Morgunblaðið - 20.04.1978, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRIL 1978
Listi sjálfstæðis-
fólks í Kópavogi
ÁKVEÐINN hefur veriö fram-
boðslisti sjálfstæðisfólks í Kópa-
vogi við bæjarstjórnarkosningarn-
ar. Listann skipa:
1. Guðni Stefánsson járnsmiður
2. Eggert Steinsen verkfræðingur
3. Kristinn Skæringsson skógar-
vörður 4. Grétar Norðfjörð flokks-
stjóri 5. Guðrún Ólafsdóttir flug-
freyja 6. Þorvaldur Lúðvíksson
hrl. 7. Þór Erling Jónsson verktaki
8. Frosti Sigurjónsson læknir 9.
Bergljót Böðvarsdóttir húsmóðir
10. Þorvarður Áki Eiríksson iðn-
rekandi 11. Sturlaugur Þorsteins-
son tækninemi 12. Helgi
Hallvarðsson skipherra 13. Stefán
H. Stefánsson auglýsingastjóri 14.
Gísli Sigurðsson rafvirki 15. Þor-
gerður Aðalsteinsdóttir húsmóðir
DAGSKRÁ sumardagsins fyrsta í
Kópavogi er að þessu sinni í
höndum íþróttafélags Kópavogs
og hefst hún kl. 10 árdcgis með
viðavangshlaupi á Meiaheiði.
Klukkan 13.30 hefst skrúðganga
frá Iligranesskóla og verður
gengið um Álfhólsveg að Kópa-
vogsskóla þar sem skemmtidag-
skrá hefst kl. 14. Fyrir göngunni
fer skólahljómsveit Kópavogs
undir stjórn Björns Guðjónsson-
Flugvirkjarn-
ir voru að bisa
við rangan ventíl
I BLAÐINU í gær var ranghermt
eftir Jóhannesi Snorrasyni flug-
stjóra á Boeing-vél Flugfélagsins
að smurolíuventill hefði bilað í
vélinni. Hið rétta er að brennslu-
olíuventill stóð opinn, en það hefur
áhrif á olíuhita hreyfilsins, að
sögn Jóhannesar. Mistök urðu hjá
spænsku flugvirkjunum í Las
Palmas þegar þeir reyndu fyrst að
loka þessum ventli og svo aftur
þegar þeir skiptu um hann.
Mistökin voru þau, að flugvirkj-
arnir voru allan tímann að eiga við
Listakvöld á
vegum Rawa
LISTAKVÖLD verður að Lauga-
vegi 42, III. hæð, í kvöld á vegum
hóps sem kallar sig Rawa
(Renaissance Artists and Writers
Association).
Klukkan 3 verður opnuð mynd-
listasýning sem stendur fram eftir
kvöldi en í henni taka þátt 5
myndlistamenn. Dagskrá með
frumsömdum ljóðum og tónlist
hefst kl. 8.30. Aðgangur er ókeypis
og verða veitíngar á boðstólum.
Jónas Guðm-
undsson sýn-
ir í Keflavík
JONAS Guðmundsson opnar mál-
rkasýningu í dag í sal Iðnaðar-
annafélags Suðurnesja í Kefla-
vík.
Á sýningunni eru 30 myndir,
lar málaðar á þessu og síðasta
en þetta er þriðja sýning
■ asar í Keflavík.
16. Sigurður Grétarsson bifvéla-
virki 17. Arnór Pálsson deildar-
stjóri 18. Björg Jakobsdóttir flug-
freyja 19. Ingólfur Hannesson
bóndi 20. Helgi Tryggvason fyrr-
verandi yfirkennari 21. Sigríður
Gísladóttir húsmóðir 22. Kjartan
J. Jóhannsson læknir.
Þrír þessara frambjóðenda voru
á lista þeim, sem fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi
ákvað; Guðni Stefánsson, Þór
Erling Jónsson og Frosti Sigur-
jónsson. Richard Björgvinsson,
sem skipar annað sæti þess lista,
sagði í samtali við Mbl. í gær-
kvöldi, að „fyllt yrði í skörðin á
flokkslistanum og verður frá því
gengið á fulltrúaráðsfundi á
mánudagskvöld“.
Meðal skemmtiatriða við Kópa-
vogsskólann verða leikþættir, kór-
söngur og hornaflokkur spilar.
Klukkan 15.30 verður hestasýn-
ing á túninu við Kópavogsskólann
og gefst börnum þar kostur á að
fara á hestbak.
Dagskránni lýkur kl. 17 með
sýningu á barnaleikritinu Snæ-
drottningunni í Kópavogsbíói og
knattspyrnuleik yngstu flokka ÍK
og Breiðabliks á Vallagerðisvelli.
allt annan ventil og var því varla
von á góðu. Þá var ranghermt að
þetta hefði verið flugvélin Sólfaxi.
Um var að ræða vélina Gullfaxa,
en hitt nafnið var birt samkvæmt
upplýsingum Flugleiða.
Hæstiréttur
stytti gæzlu
varðhald um
hálfan mánuð
HÆSTIRÉTTUR stytti í gær
gæzluvarðhald manns, sem úr-
skurðaður hafði verið í gæzlu-
varðhald fyrir fantalcga árás á
húsráðendur í íbúð við Hrísateig
nýverið.
Maðurinn fór ásamt sex öðrum
mönnum inn í íbúðina og réðust
þeir að tveimur mönnum og
stórslösuðu annan þeirra, eins og
fram kom í Mbl. Árásarmennirnir
náðust daginn eftir og voru þrír
þcirra, sem harðast gengu fram,
úrskurðaðir í gæzluvarðhald.
Sá, sem fékk lengsta úrskurðinn,
til 31. maí n.k., kærði hann til
Hæstaréttar og í dómi Hæstarétt-
ar er varðhaldið stytt um hálfan
mánuð eða til 15. maí. Segir í dómi
Hæstaréttar að rannsókn þessa
máls sé nokkuð á veg komin en
rannsóknarnauðsynjar bjóði þó að
maðurinn sitji í vatðhaldi enn um
hríð.
— Hugmyndir
Leníns
Framhald af bls. 1.
hugmyndir Leníns væru orðnar
úreltar og ættu ekki við í nútíma
þjóðfélagi. Sú staðreynd gerði
það að verkum að kommúnistar.
einkum í Evrópu, hlytu að endur-
skoða stefnu sína og markmið.
Landsfundur kommúnista-
flokksins er hinn fyrsti sem
haldinn er á Spáni í fjóra áratugi,
og í ræðu sinni lauk Carillo miklu
lofsorði á Suarez forsætisráðherra
fyrir að hafa séð til þess að
flokkurinn yrði viðurkenndur.
Kvaðst Carillo mundu halda
áfram að vinna með Suarez að
lýðræðislegri þróun í landinu.
Fundinn sitja yfir 1400 fulltrúar
víðs vegar að á Spáni, auk þess
sem áheyrnarfulltrúar frá Moskvu
eru gestir fundarins.
Carillo hvatti eindregið til þess
að spænskir kommúnistar gættu
hófs í málflutningi sínum og
stefnumótum fyrir byggða- og
þingkosningar, sem fyrirhugaðar
eru í landinu á þessu ári. Talið er
að ummæli Carillos um byltingar
hugmyndir og stéttabaráttu hljóti
að verða tilefni aukinnar gagnrýni
af hálfu stjórnarinnar í Kreml, en
sjálfstæðistilhneygingar Carillos
hafa sem kunnugt er mælzt illa
fyrir í þeim herbúðum. Á undan-
förnum vikum hefur gætt nokk-
urrar andúðar í garð Carillos
innan spænska kommúnista-
flokksiris, en talið er að ástæðan sé
sú að sumum þyki hann of
einráður í flokksstarfinu. Fastlega
er búizt við því að Carillo verði
endurkjörinn aðalritari flokksins í
kosningum, sem fram fara á
landsfundinum á laugardag, svo og
að Dolores Ibarruri verði endur-
kjörinn heiðursforseti flokksins.
Ibarruri, sem oft er nefnd „La
Pasionaria", sat við hlið Carillos
við setningarathöfn landsfundar-
ins. Hún er nú 82 ára að aldri, og
var í útlegð í Moskvu með^an
Franco var við völd. „La Pasionar-
ia“ hefur verið mun harðari í
afstöðu sinni en Carillo, og nokk-
urs konar samnefnari þeirra afla
í spænska kommúnistaflokknum,
sem aðhyllast föðurlega forsjá
sovézka kommúnistaflokksins.
Eitt * helzta verkefni lands-
fundarins verður að afgreiða
tillögu Carillos um breytingu á
opinberri skilgreiningu á spænska
kommúnistaflokknum. Tillagan
felur í sér yfirlýsingu um að
flokkurinn sé „marxískur, lýð-
ræðislegur og byltingarsinnaður",
og fer atkvæðagreiðsla um hana
fram fyrir luktum dyrum.
— Fögnuður
í Panama
Framhald af bls. 1.
tíma urðu skip að fara fyrir
Hornhöfða.
Staðfesting á samningnum þyk-
ir mikill persónulegur sigur fyrir
Carter forseta, sem einskis hefur
látið ófreistað að undanförnu til
að afla stuðnings við málið á þingi.
Ronald Reagan hefur verið einn
helzti andstæðingur forsetans í
þessu máli, og að lokinni atkvæða-
greiðslunni lýsti hann því yfir að
samningurinn væri meingallaður
og í engu samræmi við vilja
almennings í Bandaríkjunum.
Yfirlýsing Torrijos um hugsan-
lega eyðileggingu skurðarins hefur
vakið verulega athygli, en margir
eru þó á þeirri skoðun, að hún hafi
komið fram í hugaræsingi og
sigurgleði og að hugur hafi ekki
fylgt máli. Af hálfu bandaríska
herliðsins, sem annazt gæzlu við
skurðinn, var því lýst yfir í dag, að
varnir hans væru í fullkomnu lagi
og engin vandkvæði hefðu orðið á
því að koma i veg fyrir skemmdar-
verk.
— NATO slak-
ar á kröfum
Framhald af bls. 1.
skriðdrekasveitir verði fjarlægðar
og á móti komi að NATO fækki
kjarnaoddum, sem ætlaðir eru til
návígisátaka, um eitt þúsund. Er
hér um að ræða verulegar til-
slakanir miðað við fyrri tillögur
NATO, en árið 1975 var af hálfu
bandalagsins lagt til við Sovét-
menn að þeir hyrfu á brott með
allar skriðdrekasveitir sínar frá
Austur-Þýzkalandi gegn því að
kjarnaoddarnir yrðu fjarlægðir.
Viðræðurnar um samdrátt her-
afla í Mið-Evrópu hafa nú staðið
í rúm fjögur ár, og laúk fjórtánda
fundi viðræðanna í dag. Lítið
hefur miðað í samkomulagsátt, en
af hálfu beggja aðila — Atlants-
hafsbandalagsins og Varsjár-
bandalagsins — var því haldið
fram í dag, að þessar viðræður
væru nú komnar á nýtt stig.
Talsmaður Atlantshafsbandalags-
ins sagði að tillögurnar nú væru
settar fram í þeirri von og trú að
fljótlega næðist samkomulag um
ýmis grundvallaratriði, en tals-
maður Varsjárbandalagsins sagði
að tillögurnar gæfu til kynna
„vissa breytingu“ á afstöðu gagn-
aðilans.
— Leitinni að
líki Moros
haldið áfram
Framhald af bls. 1.
sé aðeins falt fyrir „hátt pólitískt
gjald".
Leit í fjalllendinu, sem er í 120
kílómetra fjarlægð frá Róm, var
hætt þegar skyggja tók í kvöld, en !
þá var frost tekið að herða mjög.
Hundruð lögregluþjóna og leitar-
manna eru nú á þessum slóðum, ,
meðal annars sprengjusérfræðing-
ar og skíðamenn. Snjóalög eru
mikil á leitarsvæðinu, en leitað var
gaumgæfilega, meðal annars í
hellisskútum Ráðgert er að fjölgi
í leitarliðinu á morgun, og hafa
yfirmenn leitarflokkanna lýst því
yfir að ekki verði hætt fyrr en
svæðið hafi verið kembt. „Ef
eitthvað er að finna hér þá mun
okkur takast að finna það,“ sagði
Giovanni Canzuni, sem hefur
yfirumsjón með leitinni.
— Alvarlegur
ágreiningur
Framhald af bls. 1.
það skyldu sína að halda áfram
stuðningi sínum við hreyfingar
þær í Afríku, sem berðust gegn
kúgun og heimsvaldastefnu.
Gromyko sagði þetta í veizlu,
sem haldin var Peoli, utanríkis-
ráðherra Kúbu, en hann hefur
verið þar í opinberri heimsókn
að undanförnu. Er fastlega
búizt við því að þróunin í
Afríku verði til umræðu á
fundum Vance og Gromykos, og
verði það ekki til að greiða fyrir
nýjum SALT-samningi.
— Utflutnings-
bannið
Framhald af bls. 48
með birgðir upp á 120—130.000
kassa, en sér hefði í fyrradag
reiknast til að geymslurými væri
fyrir urti 54.000 kassa til viðbótar.
„Það er ekkert frekar okkar stefna
en annarra að valda stöðvun
frystihúsanna með útflutnings-
banninu," sagði Jón, „og því
ákváðum við að veita undanþág-
una“. Jón kvaðst ekki telja, að það
veikti framkvæmd útflutnings-
bannsins, þótt undanþága væri
veitt til að „losa smápláss í
frystihúsunum“. Á það væri að
líta, að ekki hefði korn af mjöli né
neitt lýsi verið flutt út, þannig að
útflutningsbannið hefði sín áhrif.
„Mér reiknast til að frystihúsið
hafi pláss fyrir níu daga fram-
leiðslu og þegar loðnuhrognin fara
eftir helgina skapast pláss fyrir
8—9 daga framleiðslu í viðbót,"
sagði Sigfinnur Karlsson, formað-
ur verkalýðsfélagsins á Neskaup-
-stað. Sigfinnur sagði það vera sína
skoðun, að það væri varhugavert
að gefa of frjálsan útflutning í
útflutningsbanninu, en hins vegar
fylgdi það undanþágu beiðninni og
ekki væri fyrir hendi pláss til að
flytja fiskinn annað.
Þorsteinn Þorsteinsson, formað-
ur yerkalýðsfélagsins á Horna-
firði, sagði, að þeir hefðu gefið
vilyrði fyrir undánþágu áður en
útflutningsbannið skall á. „Hér
hefur verið landburður af fiski og
við vildum ekki verða til þess að
hér stöðvaðist allt frekar en
annars staðar," sagði Þorsteinn.
„Um helgina var allt að fyllast og
veittum við þá undanþágu fyrir
útskipun á 5000 kössum, sem fóru
á mánudag." Þorsteinn kvaðst
telja, að geymslurými væri nú
„sæmilegt eins og er“.
Þórir Daníelsson, framkvæmda-
stjóri Verkamannasambands ís-
lands, sagði það vera stefnuna að
stöðva ekki frystihúsin og því
hefðu undanþágur verið veittar.
Sagði Þórir að engin breyting væri
ákveðin á þessari stefnu og þegar
Mbl. spurði, hvað gert yrði, ef
fundurinn með vinnuveitendum á
föstudag yrði árangurslaus, svar-
aði Þórir: „Ég hef enga trú á því
að við höfum geð í okkur til að
sitja einhverja maraþonfundi um
almenn efnahagsmál,
En við munum láta fundinn á
föstudaginn ganga yfir áður en við
tökum einhverjar ákvarðanir um
frekari aðgerðir, ef með þarf.“
Olafur Jónsson, forstjóri Vinnu-
veitendasambands Islands, kvaðst
vilja segja það eitt, að hann væri
að sjálfsögðu ánægður með, að
ekki hefði þurft að koma til
stöðvunar hjá frystihúsunum í
Vestmannaeyjum. Um frekari
framvindu mála væri bezt að bíða
með að ræða þar til eftir fundinn
með Verkamannasambandinu á
föstudaginn.
— Meirihluti
gegn
Framhald af bls. 2
er kr. 15.18 kr. fyrir þessar
fisktegundir.
I fréttatilkynningu frá
Verðlagsráði sjávarútvegsins
segir, að frá og með 20. apríl skuli
verðið miðað við 2.7% fituinnihald
og 19% fitufrítt þurrefni. Verðið
breytist um 90 aura til hækkunar
fyrir hvert 1% sem fituinnihald
hækkar frá viðmiðun og hlutfalls-
lega fyrir hvert 0,1%. Verðið
breytist um 95 aura til hækkunar
eða lækkunar fyrir hvert 1% sem
þurrefnismagn breytist frá
viðmiðun og hlutfallslega fyrir
hvert 0.1%.
Þá segir að fituinnihald og
fitufrítt þurrefnismagn hvers kol-
munna og spærlingsfarms skuli
ákveðið af Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins eftir sýnum, sem tekin
skulu sameíginlega af fulltrúa
veiðiskips og fulltrúa verksmiðju
eftir nánari fyrirmælum
Rannsóknastofnunar fiskiðn-
aðarins.
Þá er verðið miðað við að
seljendur skili kolmunna og spær-
lingi á flutningstæki við hlið
veiðiskips eða í löndunartæki
verksmiðju. Ekki er heimilt að
nota aðra dælu en þurrdælu eða
blanda vatni eða sjó í hráefni við
löndun. Síðar segir að verðið sé
uppsegjanlegt frá og með 16. maí
og síðan með viku fyrirvara.
„Það hefur verið yfirlýst stefna
sjávarútvegsráðherra að stuðla
bæri að aukinni sókn í kolmunna
og spærling til þess að minnka
sókn í þorskstofninn og fá endan-
lega úr því skorið hvort ekki megi
gera þessar veiðar arðbærar. í
þessu skyni hefur hann beitt sér
fyrir, að felld verði niður 6%
útflutningsgjöld af afurðum
þessara fisktegunda.“ Þannig
hefst yfirlýsing þeirra Kristjáns'
Ragnarssonar og Ingólfs Ingólfs-
sonar. Þá segja þeir félagar í
yfirlýsingunni:
„Við þessa verðákvörðun lögðum
við áherzlu á, að verksmiðjurnar
stuðluðu að hærra hráefnisverði
með því að sætta sig við minni
vinnslukostnað en á öðrum fisk-
tegundum, m.a. með því að fella
niður afskriftir, sem þær hafa
fengið fyrir allt árið með því mikla
hráefnismagni, sem þær hafa
þegar fengið, en verksmiðjurnar á
Austfjörðum munu nær eingöngu
fá þann kolmunna, sem á land
berst.
Þessu sjónarmiði höfnuðu full-
trúar verksmiðjanna og odda-
maður og hafa nú ákveðið verð, er
ætlar verksmiðjunum hærri
vinnslukostnað en þeim hefur áður
verið ætlaður."
Og síðan segir: „Með þessari
verðákvörðun hefur meirihluti
yfirnefndar gengið gegn yfirlýstri
stefnu sjávarútvegsráðherra um
aukna sókn í kolmunna og spær-
ling.
Gildandi hráefnisverð í Færeyj-
um er nú kr. 15.18 fyrir hvert kíló.
Veiðar okkar á kolmunna næstu
vikur munu byggjast á að veiðarn-
ar fari fram í færeyskri fiskveiði-
landhelgi og er því verðið í
Færeyjum miðað við sama fisk og
við munum veiða.“
Dagskrá sumardags-
ins fyrsta í Kópavogi
ar.