Morgunblaðið - 31.03.1978, Síða 32
u <;iasin<;asiminn kr:
22480
jRtorjjnnbliibiÞ
\i <;lysin<;asímin'n er:
22480
FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978
Einn varðskipsmanna hangir í línunni í brimgarðinum en björgunarsveitarmenn í landi vaða út í honum til
hjálpar. Ljósmynd: Svavar Magnússon.
Stjórnarfrumvarp um verðlagsmál:
Gerir ráð fyrir frjálsri álagn-
ingu þegar nóg samkeppni er
7 manna verðlagsráð, samkeppnisnefnd og
verðlagsstofnun annist framkvæmd laganna
Olafsfjörður:
Þrír varð-
skipsmenn
björguðust
naumlega
t: . _ P
Sjá nánar bls. 17 *
c p
YIÐ iá að illa færi á Ólafs-
firói í gær um kl. 1.30 þegar
þrír menn af varðskipinu
Óðni voru að reyna að koma
dráttartaug úr varðskipinu í
land. þar sem freista átti
þess að ná færeyska flutn-
ingaskipinu Ilólm á flot, er
þarna strandaði í fyrra-
kvöld. Ólag hvolfdi skyndi-
lega gúmhát mannanna. svo
að þeir fóru allir í sjóinn og
voru að velkjast í brimgarð-
inum um stund áður en tók
st að hjarga þeim. Voru þeir
þá orðnir kaldir mjög og
þjakaðir en hresstust brátt
fyrir góða aðhlynningu
heimamanna.
• Mennirnir J)rír voru Baldur
Halldórsson, 2. stýrimaður á Óðni,
Kinar Ingólfsson, bátsmaður, og
Agúst Ágústsson, háseti, og náði
Morgunblaðið tali af Baldri. „Við
vorum á leið í átt að landi á
gúmbátnum með línu, sem átti að
koma til manna í landi svo að þeir
gætu komið aðaldráttartauginni
um borð í færeyska skipið,“ sagði
Baldur. „Við vorum að vinna við
þetta, og gekk vel, enda búnir þá
Jtegar að skjóta línu í land en þá
skyndilega reið ólag yfir bátinn, og
honum hvolfdi. Það skipti engum
togum að við fórum allir þrír í
sjóinn. og urðum strax viðskila við
bátinn.“
Baldur sagði, að þeir hefðu allir
verið í björgunarvestum, eins og
jafnan við þessar aðstæður, en
Jæim hefði orðið ákaflega kalt. „Eg
get þó naumast sagt að við höfum
orðið verulega skelkaðir, Einar
Framhald á bls. 18
ASÍ og vinnu-
veitendur:
Slitnar upp
úr í dag?
ÁRDEGIS í dag klukkan 10
koma fulltrúar ASÍ og vinnu-
veitenda. er sæti eiga / svo-
kallaðri undirnefnd, sem finna
á leiðir til að auka kaupmátt
launa. að hitta.st á fundi. Báðir
aðilar hafa haft ýmsar hug-
myndir til umfjöllunar, en alls
kostar er óvíst að aðilar komi
sér saman um nokkrar þeirra
hugmynda. sem reifað hefur
verið. Eru menn jafnvel frem-
ur vondaufir um árangur
\ iðra-ðnanna.
Vinnuveitendur hafa lagt á
það áherzlu að kaupmáttar-
aukning, sem gengur gegn
efnahagsráðstöfunum ríkis-
stjórnarinnar sé hennar mál en
ekki þeirra. Fulltrúar ASI hafa
m.a. bent á þá leið að unnt gæti
verið að nota launaskatt til
Jtess að auka kaupmátt og veita
honum þannig út í kaupgjald.
Ætti það ekki að verða aukinn
Framhald á bls. 18
RÍKISSTJÓRNIN lagði fram á Al-
Þíngi í gær frumvarp til laga um
verðlag, samkeppnishömlur og
óréttmæta viðskiptahætti. Megin-
regla frumvarpsins er að verðlagn-
ing skuli vera frjáls, „pegar sam-
keppni er nægileg til pess að
tryggja æskilega verðmyndun og
sanngjarnt verðlag." Framkvæmd
taganna skal vera í höndum sjö
manna verðlagsráðs, samkeppnis-
nefndar og verölagsstofnunar. Þyki
ástæða til getur verðlagsráð ákveð-
ið ferns konar aðgerðír: hámarks-
verö og hámarksálagningu, gerö
F.IÁRIIAGSVANDI Rafmagns
veitna ríkisins varð aðalumræðu-
efni á fundum neðri deildar
Alþingis í gær. í umra‘ðununi
kom fram að meginvandinn var
leystur á ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun, þar sem ríkisstjórn-
in tók m.a. þá ákvörðun að hækka
verð á raforku til húshitunar á
veröútreikninga, verðstöövun í allt
að sex mánuði í senn og „aðrar
reglur um verðlagningu og við-
skiptakjör, sem verölagsráö telur
nauösynlegar hverju sinni." Samn-
ingar, sampykktir og önnur samráö
milli fyrirtækja um verð og álagn-
ingu og viö útboð verði óheimil, en
samkeppnisnefnd getur veitt und-
anpágu frá peim ákvæðum, ef
nauösynlegt er taliö til viðhalds
samvinnu milli fyrirtækja og til að
vernda fyrirtæki gegn „óæskilegum
eða pjóðfélagslega skaölegum
samkeppnisháttum.“
orkuvoitusvæði Rarik um 25% frá
og moð 1. maí. Ilins vegar hafnaði
ríkisstjórnin tillögu um hækkun
verðjöfnunargjalds á raforku úr
13% í 20% á þeim forsendum. að
meðalútsöluverð raforku hjá Rar-
ik væri lægra en meðalútsöluverð
annarra rafmagnsveitna. m.a.
Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
( frumvarpinu segir, að markmið
laganna sé að vinna gegn ósann-
gjörnu verði og viöskiptaháttum og
óréttmætum viðskipta- og sam-
keppnisháttum svo og samkeppnis-
hömlum, sem hafa í för með sér
skaðlegar afleiðingar fyrir neytendur,
atvinnurekendur eða þjóðfélagið í
heild. Lögin eiga að taka til hvers
konar atvinnustarfsemi, svo sem
framleiöslu, verzlunar, þjónustu
o.s.frv. án tillits til þess, hvort hún er
rekin af einstaklingum, félögum,
opinberum aðilum eða öðrum. Lögin
taka ekki til launa og starfskjara fyrir
Ennfremur voru gerðar ýmsar
tilfa“ringar á skuldabyrði fyrir-
ta-kisins og ákveðið að endur-
skoða í heild gjaldskrár Rarik.
Kristján Jónsson. forstjóri Rarik.
sagði í gær í samtali við Mbl„ að
málið hefði þokazt í rétta átt, en
Framhald á bls. 18
vinnu í annarra þjónustu og ekki til
húsaleigu. Þá eiga lögin heldur ekki
við útflutning né verðlagningu, sem
ákveðin er með sérstökum lögum.
Viðskiptaráðherra skipi formann
verðlagsráðs án tjlnefningar og auk
hans fjóra menn, tvo eftir tilnefningu
samtaka atvinnurekenda og tvo eftir
tilnefningu samtaka launþega.
Framhald á bls. 18
Vill giftast
vardhalds-
fanga í Geir-
finnsmálinu
UNG stúlka hefur snúið sér til
dómsmálaráðuneytisins með
ósk um að fá að giftast
Kristjáni Viðari Viðarssyni,
sem nú situr í gæzluvarðhaldi
á Litla Hrauni vcgna aðildar
sinnar að Guðmundar- og
Geirfinnsmálum.
Jón Thors, deildarstjóri í
dómsmálaráðuneytinu, stað-
festi þetta í samtali við Mbl. í
gær. Sagði Jón, að ráðuneytið
hefði málið til gaumgæfilegrar
athugunar, þar sem ekki væri
fordæmi fyrir því að gæzlu-
varðhaldsfangi gengi í það
heilaga. Hins vegar hefði það
gerzt áður að afplánunarfangar
kvæntust og hefði giftingarat-
höfnin þá farið fram á Selfossi.
Dómsmálaráðuneytið hefur
m.a. leitað umsagnar sakadóms
Reykjavíkur vegna fyrrgreindr-
ar beiðni.
Meginvandi Rarik leystur:
Raforkuverð tíl húshit-
unar hækkað um 25%
Ríkisstjómin hafnaði hækkun verðjöfnunargjalds raforku i 20%