Morgunblaðið - 23.03.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1978
7
Aö vera einmana, einn og
öllum vinum horfinn, er
einhver sárasta raun, sem
yfir mannlegt hjarta gengur.
Aö ákvöröun Guös er maö-
urinn samfélagsvera, fædd-
ur inn í samfélag, ætlaöur til
aö lifa í samfélagi. Svo er
um sorg, aö lítt bærileg
getur hún orðiö einum en
léttbær, ef borin er af
tveim. Og svo er um gleði,
aö hennar getur enginn
raunverulega notiö einn.
Þaö er gerir hugleiöingar
kristinna manna í dymbil-
viku dapurlegastar er sú
hugsun, aö einmana deyr
hann, sem fegurst haföi
lifaö og boöaö samfélagiö.
Vfir iðandi mannhaf horfir
hann í dauöanum, en deyr
einmana, einn. Guöspjöll
veita ekki einhlítt svar viö
því, hvert raunverulegt
andlátsorö hans hafi veriö.
Guöspjöll Mattheusar og
Markúsar segja bæöi, aö
síöasta orö hans á krossi
hafi veriö óp hins eirimana
manns: „Guö minn, Guö
minn, hví hefur þú yfirgefiö
mig?“ Lúkasarguöspjall eitt
segir síöasta orö hans hafa
veriö: „Faöir, í þínar hendur
fel ég anda minn.“
EINMANA hafa í meira
eöa minna mæli veriö hinir
stóru andar trúarbragö-
anna. Mitt í fagnaöarlátum
lýðsins stóö hinn mikli
spámaöur Amos hrakinn í
urö af því aö hann flutti
lýðnum þann drottinsdóm,
sem fólkiö vildi ekki heyra.
Líkt var um annan hinna
stórmiklu
spámanna ísraels, Jeremía.
Rit hans voru eyöilögð,
sjálfum var honum varpaö í
dyblissu, og píslarvættis-
dauöinn batt enda á ein-
mana líf. En síöari kynslóöir
sáu, aö hann haföi veriö eitt
af stórmennum þjóöarinn-
ar.
Hiö sama blasir viö utan
Gyöingsdóms og kristinnar
trúar. Á bak viö helgisagna-
hjúpinn um persneska trú-
spekinginn Zaraþústra má
sjá mikinn mann, ýmist
einmana á flótta eöa stríö-
andi mann á árangurslitlum
trúboösferöum. Meistarinn
Búddha hlaut aö kveöja
heimili sitt og halda ein-
mana út í hiö mikla heimilis-
leysi, og bros hans á hinum
óteijandi líkneskjum af hon-
um er blandið harmi ein-
mana manns. Undir ævilok-
in hvarf kínverski trú-
spekingurinn Laotse sem
einmana gamalmenni, og
ævilok hans veit enginn.
Svo hafa þeir, sem í
fararbroddi fóru meö hin
stærstu mál, flestir lifaö og
dáiö einmana menn, þótt
einhver hópur, oftast fá-
mennur, stæöi meö þeim
undir ævilokin. Viö minn-
umst einnig þeirra í dymbil-
viku, þegar þjáninga, kross-
ferils og dauöa hans er
minnzt, sem einmana gaf
upp öndina á Golgatahæð-
inni.
Vinir hans höföu flúiö og
tvístrazt, en varö hann
aldrei einmana síöar á
tveggja árþúsunda göngu
um jöröina? Guöspjall
greinír, aö upprisinn hafi
hann sagt, aö hann myndi
aldrei yfirgefa þá jörö, sem
útskúfaöi honum, mennina,
sem myrtu hann. Eftir aö
bergmáliö af dauðastunum
hans var hljóönaö og líkami
hans tekinn af krossinum
og lagöur í gröf, hélt hann
áfram feröinni meöat mann-
anna. Hverja samfylgd hef-
ur hann hlotið þeirra, sem
hann kvaddi til fylgdar viö
sig? Hefur hann ekki oft
oröiö einmana enn á þeirri
ferö?
EINMANA í sjálfri kirkju
sinni, þar sem lofsöngvar
bylgjuöust um kirkju-
hvelfingarnar, sólin glitraöi
á gullnum krossum en
honum var neitaö um þaö
eina, sem hann baö um,
neitaö um samfylgd.
EINMANA jafnvel þegar
kirkja hans var langvoldug-
asta og auöugasta ríkið á
jöröu. EINMANA meöan
kirkjuþing leiddu meö vald-
boöi gullskrýddra preláta til
lykta fáránlegar deilur um,
hver háöu trúarstyrjaldir af
meiri hörku og hatri en
flestar styrjaldir aörar á
jöröu. EINMANA enn meö-
an sá tæpi þriöjungur
mannkyns, sem telst á hann
trúa, er í helgreipum heims-
lundar og taumlausrar
dýrkunar efnislegra verö-
mæta, sem leiöa mennina
burt frá vegum hans, burt
frá samfylgd viö hann.
Snertir þetta mál ekki
mig og þig? Læsir sig ekki
um líf og sál angistarópið á
krossinum: „Guö minn,
Guö, minn, hví hefur þú
yfirgefið mig?“ Lúkasarguö-
spjall eitt segir, aö þetta
hafi ekki veriö síöasta orö
Krists á krossi, og hermir
aö hróp hans hafi hátt og
skýrt borizt yfir Golgata-
hæöina meðan höfuö hans
hneig andvana fram: „Faöir,
í þínar hendur fel ég anda
minn.“ — Loks EKKI
EINMANA lengur. í faöm
hins almáttka, alvitra, al-
góöa hneigir hann höfuö og
deyr.
Þannig deyr hann og
sýnir okkur, aö enginn er
einmana, enginn er yfirgef-
inn af Guöi. Þó finnst okkur
stundum aö svo sé. Þú
skalt ekki blygöast þín fyrir
þaö. Slíka augnabliksraun
varö jafnvel Kristur sjálfur
aö þola á krossi, og raun
hins einmana manns hefur
margsinnis oröiö hlutskipti
þeirra, sem hæst héldu
kyndli sannleikans á loft,
merkisberar hins mikla,
hins mesta.
í dymbilvikunni,
hryggöarviku kristninnar
leita dapurlegar spurnir á
hugina, og ein sú dapurleg-
asta vaknar, þegar viö
hugsum um þaö, aö jafnvel
hann, sem guöstraustiö, hiö
glaða guösbarnatraust
haföi fegurst allra lifaö og
kennt, varö aö þola þá
augnabliksraun í dauöa-
kvölinni, aö finna sig fyrir-
gefinn af Guöi.
En Lúkasarguöspjall
hermir aö hinsta orö hans á
krossi hafi verið þaö, aö
hann fól anda sinn fööurn-
um himneska á vald.
Enginn veit tölu þeirra
íslenzkra manna, sem
fundu öryggi og friö í aö
lesa á dánarbeöi bæn séra
Hallgríms.
Minn Jesú,
andlátsoröiö þitt
í mínu hjarta ég geymi.
Sé þfö og líka síöast
mitt,
er sofna ég burt úr
heimi.
ÍDYMBILVIKU
Sjá messur á bls. 28 og 29
PASKABLOM —
FERMINGARBLÓM
OG SKREYTINGAR
STYTTUR í úrvali
til fermingargjafa
Kort-gjafapappír- serviettur
Frönsku
KRISTALGLÖSIN komin
----OPIÐ-------
Skírdag — laugardag
— II. páskadag
Blómabúðin Stigahlíð 45—47
MÍRA (Suðurver)
Í LÍKAMSÞJÁLFUNARTÆKID |
BullworkeR
er einstakt fyrir tog- og þrýstibún-
aöinn og einfalda æfingakerfiö
sem því fylgir.
Vilt Þú halda viö líkams-
hreysti þinni?
veröa vöövastæltur?
Þá ættir þú að kynna þér nánar kosti
Bullworkertækisins sem milljónir manna um
allan heim dásama fyrir skjótan og ótvíræöan
árangur með aðeins 5 mínútna æfingu á dag.
Hvers viröi er heilsa Þín?
útlit Þitt?
ÖRUGGLEGA EINS FRÍMERKISI
Taktu á þig rögg og póstsendu afklippinginn
hér að neöan í dag og viö munum senda þér
stóran litmyndabækling ásamt öðrum upplýs-
ingum þér að kostnaöarlausu og án skuld-
bindinga um hæl, eða tækiö ásamt litmynda-
bæklingnum og æfingakerfinu ef þú vilt frekar
panta strax
PÓSTVERZLUNIN
HEIMAVAL
BOX 39, KÓPAVOGI
♦ SENDU AFKLIPPINGINN SEM BEIÐNI UM NANARI
UPPLÝSINGAR ÁN SKULDBINDINGAR EÐA SEM PÖNTUN
GEGN PÓSTKRÖFU MEÐ 14 DAGA SKILARETTI FRÁ
MÓTTÖKU TÆKISINS.
SENDIÐ MER:
□ UPPLÝSINGAR
0 STK BULLWORKER
NAFN
HEIMILISFANG
i i
Tilboð óskast í múrverk
aö innan og utan á 460 fm fokheldu
íbúöarhúsnæöi á tveim hæöum í Reykjavík.
Tilboö sendist Mbl. merkt: „Múrverk — 3520“
fyrir 1. apríl n.k.