Morgunblaðið - 20.04.1978, Qupperneq 1
81. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fögnuður í Panama
— en viðbrögð mis-
jöfn í Bandaríkjunum
Panama horg. 19. april. AP. Reuter.
PANAMA-búar fögnuðu í dag
ákaft staðfostingu Randarikja-
þings á.samningnum. sem kveður
á um óskoruð yfirráð Panama
yfir Panamaskurðinum frá næstu
aldamótum. Skömmu eftir að
niðurstaða atkvæðagreiðslu öld-
ungadeildar þingsins var kunn í
nótt. lýsti Omar Torrijos, hers-
höfðingi og leiðtogi Panama, því
yfir að hefði þingið ekki staðfest
samninginn hefði hann verið
reiðubúinn til að láta eyðileggja
skurðinn með dýnamíti.
Ljóst er að með atkvæða-
greiðslu öldungadeildarinnar er
þó hvergi nærri lokið deilum í
Bandarikjunum vegna málsins,
en víða í SuðurAmeríku hefur
afgreiðslu málsins verið fagnað,
og hún talin marka tímamót í
samskiptunum við nágrannann í
norðri. Carter forseti leikur á als
oddi eftir atkvæðagreiðsluna, en
gagnrýnendur stefnu hans í
þessu máli hafa verið harðorðir
og segja að hún sé staðfesting á
því að forsetinn sé alls ófær um
Carillo á landsfundi:
Hugmyndir
Lenins um ;
byltingu og
stéttabar-
áttu úreltar
Madrid — 19. apríl — AP.
SANTIAGO Carillo, leiðtogi
spænskra kommúnista, lýsti því
yfir í stefnuræðu sinni á lands-
fundi kommúnistaflokksins, sem
hófst í dag, að kommúnistar ættu
að hafna kenningum Lenfns um
stéttabaráttu og byltingu, en
stefna í þess stað að samvinnu við
lýðræðislcga kjörnar ríkisstjórn-
ir. Carillo lagði áhcrzlu á að hann
færi þess ekki á leit við flokks-
bra'ður sína að þeir höfnuðu
lenínisma sem slíkum, en ýmsar
Framhald á bls. 26
að hafa á hendi forystu í utanrík-
ismálum.
Til átaka kom milli stúdenta í
Panama-borg í dag, en vinstri
sinnaðir öfgamenn í þeirra hópi
kröfðust þess að Panama fengi
tafarlaus yfirráð yfir skipaskurð-
inum.
Carter forseti sagði eftir að
Alvar-
legur
ágrein-
ingur
-sagði Vance við
komuna til Moskvu
Moskvu — 19. apríl — AP —
Reuter
EKKI er við því búizt að Cyrus
Vance utanríkisráðherra
Bandaríkjanna hafi árangur
sem erfiði í heimsókn sinni til
Moskvu, en tilgangurinn með
viðræðum hans við Sovét-
stjórnina næstu þrjá daga er
* að greiða fyrir nýjum SALT-
samningi. Við komuna til
Moskvu lýsti Vance því yfir að
alvarlegur ágrciningur væri
milli stjórna rikjanna, þótt
báðir aðilar gerðu sér nú betri
grein fyrir því en oft áður í
hverju ágreiningurinn fælist.
Samskipti stjórna ríkjanna
hafa farið versnandi að undan-
förnu, ekki sízt vegna hern-
aðaríhlutunar Sovétríkjanna í
Afríku. Áður en Vance lagði af
stað frá Lundúnum til Moskvu
lýsti hann því yfir að Banda-
ríkin hefðu miklar áhyggjur af
ástandinu í Eþíópíu þar sem
Sovétmenn er með 1500
hernaðarráðgjafa og kúbanskir
hermenn eru um 20 þúsund
talsins. Gromyko utanríkisráð-
herra lýsti því yfir síðast í
gærkvöldi, að Sovétríkin álitu
Framhald á bls. 26
V ínar-viðræðurnar:
Vínarborg 19. apríl AP.
RÍKI Atlantshafsbandalagsins
hafa lagt fram nýjar tillögur um
meiriháttar tilslakanir í viðræð-
unum um gagnkvæman samdrátt
herafla í Mið-Evrópu, að því er
skýrt var frá í Vínarborg í dag.
Eru viðbrögð af hálfu Varsjái-
bandalagsins við tillögunum eng-
an veginn neikvæð, og fulltrúar
samningurinn hafði verið staðfest-
ur, að hann fæli í raun i sér
samstarf við Panama um starf-
rækslu og varnir skurðarins og
hefðu Bandaríkin samkvæmt hon-
um rétt til að gripa til hverra
þeirra ráðstafana, sem nauðsyn-
legar kynnu að reynast til að halda
honum opnum, þótt ljóst væri að
ekki kæmi þar til greina íhlutun
Bandaríkjanna í innanríkismál
Panama. Vísaði forsetinn hér til
þess ákvæði samningsins þar sem
segir að Bandaríkin hafi rétt til að
gera meðal annars hernaðarlegar
ráðstafanir ef umferð um skurð-
inn verði hindruð, en þetta atriði
var lengi vel það, sem einkum stóð
í vegi fyrir því að samningar
tækjust um yfirráð yfir skurðin-
um.
Bandaríkjamenn grófu skipa-
skurðinn, sem tekinn var í notkun
árið 1914. Hann markaði tímamót
í samgöngumálum þessa heims-
hluta og stytti leiðina milli austur-
og vesturstranda í álfunni um 7
þúsund mílur, en fram að þessum
Framhald á bls. 26
Sungið var og dansað í Panama borg eftir að Torrijo hershöfðingi
tilkynnti um úrslit atkvæðagreiðslu Bandaríkjaþings um^ramtíð
Panama-skurðar. Fjölmenni safnaðist fyrir á götum borgarinnar en
ánægjan var ekki óblandin því að vinstri sinnaðir stúdentar efndu
til átaka í mótmælaskyni við það, að Panama fengi ekki tafarlaus
umráð yfir skurðinum. (AP-sjmamynd).
Leitinni að líki Moros haldið áfram:
Athyglin beinist eink-
um að fylgsninu í Róm
^ Róm. 19. apríl. AP. Reuter.
ÍTALSKA stjórnin lýsti því yfir
í kvöld að telja mætti útilokað að
lík Aldo Moros væri að finna í
Duchessa-vatni, og hefðu upplýs-
ingar þær, sem leitin hefði byggzt
á, auglýsilega ekki átt við rök að
styðjast. Cossiga innanríkisráð-
herra sagði rannsóknir hafa leitt
í Ijós að orðsending Rauðu
herdeildarinnar um „aftöku“
Moros og afdrif líksins væri að
öllum lfkindum ófölsuð.
Hinni víðtæku leit að líkinu í
NATO slak-
ar á kröfum
þess á fundinum sögðu að til-
lögurnar yrðu athugaðar gaum-
gæfilega áður en afvopnunarvið-
ræðurnar hæfust að nýju eftir
mánuð.
Tillögur Atlantshafsbandalags-
ins háfa ekki verið birtar, en
áreiðanlegar heimildir herma að
þær miði að því að fimm sovézkar
Framhald á bls. 26
fjalllendinu norðaustur af Róma-
borg var í dag haldið áfram, og
sprengdu leitarmenn vakir í Duch-
essa-vatn með dýnamíti. Ekkert
kom fram við leitina, sem gefið
gæti vísbendingu um örlög Moros.
Leit í nágrenni við Duchessa-vatn
verður haldið áfram næstu daga,
en innanríkisráðherrann gaf ótví-
rætt í skyn á þingi í dag, að vonir
væru nú einkum bundnar við að
fylgsnið, sem fannst í Róm í
gærmorgun, kynni að leiða lög-
regluna á slóð ræningja Moros.
Froskmaður
hverfur
niður um vök,
sem leitarmenn
höfðu höggvið í
ísinn á f jalla-
vatninu þar sem
leitað hef ur ver
ið að líki Aldo
Moros undan-
farna daga.
(AP-símamynd)
Vopn þau og
sprenguefni, sew
lögreglan í Róm
fann í fylgsni
Rauðu her-
deildarinnar.
(AP-símamynd)
Fregnir hafa borizt af þvi að
félagar í Rauðu herdeildinni, sem
nú eru fyrir rétti í Torína, hafi líkt
yfirlýsingunni um afdrif Moros við
skemmtiatriði, en lögfræðingur
þeirra vísar á bug slíkum sögum.
Lögfræðingurinn, að nafni Giann-
ino Guiso, segist vera þeirrar
skoðunar að Moro sé enn á lífi og
að enn kunni að vera ráðrúm til
samninga. Hins vegar sé ljóst a?
hafa verði snör handtök ef takasl
eigi að bjarta lífi Moros, og að þa<
Framhald á bls. 26