Morgunblaðið - 20.04.1978, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 20.04.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1978 37 BLÖNI VIKUNNAR UMSJÓN: ÁB. © Sumarmálahjal Nú hefur vetur kvatt og garðyrkjufólk fer óðum að hugsa sér til hreyfings þ.e.a.s. þeir sem ekki eru þegar byrjaðir vorstörfin. Fyrstu vorgestirnir hafa heilsað broshýrir að vanda: vorliljur vorboðar, vetrar- gosar og krókusar og nota nú hverja sólskinsstund til þess að láta ljósið sitt skína, einkum þeir sem eru svo heppnir að eiga sér sama- stað sunnanundir húsvegg, hinir verða að láta sér lynda að verða ofurlítið seinna á ferðinni. Páskaliljur, túlí- panar og fjöldamargt fleira er nú að ryðjast upp úr moldinni og bjóða útmán- aðanepjunni byrginn. Og þá er nú keisarakrónan í ess- inu sínu! Þarna rýkur hún upp úr öllu valdi og gerir eigendur sína svo skelkaða að þeir þora margir hverjir ekki annað en að hafa tóma tunnu til taks til þess að hvolfa yfir hana ef von er á frosti. Garður og gróðurhús er sannkallaður ævintýra- heimur um þessar mundir og „enn eitt lífsins undur skeður“ svo að segja dag- lega. r' En þó okkur geti dvalist við að horfa á þessa fríðu og litfögru gesti okkar, spjalla ögn við þá og hlúa að þeim, dugir ekki að láta allt lenda í því, margt annað kallar að. Trén sem enn standa nakin minna á að eitthvað þurfi að gera þeim til góða meira en að gefa þeim áburð. Það þarf að snyrta þau eftir bestu getu, sníða af greinar sem aflaga vöxt þeirra, grisja krónurnar hæfilega svo að sól og loft nái að leika um þær þegar þær skrýðast laufi. Þá má ekki gleyma limgerðinu og fyrir alla muni horfið ekki í að klippa sprotana sem e.t.v. hafa náð 50—60 sm vexti s.l. sumar. Verið þess minnug að t.d. á víði — en ýmsar víöitegundir eru algengustu tré í limgerði hér á landi — má lækka sprotana frá því í fyrrasumar niður í 15—20 sm. Ýmsar fjölærar jurtir sem snemma eru á ferðinni eru farnar að sýna lífsmark l.s.g. Gott er að skera ofan af þeim kalstönglana áður en blöð fara að vaxa að ráði, en sjálfsagt er að skýla þeim enn um sinn með því sem skorið var ofan af og öðru sem til fellur t.d. skrælnuðu trjálaufi, en allt þvíumlíkt fer vitanlega í safnhauginn þegar hlýnar fyrir alvöru. En það sem mest veltur á er að komast sem fyrst í vor- og ræktunarskap, horfa björtum augum til komandi sumars og svo sannarlega ^eta hinar fall- egu vísur I GRÓANDAN- UM eftir Einar Ól. Sveins- son lyft sálinni og komið okkur á rétta braut í því efni: Grænkar og grær hin KÓða jörð nýgresið hlær um holt og börð. Allt sem var sært er aftur grættt allt. sem var dautt er endurfætt. Grasið sprettur við gróðrarskúr vakið af vori eftir vetrardúr. Og stráin hendur til himins rétta, gott er að gróa gott er að spretta. GLEÐILEGT SUMAR Ums. Ráðstefna skólastjóra og yfirkenn- ara haldin um helgina FÉLAG skólastjóra og yfir kennara á grunnskólastigi gengst fyrir ráðstefnu skóla- stjórnarmanna á Norður landi dagana 22. og 23. apríl að Stórutjörnum. Á ráðstefnunni verður fjallað um verkefni sem stjórnendum skólanna eru fengin í hendur en þau hafa aukist mjög á síðustu árum, m.a. með tilkomu grunn- skólalaga. Ýmsir aðrir þættir hafa haft áhrif á störf skólastjórnarmanna og er talið rétt og eðlilegt að skólarnir sinni þeim. í því sambandi verður rætt um stjórnunarkvóta skól- anna, sbr. grunnskólalög, og fjallað um reglugerðir sem settar hafa verið samkvæmt grunnskólalögum og áhrif þeirra á skólastarfið. Enn fremur verður rætt um kjaramál félagsmanna og almenn félagsmál. Auk skólastjóra og yfir- kennara hefur fræðslustjór- um svæðanna verið boðið til Stórutjarna. Fyrirlestur um vernd gamalla húsa DAGANA 21.—26. apríl verður Rohert Egevang, safnvörður við danska þjóðminjasafnið, hér á landi í boði Arbæjarsafns og Þjóðminjasafns. Hann vinnur að húsvernd og hefur stjórnað mörg- um rannsóknum í bæjum, þar sem unnið hefur verið að skipulagi, sem miðar að verndun gamalla hverfa. Robert Egevang heldur fyrir- lestur í Norræna húsinu laugar- daginn 22. apríl kl. 15. Fyrirlestur- inn nefnist „Gode Boliger i gamla huse, — Bevaring og sanering i eldre stadsmilieu i Danmark". Söngskemmt- un og kaffisala í Sandgerði Sandgerði, 18. apríl. KIRKJUKÓR Hvalsneskirkju, sem haldið hefur uppi blómlegu félags- starfi hér á s.l. hausti og í vetur, m.a. með félagsvist o.fl., hyggst fagna sumri í samkomuhúsinu í Sandgerði á sumardaginn fyrsta hinn 20. þessa mánaðar klukkan 16 með söngskemmtun og kaffisölu. Þar mun syngja blandaður kór, kvennakór og einnig tvöfaldur kvartett. Söngstjóri kirkjukórsins er nú Þorsteinn Gunnarsson. — Jón Philips kæliskápar eru til í 10 mismunandi stærðum og gerðum. Philips kæliskápar eru með álklæðningu, sem þýðir betri kuldaleiðni, vel innréttað kælirými, góða geymslu í hurð og færanlegar hillur. Philips kæliskápar fást með sér hurð fyrir frystihólf. Góður matur þarfnast góðrar geymslu, þess vegna köllum við Philips kæliskápa forðabúr fjölskyldunnar. heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 — SÆTÚN 8 - 15655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.