Morgunblaðið - 05.04.1978, Síða 3

Morgunblaðið - 05.04.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978 3 Loönan: 131 þúsund lestum minna á land en í fyrra á svæðinu frá Eyjum til Akraness LJÓST er að loðnuverksmiðjur á svæðinu frá Vestmannaeyjum til Akraness og ennfremur fyrstihús á þessu svæði hafa orðið fyrir miklu áfalli á nýliðinni loðnuvertíð, þar sem aðeins komu 99.655 lestir af bræðsluloðnu á land á þessu svæði í vetur á móti 231.438 lestum á s.l. ári og er munurinn 131.783 lestir. Þá kom lítið sem ckkert af loðnu til frystihúsa á þessu svæði á nýliðinni vertíð, en hins vegar voru fryst 1660 tonn af hrognum. Á loðnuver- tíðinni í fyrravetur voru hins vegar fryst 5632,2 lestir af hrognum og loðnu. Morgunblaðið aflaði sér upplýsinga í gær um hve mikið hefði borizt af loðnu á hina einstöku staði frá Vestmanna- eyjum til Akranes á nýliðinni vertíð og vertíðinni veturinn 1977. Til Vestmannaeyja komu í vetur 58.054 lestir (90.521 árið 1977), til Þorlákshafnar bárust 11.633 lestir (19.304), til Grindavíkur bárust 7079 lestir (18.853), til Sandgerðis bárust nú aðeins 1306 lestir (12.934), til Keflavíkur 8.211 (19.246), til Hafnárfjarðar 3454 lestir (14.534), til Reykjavíkur 5863 lestir (39.709) og til Akraness 4065 lestir (23.555). Skipaður yfirlög- regluþjónn DÓMSMÁLARÁÐIIERRA hefur skipað Guðmund Hermannsson yfirlögregluþjón við lögregluna í Reykjavík frá 1. apríl sl. að telja og mun hann veita forstöðu nýrri rannsóknardeild við embætti lögreglustjóra. Guðmundur er 52 ára gamall og fæddur á ísafirði. Hann hóf störf Guðmundur Ilermannsson yfirlög- regluþjónn. við lögregluna í Reykjavík 20. október 1953 og hefur gengt þar störfum síðan. Hann varð aðstoðarvarðstjóri árið 1953, yfir- maður slysarannsóknadeildar 1959, varðstjóri 1963 og aðstoðar- yfirlögregluþjónn árið 1966 en þeirri stöðu hefur hann gegnt fram til þessa. Kona Guðmundar er Herborg A. Júníusdóttir og eiga þau fjóra syni. Sementsverksmiðjan: Siö sóttu um framkvæmda- stjórastöðu RUNNIN er út umsóknarfrestur um stöðu viðskiptalegs fram- kvæmdastjóra Sementsverk- smiðju ríkisins á Akranesi. Sam- kvæmt upplýsingum Ásgeirs Péturssonar stjórnarformanns vcrksmiðjunnar sóttu eftirtaldir menn um stöðuna. Björgvin Sæmundsson verk- fræðingur, Skólbraut 20 Kópavogi, Gylfi Þórðarson viðskiptafræðing- ur, Reynimel 92 Reykjavík, Haraldur Gíslason viðskiptafræð- ingur, Melbraut 3 Garði, Haraldur Líndal hagfræðingur, Framnesvegi 16 Keflavík, Pétur Pétursson framkvæmda- stjóri, Skaftahlíð 3 Reykjavík, Tómas H. Sveinsson viðskipta- fræðingur, Fögrubrekku 18 Kópa- vogi, Þorsteinn Ólafsson viðskiptafræð- ingur, Kísiliðjunni Mývatni. Stjórn Sementsverksmiðjunnar hefur umsóknirnar til athugunar en það er stjórnin, sem veitir stöðuna. G Bang &Olufsen Lita- sjonvorp ALLAR STÆRÐIR Lægra verð — Betri þjónusta V^BÚÐIN Skipholti 19 R. S. 29800 (5 línur) Tilvalið fyrir: / þorp, kaupstaði, starfshópa og jafnvel byggðarlög.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.