Morgunblaðið - 20.04.1978, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.04.1978, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRIL 1978 Pálmi Jónsson, alþingismaður: Fjárhagsvandamál Raf- magnsveitna ríkisins Að undanförnu hafa orðið mikl- ar umræður um málefni Raf- magnsveitna ríkisins. Þessar um- ræður hófust að marki í kjölfar afsagnar þriggja stjórnarmanna fyrirtækisins og hafa staðið linnu- lítið síðan. Margt hefur þar verið réttilega sagt og á málefnalegum grundvelli en annað af takmark- aðri þekkingu eða jafnvel hreinum getsökum. Hér er ekki ætlunin að svara því, sem missagt kann að hafa verið í þessari umræðu, heldur hitt að freista þess að draga fram í sem stystu máli orsakir og eðli þess fjárhagsvanda, sém stofnunin á við að etja og greina frá því sem ég tel vera nauðsynlegar breyting- ar, svo komist verði út úr úlfa- kreppu fjármagnsþrenginga í framtíðinni. Þjónustustofnun Áður en að þessu er horfið er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, að Rafmagnsveitur ríkisins eru þjónustustofnun fyrir almenn- ing, fyrst og fremst í sveitum og hinum strjálbýlli landshlutum. Vegna mikilla fjarlægða og strjál- býlis þarf því oft að leggja í fjárfrekar framkvæmdir, sem skila ekki alltaf miklum tekjum í gegnum orkusölu, en eru þó nagkvæmastar af þeim kostum sem völ er á svo unnt sé að halda þjónustu gangandi. Ýmsar slíkar framkvæmdir eru unnar á grund- velli þeirra félagslegu viðhorfa, að fólkið i landinu eigi að hafa sem jafnastan rétt til þess að njóta viðskipta við þær þjónustustofn- anir, sem ríkið rekur. Þessum félagslegu viðhorfum má ekki kasta fyrir róða, heldur festa í sessi. Eðlilegt er þó að meta hversu langt sé hægt að ganga hverju sinni. Til þessara, sem og annarra framkvæmda Rarik, sem sumar eru þegar arðgefandi, hefur eig- andi stofnunarinnar, ríkið, útveg- að lánsfé, sem yfirleitt hefur verið með erfiðum kjörum og miklu verri en á sumum lánum, sem önnur raforkufyrirtæki hafa feng- ið að taka. Af þessum sökum hvíla nú gífurlegir fjármagnsbaggar á herðum fyrirtækisins. Um síðustu áramót námu heildarlán, sem tekin höfðu verið vegna fjárfest- inga 11.000 m.kr. og á síðasta ári námu greiðslur vaxta og afborg- ana af þessum lánum samtals 1.300 m. kr. Til að mæta hluta af þessu hefur verið lagt á svokallað verðjöfnun- argjald af raforku, sem stofnunin hefur fengið og var það á síðasta ári um 880 m. kr. Um framlög úr ríkissjóði hefur ekki verið að ræða utan þess, sem runnið hefur til sveitarafvæðing- ar, en það er greitt af Orkusjóði. Ljóst er að á þessu ári og næstu árum mun bilið á milli verðjöfn- unargjaldsins annars vegar og greiðslu vaxta og afborgana hins vegar breikka mjög. Undir þessum fjármagnskostnaði og nýjum byrð- um vegna lána til nauðsynlegra framkvæmda á komandi árum verður ekki staðið með tekjum af orkusölu og verðjöfnunargjaldi. Til viðbótar er rétt að minna á það, að á reksturinn hefur lagst veruleg orkuöflun með dieselvél- um, sem nú kostar yfir 20 kr/kwh. Óhjákvæmilegt er því að breyta um fjármögnunarstefnu fyrir stofnunina og kem ég að því síðar. Vandamál þessa árs Þau vandamál, sem fastast voru tekin að kreppa að Rafmagnsveit- um ríkisins undir lok marz-mánaðar eiga auðvitað að nokkru leyti rætur í því, sem lýst hefur verið hér að framan. Að sumu leyti eru þó orsakirnar annars eðlis. Sá fjárhagsvandi, sem lengst hefur verið þæft um og ekki er að fullu leystur enn skiptist í eftir- farandi þætti: m. kr. 1. Rekstrarhalli 1977 140 2. Áætlaður rekstrarh. 1978 285 3. Framkvæmdakostnaður 1977 umfram áætlanir 446 4. Hækkun kostnaðaráætl. Norður- og Austurlínu 1978 325 Samtals 1.196 Þegar dró að páskum hafði engin lausn fengist á þessum vandamálum þrátt fyrir ítrekuð tilmæli stjórnar og þó einkum stjórnarformanns Rarik og raf- magnsveitustjóra til ríkisstjórnar, og að lokum beinar tillögur stjórnskipaðrar nefndar. Jafn- framt hafði fjármálaráðuneytið stöðvað frá áramótum fjárstreymi til stofnunarinnar, sem henni bar samkvæmt greiðsluáætlun og lánsfjáráætlun ríkisstjórnarinnar, að öðru en því er tók til launa- greiðslna. Þar á meðal var t.d. fé til að leysa út efni í Austurlínu o.fl. Skuldir hlóðust upp og greiðsluþrot var yfirvofandi. Við bættist, að nýtt innheimtukerfi Rarik hafði reynst gallað í byrjun og útistandandi af þeim sökum yfir 300 m. kr. Við þessar aðstæður, sagði meiri hluti stjórnar Rarik af sér. Enn- fremur höfðu stjórnarmenn ekki talið fært að verða við fyrirmælum iðnaðarráðuneytis um að panta efni til Vesturlínu, meðan lausn væri ekki fengin á fjárhagsvanda stofnunarinnar. Eg ákvað á hinn bóginn að segja ekki af mér í trausti þess að lausn fengist á næstu dögum. Sú lausn liggur ekki endanlega fyrir enn, þótt úr málum hafi greiðst. Greiðslur ríkissjóðs- samkvæmt lánsfjáráætlun ganga nú með eðlilegum hætti. Ákvörðun ríkis- stjórnarinnar um að mæta 1196 m.kr. vanda þessa árs með 25% hækkun hitunartaxta Rarik sem gæfi 110 m.kr. á þessu ári og framlengingu lána og öflun nýrra lána að öðru leyti þarfnast endur- skoðunar að því er tekur til gjaldskrárbreytingarinnar. Sú breyting var einn liöurinn í tillögum stjórnskipaðrar nefndar um lausn vandans, og ákvörðun ríkisstjórnarinnar miðuð við það, að hitunarkostnaður yrði sam- bærilegur með rafmagni frá Rarik og olíukyndingu. I gjaldskrá Rarik eru ákvæði um að hitunartaxtar fylgi breytingum á útsöluverði dieselolíu í Reykja- vík eftir ákveðnum reglum. Ákvörðun ríkisstjórnar er þó tekin samkvæmt hæpnum eða villandi Pálmi Jónsson upplýsingum, vegna þess að ef olíustyrkurinn er tekinn með í dæmið er vafasamt að rafhitunar- taxtarnir þoli nokkra hækkun eigi þeir ekki að fara fram úr kostnaði við olíuhitun. Þessari ákvörðun hlýtur ríkisstjórnin að breyta, því ekki er hægt að una því að kostnaður við rafhitun sé hærri en með olíuhitun. Hvað lánsfjárþáttinn varðar hefur enn ekkert verið gefið upp um það af hálfu ríkisstjórnarinnar hvernig að nýjum lántökum skuli staðið. Eg tel rétt að gera hér örstutta grein fyrir þeim þáttum, sem myndað hafa þann fjárhagsvanda, er að framan er getið og nemur samtals 1196 m.kr. Rekstrarhalli 1977, sem er minni en oft áður, skýrist með sérstökum óhöppum s.l. árs. Kostnaður vegna viðgerða á Vestinannaeyjastreng, sem færðist á rekstur nam • 70 m.kr., vegna viðgerða á sæstreng yfir Arnarfjörð 63 m.kr. og vegna bruna dieselstöðvarinnar á Djúpa- vogi 7 m.kr. samtals 140 m.kr., eða nákvæmlega eins og halli ársins var. Svo dæmi sé tekið um það sem áður hefur gerst í rekstri stofnun- arinnar má nefna að árin 1972 og 1973 varð rekstrarhalli Rarik samtals 294 m.kr. og var þó annað verðlag þá. Einnig var gert ráð fyrir samkv. áætlun stofnunarinn- ar 17/1 1974, að rekstrarhalli Rarik yrði á því ári 272 m.kr. Þessi dæmi eru nefnd til þess að sýna það að áður hafa verið erfiðleikar og þeir meiri en nú í sambandi við rekstur þessarar stofnunar. Þess má og geta, að ekki varð halli á rekstri Rarik 1976. Hvað 2. tölulið snertir vísast til þess, sem ég hef þegar sagt um hvert stefnir ef ekki verða breyt- ingar á fjármögnun framkvæmda á vegum fyrirtækisins. Um 3. tölulið er það að segja, að framkvæmdaáætlanir eru gerðar fyrirfram og fást yfirleitt ekki lagfærðar við gerð fjárlaga og lánsfjáráætlunar miðað við líklega verðlagsþróun. Þannig er fram- kvæmdaáætlun þessa árs miðuð við maíverðlag 1977. Sjá allir hvað það gildir í 30—40% verðbólgu. Þessu hefur stjórn stofnunarinnar mætt með því að skerða enn suma þætti framkvæmda. Aðrir verða ekki skertir án þess að mál lendi í óefni. Rarik hefur annast byggingu byggðalína fyrir ríkið, sem er eigandi þeirra og ber fjármagns- kostnað þeirra vegna. Byggðalínu- framkvæmdir fóru á síðasta ári um 100 m.kr. fram úr áætlun, sem enn hefur ekki fengist greitt, en á þátt í aukinni skuldasöfnun og vaxtabyrði Rarik. Framkvæmdir við Vestmanna- eyjastreng, vegna bilana, kostuðu -86 millj. kr. auk þeirra 70 millj. kr., sem teknar voru á rekstur. Kostnaður við tengingu nýrra húsa í sveitum, sem brást að fé fengist til, nam 66 millj. kr. Annað sem á vantar frá síðasta ári, er einkum vegna aðveitustöðva og díeselstöðva. Vesturlína Eins og fram hefur komið taldi stjórn Rarik ekki fært að panta efni til Vesturlínu, fyrr en lausn hefði fengist á fjárhagsvanda fyrirtækisins, hvað snertir þetta ár. Þá var m.a. haft í huga að slík ákvörðun myndi þrýsta á ríkis- stjórnina og flýta fyrir heildar- lausn. Iðnaðarráðherra var annarrar skoðunar og gaf fyrirmæli um að efnið yrði pantað þegar í stað og hann hafði tvímælalaust rétt til þess, þar sem þetta verk var inni í fjárlögum og .lánsfjáráætlun ríkisstjórnarinnar. Það hefði enda mátt kalla öfugt að farið, að fresta þessu verki, eftir að ríkisstjórnin hafði gefið fyrirmæli, um að leggja nýjan streng, vararafstreng, til Vestmannaeyja, sem hvorki var á fjárlögum né lánsfjáráætlun og ekki í framkvæmdatillögum Rarik fyrir árið 1970. Félagar mínir úr stjórn Rarik töldu þó að þarna hefði fallið dropinn, sem fyllti mælinn til þeirrar ákvörðunar að þeir segðu af sér. Um þetta efni sagði ég m.a. í umræðum utan dagskrár á Alþingi 30. marz s.l. orðrétt: „Ég tel því að þetta atvik sé ekki efni til þess, að menn segi sig úr stjórn stofnunar eins og hér um ræðir og hafi verið gert miklu meira úr þessu efni í fjölmiðl'um heldur en nokkur rök eru fyrir. Ég skal aðeins skýra þessa skoðun mína með því að það hefur oft gerst og það í ýmsum stofnun- um ríkisins, að fjármagn sem ætlað er til ákveðins verkefnis €amkv. fjárlögum er fært til annarra verka á vegum sömu stofnunar, venjulega sem lán til eins árs. Forsendur fyrir því, að þetta sé mögulegt eru einkum þær, að sá ráðherra, sem hlutaðeigandi stofnun- heyrir undir sé slíkri tilfærslu samþykkur, og í sumum tilvikum jafnvel ríkisstjórn í heild. Ennfremur eru slíkar tilfærslur á fjárfestingarliðum oftast bornar undir fjárveitinganefnd, eða undirnefnd hennar til endanlegrar ákvörðunar og ætti það að vera algjör regla. Slík regla hefur því miður stundum verið brotin. Hvað varðar þetta tiltekna mál þ.e. ll áfanga Vesturlínu, þá liggur það ljóst fyrir, að sá ráðherra, sem þetta mál heyrir undir var því andvígur og er því andvígur, að þessu máli sé frestað, jafnvel ríkisstjórnin í heild þó það hafi ekki komið fram, og þar með var fyrsta forsendan fyrir þvi, að þetta gæti gerst að engu orðin." Því má bæta við, að ég hygg að þess finnist engin dæmi, að fjármagn, sem ætlað er til ákveð- ins verkefnis á fjárlögum eða lánsfjáráætlun hafi verið tekið til annarra nota án samþykkis hlut- aðeigandi ráðherra. Skrif ein- stakra fjölmiðla um að þarna hafi ráðið eyðslustefna eins ráðherra gegn aðhaldsstefnu annarra er því einnig rökleysa. Úrræði til frambúðar I upphafi þessarar greinar minnti ég á í örfáum orðum hvernig væri háttað hlutverki Rafmagnsveitna ríkisins og hvers eðlis þau fjárhagsvandamál væru, sem þyngst sækja að. Þau vandamál verða ekki leyst með endalausum gjaldskrárhækk- unum og hækkun verðjöfnunar- gjalds. Það er ekki hægt að una því, að gjaldskrá Rarik sé til frambúðar miklu hærri en ann- arra orkusölufyrirtækja. Þess vegna verður að breyta um stefnu. Ríkissjóður verður að taka að sér hluta af þeim fjármagnsbyrðum, sem á stofnuninni hvíla og fjár- magna að hluta þær framkvæmdir sem unnar verða á komandi árum. Fyrir slíku er fordæmi úr nýlegri. löggjöf um Orkubú Vestfjarða, en Orkusjóður var, væntanlega f.h. ríkissjóðs, látinn taka á sig meiri hlutann af þeim fjármagnsbyrð- um, sem fylgdu raforkukerfi Vest- fjarða. Rarik þurfa áfram að rækja sitt félagslega hlutverk, innan skyn- samlegra marka, að veita lands- mönnum sem jafnasta möguleika til notkunar raforku. Eðlilegt má telja, að hinar félagslegu fram- kvæmdir séu a.m.k. að hluta til fjármagnaðar af ríkisfé, en lánsfé útvegað til arðgæfra fram- kvæmda. Þegar er hafinn undir- búningur að því innan stofnunar- innar að greina í sundur fram- kvæmdatillögur fyrir næsta ár eftir þessum sjónarmiðum. Sem dæmi um féiagslega fram- kvæmd má t.d. nefna Vestmanna- 'Cyjastrenginn, sem fyrr er getið. Sá strengur kostar 290 m. kr. og er mikilvægt öryggisatriði fyrir Vestmannaeyinga og allt atvinnu- Iíf þar, en hann mun ekki skila neinum arði til Rafmagnsveitna ríkisins á næstu árum, eða a.m.k. ekki fyrr en eftir 1980 samkv. útreikningum stofnunarinnar. Samt munu fjármagnsbaggarnir af þessari framkvæmd leggjast á Rarik svo fremi að ekki verði teknar upp fjárveitingar til að létta þeim af. Þetta er dæmigerð félagsleg framkvæmd, e.t.v. byggðapólitísk aðgerð, til þess að tryggja öryggi íbúa í tilteknu byggðarlagi, enda þótt fram- kvæmdin skili ekki arði á næstu árum og jafnvel engum tekjum fyrstu árin til að mæta þeim fjármagnskostnaði, sem af henni hlýst. Slík dæmi varpa e.t.v. nokkuð skýru ljósi á það, að rekstur verður erfiður hjá stofnun eins og Raf- magnsveitum ríkisins. Hér hefur verið reynt að skýra nokkra meginþætti þess, sem hafa valdið og munu valda fjárhags- erfiðleikum hjá Rarik. Urbætur verða að byggjast á skilningi á erfiðu en þýðingarmiklu hlutverki þessarar stofnunar. Sá skilningur mun vaxa því meir sem málefni hennar eru rædd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.