Morgunblaðið - 05.04.1978, Side 15

Morgunblaðið - 05.04.1978, Side 15
JL 15 j Nafn: ______________________________________________________ Gata: ___________________________________________________ Staður:___________________________________ Sími:___________ Vinsamlega sendiö í póstkröfu | .... stk. orlofstöflur á kr. 2.300 pr | stk. | □ Óska meiri upplýsinga um orlofstöflurnar. | □ Óska upplýsinga um aörar geröir skipulagstaflna. GISLIJ JOHNSEN HE Vesturgata 45 Reykjavík sími 27477 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978 Gréta Sigfúsdóttir: Apropos sjónvarp Mikiö dæmalaust fara fjölmiðl- ar okkar að lögum, þ.e.a.s. lögum um hlutleysi. Þá á ég við sjón- varpsþáttinn Vöku sem fluttur var i gær. Þarna komu fram fimm harðlínukommar gegn einum framsóknarmanni, sem reyndar stóð sig betur gegn ofureflinu en nokkurn hefði grunað. í fyrsta lagi er það varhugavert að manni eins og Aðalsteini Ingólfssyni skuli trúað fyrir slíkum þætti, manni sem er alþekktastur fyrir ein- strengingslegan hugsunarhátt og yfirborðsmennsku. Kumpánum þessum varð tíðrætt um pólitíska íhlutun í úthlutun listamannalauna. Hvernig hefði farið ef þeir sjálfir eða þeirra líkar hefðu staðið að úthlutuninni? Atli Heimir Sveinsson var seinheppinn þegar hann færði. í tal alla þá prentvinnu m.ö., sem skáldjöfr- arnir Sigurður Breiðfjörð og Jónas Hallgrímsson hefðu staðið undir. Þá kom hljóð úr horni. Halldór frá Kirkjubóli varpaði fram þeirri spurningu hvort Jón- asi Hallgrímssyni myndi nokkru sinni hafa komið til hugar að veita Sigurði Breiðfjörð listamanna- laun. Þetta hitti í mark. Hverjum myndi koma til hugar að Sigurður A. Magnússon, ef í hans hlut kæmi, úthlutaði öðrum lista- mannalaun en þeim tíu pótentát- um sem hann tilnefndi þess verðuga (auk sjálfs sín)? Hvernig færi ef úthlutunar- nefnd listamannalauna saman- stæði af mönnum á borð við þá Aðalstein Ingólfsson og Sigurð A. Magnússon? Og ekki nóg með það, þess hafði verið gætt að þeir nýir launþegar sem spurðir voru álits væru á sama máli og spyrjendur, að undanskildum Tryggva Emils- syni sem var svo heiðarlegur að það gæti eflt trú manna á annað og betra líf. Ég held það færi Sjónvarpinu betur að íhuga hverjum er hleypt að fjölmiðlinum og að fyllsta hlutleysis sé gætt. NB: Hafi mér orðið á að snerta meiðyrðalöggjöfina með þessum línum, treysti ég því að hinn nýstofnaði „Málfrelsissjóður" hlaupi undir bagga. Skriíað 30.03. ‘78. Gréta Sigfúsdóttir. Heilsulindin Hverfisgötu 50 auglýsir. Hvaö með línurnar fyrir sumarið? í Heilsulindinni Hverfisgötu 50 er boöiö gufubaö, nudd sem styrkir og hressir, Ijós, hvíldarbekkur. Snyrtistofa á sama staö. Karlmannatímar á laugard. kl. 9—2. Heilsulindin Hverfisgötu 50, sími 18866. Brezhnev til Vestur- Þýzkalands Bonn, 4. apríl. Reuter. SKÝRT var frá því í Bonn í dag, að Leonid Brezhnev væri væntan- legur þangað í opinbera heim- sókn snemma í maí. Brezhnev mun eiga viðræður við Ilelmut Schmit, kanslara Vestur-Þýzka- lands, og hermdu fregnir að þær ’ viðræður mundu aðallega snúast um efnahagsaðstoð við Sovétríkin og afvopnunarmál. Ekki hefur verið skýrt frá því hversu lengi Brezhnev muni dvelja í VesturÞýzkalandi né heldur hvaða dag hann muni koma. Stjórnmálaskýrendur telja lík- legt að Brezhnev muni biðja stjórn Vestur-Þýzkalands að hvetja þarlend fyrirtæki til að hjálpa Sovétríkjunum að vinna málma og önnur nytjaefni úr jörðu í Síbcríu. Vestur-þýzk fyrirtæki hafa hingað til verið ófús til að aðstoða Sovétríkin, vegna þess hvað verk- efni þessi eru viðamikil og vegna hins langa samningstíma, sem Sovétríkin fara fram á. Talið er að þeir Schmidt og Brezhnev muni einnig ræða um afvopnun og þá sérstaklega um nifteindasprengjuna. Sovétríkin hafa gagnrýnt Bandaríkin harð- lega fyrir að ætla að hefja framleiðslu á henni, en Bandaríkin hafa enn ekki tekið lokaákvörðun um framleiðslu hennar. Samkvæmt heimildum frá NATO hefur Carter, Bandaríkja- forseti, ekki viljað gefa ákveðið svar varðandi framleiðslu sprengj- unnar, fyrr en hin NATO-ríkin Framhald á bls. 18 Diane Keaton, bezta leikkona ársins 1978. bezta kvikmyndin, hlaut í sára- bætur verðlaun fyrir ýmis tækni- leg atriði og búninga. „Star Wars“ var mest sótta kvikmyndin í Bandaríkjunum á liðnu ári og virðist sem hún ætli að slá öll fyrri aðsóknar- og tekjumet. Listin fyrir Oskarsverðlauna- hafa lítut annars þannig út. Bezta kvikmynd — „Annie Hall“ bezti karlleikarann Richard Dreyfuss — „The goodby girl“ bezti kvenleikarinn Diane Keaton — „Annie Hall“ bezti karlleikarinn í aukahlutverki Jason Roberts — „Julia" bezti kvenleikarinn í aukahlut- verki Vanessa Redgrave — „Julia" bezta leikstjórn Woody Allen — „Annie Hall“ besta frumsamda handrit Woody Allen og Marshall Brickman — „Annie Hall“ bezta kvikmyndahandrit Alvin Sargent — „Julia" Framhald á bls. 18 Vanessa Redgrave heldur á Oskarsverðlaunum sinum eftir að John Travolta (t.v.) hafði afhent henni þau. Redgrave hlaut þau fyrir beztan leik konu í aukahlutverki í myndinni „Juiía“, og olli verðlaunaveiting hennar miklum úlfaþyt meðal Gyðinga. Veður víða um heim Stig. Amsterdam 10 skýjaö Apena 16 skýjaö Berlín 12 skýjaö BrUssel 17 skýjaö Chicago 11 rigning Frankfrut 13 rigntng Genf 16 sólskin Helsinki 5 bjart Jóh.borg. 21 sólskin Kaupm.höfn. 6 sólskin Lissabon 17 bjart London 10 rigning Los Angeles 20 rigning Madrid 16 rigning Malaga 17 bjart Miami 23 bjart Moskva 6 bjart New York 5 rigning Ósló 8 sólskin Palma 15 skýjaö París 11 skaýjaö Róm 18 sólskin Stokkhólmur 8 bjart Tel Aviv 24 mistur Tokýó 17 sólskin Vancouver 16 skýjaö Vín 15 skýjað Orlofstöflur EINFALT, ÓDÝRT OG ÞÆGILEGT FORM TIL AÐ SKIPULEGGJA, SAMRÆMA OG HAFA EFTIRLIT MEÐ ORLOFI STARFSMANNA. Taflan gefur starfsfólkinu aukna möguleika á að ráða sjálft fríi sínu án þess að þaö rekist á við hagsmuni annarra. Taflan nær yfir tímabilið maí til apríl og eru allir íslensku frídagarnir merktir sérstaklega.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.