Morgunblaðið - 20.04.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.04.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGXJR- 80. APRlL 1978 StaúgrehVsla opinherra i»jalda: Staðgreiðslan hefði jafn- vægisáhrif á efnáhagslífið — en gjaldendur töpuðu núgildandi greiðslufresti Upp úr lokum síðari heims- styrjaldarinnar eða í ársbyrjun 1947 byrjaði að brydda á tali og tillögum um að stefna bæri að upptöku staðgreiðslu opinberra gjalda hér á landi. í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar á Alþingi 13. okt. 1965 var tekið fram að eitt af þeim verkefnum sem ríkisstjórnin mundi beita sér fyrir væri að koma á staðgreiðslu opin- berra gjalda hér á landi. I framhaldi af þessari yfirlýsingu var ríkisskattstjóra, Sigurbirni Þorbjörnssyni, falið að sjá um undirbúning málsins og voru ráðnir honurrf'til aðstoðar þeir Helgi V. Jónsson, hrl. og lögg. endursk. og dr. Gísli Blöndal, hagsýslustjóri. Undirbúningsrannsóknir fóru fram á árinu 1966 og hinn 10. okt. 1966 skilaði ríkisskattstjóri skýrslu og greinargerð til þáverandi fjármála- ráðherra, Magnúsar Jónssonar, um þetta mál. Hinn 25. okt. 1966 skipaði fjár- málaráðherra 7 manna nefnd em- bættismanna, fulltrúa sveitarfélaga og þáverandi stjórnarflokka. Fram- kæmdastjóri nefndarinnar var ríkisskattstjóri og ritari dr. Gísli Blöndal. Nefndin skilaði skýrslu sinni til fjármálaráðherra þann 14. mars 1967. Hinn 18. apríl 1967 var á Alþingi samþykkt þingsályktun þess efnis að Alþingi kysi sjö manna nefnd er héldi áfram athugunum þessa máls og skyldi hún leita álits samtaka sveitarfélaga og helstu samtaka vinnumarkaðarins. Nefndin hélt fyrsta fund sinn 10. maí 1%7 og kaus sér sem formann Ólaf Björns- son, prófessor, og Guttorm Sigur- björnsson, framkvæmdastjóra, sem ritara. Viðræðunefndir voru skipað- ar af hálfu Sambands ísl. sveitarfél- aga, launþegasamtakannna og vinnuveitenda. Ríkisskattstjóri starfaði með nefndinni. í nefndar- áliti milliþinganefndarinnar, sem útbýtt var á Alþingi í janúarmánuði 1970, kemur fram að nefndarmenn, svo og allir aðilar viðræðunefnda, þ.e. Sambands ísl. sveitarfélaga, fulltrúar launþegasamtakanna og fulltrúar vinnuveitenda voru fylgj- andi upptöku staðgreiðslu opin- berra gjalda hér á landi í svipuðu formi og fram kom í nefndarálitinu um skipan staðgreiðslukerfis, en sá hluti nefndarálitsins var saminn af ríkisskattstjóra, m.a. með hliðsjón af viðræðum nefndarinnar við greinda viðræðuhópa. • Kostir staðgreiðslu Áður en lengra er haldið þykir mér rétt að ræða örlítið um þá kosti og galla sem tali& hefur verið að séu á staðgreiðslu opinberra gjalda og tel þá upp kostina fyrst: • í fyrsta lagi. Öryggi gjaldenda þar sem staðgreiðsla stuðlar að jafnvægi (samræmi) milli skatt- heimtu eða endurgreiðslu og greiðslugetu gjaldenda á teknaár- inu. • f öðru lagi. Innheimta hins opinbera yrði öruggari ogjafnari en nú er. • í þriðja lagi. Staðgreiðslan mundi hafa jafnvægisáhrif á efna- hagslífið. Unnt yrði að búa þannig um hnútana að hið opinbera gæti beitt opinberum gjöldum meir í hagstjórnarskyni en hingað til. • I fjórða lagi. Álag á launagreið- endur við innheimtu oþinberra gjalda mundi minnka verulega frá því sem nú er. Þessi staðhæfing er vitanlega byggð á samanburði við gildandi kerfi hjá þeim launagreið- endum (atvinnurekendum), sem framfylgja í einu og öllu gildandi ákvæðum og fyrirmælum um inn- heimtu opinberra gjalda, um skyldusprnað, svo og um greiðslu orlofsfjár. • í fimmta lagi. Möguleikar á einföldun (eða jafnvel afnámi) skattframtala almennra launþega með hliðsjón af þeirri einföldun sem jafnframt er ráðgerð á skattalög- gjöfinni sem segja má að sé nauðsynleg hvort sem er. • Gallar staðgreiðslu Þá komum við að þeim atriðpm sem talin hafa verið gallar: • í fyrsta lagi. Að framkvæmd staðgreiðslu mundi a.m.k. fyrst í stað kerfjast aukins átáks og kostnaðar hins opinbera. Að vissu marki mundu skattyfirvöld yfirtaka vissar skyldur atvinnurekenda varðandi dreifingu á skilum á innheimtu opinberra gjalda til margra innheimtuaðila. • í öðru lagi. Að gjaldendur töpuðu því hagræði sem gildir í dag, að geta dregið greiðslur opinberra gjalda sem lengst, þ.e. allt að 14—1 (4 ári eftir teknamyndun eins og nú er, en eins og fram hefur komið hjá launþegasamtökunum telja flestir launþegar mikilvægara að vita hvar þeir standa á hverjum tima og þurfa ekki að reikna með „bakkröfum" frá hinu opinbera í ríkari mæli en staðgreiðsla gæfi tilefni til. • I þriðja lagi> Að staðgreiðsla mundi ýta undir meiri kaupkröfur en ella þar sem hluti þeirra kauphækkana sem fælist í nýjum kjarasamningum, yrði þegar í stað tekinn af launþegum í hækkuðum sköttum í stað „greiðslufrests" í gildandi innheimtufyrirkomulagi. Miðað við það horf sem gerð kjarasamninga virðista hafa færst í að undanförnu í auknum mæli virðist ekki mikið hald í þessum galla. • í fjórða lagi. Að gjaldendur yrðu ófúsari að leggja á sig viðbótar- vinnu og heildarframboð vinnuafls mundi því minnka af þeim sökum þar sem launþegar yrðu strax varir við opinberu gjöldin í stað „gjald- frests" þeirra að öllu óbreyttu. • í fimmta lagi. Að gjaldþegnar færu að líta á laun að frádregnum opinberum gjöldum og taka mið af þessum „nettó launurn" við launa- kröfur sínar. Þetta mun aðallega geta átt við fámenna starfshópa sem geta að meira eða-minna leyti ákveðið kjör sín sjálfir, en getur ekki átt við hinn almenna launa- markað. • í sjötta lagi. Afstaða sumra gegn staðgreiðslu hefur mótast af því að erfiðara sé að koma henni á hér á landi en víða annars staðar vegna atvinnuhátta okkar. Því er til að svara að sömu vandamál, og ekki síðri, blasa alls staðar við í gildandi innheimtu vegna atvinnuhátta okk- ar. • { sjöunda lagi. Afstaða sumra gegn staðgreiðslu hefur mótast af því að betra sé að endurbæta gildandi kerfi en taka upp stað- greiðslu. Gildandi kerfi verður aldrei endurbætt að neinu marki. Það byggir nú á og verður ávallt að byggjast á teknamyndun og fjöl- skylduaðstæðum sem voru fyrir hendi, fullu einu, en tæpum tveim árum áður en fyrirframgreiðsla hefst en 114 og allt að 214 ári áður en henni lýkur og enn fremur að innheimta eftirstöðva álagðra gjalda á gjaldárum byggist á sömu aðstæðum (tekjum og fjölskyldu- aðstæðum) sem eru þegar orðnar 7—19 mánaða gamlar við upphaf og eins til tveggja ára gamlar þegar lýkur. Sömu vandkvæðin verða nú uppi á teningnum varðandi endur- greiðslu barnabóta að hluta eða fullu og þátttöku ríkissjóðs í útsvörum. • Undirbúningur frumvarpsins í ársbyrjun 1975 fól ég ríkisskatt- stjóra að gera tillögur um með hvaða hætti og á hvaða grundvelli framkvæma megi staðgreiðslu opin- berra gjalda hér á landi. Tillögum sínum skilaði ríkis- skattstjóri mér í maí 1975. í samræmi við það verkefni sem honum var falið, gerði hann beinar tillögur um þetta efni án beins eða nánari rökstuðnings. Tillögurnar voru því nokkurs konar beinagrind að staðgreiðslukerfi sem ætti eftir að fylla út í og fullkomna við upptöku staðgreiðslu hér á landi. Tillögur og greinargerð ríkis- skattstjóra sendi ég 19 aðilum til umsagnar. Fjórir aðilar svöruðu ekki beiðni um umsögn, einn aðili var andvígur málinu, tveir aðilar blönduðu málinu saman við önnur skattaleg efni og svör því efnislega óljós, tveir aðilar töldu að ákveðnari hugmyndir um einföldun skatta- kerfisins þyrftu að liggja fyrir en studdu þó hugmyndina. Af þeim 15 aðilum sem svöruðu voru 10 aðilar fylgjandi málinu. í stefnuræðu hæstv. forsætisráð- herra á Alþingi þann 3. nóv. 1977 var boðað að frv. til laga um staðgreiðslu opinberra gjalda yrði lagt fyrir Alþingi og í ræðu minni við 1. umr. um fjárlög 1978 á Alþingi þann 8. nóv. 1977 vísaði ég til stefnuræðu hæstv. forsætisráðh. um þetta mál og taldi ljóst að stefna bæri að upptöku staðgreiðslu skatta í megindráttum með sama sniði og lýst er í skýrslu ríkisskattstjóra sem út kom í maimánuði 1975. í framhaldi af þessu hefur verið unnið að undirbúningi og samningu þess frv. sem hér er til umræðu. Frv. þetta er samið með hliðsjón af ákvæðum frv. til laga um tekjuskatt og eignarskatt sem lagt er fram samhliða frv. þessu, af frv. til laga um br. á lögum nr. 67/1971 um almannatryggingar sem lagt hefur verið fram, svo og væntanlegu frv. til laga um atvinnuleysistryggingar. Þá er við það miðað að lögum nr. 36/1948 um sóknargjöld verði breytt á þann veg að sóknargjald reiknist sem hundraðshluti af álögðum útsvörum. í sambandi við gildissvið staðgreiðslu skv. frv. vil ég vekja athygli á því að innan þess fellur ekki söluskattur sem er í reynd skil innheimtufjár og stað- greitt. Með hliðsjón af væntanlegri athugun á breytingu söluskatts yfir í virðisaukaskatt þótti rétt að halda söluskatti utan gildissviðs stað- greiðslu skv. þessu frv. þar til ljósari línur kæmu fram um fram- gang virðisaukaskatts. eða br. á lögum um söluskatt. Ljóst er að meiri og minni br. verður að gera á ákvæðum allra þeirra laga sem gilda í dag um þá skatta og gjöld sem upp eru taldir í 1. gr. frv., að undanskildum tekjuskatti og álagi á hann, að því er varðar ákvæði um innheimtu þeirra og í sumum tilvikum um ákvörðun stofns og gjaldstigs. • Gildissvið og meginreglur staðgreiðslu Gildissvið staðgreiðslu skv. 1. gr. frv. nær til 13 skatta og gjalda auk greiðslu orlofsfjár og skyldusparn- aðar. Skattar og gjöld skv. 1.—5. tl. eru allir tengdir tekjum eða gjöld- um, sem eru álag á þá skatta sem eru tengdir tekjum og má því gefa þeim samnefnið „tekjuskattar". Ákvörðun fjárhæða orlofsfjár og Matthias Á. Mathiesen fjármálaráðherra. Framsaga fjármála- ráðherra með stað- greiðslu- frumvarpi skyldusparnaðar er nátengd launa- tekjum. Telja verður að hagræði sé að því fyrir alla aðila að skil þessa fjár tengist staðgreiðslu af launa- tekjum. Tekjuskattar, orlofsfé og skyldusparnaður eru þeir skattar og innheimtur sem snúa að launþegum og launagreiðendum, en auk laun- þega í þjónustu launagreiðenda teljast til þessa hóps þeir menn sem hafa með höndum atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi að því marki sem þeim ber að gjalda tekjuskatta og standa skil á skyldu- sparnaði af því endurgjaldi sem þeir telja sér til tekna og mynda í raun „launa“grundvöll hjá þeim. Sköttum og gjöldum skv. 6.-9. tl. má gefa samnefnið „launatengd gjöld" þar sem grunnur þeirra er byggður á launagreiðslum launa- greiðenda. Ákvörðun greiðslufjár- hæðar þessara launatengdu gjalda verður mjög einföld þegar litið er til frv. um br. á lögum almannatrygg- inga og væntanlegs frv. um br. á atvinnuleysistryggingagjöldum. Gjöldum skv. 10.—12. tl. má gefa samnefnið „gjöld tengd rekstrar- gjöldum" þar sem grunnur þeirra er byggður á rekstrargjöldum þeirra sem hafa með höndum atvinnu- rekstur eða sjálfstæða starfsemi. Tekjuskatta þessara aðila og um- rædd gjöld verður að áætla fyrir- fram og innheimta á staðgreiðsluári með hliðsjón af slíkum áætlunum. Meginreglur staðgreiðslu eru þær að um er að ræða bráðabirgða- greiðslu allra gjald- eða greiðslu- skyldra aðila á opinberum gjöldum, orlofsfé og skylduspárnaði á stað- greiðsluárinu. • Tilhögun staðgreiöslu. Launpegar og atvinnurekendur. Staðgreiðsla opinberra gjalda launþega í víðtækustu merkingu þess orðs byggir á svonefndri „einföldu reglu" staðgreiðslu í meginatriðum með notkun skatt- korta launþega og skatttaflna fyrir launagreiðendur á sama eða svipað- an hátt og tíðkast í Bandaríkjunum og V-Þýskalandi. í A-hluta III. kafla frv. koma greinilega fram reglur um tilhögun staðgreiðslu launþega sem launagreiðendur sjá um fyrir hönd þeirra og mun ég í örstuttu máli gera grein fyrir því. Gerð skattkorta og útsendingu þeirra til launþega þarf að vera lokið fyrir upphaf staðgreiðsluárs svo hð launþegi hafi skattkort sitt handbært til afhendingar hjá launagreiðanda sínum strax við upphaf þess. Til þess að unnt sé að ná þessu tímamarki verður að byggja á frumgerð þjóðskrár þann 1. des. þess árs sem næst fer á undan staðgreiðsluári. Frá gerð þjóðskrár til loka ársins má vænta ýmissa breytinga á fjölskyldum sumra launþega vegna giftingar, skilnaðar, barnsfæðinga eða dauðs- falla. Þessar breytingar þurfa að koma fram þannig að leiðrétt skattkort beri með sér réttar upplýsingar um fjölskyldu launþeg- ans við lok þess almanaksárs sem' næst fer á undan staðgreiðsluári. Á sjálfu staðgreiðsluárinu verður hins vegar engin breyting gerð á skatt- korti launþega vegna breytinga á fjölskyldu hans á því ári. Fæðing barns á staðgreiðsluárinu myndi því ekki veita launþega rétt til barna- bóta vegna barnsins á staðgreiðslu- árinu sjálfu. Aftur á móti mun hann fá barnabætur greiddar fyrir barnið á því ári sem það verður 16 ára. Gerð skatttaflna og útsendingu þeirra til launagreiðenda þarf að vera lokið fyrir upphaf stað- greiðsluárs svo að þær séu hand- bærar fyrir lok fyrsta greiðslutíma- bils á staðgreiðsluári. Skatttöflurn- ar myndu byggja á ákvæðum þeirra laga sem um ræðir í 1,—5. tl. 1. gr. frv., þ.e. um tekjuskatta, þó með ákveðnum frávikum að því er varðar útsvar, kirkjugarðsgjald og sóknargjald. Við athugun á álagn- ingu útsvara 1977 kemur í ljós að 164 sveitarfélög af 224, eða 73,21%, notuðu álagningarhundraðshluta 10%, 10,5% eða 11%. Þessir álagn- ingarhundraðshlutar útsvara náðu til 95,77% af fjölda útsvarsgjald- enda og til 97,68% af fjárhæð álagðra útsvara á gjaldárinu 1977 sem nam samtals 13.789 m. kr. Til þess að unnt sé að komast af með eina skatttöflu fyrir hvern einstak- an fjölskyldukjarna og hvert ein- stakt greiðslutímabil er ráðgert að Hér á eftir fer framsaga fjármálaráð- herra, Matthíasar Á. Mathiesen, fyrir stjórnarfrumvarpi um staðgreiðslu opin- berra gjalda. • Aðdragandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.