Morgunblaðið - 20.04.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.04.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1978 5 Listi sjálf- stæðismanna á Dalvík FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis- félags Dalvíkur við næstu bæjar stjórnarkosningar hefur verið ákveðinn og er hann þannig skipaðuri 1. Trausti Þorsteinsson skóla- stjóri, 2. Júlíus Snorrason gjald- keri, 3. Júlíus Kristjónsson netagerðarmaður, 4. Helgi Þor- steinsson skólastjóri, 5. Lína Gunnarsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, 6. Guðbjörg Antonsdóttir húsmóðir, 7. Óskar Jónsson framkvæmdastjóri, 8. Halla Jónasdóttir húsmóðir, 9. Vigfús Jóhannesson skipstjóri, 10. Björgvin Gunnlaugsson út- gerðarmaður, 11. Þorsteinn Aðalsteinsson framkvæmda- stjóri, 12. Jóhann Hauksson húsasmiður, 13. Björn Elíasson skipstjóri, 14. Sigfús Þorleifs- son fyrrverandi útgerðarmaður. Sjálfstæðismenn á Dalvík hafa'nú einn bæjarstjórnarfull- trúa af sjö. Aðalsteinn Loftsson, útgerðarmaður, sem skipaði efsta sæti listans síðast, gaf ekki kost á sér nú. Athugasemd við frétt af flugdrekaslysi VEGNA fréttar Morgunblaðsins í fyrradag um slys af völdum flugdrekasvifs við Grindavík hefur Ófeigur Björnsson, Vesturbergi 60, komið að máli við Morgunblaðið og sagzt vilja geta þá athugasemd við fréttina, að Haukur hafi verið byrjandi í þessari íþrótt en ekki búinn að stunda hana „töluvert" eins og skilja hafi mátt á grein- inni. Allar aðstæður í fjallinu Þorbirni sl. sunnudag hafi verið óhagstæðar í meira lagi og vind- áttin þannig að gæta varð þar fyllstu varúðar við akstur bifreiða vegna hættu á sviptivindum. „Það er með þessa heillandi íþrótt eins og flest annað sem maðurinn tekur sér fyrir hendur, að sé ekki rétt að málum staðið kemur að því að slys sem þetta á sér stað. Mér þykir leitt til þess að hugsa að Haukur skyldi þurfa að verða fyrir meiðslum til að öðlast þessa reynslu á eðli og mætti vindsins en ég óska honum góðs bata,“ sagði Ófeigur. Myndin var tekin þegar verið var að koma nýju vélinni um borð í Sigurð RE. Eins og sjá má, þá hefur þurft að rífa stykki úr skorsteini skipsins til að koma vélinni niður. Listi Alþýðu- flokksins í Garðabæ FRAMBOÐSLISTI Alþýðuflokks- ins við bæjarstjórnarkosningarnar í Garðabæ var einróma samþykkt- ur á félagsfundi sl. mánudag. Listinn er þannig skipaður: 1. Örn Eiðsson, fulltrúi, Hörgs- lundi 8. 2. Hilmar Hallvarðsson, verkstjóri, Aratúni 3. 3. Haukur Helgason, skólastjóri, Hraunhól- um 10. 4. Erna Aradóttir, fóstra, Smáraflöt 35. 5. Halldór Steinsen, læknir, Tjarnarflöt 11. 6. Jóel Sigurðsson, verkstjóri, Sunnuflöt 30. 7. Bergur Björnsson, bankafull- trúi, Holtsbúð 8. 8. Magnús Arnason, kjötiðnaðarmaður, Hofs- lundi 3. 9. Rósa Oddsdóttir, Framhald á bls. 38 Sumardagatalið heilsar sumri „SUMARDAGATALIГ sem svo er kallað er komið út f annað sinn og spannar mánuðina tólf frá 1. apríl f ár til 1. aprfl að ári, þegar nýtt dagatal mun leysa þetta af hólmi. Á dagatalinu er að þessu sinni fléttað saman litmyndum úr íslenskri náttúru og hendingum úr sumar ljóði Steingríms Thorsteinssonari „Nú er sumar.. Myndirnar eru flestar teknar af Herði Daníelssyni og framan á dagatalinu er stutt skýring á ensku á hinum sérstæða íslenska hátíðis- degi, sumardeginum fyrsta. Sumardagatalið er einkar vandað- ur prentgripur. Auglýsingastofa Kristínar hf. hannaði og gaf út. Rauði krossinn: Lærið lífgun Reykjavíkurdeild Rauða kross Islands gengst fyrir námskeiðum í blástursaðferð. Hið fyrsta verður næstkomandi mánudag kl. 8 e.h. í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg, inngangur frá baklóð. Hvert þeirra stendur yfir í eitt kvöld og sýnd verður kvikmynd og kennt með brúðum. Fleiri sams konar námskeið verða á einu kvöldi haldin næstu kvöld á eftir og fer það eftir aðsókn. Öll eru þessi námskeið ókeypis. Fólk er vinsam- legast beðið að tilkynna þátttöku strax í síma RKI, 28222. Kennari verður Jón Oddgeir Jónsson. For- maður Reykjavíkurdeildar er Ragnheiður Guðmundsdóttir læknir. Sigurður: Vélaskiptum lýkur um nk. mánaðarmót EINS og margoft hefur komið fram í Mbl. þá var aflaskipið Sigurður RE 4 ekki á loðnuveið- um s.l. vetur sökum þess, að aðalvél skipsins biiaði alvarlega skömmu fyrir áramót. Undan- farna tvo mánuði hefur Sigurður verið í Svíþjóð, þar sem skipt er um aðalvél í skipinu. Nú er komin 12 strokka, 2400 hestafla Nohab-vél í Sigurð og samkvæmt því sem Morgunblað- inu hefur verið tjáð, þá lýkur fullnaðarfrágangi á vélinni nú um mánaðamótin. Sigurður er væntanlegur heim til íslands fyrstu dagana í maí og á þá að halda beint á kolmunnaveiðar við Færeyjar. Einnig fyrirliggjandi hnota, japönsk eik og oregon pine. Eingöngu úrvalsviður Pantanir óskast sóttar. Sendum í póstkröfu um land allt Höfðatúni 2, Reykjavík. Sími 22184 Thermor LOFTRÆSTIVIFTUR Á undanfömum tveimur áratugum höfum við byggt upp stcerztu og reyndustu sér- ; verzlun landsins, með loftrcestiviftur í híbýli, skrifstofur, skóla, samkomuhús, verksmiðjur, vörugeymslur, gripahús og aðra þá staði þar sem loftrcestingar er þörf. s Veitum tceknilega ráðgjöf við val á loftrcestiviftum. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.