Morgunblaðið - 20.04.1978, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20U APRÍL 1978
V amarmálaráðherr-
ar 6 Vestur-Evrópu-
ríkja styðja Carter
Grigorenko
biður um hæli
vestanhafs
New York. 18. apríl. Keuter.
SOVÉZKI andófsmaðurinn Pyotr
Grigorenko bað í dag um hæli í
Bandaríkjunum þar sem sovézk
yfirvöld hafa svipt hann borgara-
rétti.
Grigorenko gcrir sér þó cnnþá
vonir um að fá að komast aftur
heim einhvern tíma. Ilann sagði
klökkur á hlaðamannafundi um
Sovétríkini
„Þau eru föðurland mitt. Ég hef
rétt til þess að búa í föðurlandi
mínu ... og ég trúi þvi að það muni
gerast."
Grigorenko fékk að fara í sex
mánaða heimsókn ti) Bandaríkj-
anna að hitta son sinn og leita sér
lækninga en síðan var hann
sviptur sovézkum borgararétti í
síðasta mánuði. Samkvæmt til-
skipun sem Leonid Brezhnev
forseti undirritaði hafði .Grigor-
enko valdið Sovétríkjunum álits-
hnekki með framkomu sinni.
Joan Miro 85 ára:
/
„Eg lifi svipuðu
lífi og munkur”
EFTIRFARANDI viðtal átti blaða-
maður New York Times fyrir
skömmu við hinn kunna spánska
málara Joan Miró, í tilefni 85 ára
afmælis lístamannsins í dag 20.
apríl. Miró býr í Palma, Majorca,
og fór viðtalið fram í vinnustofu
listamannsins par í borg.
„Mig langar til aö þeir fái aö njóta
síöustu verka minna," sagöi Joan
Miró, og benti á hin rúmlega 100
óunnu málverk í vinnustofunni.
Brosgretta færðist yfir andlit hins
aldraöa listamanns er hann bætti
viö, „svo þeir viti að ég er enn á lífi."
Þó Miró sé kominn á þann aldur
er flestir leggjast í kör, er hann enn
jafn afkastamikill listamaóur og
fyrr. Málverk, vefnaöur steindir
gluggar, keramik, stórar vegg-
myndir, höggmyndir, útskuröur og
jafnvel búningar fyrir leikrit bera því
vitni.
Miró hefur víöa sýnt list sína, en
honum er þó ofarlega í huga sýning
sem senn verður opnuö á verkum
hans í Madrid. Þaö veröur fyrsta
sýning lístamannsins í föðurlandi
hans frá því Franco komst þar til
valda fyrir 40 árum. Öll þau ár hafa
valdhafar Spánar litið fram hjá
Miró, þó hann sé þekktasti núlifandi
listamaður Spánar.
Miró hefur alla tíö verið mjög
andsnúinn Franco og andstaóa
hans viö einræöisherrann kom í Ijós
þegar 1937. Þá vann hann aö
mörgum listaverkum er sýndu
andúö hans á Franco og borgara-
styrjöldinni og er veggspjald Mirós,
„Aidez L'Espagne" sennilega
kunnast þeirra verka. En frægð
hans og afstaöa til stjórnmálaflokka
vernduðu hann fyrir Franco. Hann
fékk að vera í friöi á Mallorca, en
þar er móöir hans fædd og
eiginkona einnig.
„Ég bý hér á mjög einangruðum
stað, og fæ því nægan vinnufriö,"
sagöi Miró. „Ég lifi raunverulega
svipuðu lífi og munkur. Eftir því
sem aldurinn færist yfir mig, því
afkastameiri verö ég. En mér finnst
ég vera ungur, yngri en nokkru
sinni fyrr."
Miró vinnur mestan hluta dagsins
í vinnustofu sinni, eöa frá níu aö
morgni til hálfníu aö kvöldi. Vinnu-
stofan er svipuö og skip í útliti og
ægi björt. „Þegar ég vinn er ég í
slæmu skapi, og hingaó kemur
enginn inn á meðan, allra sízt
konan mín,“ sagöi listamaðurinn.
Á háum stóli í vinnuherbergi
Mirós stendur hnattlíkan og gnæfir
yfir málverkin. „Verk mín eiga aö
berast um allan heim," sagöi Miro,
og glotti við.
Einn gesta Mirós sagöi viö hann
að sér þætti nýrri verk haris vera
full jaí ofbeldi. Miró svaraói að
bragði: „Já, en viö ætlum ekki aö
fra aö slást, er það?“
Miró þykir vænt um Bandaríkin,
enda engin furöa, því segja má að
Bandaríkin hafi komíð honum á
framfæri. „Ég heföi gaman af aö
skreppa til Bandaríkjanna í haust,"
sagöi Miró, „fara til Washington,
Chicago og New York. Bandaríkin
hafa haft mikil áhrif á mig.
„Ég ætla ekki að vinna á
afmælisdaginn minn," sagöi Miró
ákveöinn. Konan mín og ég ætlum
að taka upp flösku af góöu víni, en
ekkert frekar verður gert til aö
halda upp á daginn." Myndin er af
Joan Miró viö eitt verkanna í
vinnustofu sinni.
Friörikshöfn, Danmörku,
19. apríl. Reuter.
VARNAMÁLARÁÐHERRAR sex Evr-
ópuríkja lýstu í dag yfir stuðníngi
sínum við Carter Bandaríkjaforseta
í afstööu hans til nifteindasprengj-
unnar og lögöu áherzlu á aö
mikilvært væri, að Sovétríkin
brygöust jákvætt viö þeirri ákvörð-
un Bandaríkjaforseta að fresta
framleiöslu pessa umdeilda vopns.
Éftir tveggja daga ráöstefnu pess
hóps innan Atlantshafsbandalags-
ins er fjallar um kjarnorkumál, en
pátttakendur í henni eru m.a. frá
Bandaríkjunum. var gefin út yfirlýs-
ing par sem látnar voru í Ijós
áhyggjur yfir stööugri uppbyggingu
sovézks hernaðarmáttar. Sagði í
yfirlýsingunni að varnamálaráöherr-
arnir legðu sérstaka áherzlu á
jákvæö viöbrögð Sovétríkjanna við
ákvöröun Carters um nifteinda-
sprengjuna, sem eyðir öllu kviku
með geislavirkni en vinnur ekkert
tjón á mannvirkjum.
Varnamálaráöherrarnir sögöu, aö
ákvörðun um framleiðslu nifteinda-
sprengjunnar færi að miklu leyti eftir
því hvort Sovétríkin brygöust rétt viö,
drægju úr kjarnorkuvopnafram-
leiöslu sinni og minnkuðu um leið
vígbúnað sinn í Evrópu, sem væri
ógnun viö ríki Atlantshafsbandalags-
ins.
Einnig var lögö áherzla á, að
kjarnorkuvopnabúnaöur Atlantshafs-
bandalagsins yrói endurnýjaöur og
færöur í nútímalegra horf.
Harold Brown varnamálaráöherra
Bandaríkjanna sagöi á blaðamanna-
fundi aö engin svör heföu borist frá
sovézkum yfirvöldum i þessu máli en
hins vegar væri of snemmt að dæma
um hver viöbrögð þeirra yrðu.
Varnamálaráðherrarnir létu í Ijós
áhyggjur sínar yfir stööugri hernaöar-
uppbyggingu í Sovétríkjunum og þó
einkum yfir auknum fjölda lang-
drægra kjarnorkueldflaugna og þar á
meðal eru eldflaugar af gerðinni
SS-20, sem geta dregió u.þ.b. þrjú
þúsund kílómetra og skotmörk þeirra
Framhald á bls. 39.
Fjölskyldum
greitt fyrir
ættingjamissi
Nýju-Delhí 19. apríl. AP.
SKYRT var frá Því í dag, að á
Þriöjudag hefðu 30 farizt og 60
slaaazt í jánrbrautarslysi skammt
norður af Bombay. Slysið varð með
Þeim hætti, að hraðlest ók á
kyrrstæða lest og fóru tveir vagnar
kyrrstæðu lestarinnar út af sporinu
við áreksturinn.
Járnbrautaryfirvöld hafa tilkynnt
aó fjölskyldum, er misstu ættingja í
slysinu, veröi greiddar 32,000 krónur
í dánarbætur. Þeir er alvarlega
slösuóust fá 24.000 krónur, en minna
slasaöir farþegar fá greiddar 8.000
krónur í bætur.
Walter Scheel, forseti Vestur-Þýzkalands (til hægri), ræðir hér við Takeo Fukuda, forsætisráðherra Japans
á fundi í Tókýó á mánudagsmorgun. Á milli þeirra situr túlkur. Scheel er t fimm daga opinberri heimsókn
í Japan.
Gríska stjórnin tekur við
yíetnömskum flóttamönnum
Nairobi 19. apríl. Reuter.
GRÍSKA stjórnin ákvað í
dag að veita hæli 51 víet-
nömskum flóttamanni, sem
bjargað var úr sökkvandi
skipi í Suður-Kínahafi.
Flóttamennirnir eru nú
staddir í hafnarborginni
Mombasa í Kenýa.
Að hálfu Flóttamanna-
stofnunar Sameinuðu þjóð-
anna var skýrt frá því, að
gríska stjórnin hefði af
mannúðarástæðum ákveðið
að taka við flóttamönnunum
en þeir fengu þriggja mán-
aða bráðabirgðahæli í
Kenýa.
Stjórnin í Nairobi hafði áður
neitað að leyfa flóttamönnunum
að fara í land fyrr en þeir hefðu
fengið það staðfest að einhver
ríkisstjórn tæki við þeim.
Flóttamannastofnunin hefur
síðustu þrjá daga leitað víða eftir
hæli fyrir flóttamennina.
Flóttamannastofnunin skýrði
frá því, að haft yrði samband við
ríkisstjórnir Bandaríkjanna,
Frakklands, Kanada og Ástralíu
og þess farið á leit að þær tækju
við flóttamönnunum. Að sögn
stofnunarinnar mun gríska stjórn-
in taka við þeim sem ekki verður
búið að koma fyrir innan þriggja
mánaða.
Waldheim á Kýpur:
Enn ekki grundvöllur
fyrir friðarviðræðum
Nikosfa, Kýpur 19. apríl AP.
KURT Waldheim aóalframkvæmda-
stjóri Sameinuóu Þjóöanna sagói í
dag að ýmiss ágreiningur milli
Grikklands og Kýpur stæói í vegin-
um fyrir nýjum friöarvióræóum.
Waldheim sagói meöal annars aó
Spyros Kyprianou forseti hefði
útskýrt ástandið á gríska hluta
eyjarinnar og augljós ágreiningur
væri ríkjandi sem kæmi í veg fyrir
viðræður. Waldheim ræddi vió
forsetann í tvær klukkustundir um
tillögur Tyrkja, sem honum voru
afhentar í Vín í síöustu viku. Sagðist
hann ætla aö kynna sór ástandíö
nánar pegar hann væri kominn til
New York og íhuga Þá hver væru
næstu skref til aó koma af staó
fríöarvióræðum.
Eftir viðræðurnar vió Kyprianou
forseta steig Waldheim yfir Atilla-
mörkin, sem skipta eynni, og ræddi
vió leiötoga Tyrkja, Raouf Denkthas,
í tæpan hálftíma áöur en hann yfirgaf
Kýpur.
Waldheim sagöi aö samkomulag
heföi náöst í Nikósíu í janúar s.l. um
aö tillögur Tyrkja yrðu lagöar fyrir
aöalframkvæmdastjórann og aó
hann kynnti sér þær áöur en
friðarviöræður yröu teknar upp aö
nýju.
Aðspuröur um þaö hvort hann
hefði hvatt Kyprianou forseta til að
samþykkja tillögur Tyrkja, sagöi
Waldheim, aó þeir heföu rætt þær í
öllum smáatrióum og Kyprianou væri
vel Ijóst um hvaö máliö snerist.
Kyprianou, sem boóaöi til blaða-
mannafundar í dag, neitaöi aö gefa
nokkrar yfirlýsingar um tillögur
Tyrkja og sagöist bíöa afrita þeirra
skjala er Waldheim heföu veriö færö
í Vín.
Raouf Denkthas, leiðtogi Tyrkja,
sagöi fréttamönnum eftir fund sinn
meö Waldheim aö Grikkir heföu tjáö
Waldheim aó þeir gætu ekki fallist á
tillögurnar og því ekki hafiö friðarvið-
ræöur strax. Hins vegar létu þeir
Waldheim þaö eftir ef hann vildi boöa
til friðarviöræðna strax.
Veður
víða um heim
Amsterdam 15 bjart
Berlín 11 sólskin
Brússel 9 skýjaö
Chicago 16 rigning
Frankfurt 15 bjart
Genf 8 skýjaó
Helsinki 8 bjart
Jóhn.b. 19 skýjað
Kaupmannah. 11 sólskin
Líssabon 22 sólakin
London 7 skýjað
Los Angeles 21 bjart
Madrid 21 bjart
Malaga 19 skýjað
Miami 26 skýjað
Moskva 19 bjart
New York 17 rigning
Ósló 4 rigning
Palma, Majorca 16 skýjað
París 10 skýjaó
Róm 15 bjart
Stokkhólmur 6 skýjað
Tel Aviv 21 bjart
Tokýo 20 sólskin
Vancouver 15 skýjaó
Vín 9 rigning