Morgunblaðið - 20.04.1978, Síða 19
19
MORGUNBLÁÍ)IÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1978
Fóstrunemar á blaðamannafundi í fyrradag.
p!1 ] ■F .1
Fóstrunemar
mótmæla
kaupi og kjörum
„VIÐ VILJUM vekja athygli
yfirvalda og foreldra barna á
dagvistarstofnunum á að það er
þeirra hagur að sérmenntaðar
fóstrur séu ráðnar til starfa á
slikum stofnunum. Við fjörutíu
og sjö fóstrunemar, sem útskrif-
umst úr Fóstruskólanum nú í maí
erum alvarlega að hugsa um að
ráða okkur ekki til starfa vegna
hinna lágu byrjunarlauna.“
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi með nemendum Fóstruskól-
ans en þeir eru mjög óánægðir
með það kaup, sem þeim býðst að
námi loknu. svo og starfsskilyrði.
í Fóstruskólanum eru alls 170
nemendur og útskrifast 47 þeirra
í vor. Byrjunarlaun þeirra eru 153
þúsund krónur og sögðu fóstru-
nemarnir að þeir kenndu lágum
launum og lélegri starfsaðstöðu á
dagvistarstofnunum um þann
fóstruskort sem nú er ríkjandi.
„Er það munaður að starfa sem
fóstra að loknu þriggja ára sér-
námi?“ spurðu nemarnir og enn
fremur: „Það er ekki laust við að
við álítum að svo sé. Laun fóstru
eru svo lág að það er ekki
möguleiki að þau nægi til fram-
færslu og greiðslu á námsskuldum
er hlaðist hafa upp á námstíman-
um.“ En flestir nemar Fóstruskól-
ans kváðust taka námslán á þriðja
ári.
„Eiga dagvistarstofnanir að
vera geymslur eða uppeldisstofn-
anir? Árið 1976 voru á Alþingi
samþykkt lög nr. 112/1976 um
byggingu og rekstur dagvistar-
heimila fyrir börn. í lögunum
segir að markmið með starfsemi
þessara dagvistarheimila sé „að
gefa börnum kost á að njóta
handleiðslu sérmenntaðs fólks í
uppeldismálum." Hið sérmenntaða
fólk í uppeldismálum, sem um er
rætt í lögunum, eru fóstrur.
Löggjafinn leggur áherzlu á að
dagvistarstofnanir eigi að vera
uppeldisstofnanir en ekki gæslu-
stofnanir fyrir börn meðan for-
eldrar þeirra eru við störf, eins og
sumir ef til vill álíta.
Dagvistarstofnanir eiga að vera
uppeldisstofnanir og þess vegna
teljum við lágmark að fá að
minnsta kosti eina klukkustund á
dag fyrir fóstruna til að undirbúa
dagsverkið.
Algengt er að tveir starfsmenn,
það er fóstra og starfsstúlka, séu
í einu til tveimur herbergjum með
tuttugu börn allan daginn og það
sjá allir hversu gífurlegt álag það
er bæði fyrir starfsfólk og að ekki
sé minnst á börnin.
Starfið er mjög krefjandi og við
teljum að það hafi mætt litlum
skilningi. Komið hefur í ljós að
Framhald á bls. 38
Bifreiðastjórar
Skoðið kínversku hjólbaröana á bílasýningunni.
Góð ending. Gott verö.
Reynir s.f.
Blönduósi, sími 95-4293.
Völundar gluggar
vandaðir gluggar
Vandaðir gluggar eru eitt aðalatriðið í hverju
húsi og auka verðmæti þess og ánægju þeirra,
sem í húsinu búa. Timburverzlunin Völundur
hefur 70 ára reynslu í smíði glugga. t dag
leggjum við megináherslu á smíði Carda-
hverfiglugga svo og venjulegra glugga samkv.
hinum nýja íslenska staðli. Cardagluggar hafa
marga kosti umfram aðra. Auðvelt er að opna
þá og loka. Hægt er að snúa þeim við, ef hreinsa
þarf þá eða mála. öryggislæsingar geta fylgt.
Hljóðeinangrun uppfyllir ströngustu reglur.
Bæðí vatns- og vindþéttir í lokaðri stöðu. Þá er
einnig hægt að fá smíðaðar veggjaeiningar með
Cardagluggum í, sem síðan má raða saman. Þar
sem Cardagluggum verður ekki viðkomið mælum
við með gluggum smíðuðum samkv. hinum
nýja íslenska staðli, með falsi 20x58 mm. Alla
glugga er hægt að fá grunnaða eða tvímálaða.
Einnig getum við smíðað þá úr gagnvarinni
furu eða oregonfuru.
t sérstökum tilfellum smíðum við einnig glugga
eftir sérteikningum.
KLAPPARSTIG 1, SIMI 18430 — SKEIFAN 19, SIMI 85244
stimplar,
■
I
slífar og
hringir
Ford 4-6-8 strokka benzín og díesel vélar Opel
Austin lytini Peugout
Bedford Pontlac
B.M.W. Rambler
Buick Range Rover
Chevrolet Renault
4-6-8 strokka Saab
Chrysler Scania Vabis
Citroen Scout
Datsun benzín Simca
og diesel Sunbeam
Dodge — Plymouth Tékkneskar
Fiat bifreiðar
Lada — Moskvitch Toyota
Landrover Vauxhall
benzin og díesel Volga
Mazda Volkswagen
Mercedes Benz Volvo benzín
benzin og díesel og diesel
I
ÞJÓI\ISSOI\l&CO
Skeilan 17 s. 84515 — 84516
LON DO N TOWN
Nýja
hljómplatan
með Paul McCartney
& The Wings
Fæst hjá umboðsmönnum okkar um land allt.
MESTA HLJÖMPLÖTUÚRVAL L A N D S l*N S
cgs
Dolvctor
OECCfl
FÁLKIN N
Suöurlandsbaut 8 Laugavegi 24 Vesturveri
84670 18670 12110