Morgunblaðið - 05.04.1978, Page 32

Morgunblaðið - 05.04.1978, Page 32
\l <;IASIN<;.\SIMI\N KK: 22480 JWorjjunblníiiíi JHorjjimblfltiií) MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978 Loftleiðaflugmenn frá vinnu vegna skerðingar vísitölubóta: Skyndiverkfall raskar flugi þúsunda farþega „6% af vísitöluupp- bótum vangreitt,” segja Loftleiðaflug- menn „Greiðum laun samkvæmt lögum,” segja Flugleiðamenn FÉLAG LoftleiöafluKmanna lagði niður vinnu fyrirvara- laust í Kær eftir að hafa borið upp kvörtun til full- trúa Flugleiða varðandi vísi- töluskerðingu á launa- greiðslur flugmanna um síðustu mánaðamót, en Flug- leiðir greiddu laun til allra starfsmanna sinna sam- kvæmt lögum um efnahags- ráðstafanir. Flugmenn Loft- leiða töldu sig eiga að njóta fullra vísitölubóta sam- kvæmt launasamningi, en fulltrúar Flugleiða kváðu alla starfsmenn sína hljóta að eiga að sitja við sama borð í þessum efnum sam- kvæmt langslögum. Flugmenn höfðu samband við fulltrúa Flugleiða um þetta mál um miðjan dag í gær, en tveimur klukkustundum síðar áttu tvær vélar flugfélagsins á leið frá Evrópu að millilenda í Keflavík með alls 500 farþega á leið til Bandaríkjanna. Um kl. 19 slitnaði upp úr viðræðum flugmanna og Flugleiða og urðu farþegarnir 500 því strandaglópar í Keflavík. Hófu Flugleiðamenn þegar í stað að gera ráðstafanir til þess að koma farþegum sínum í gistihús í Reykjavík og kanna möguleika á leiguflugvélum til að flytja far- þega félagsins á endastöðvum beggja vegna hafsins, en alls er um að ræða um 1000 farþega á dag. Morgunblaðinu barst í gær- kvöldi fréttatilkynning frá Félagi Loftleiðaflugmanna. Þá hafði blaðið samband við Örn Ó. John- son forstjóra Flugleiða og innti frétta af stöðunni í málinu, en ekki tókst að ná sambandi við Skúla Guðjónsson formann Félags Loft- Framhald á bls. 19 500 íarþegar urðu strandaglópar næturlangt vegna skyndiverkfalls flugmanna Loftleiða, og varð að flytja þá alia á hótel í Reykjavík. Farþegar tóku töfinni með jafnaðargeði. Sjá frásögn bls 16 Lóan er komin IiorKareyrum. 4. apríl LÖAN er komin. Bóndinn á Rauðuskriðum í Fljótshlíð, sem er nýbýli rétt hjá Stóra- Dímon, sá 7 til 8 lóur í túnfætinum hjá sér í morgun. Mun þetta óvenjusnemmt að vart verður við þennan vor- boða. Hér er vor í lofti, logn og súld og haldi svo áfram sem horfir verður ekki langt þar til gras fer að grænka. — Markús. Vestfirðingar ekki með í boðun útflutningsbanns ÖLL STÆRSTU aðildarfélög Verkamannasambands íslands utan Vestfjarða hafa nú þegar aflað sér heimildar til boðunar útflutningsbanns, sem taka á gildi sem fyrst eða eftir lögboðinn 7 daga frest, en þó eigi síðar en 15. apríl. Útflutningsbannið verður ótímasett, þ.e.a.s. gildir, þar til annað verður ákveðið. Nokkur félög eiga enrt eftir að afla sér heimildar, flest gera það með samþykkt stjórnar og trúnaðarmannaráðs, en nokkur með félagsfundum. Samkvæmt upplýsingum Karvels Pálmasonar standa Vestfirðingar ekki að boðun útflutningsbannsins með öðrum félögum á landinu. Útskipun á sjávarafurðum og öðrum iðnvarningi til útflutnings er að því er Morgunblaðið fregnaði í gær aðeins um 20% þeirrar vinnu sem unnin er við Reykjavíkurhöfn. Uppskipun er um 80% af starfi hafnarverkamannanna. Víða úti á landi er útskipun sjávarafurða saman eftir því sem hafnarskilyrði í nágrenninu hafa batnað. Útskip- un hefur því dreifzt talsvert um landið. Hafnarverkamenn í Reykjavík eru langflestir að sjálf- sögðu og þar hafa menn starfið yfirleitt að aðalatvinnu. Guðmundur J. Guðrríundsson, formaður Verkamannasambands mjög tímabundin og verkamenn, sem að því vinna, eru jafnan bundnir við önnur störf, en hlaupa úr þeim, þegar útskipunarþörfin kallar. Því kemur þetta ekki eins mikið við pyngju hins almenna launþega. Útskipun í Reykjavíkur- höfn hefur undanfarin ár dregizt Scanhouse: Með 13 mílljarða króna verksamning í Nígeríu Hefur tekið að sér byggingu á 2448 íbúðum þar í landi ÍSLENZK-nígeríska fyrirtækið Scanhouse Ltd. undirritaði í fyrradag samning við sjóherinn í Nígeríu um byggingu 1150 íbúða skammt frá höfuðborginni Lagos, en áður en þessi samningur var gerður hafði Scanhouse samið um smiði á 1398 ibúðum þar í landi. Eru framkvæmdir við þær þegar hafnar, eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu, og hefur Scanhouse gengið fram samning- um um smíði á 2448 ibúðum þar í landi fyrir stjórnvöld og einka- fyrirtæki. Hljóða samningar fyrirtækisins upp á um 13 mill- jarða króna, að því er Morgun- blaðinu var tjáð í gær. Hafsteinn Baldvinsson hrl. og einn af eigendum Scanhouse Ltd. sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að samningurinn, sem Scan- house hefði nú gert við sjóherinn í Nígeríu, væri svipaður og fyrri byggingarsamningar fyrirtækisins þar í landi. Kvaðst Hafsteinn eiga von á að byrjað yrði á fram- kvæmdum fyrir sjóherinn á tíma- bilinu ágúst-október, en áður en hægt yrði að hefja framkvæmdir þyrfti að ljúka við að dæla upp Framhald á bls. 18 í gæzlu fyrir árás- ar hneigð SEXTÁN ára gamall piltur var í gær úrskurðaður í gæzluvarðhald til 10. maí og einnig var honum gert að sæta geð- og heilbrigðisrannsókn á gæzluvarðhaldstímanum. Úr skurðurinn er kveðinn upp að ósk rannsóknarlögreglu ríkis- ins vegna síendurtekinna árása piltsins og félaga hans á gangandi vegfarendur. Hafa þeir félagar ráðizt að fólki, barið það og jafnvel rænt. Félagar piltsins eru allir undir lögaldri. Piltarnir sem verið hafa saman 5 til 7 talsins eltu m.a. mann einn frá Klúbbnum og börðu hann og rændu á Hrísa- teigi í síðustu viku. Síðan fóru þeir niður í miðbæ og réðust þar að ungum manni, sem var að koma frá vinnu sinni. Einnig skemmdu þeir bíla við Laufás- veg. I fyrrakvöld réðst pilturinn Framhald á bls. 18 íslands, sagði í gær að í stjórn Verkamannasambands íslands hefði verið gerð einróma sam- þykkt, sem tilkynnt yrði á blaða- mannafundi árdegis í dag. Annað kvaðst hann ekki vilja segja að svo stöddu, en því meira á blaða- mannafundinum í dag. Ólafur Jónsson, forstjóri Vinnu- veitendasambands íslands, sagði í gær að enn væri ekki ákveðið hver viðbrögð vinnuveitenda yrðu við boðun útflutningsbanns. Fundur var haldinn með vinnuveitendum í gær, en þá höfðu ekki borizt nógu ítarlegar upplýsingar, svo að unnt hefði verið að taka afstöðu til málsins. Annar fundur er með vinnuveitendum í dag. Karvel Pálmason, alþingismað- ur og formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur, kvaðst ekki vita til þess að annað félag en Baldur á ísafirði væri aðili að Verkamannasambandinu og Karvel sagði að sér væri ekki kunnugt að nokkurt félag á Framhald á bls. 18 Hlaut DAS-húsið DREGIÐ var í 12. flokki Happ- drættis Dvalarheimilis aldraðra sjómanna í gær. DAS-húsið að verðmæti um 35 milljónir króna kom upp á miða númer 48713. Vinningshafi reyndist vera Lovísa Halldórsdóttir, Bergstaðastræti 71, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.