Morgunblaðið - 23.03.1978, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1978
21
forna Staðarprestakalls í Stein-
grímsfirði, er prestslaust hafði
verið tvö undanfarin ár. Það var
Þorsteinn Jóhannesson frá Ytra-
Lóni á Langanesi, sem lokið hafði
guðfræðiprófi frá Háskóla íslands
þá um vorið. Séra Þorsteinn er
fæddur 24. marz 1898 að Ytri-
Tungu á Tjörnesi, þar sem foreldr-
ar hans bjuggu þá, Jóhannes bóndi
Jóhannesson og kona hans Þuríður
Þorsteinsdóttir prests á Þórodds-
stað, Jónssonar.
Bæjarhús á Stað voru hrörleg,
enda sum að stofni til frá tímum
sr. Sigurðar Gíslasonar, er var
prestur á Stað Um og fyrir miðja
19. öld. Hann var búhöldur góður,
framkvæmdamaður mikill og
hafði byggt upp staðinn ágæta vel
og stórmannlega að þeirrar tíðar
hætti, bæði að íbúðar- og úti-
húsum. Árið 1924 var húsakostur
á Stað sem fyr segir forn og úr
sér genginn, og jörðin í ábúð bónda
meðan prestslaust var.
Þennan fyrsta vetur prestskapar
síns sat séra Þorsteinn því úti í
Hólmavíkurþorpi með fjölskyldu
sína, en hóf búskap á Stað vorið
eftir, 1925. Kona séra Þorsteins er
Laufey Tryggvadóttir kaupmanns
á Seyðisfirði og síðar gjaldkera í
Reykjavík, Guðmundssonar. Þegar
þau hjón fluttu norður í Stein-
grímsfjörð var fætt elzta barn
þeirra, Tryggvi síðar læknir, þá á
Þvottahús og
efnalaugar
hækka taxta
sinn um 5,5%
HEIMILUÐ hefur verið 5,5%
hækkun á töxtum efnalauga og
þvottahúsa. Hefur hin nýja verð-
skrá þegar tekið gildi.
Bandarískt
herskip í
Reykjavík
DAGANA 23. og 24 marz verður
statt í Reykjavík bandaríska
herskipið La Moure County, en til
Reykjavíkur kemur skipið eftir að
það hefur tekið olíu í Hvalfirði.
Á skipinu eru yfir 200 menn en
það er 8.342 tonn. Yfirmaður þess
er Comm. E.L. Schneider.
-----«4«----
16 ára piltur
í gæzluvarðhald
fyrir síbrot
í VIKUNNI var 16 ára piltur
úrskurðaður í allt að 30* daga
gæzluvarðhald í Hafnarfirði fyrir
síbrot. Piltur þessi hefur töluvert
langan afbrotaferil þótt ekki sé
hann gamall orðinn. Hefur hann
einkanlega gert mikið af því að
stela bílum og hefur hann á
undanförnum mánuðum fengið á
sig 7 kærur fyrir slík brot. I
síðustu viku stal hann til að
mynda tveimur bílum sömu nótt-
ina og skemmdi annan þeirra
töluvert.
Leiðrétting
í fréttaviðtali við Gunnar Peter-
sen um sölu á mjöli og lýsi, sem
birtist á bls. 2 í blaðinu í gær, kom
fram slæmur misskilningur milli
blaðamanns og Gunnars. Þar kom
fram að sölutregða væri á mjöli og
lýsi í bili og óseld væru 50 þúsund
tonn. Hið rétta er að óseld eru
15—20 þúsund tonn. Þá skal einnig
tekið fram, að lýsisverð er reiknað
í dollurum en ekki pundum. Er
Gunnar beðinn afsökunar á þess-
um missögnum.
fyrsta aldursári.
Hin ungu og glæslegu prests-
hjón unnu strax hugi og hjörtu
sóknarmanna sinna, sem eftir
megni vildu stuðla að því, að þau
gætu búið vel um sig og komið
fótum undir stórt bú, líkt og verið
hafði hjá ýmsum hinna fyrri
Staðarpresta. Frá upphafi vega
hafði Staðartún verið ógirt, sem
var allt að því einsdæmi þar í
sveitum árið 1925. Með nokkurri
aðstoð sveitarmanna var það nú
girt stórri fjárheldri girðingu.
Ennfremur var þá um sumarið
byggt reisulegt íbúðarhús úr
steinsteypu, sem flutt var í um
haustið þótt smíði þess væri ekki
að fullu lokið fyrr en síðar.
Þau ár, sem séra Þorsteinn
þjónaði Staðarprestakalli mun
hann hafa komið upp allgóðu
sauðfjárbúi, en fjárhagurinn þó
verið frekar þröngur, bæði vegna
skulda frá námsárunum og átaka
við stækkun búsins. Þótt söfnuðir
séra Þorsteins í Staðar- og
Kaldrananessóknum misstu vinar
í stað, er hann sótti um Vatnsfjörð
eftir andlát séra Páls Ólafssonar
haustið 1928 sættu þeir sig við þá
ákvörðun þar eð þeir vissu, að
Vatnsfjörður var sögufrægt höfuð-
ból og tekju- og hlunnindameiri
jörð en Staður. Vatnsfjarðar-
brauði þjónaði séra Þorsteinn við
sömu vinsældir og fyrr á Strönd-
um norður, unz hann lét af
embætti sumarið 1955 og flutti til
Reykjavíkur. Hann þótti jafnan
góður ræðumaður, frjálslyndur og
víðsýnn í trúarefnum, söngvinn og
áheyrilegur fyrir altari. En að
öðru leyti skal það sagt um
þjónustu hans, sem mælt hefur
verið um annan mætan mann: „Að
fræði sín kunni hann vel og allt
það, er hann hafði numið, en
skyldur sínar mundi hann ávallt
bezt.“ J.Hj.
Tefla ytra
um páskana
GUÐLAUG ÞORSTEINS-
DÓTTIR, Norðurlandameist-
ari kvenna í skák, mun tefla
sem gestur í afmælismóti
Danska skáksambandsins um
páskana ásamt einum þátt-
takanda frá hverju hinna
Norðurlandanna. Fer mótið
fram í Horsens á Jótlandi og
hefst á skírdag og lýkur á
annan í páskum.
Þá hafa Einar S. Einarsson,
forseti SÍ, og kona hans þegið
boð um að vera viðstödd
hátíðahöld sem fram fara í
Horsens dagana 25. og 26.
mars í tilefni af 75 ára afmæli
Danska skáksambandsins.
Birkir Leósson, nýbakaður
unglingameistari Skákfélags-
ins Mjölnis, mun taka þátt í
alþjóðlegu unglingaskákmóti,
sem fram fer í Fredrikstad í
Noregi dagana 21.—26. mars.
Páskar í Blómaval
Páskaliljurnar eru
ræktaðar í
gróðurhúsinu og
því aðeins seldar
nýjar og ferskar.
300 fm blóma- og
grænmetismarkaður.
Opið um páskana
Skírdagur: Kl. 9—22
Föstudagurinn langi:
Lokað
Laugardagur: Kl. 9—22
Páskadagur: Lokað
2. í páskum: Kl. 9—22