Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978
„Annie Hall” hlaut flest
helztu Óskarsverðlaunin
Los Angeles 4. apríl. —
AP. Reuter.
KVIKMYND Woody Allens
„Annie Hall“ hlaut Oskarsvcrð-
laun í dag sem bezta kvikmynd
ársins 1978. Þá hlaut Diane
Keaton Óskarsverðlaun fyrir
bezta leik konu í aðalhlutverki en
hún fær þau fyrir leik sinn í
„Annie Hall“. Richard Dreyfus
fékk Óskarsverðlaun fyrir bezta
leik í karlhlutverki fyrir hlut-
verk sitt í „The goodby girl“, en
Richard Burton mátti sjá á eftir
verðlaununum í sjöunda sinn.
Woody Allen hlaut sjálfur tvenn
Oskarsverðlaun, fyrir beztu leik-
stjórn á „Annie Hall“ og bezta
frumsamda handritið („Annie
Hall“). Síðari verðlaununum deildi
hann með Marshall Brickman.
Myndin „Annie Hall“ fjallar um
unga sérvitra elskendur og er hún
eins og fyrri myndir Allens sögð
meinfyndin.
Kvikmyndin
„Star Wars“
hlut sjö
Óskarsverð-
laun fyrir
ýmiss konar
tæknileg atr-
iði, en sú
mynd var
bezt sótt í
Bandaríkjunum
í fyrra.
Jason Robards voru veitt verð-
laun fyrir bezta leik karlleikara í
aukahlutverki í myndinni „Julia".
Þetta er annað árið í röð, sem
Robards hlýtur þessi verðlaun, í
fyrra hlaut hann þau fyrir leik
sinn í „All the presidents men“.
Óskarsverðlaunin fyrir bezta
leik konu í aukahlutverki hlaut
Vanessa Redgrave fyrir „Julia".
Leikur Redgrave í myndinni konu
í andspyrnuhreyfingu í Þýzka-
landi, sem berst á móti nasistum.
Gyðingar hafa mótmælt verð-
launaveitingu Redgrave harðlega,
vegna þess að hún hefur nýlega
lokið við gerð heimildamyndar um
Palestínumenn. Samtök gyðinga
kröfðust þess að Redgrave yrði
bannað að leika í fleiri kvikmynd-
um af þeim sökum, en kvikmynda-
framleiðendur hafa hins vegar lýst
þvi yfir að þeir hyggist leyfa henni
að leika áfram. Hafa Gyðingar nú
hótað að því að koma í veg fyrir
Vancssa Redgrave (t.v.) og Jane Fonda í hlutverkum sínum í „Julia“.
Richard Dreyfuss er fékk Óskarsverðlaunin fyrir bezta leik í
aðalhlutverki f ár.
Woody Allen hlaut fern óskars-
verðlaun í ár, þar á meðal
verðlaun fyrir beztu kvikmynd-
ina „Annie Hall“.
sýningar á „Juliu“ i kvikmynda-
húsum í Bandaríkjunum.
A sama tíma og. Gyðingar
mótmæltu verðlaunaveitingu
Redgrave fögnuðu Palestínumenn
henni innilega. Kom til nokkurra
átaka á milli Gyðinga og
Palestínumanna og særðust þrír
en fimm voru handteknir. Þeir
þrír er særðust voru allir klæddir
nasista-búningum.
Redgrave hélt ræðu er hún tók
við verðlaunum sínum og sagði
hún þar meðal annars að hún
hyggðist halda áfram baráttu
sinni gegn gyðingaofsóknum og
fasisma. Þá sagði leikkonan einnig
að ólæti Gyðinga við verðlaunaaf-
hendinguna væru sjálfum þeim til
skammar og aðeins málstað þeirra
til tjóns.
Vanessa Redgrave hefur þríveg-
is áður verið tilnefnd til Óskars-
verðlauna, en aldrei hlotið þau
fyrr.
Kvikmyndin „Star Wars“, sem
útnefnt var til verðlauna sem
Spinks og Ali berjast í hringnum í febrúar, er Ali tapaði
heimsmeistaratitli sinum til Spinks.
Spinks og Ali aftur
[ hringinn í október
New Orleans, 4. apríl. AP.
TILKYNNT var í New Orleans í
Nýttlyf
gegn
blóðtappa
Chicago, 4. apríl. Reuter.
LYFJAFYRIRTÆKI í Banda-
ríkjunum tilkynnti í dag að það
hefði uppgötvað nýtt lyf sem
leysir upp blóðtappa í lungum.
Árlega deyja 200.000 manns í
Bandaríkjunum vegna blóð-
tappa í lungum.
Lyfið breytir efni i blóðinu í
plasmín, sem er ensím sem
brýtur niður eggjahvítuefni
blóðtappafruma.
dag að stefnt væri að því að halda
annað hnefaleikaeinvi'gi á milli
Muhammed Alis og Leon Spinks
þar í borg í október.
Borgarfulltrúi einn sagði að haft
yrði fullt samráð við alþjóðasam-
band hnefaleikara, en líklegt væri
að einvígið yrði haldið 2. eða 3.
október. Alþjóðasambandið á laga-
legan rétt á að halda einvígið.
Báðir aðilar hafa látið i ljós von
um að samkomulag um nýtt
einvígi náist á morgun.
Verði einvígið haldið í október
gæti reynst erfitt að finna öllum
er þangað koma náttstað. Gert er
ráð fyrir að um 6.000 manns muni
koma til New Orleans, en ekki eru
til nægilega mörg hótelherbergi
fyrir allan þann fjölda.
Minni verðbólga, en
meira atvinnuleysi
Madríd, 4. apríl. Reuter.
SPÁNSKA stjórnin tilkynnti í
dag að tveggja ára áætlun hennar
um að rétta við efnahag landsins
við hefði borið verulegan árang-
ur. Verðbólga hefði minnkað
nokkuð. en hins vegar hefði
atvinnuleysi aukist töluvert.
Áætlunin tók gildi í október, og
stóðu allir flokkar landsins að
henni.
I skýrslu sem stjórnin hefur
látið frá sér fara um efnahagsbat-
ann segir að gert sé ráð fyrir að
vöruhækkanir verði aðeins átta til
tíu prósent fyrstu sex mánuði
þessa árs. Þá er í skýrslunni gert
ráð fyrir að kaup hækki ekki meira
en 22% á árinu. Vöruskiptajöfnuð-
ur Spánar við útlönd ætti að batna
um einn og hálfan milljarð banda-
ríkjadala (um 408 milljarða króna)
á árinu.
Ekki er í skýrslunni sagt ná-
kvæmlega til um aukningu at-
vinnuleysis í landinu, en vitað er
að frá 1. nóvember til 1. desember
jókst það um 5% og voru þá
660.000 atvinnulausir. Nú er hins
vegar gert ráð fyrir að um ein
milljón manna séu atvinnulaus.
Skýrslan verður lögð fyrir
spánska þingið á miðvikudag, og
þá mun forsætisráðherrann,
Adolfo Suarez, jafnframt skýra
ýmsar breytingar á ráðherrastöð-
um í stjórninni.
Þetta gerðist
1976 — Auðkýfingurinn
Howard Hughes andað-
ist í flugvél á ieið frá
Mexikó í sjúkrahús i
Houston.
1955 — Winston Chur-
chill lætur af starfi
forsætisráðherra Breta
og Anthony Eden tekur
við.
1951 — Julius og Ethel
Rosenberg dæmd til
dauða fyrir kjarnorku-
njósnir í þágu Rússa.
1946 — Rússar sam-
þykkja að flytja á brott
herlið frá Íran.
1939 - Öll þýzk börn á
aldrinum 10—13 ára
skylduð til að ganga í
Hitlersæskuna.
1919 — Eamon De
Valera kosinn forseti
Sinn Fein Dail.
1906 — Vilhjálmur II
leysir Holstein greifa
frá störfum og hætta á
styrjöid miili þjóðverja
og Frakka út af
Marokkó líður hjá.
1886 - Abdul Hamid II
Tyrkjasoldán skipar
Alexander Búlgaríu-
fursta landstjóra í Aust-
ur-Rúmelíu.
1881 — Pretoriu-samn-
ingur Breta og Búa:
sjálfstæði Transvaal
viðurkennt.
1794 — Frönsku bylt-
ingarsinnarnir G.J.
Danton og Camille
Desmoulins teknir af
lífi.
1664 — Friðarsamning-
urinn í Westminster
bindur enda á fyrsta
ensk-hollenzka stríðið.
1621 — Mayflower siglir
frá Piymouth, Massa-
chusetts, í fyrstu heim-
ferðina til Englands.
Afmæli í dag: Thomas
Hobbes, enskur heim-
spekingur (1588 — 1679)
— Joseph Lister, brezk-
ur skurðlæknir (1827 —
1912) — Algernon C.
Swinburne, brezkt skáld
(1837 - 1909) - Bette
Davis, bandarísk leik-
kona (1908 — ...) _
Gregory Peck, banda-
rískur leikari (1916 —
...).
Ilugleiðing dagsins:
Aukinn ljómi fylgir
auknum vanda. Cicero,
rómverskur stjórn-
skörungur og heimspek-
ingur (106-43 f.Kr.).