Morgunblaðið - 20.04.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1978
11
Rauðhetta í Kópa-
vogi og nágrenni
LITLI leikklúbburinn heíur und-
anfarið sýnt barnaleikritið
Rauðhettu, eftir Jewgeni
Schwarz á ísafirði og í nágrenni.
Air Bahama:
27% aukn-
ing í marz
„HAGSTÆÐ þróun mála hjá Air
Bahama hefur haldið áfram í
byrjun þessa árs og hafa flutning-
ar félagsins aukizt um 11% það
sem af er, en aukningin í
marzmánuði einum var 27%,“
sagði Sigurður Helgason. for-
stjóri Flugleiða, er Mbi. spurði
hann í gær um afkomu Air
Bahama, en á aðalfundi Flugleiða
fyrir skömmu kom fram, að tap
var á rekstri félagsins á síðasta
ári að upphæð um 72 milljónir
króna.
Sigurður sagði, að samkeppnis-
aðstaða Air Bahama hefði veikzt á
fyrrihluta ársins 1977 vegna deilu
flugfélaga um hækkun fargjalda,
en síðan hefði staðan batnað aftur
síðari hluta ársins og sú þróun
haldið áfram. „Lang stærsti hluti
farega Air Bahama eru Evrópubú-
ar,“ sagði Sigurður, „en á megin-
landinu er vaxandi áhugi á orlofs-
dvöl við Karabíahafið og á Ba-
hamasvæðinu. Þessi aukning
stendur líka í sambandi við veika
stöðu dollarans, en það er nú mjög
ódýrt fyrir Evrópubúa með sterk-
an gjaldmiðil, til dæmis Þjóðverja
og Svisslendinga, að fara slíkar
orlofsferðir."
Air Bahama flýgur nú þrjár
ferðir í viku milli Nassau og
Luxemborgar og verður ferðunum
fjölgað í fjórar í sumar. Leiguflug
Air Bahama jókst mjög á síðasta
ári og eru nú farnar vikulegar
ferðir milli Nassau og Zúrich, en
samningur um það flug rennur út
í sumar.
„Yfirvöld á Bahama hafa verið
í samningum um flug fyrir ba-
hamaískt félag til fleiri Evrópu-
landa, m.a. Þýzkalands og Eng-
lands, og það hefur komið til tals
að Air Bahama annaðist slíkt flug,
ef af yrði,“ sagði Sigurður. „Hins
vegar er ég persónulega ekki
sannfærður um grundvöll slíks."
Einnig hefur verið í athugun að
hefja flug frá Luxemburg til
Freeport í Bahama, sem er annar
áf tveimur stærstu ferðamanna-
stöðum þar í landi.
Það kom fram í ræðu Sigurðar
Helgasonar á aðalfundi Flugleiða,
að Flugleiðir annast að stærstum
hluta rekstur Air Bahama og
greiddi félagið Flugleiðum á síð-
asta ári um 485 milljónir króna í
umsjónarlaun og umboðslaun fyrir
selda farseðla.
Air Bahama hefur á leigu
DC-8-63 flugvélina, sem Flugleiðir
eignuðust 1. október 1976. „Þessi
rekstur á því stærstan hlut í, að
Flugleiðir eignast þessa flugvél,"
sagði Sigurður á aðalfundinum.
Þá tók Air Bahama á leigu í
árslok 1977 aðra DC-8-63 vél, sem
það leigir áfram til Air India og
annast rekstúr á. Þessi flugvél er
í reglubundnu fragtflugi milli
Bretlands og Indlands og til fleiri
staða. Samningurinn var gerður til
árs og sagði Sigurður á aðalfund-
inum, að væntanlega yrði samn-
ingurinn endurnýjaður til annars
árs, þegar þar að kæmi.
Velta Air Bahama á síðasta ári
nam 15,5 milljónum dollara og
jókst um 9,3%*-á árinu. Farþegum
í reglubundnu flugi fækkaði, en
farþegafjöldi í leiguflugi tvöfald-
aðist, þannig að í heild jókst
farþegafjöldi félagsins um 5,4%.
Leikstjóri er Reynir Ingason.
Auk hans eru félagar í Litla
leikklúbbnum Gústaf Óskarsson,
Bryndís Schram og Margrét
Óskarsdóttir en hún er höfundur
leikmyndar og leikbúninga í
Rauðhettu.
Um tónlistina sér Hörður
Ingólfsson. Leikarar eru sautján
talsins.
Leikrit þetta er byggt upp
á hinu víðlesna ævintýri um
Rauðhettu og úlfinn grimma og er
almennt talið sýna ádeilu á hvers
konar ofbeldi og kúgun.
Rauðhetta er 29. verkefni Litla
leikklúbbsins og annað verkefnið
á þessu ári. Hið fyrra var breski
gamanleikurinn „Græna lyftan"
sem sýnt var síðastliðið haust. Af
viðbrögðum áhorfenda má sjá að
leikritið höfðar ekki síður til
fullorðinna en barna sem á
sýningunni fá tækifæri til að
svara leikendum og ná þannig
tengslum við persónur ævintýris-
ins.
Næstu daga mun Litli leik-
klúbburinn sýna Rauðhettu
sunnanlands.
Félagar leikklúbbs-
ins vænta mikils af þess^ri
sýningarferð og vona að hún geti
orðið til skemmtunar öllum þeim
sem hafa áhuga á leikhúsi. Fyrsta
sýnirigin á leikritinu sunnanlands
verður í Breiðholtsskóla á sumar-
daginn fyrsta kl. 17. Föstudaginn
21. apríl verður svo sýnt í
Félagsheimili Kópavogs kl. 20.30.
Leikarar i Rauðhettu.
D
V/fJ
Alþjóöleg bílasýning
í Sýningahöllinni aó Bíldshöfða
24 bílar sem ekki hafa
sést á lslandi fyrr
Fjöldi bíla sem hlotió hafa alþjóóleg
verólaun
VIÐ OPNUM KL. 10^ í DAG
þetta er dagur barnanna — takió þau
meó á bílasýninguna
BILAHAPPDRÆTTI — vinningur MAZDA 323
aðgöngumiðar gilda sem happdrættismiðar—þannig
eiga afiir sýningargestir jafna vinningsmöguleika
GESTUR DAGSINS er valinn alla daga sýningar-
innar og hlýtur hann sólarlandaferð
með Samvinnuferðum
Símar sýningarstjórnar: 83596 og 83567