar sem mótmælt er harðlega
þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar og borgarstjórnar Reykja-
víkur að draga yfirvinnukaup í
stað dagvinnu af þeim starfs-
mönnum, sem þátt tóku í mót-
mælaaðgerðum gegn kjaraskerð-
ingu launafólks í byrjun marz-
mánaðar. Telur stjórnin refsifrá-
drátt launa ekki samrýmast
nútíma sjónarmiðum varðandi
samskipti launafólks og
vinnuveitenda.
Haraldur Steinþórsson,
framkvæmdastjóri BSRB og vara-
formaður þess, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að þessi refsing, að
taka yfirvinnukaup og draga það
frá væri einsdæmi meðal siðaðra
þjóðfélaga. „Sumar þjóðir nota
her, aðrar geðveikrahæli og þriðja
tegundin er peningar. Okkar ríkis-
stjórn er af því tagi, en hugsunar-
hátturinn og eðlið er nákvæmlega
hið sama hjá þessum öllum —
refsigleði."
I ályktun stjórnar BSRB segir
síðan: „Stjórn BSRB samþykkir,
að þeir starfsmenn ríkis og
bæjarfélaga, sem beittir verða
refsifrádrætti launa, sem svarar
yfirvinnukaupi vegna fjarveru í
mótmælaskyni 1. og 2. marz s.l.,
skuli eiga kost á greiðslu úr
Verkfallssjóði BSRB.
Beinir stjórn þeim tilmælum til
aðildarfélaga bandalagsins, að þau
leggi viðbótarfé í Verkfallssjóð
BSRB í þessu skyni. Það sem á
vantar, að núverandi innstæða >
Verkfallssjóði, væntanleg framlög
bandalagsfélaganna og framlög
Framhald á bls. 25.
Kannað hvort tímabært
er að stofna hjartauppskurð-
deild við Landspitalann
Heilbrigðismálaráðherra, Matt-
hías Bjarnason, hefur skipað
nefnd til að kanna, hvort tíma-
bært sé að koma upp hjartaskurð-
deild við Landspítalann og þá
gera tillögur um uppbyggingu
hennar. Islendingar hafa nú
samning við hjartaskurðdeild
Sæmileg færð um landið
PfáSKí=?»-l«0-rF=)rsi
VEÐUR var að ganga niður um
land allt f gær. Vfða á fjallvegum
um vestanvert landið hafði verið
versta veður fram á miðjan dag
í gær. Fór þá veður batnandi og
greiddist þá fljótlega úr umferð.
Var þá orðið ágætlega fært um
Hellisheiði og brengsli, fært var
um Suðurland og uppsveitir
Árnessýslu allar götur austur á
firði. Á Austurlandi var fært um
Oddsskarð og stórum bflum og
jeppum var fært um Fjarðarheiði,
en ófært var til Borgarfjarðar
eystri. Á Héraði voru flestir vegir
færir jeppum og stórum bflum.
Ef farið er vestur á bóginn frá
Reykjavík þá er greiðfært fyrir
Hvalfjörð og Borgarfjörð. Fjall-
vegir á Snæfellsnesi voru mokaðir
í gær og ennfremur var Holta-
vörðuheiði mokuð um hádegisbil í
gær. Var fært aflt norður á
Hólmavík, en norðan hennar var
ófært. Hins vegar var þungfært
um Svínadal og Gilsfjörð vestur í
Reykhólasveit, en ætlunin er að
þar verði vegir ruddir í dag. Frá
Patreksfirði um Keifaheiði var
ófært, en verið var að moka
Háifdan í gær. Fært var milli
Þingeyrar og Flateyrar, heiðar
ófærar og lokuöu snjoflóð veginum
um Óshlíð í fyrrinótt, en þeim var
rutt af í gær. Var því fært inn til
Súðavíkur.
Fært var um Húnavatnssýslur
í gær. Slæmt veður var í Vatns-
skarði i gærmorgun, en eftir að
veðrið ^ekk niður varð þar öllum
fært. I gær var rutt til Siglu-
fjarðar, en þar var skafrenningur,
svo að óvíst var hversu mikið
moksturinn kæmi að gagni.
Vonzkuveður var fram á miðjan
dag á Öxnadalsheiði og var ekki
hægt að hefja mokstur fyrr en
síðdegis, eftir það varð þar fært og
veður skaplegt. Fært var til
Óiafsfjarðar, einnig austur um til
Húsavíkur, fyrir Tjörnes og upp í
Mývatnssveit. Fært var um Keldu-
hverfi og stórum bilum var fært til
Kópaskers og Raufarhafnar, en
austan hennar var fært til Þórs-
hafnar og stórum bílum fært til
Vopnafjarðar.
I dag er fyrirhugað að aðstoða
bíla á leiðinni Reykjavík-Akur-
eyri. Einnig verða vegir á Snæ-
fellsnesi lagfærðir og einnig
vegurinn um Suðurland austur til
Hornafjarðar ef með þarf. Þegar
skírdegi lýkur verður engin
þjónusta á vegum fyrr en á annan
í páskum. Þá verður aftur hafizt
handa. Hins vegar verður síma-
þjónusta Vegagerðarinnar opin
fram að hádegi í dag og á
laugardag og fram að hádegi á
annan i páskum. Geta menn á
þessum tímum leitaö sér
upplýsinga um færð í síma 21000.
Bronkton Hospital í London og
sagði Páll Sigurðsson ráðuneytis-
stjóri, að þangað hefðu verið
sendir 30—45 sjúklingar árlega
að undanförnu, auk þess sem
sérfræðingur frá deildinni, dr.
Cleland, hefur komið hingað til
lands árlega og skoðað sjúklinga.
Páll sagði, að fyrir 4—5 árum
hefði mikið værið rætt um hjarta-
skurðdeild við Landspítalann, en
við það sjúkrahús hefur verið
byggð upp aðstaða til rannsókna á
hjartasjúkdómum. Sagði Páll að í
kjölfar þessara umræðna hefðu
Seðlabankinn og sjóður Ásbjörns
Ólafssonar gefið fé til tækjakaupa,
en þegar til kom, var ekki talið
tímabært að stofna til slíkrar
deildar hér á landi. Síðan hefur
þetta mál komið til umræðu aftur
og aftur, síðast í haust og hefðiÁr.
Cleland nú hvatt til þess að málið
yrði kannað. Heilbrigðismálaráð-
herra ákvað þá að setja nefnd i
málið og er hún skipuð fi*®
mönnum. Landlæknir, Ólafur
Ólafsson, er formaður nefdarinn-
ar, en auk hans sitja í henni tveir
Framhald á bls. 25.
við
á
MORGUNBLAÐIÐ er 96 síður í dag — þrjú blöð.
Meðal annars efnis:
Lífseig þjóðfélagsádeila og jarðvegurinn sem hún spratt úr — 150 ár
frá fæðingu Ibsens eftir Aslaugu Ragnars bls. 16.
Niðurstöður benda miklu fremur til framhaldslífs en hins. Freysteinn
Jóhannsson ræðir við dr. Erlend Haraldsson bls. 33.
Dálítið um bæjarbraginn kringum Hallærisplanið forðum daga. Björn
Vignir tók saman. bls 36.
í fremstu röð í aldarfjórðung. Sigtryggur Sigtryggsson ræðir
Valbjörn Þorláksson bls. 40.
Mannlífið er merkilegt í Lundúnarborg. Ágúst Ásgeirsson litur
heimsborgina bls. 44 .
Hið ómögulega gerðist. Matterhorn sigrað 1865 eftir Sighvat Blöndah
bls. 52. _
„Við eigum kröfu til sómasamlegs lífs eins og aðrir". Ágúst Jonsson i
heimsókn á Grímsstöðum á Fjöllum bls. 56.
Ef fleiri bændur leggja niður búskap í Arnarfirði er hinum hæt •
Jóhannes Tómasson spjallar við Bjarna Kristófersson í Fremri-Hvestu
bls. 60.
í Moskvu með kerfið á hælunum, eftir Magnús Fin’nsson bls. 65.
Með Bernharði prinsi til Suðurskautsins eftir Elínu Pálmadóttur b s.
66. , ,
Mikill örn með ylblíða klóglófa. Gunnar Pálsson skrifar um irs
stjórnskörunginn De Valera bls. 70. . , .
Ég er alein, getið þið hjáipað mér? Herdís Þorgeirsdóttir skráði j5®* jg
stríðssögu pólskrar stúlku sem nú er gift og búsett hér á Islandi
80. um
Þá er í þessu páskablaði yfirlit yfir útvarp og sjónvarp ^
bænadagana, sem og kvikmyndirnar, listi yfir fermingarbörn (bla
og fjórblöðungur í lit fyrir börnin og fjölskylduna.