Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978
7
Breiðholtið og
áratugurinn
Það er ótrúlegt en
satt, að það er aðeins
rúmur áratugur síðan
íyrstu byggingaríram-
kvæmdirnar _ hófust í
Breiðholti. A þessum
rúma áratug hefur risið
þar byggð sem er veru-
lega stærri að mann-
fjölda en það sveitarfé-
lag hérlendis, sem næst
kemur höfuðborginni
að íbúatölu. Að sjálí-
sögðu skortir enn ýmis-
legt í þessum nýja borg-
arhluta sem gömul og
gróin byggðahverfi
hafa upp á bjóða. Engu
að síður gengur það
kraftaverki næst, hve
borgaryfirvöld hafa
fylgt uppbyggingu
Breiðholts vel cftir með
hvers konar samfélags-
iegri þjónustu, sem enn
er í örri þróun. Þegar
gamalt sveitarfélagið í
landi þessu, sem á ára-
tuga þéttbýlissögu að
baki, hefur hvergi
nærri náð því marki að
fullnægja nútíma kröf-
um um varanlega
gatnagerð, verður sam-
anburðurinn við Breið-
holtið ennþá athyglis-
verðari og lærdómsrík-
ari. Dæmisagan um
Breiðholtið er áþreifan-
iegur vitnisburður um
framsýni og framtak
þess fólks, sem þar
hefur haslað sér völl, en
ekki síður um farsæla
stjórnun á borgarmál-
um Reykjavíkur.
Nágrannabæir
Reykjavíkur
Stjórnun bæjarmála í
nágrannakaupstöðum
Reykjavíkur hefur og
gefið góða raun, sem
vert er að veita athygii.
Þessir staðir sækja hins
vegar margs konar að-
stöðu og þjónustu til
Reykjavíkur. Nokkur
hluti íbúa þeirra sækir
atvinnu sína til Reykja-
víkur, þó að þeir greiði
útsvör af tekjum sínum
til sinna heimasveita.
Rcykjavíkurhöfn, sem
er eina höfnin á landinu
sem fær ekkert af stofn-
kostnaði sínum greitt
úr sameiginlegum sjóði
landsmanna (allar aðr-
ar hafnir fá 3/4 stofn-
kostnaðar greiddan úr
ríkkissjóði), þjónar
hafnlausum nágranna-
byggðarlögum og raun-
ar landinu öllu sem
aðaluppskipunarhöfn
þess. Heilbrigðiskerfi
borgarinnar þjónar og
nágrannabyggðum.
Skólakerfi borgarinnar
ekki síður. Hitaveita
Reykjavíkur þjónar og
nokkrum nágranna-
sveitarfélögum. Hér eru
aðeins nefndir örfáir
þættir af fjölmörgum,
sem sömu sögu mætti
segja um.
Þegar borin er saman
tekjuþörf og kostnaður
Reykjavíkurborgar og
nágrannasveitarfélaga
verður að hafa þetta í
huga, ef sanngirni er
gætt. Slfkt samstarf
sem hér um ræðir er
æskilegt og hagkvæmt
og ekki nefnt hér sem
aðfinnsluefni. Þvert á
móti þarf að auka og
efla samvinnu sveitarfé-
laga á höfuðborgar-
svæðinu á flesta grein.
Reykjavík og
útgerðin
Hér í Reykjavík hefur
ríkt atvinnuöryggi sem
annars staðar á landinu
undanfarin ár. Engu að
síður hefur orðið nokk-
ur samdráttur í frumat-
vinnugreinum, þ.á m. í
sjávarútvegi og fisk-
vinnslu. Til þess liggja
ýmsar ástæður s.s. lok-
un Faxaflóa. Ríkisvald-
ið hefur ekki skapað
Reykjavíkurhöfn sam-
bærilega aðstöðu til að
byggja upp fiskihöfn og
tilheyrandi aðstöðu og
öðrum sveitarfélögum,
þó Reykvíkingar greiði
fyllilega sinn hlut í
sameiginlegan sjóð
landsmanna. Lánsfjár-
aðstaða til uppbygg-
ingar atvinnufyrir-
tækja á þessu sviði
hefur og verið önnur og
jverri hér en annars
staðar. þegar opinberir
fjárfestingarsjóiðir hafa
átt í hlut. Þrátt fyrir
þetta hefur Reykja-
víkurborg lagt fyllilega
sitt af mörkum til að
halda sínumhlut á
þessu sviði, ef saman-
burður er gerður við
önnur útgerðarpláss.
Þetta er ekki fram
sett hér til að kalla á
„hrepparíg“, heldur til
að vekja athegli á stað-
reyndum, sem ekki
verður lengur lokað
augum fyrir. Stjórn-
málaflokkar, sem
gjarnan falast eftir
kjósendafyigi Reykvík-
inga, hafa hins vegar
ekki vcrið reiðubúnir
til að láta þá fá jafn-
stöðu við önnur sveitar-
félög í þessum efnum.
Atkvæði þeirra eiga
jafnvel að vega mun
léttara en annarra í
kjöri þjóðþings.
Framháld á bls. 22
Úr sýningu á Refunumi Hjalti Rögnvaldsson, Gísli Halldórsson,
Sigríður Hagalín og Guðmundur Pálsson.
Um 50 þúsund gest-
ir hjá L.R. í vetur
Arnarflug
leigir Boeing
707 um skeið
ARNARFLUG hcfur nú fengið
leigða Boeing 707 flugvél í
nokkrar vikur meðan verið er að
gera við flugvél félagsins sem
bilaði í lendingu í London fyrir
skömmu. Samkvæmt upplýsing-
um Gunnars Þorvaldssonar flug'
stjóra hjá Arnarflugi cr leiguvél-
in nú komin til Möltu þar sem
hún mun sinna verkefnum Arnar-
flugs til 20. apríl en þá er reiknað
með að viðgerð verði lokið á
Arnarflugsvélinni í London. Hin
vél Arnarflugs er í flugi innan
Afríku um þessar mundir.
Gunnar sagði, að það væri ekki
klárt ennþá hver ástæðan væri
fyrir biluninni í framhjóli flug-
vélarinnar en sérfræðingar frá
Boeing-flugvélaverksmiðjunum
eru nú að rannsaka málið og er að
vænta niðurstöðu frá þeim í næstu
viku.
Rannsóknar-
lögreglan hefur
afgreitt 222 mál
frá áramótum
VEL IIEFUR gengið að upp-
lýsa og afgreiða mál hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins
að undanförnu, samkvæmt
upplýsingum Njarðar Sna1-
hólms yfirlögregluþjóns.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið fékk hjá honum í
gær voru 222 mál upplýst og
afgreidd hjá Rannsóknarlög-
reglunni frá áramótum til 1.
apríl s.l. og mörg mál eru
komin á það stig að þau verða
afgreidd á næstunni.
Samkvæmt upplýsingum
Njs; ðar skiptast málin þannig
eftir einstökum flokkum að 116
voru vegna innbrota og þjófn-
aða, 55 voru svik- og falsmál, 7
árásarmál, 3 kynferðisafbrota-
mál, 14 vinnuslys, 7 brunar, 1
morð og 20 andlátsmál. 266
menn hafa komið við sögu
þessara mála.
SAUMASTOFAN eftir Kjartan
Ragnarsson og Skjaldhamrar Jón-
asar Arnasonar eru nú orðnar
meðal þeirra leiksýninga sem
mesta aðsókn hafa hlotið og lætur
nærri að um eða yfir 40 þúsund
manns hafi séð þessi verk, hvort
um sig. 180. sýning á Skjaldhömr-
um var á laugardaginn, en Sauma-
stofan hefur verið sýnd 191 sinni.
— Þetta er þriðja leikárið, sem
þessi verk eru á fjölunum hjá
Leikfélagi Reykjavíkur, en reiknað
er með að þessar vinsælu sýningar
hverfi báðar í þessum mánuði af
sviðinu í Iðnó. Það er til marks um
vinsældir þessara leikja að fjöl-
mörg áhugafélög úti um land hafa
falað þá til sýningar. Skjaldhamr-
ar hafa auk þess verið settir á svið
í Finnlandi, á Irlandi og í Texas í
Bandaríkjunum, en auk þess er
verið að undirbúa sýningu á
verkinu í Svíþjóð. En Sjónleikara-
félagið í Færeyjum mun sýna
Saumastofuna á næstunni.
Um síðustu mánaðamót höfðu
meira en fimmtíu þúsund manns
séð sýningar Leikfélagsins í vetur,
en þær eru orðnar 167. — Skáld-
Rósa eftir Birgi Sigurðsson hefur
verið sýnd 35 sinnum en verkið var
frumsýnt um áramót, og hefur
verið uppselt á hverja einustu
sýningu. Blessað barnalán eftir
Kjartan Ragnarsson hefur verið
sýnt 30 sinnum í Austurbæjarbíói
í vetur, yfirleitt fyrir fullu húsi.
Nýjasta verkefni Leikfélagsins,
Refirnir, eftir bandarísku skáld-
konuna Lillian Helman, hefur
aðeins verið sýnt 7 sinnum, en
aðsókn að því lofar góðu.
(Frá L.R.).
Stórskemmdi
bíl og stakk af
UM fimmleytið á sunnudags-
morguninn vöknuðu íbúar við
Fellsmúla í Reykjavík við
ögnarhávaða úti á götunni.
Þegar að var gáð kom í ljós að
Volkswagen bifreið hafði verið
ekið á hús af miklum krafti svo
að hún er nánast ónýt. Bifreiða-
stjórinn var aftur á móti á bak
og burt og hefur ekkert til hans
spurzt síðan. Maðurinn hafði
tekið bílinn á leigu hjá bílasölu
í bænum og telur lögreglan sig
vita hver hann er og ætlar hún
sér að hafa uppi á kauða.
Athugið —
fyrir vorið
Eigum nú aftur fyrirliggjandi hina vinsælu
kókosdregla í nautral lit.
Verö aðeins kr. 1.925 pr. fermeter, breidd
100 cm.
GúmmíbátaÞjónustan
Grandagaröi 13, sími 14010
Kvenstúdentar
Árshátíö Kvenstúdentafélags íslands veröur haldin og
50 ára afmælis Félags íslenzkra Háskólakvenna
minnst föstudaginn 7. apríl n.k. í Víkingasal Hótels
Loftleiöa. Hófiö hefst kl. 19.30.
Aögöngumiöasala og boröapantanir í hótelinu
fimmtudaginn 6. apríl milli kl. 17—19.
Stjórnin.
m I '^S r Bilsby Skurvogne A-S Industribakkun 1. Sengelöse. 2630 Taastrup. Danmark. Talsimi 09 -02-99 47 08 Starfsfólksvannar. skrifstttfuvaRnar. 'húóarva^nar. RoymsluvaRnar. hri'inlætisvannar. (i**0fúsleKa bidjið um upplvsingapésa.
Dregið hefur verið í
happdrætti IV. bekkjar VÍ.
Upp komu númerin:
1. vinningur Sólarlandaferð nr: 2505.
2. vinningur Ferö til New York nr: 5082
3. vinningur Ferö til írlands nr: 4437
4. vinningur 5 manna tjald nr:10479
5. vinningur Utvarpssegulband nr: 1936
6. vinningur Hárblásari nr: 4071
7. vinningur Sjónauki nr: 6993
8. vinningur Úttekt frá Karnabæ nr: 6974
9. vinningur Úttekt frá Heimilistækjum nr: 10650
10. vinningur Casio talva nr: 6147
11. vinningur Svefnpoki nr: 693
12. vinningur Svefnpoki nr: 5276.
Vinninga má vitja í skrifstofu skólans að Grundarstíg 12.
Fyrir hönd IV. bekkjarráös VÍ.
Ólöf Kristjánsdóttir.
Læriðvélritun
Ný námskeiö hefjast mánudaginn 10. apríl.
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin
heimavinna.
Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl.
13.00.
Vélritunar skolinn
Suðurlandsbraut 20