Morgunblaðið - 20.04.1978, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1978
47
aðeins að snúast með Víkingum að
nýju. Víkingur hafði misnotað 3
vítaköst í fyrri hálfleiknum og eitt
í byrjun seinni hálfleiksins, en
staðan í leikhléi var 7:5 fyrir Val.
í byrjun seinni hálfleiksins tóku
Valsmenn lífinu með ró og spiluðu
upp á markið. Það gafst vel og
liðið gerði 3 fyrstu mörk hálfleiks-
ins, 10:5 fyrir Val. Víkingarnir
voru hins vegar undir spennunni
og voru lengi að finna sig eftir
breytingarnar, sem gerðar voru
ótímabært á liðinu í fyrri hálf-
leiknum. Síðustu mörkum og
mínútum leiksins er áður lýst.
Áður en Islandsmótið hófst í
haust fannst flestum að lið Vals og
Víkings yrðu í sérflokki í mótinu.
Valsmenn komu þó alls ekki vel
undirbúnir til mótsins og framan
af voru Víkingarnir í miklum ham.
Þetta breyttist er leið á leikinn og
þegar dæmið er gert upp nú í lokin
getur maður ekki annað en viður-
kennt en Valur hafi átt Islands-
titilinn skilið. Liðið lék skynsam-
lega í lok mótsins og nýtti þann
mannafla, sem liðið bjó yfir. Það
gerðu Víkingar hins vegar alls
ekki, liðið hafði alla burði til að
vera búið að vinna íslandsmótið
fyrir löngu síðan. Það verður þó
líka að taka með í reikninginn að
Víkingar urðu fyrir ýmsum áföll-
um meðan á mótinu stóð, meiðsli
Ólafs og Björgvins, veikindi
Kristjáns, og auk þessa utanað-
komandi mistök, sem bitnuðu á
Víkingunum.
Beztu menn Víkingsliðsins í
þessum leik voru Björgvin Björg-
vinsson, sem barðist af miklum
móð allan tímann. Hann fékk
óblíðar móttökur í leiknum, en gaf
sig hvergi, leikmaður, sem fórnar
sér fram í rauðan dauðann. Páll
Björgvinsson og Viggó gerðu góða
hluti í þessum leik, en einnig
afdrifarík mistök. Ólafur Jónsson
byrjaöi vel og hefði að ósekju mátt
nota hann enn meira en gert var.
Markvarzlan var lakari hjá Vík-
ingi en Val, e.t.v. reið það bagga-
muninn.
Þegar er getið þeirra Gísla
Blöndals og Brynjars Kvarans sem
beztu manna Valsliðsins. Aðrir
voru einnig góðir, Stefán og
Steindór Gunnarsson t.d. Þorbjörn
Jensson dýrmætur í sókninni í
lokin og þannig mætti áfram telja.
Að lókum: Valur vann Víking
með einu marki í góðum leik og
æsispennandi, þar sem allt var
undir og áhorfendur sem leikmenn
lögðu sig fram í hvívetna.
Dómarar þessa leiks voru þeir
Óli Olsen og Gunnar Kjartansson
og komust þeir allvel frá mjög
erfiðu verkefni.
í stuttu málii
íslandsmótið í handknattleik, 1.
deild, Laugardalshöll 19. apríl.
Valur — Víkingur 14il3 (7«5)
Mörk Valsi Gísli Blöndal 3, Jón
H. Karlsson 3 (3v), Þorbjörn
Guðmundsson 2, Stefán Gunnars-
son 2, Bjarni Guðmundsson 2, Jón
Pétur Jónsson 1, Þorbjörn Jensson
I. 1
Mörk Víkingsi Viggó Sigurðs-
son 4, Ólafur Jónsson 2, Þorbergur
Aðalsteinsson 2, Björgvin Björg-
vinsson 2, Páll Björgvinsson 1,
Árni Indriðason 1, Ólafur Einars-
son 1.
Brottvísanir af leikvellii Stefán
Gunnarsson, Val, Ólafur Einars-
son, Víkingi, og Magnús Guð-
mundsson, Víkingi, í 2 mínútur
hver.
Misheppnuð vítakösti Árni
Indriðason átti skot í stöng, Ólafur
Einarsson víti í þverslá, Brynjar
Kvaran varði ’tvö vítaköst frá Páli
Björgvinssyni. _ ájj
STADAN
Svíar
lögöu
meist-
arana
• SVÍAR komu mjög á óvart í gærkvöldi er
þeir sigruÖu heimsmeistaralid
Vestur-Þýzkalands í vináttulandsleik í
Stokkhólmi 3« 1. Var það mál manna að
sigurinn hafi verið fyllilega verðskuldaður.
Svíar hafa náð mjög góðum árangrí gegn
Vestur-Þjóðverjum í gegnum árin.
Tengiliðurinn Lennert Larsson var hetja
sænska liðsins í gærkvöldi, en þessi 24 ára
gamli Svíi skoraði tvö síðustu mörk leiksins
og tryggði Svíum þennan óvænta sigur.
Larsson leikur með Scharlke 04 í þýzku
deildinni.
bjóðverjarnir tóku forystuna á 24.
minútu með marki „aukaspyrnusér-
fræðingsins*4 Rainers Bonhof og að sjálf-
sögðu skoraði hann beint úr aukaspyrnu.
Tveimur mínútum síðar átti Larsson
hættulega sendingu inn í vítateig þýzka
liðsins og varnarmaðurinn Rolf Russmann,
sem reyndi að bægja hættunni frá, skallaði
i eigið mark og jafnaði 1.1.
Á 5. mínútu seinni halfleiks skoraði
Larsson fyrra mark sitt og á 74. mínútu
innsiglaði hann sigur Svía með góðu marki.
• ENGLAND og Brasilía skildu jöfn 1.1 í
vináttulandleik á Wembley í gærkvöldi eftir
að staðan hafði verið 1.0 í hálfleik, Brasilíu
í vil.
Brasilíumenn tóku forystuna á 9. mínútu
þegar Gil skoraði ágætt mark með lúmsku
skoti, sem Corrigan í marki Englands réð
ekki við. Englendingarnir sóttu meira í
fyrri hálfleiknum og var Tony Currie
maðurinn á bak við flestar sóknarloturnar.
í seinni hálfleik sótti England ákaft og
útherjarnir Coppell og Barnes sköpuðu
hættu með góðum sendingum fyrir markið.
En jöfnunarmarkið kom ekki fyrr en á 70.
múnútu og var það Kevin Keegan sem það
skoraði beint úr aukaspyrnu, eftir að
Francis hafði verið brugðið innan vítateigs.
KR leikur
aukaleiki
við Fram
KR-INGAR sigruðu Ármann
örugglega 22—20 í síðasta leik
sínum í íslandsmótinu í gær-
kveldi og tryggðu sér aukaleiki
við Fram um það hvort liðið
leikur á móti HK um 1. deildar
sæti næsta ár.
KR-liðið var betra allan tímann,
náði strax forystu í leiknum og
hélt henni til leiksloka. Fyrirliði
KR, Haukur Ottesen, var drjúgur
við að skora í upphafi leiksins og
af fyrstu sjö mörkum liðsins
skoraði Haukur fimm. Þá tóku
Ármenningar það til bragðs að
taka Hauk úr umferð, og var hann
eltur allan leikinn. Þá var það
Björn Pétursson sem tók við og
átti hann góðan leik að þessu
sinni. í leikhléi var staðan 12—10
KR í hag. Ármannsliðið átti
bestan leik í byrjun síðari hálf-
leiks og náði að jafna leikinn,
14—14, með mörkum Jóns Sigurðs-
sonar. Síðan var sem allur vindur
væri úr liðinu, ónákvæmar send-
ingar og ótímabær skot gerðu það
að verkum, að KR-ingar sigu aftur
fram úr og sigruðu örugglega
22—20. Bestu menn KR í leiknum
voru þeir frændur Björn og
Haukur. Þá átti Jóhannes ágætan
leik í vörninni. Heimir Gunnars-
son markvörður var besti maður
Ármanns og varði snilldarlega á
köflum.
MÖRK KR. Björn Pétursson 7, Haukur
Ottesen 5, Jóhannes Stefánsson 3, Sfmon
Unndórsson 3, borvarður Guðmundsson 2,
ólafur Lárusson 1, Sigurður Páll Óskarsson
1.
MÖRK ÁRMANNS. Björn Jóhannsson G,
Friðrik Jóhannsson 6, Jón V. Sigurðsson 2,
Þráinn Ásmundsson 3, Grétar Ingólfsson 3.
— þr.
Ármann
Lokastaðan í
handknattleiki
Valur
Vfkingur
Haukar
(R
FH
Fram
KR
1. dcild karla í
14 9 2
14 7 5
14 7 4
14 4 5
14 5 3
14 4 4
14 5 2
3 288.258 20
2 297.260 19
3 285.255 18
5 287.276 13
6 290.301 13
6 286.311 12
7 272.275 12
Markhæstu leikmenn 1. deildar karia.
Björn Jóhannesson Ármanni 86
Andrés Kristjánss. Haukum 78
Jón Karlsson Val 78
Brynjólfur Markúss. lR 76
Haukur Ottesen KR 69
Björn Pétursson KR 60
Páll Björgvinsson Vfkingi 58
Janus Guðlaugsson FH 57
Gústaf Björnsson Fram 54
Viggó Sigurðsson 53
Sfmon Unndórsson KR 52
Polar Cup hefst á föstudagskvöld:
Mætum meist-
urum Finna í
fyrsta leiknum
NORÐURLANDAMÓTIÐ í körfuknattleik eða Polar Cup hefst í Reykjavík á föstudaginn og er
þetta í annað sinn, sem keppnin fer fram hér á landi. Árið 1968 var mótið fyrst haldið á íslandi
og hafði Norðurlandamót karla í íþróttum þá ekki áður verið haldið hérlendis.
Norðurlandamótið er nú haldið í 9. Föstudagur 21. aprfl
skipti og hafa Svíar og Finnar einokað Kl. 19,45 Finnland — ísland
meistaratitla á mótinu. Svíar hafa hl. 21,30 Danmörk — Svíþjóð
þrívegis sigrað, en Finnar fimm
sinnum og þeir eru núverandi Norður-
landameistarar. Búast má við að
keppnin standi á milli þessara þjóða
eins og venjuleg og í fyrsta leiknum
mætir ísland einmitt Norðurlanda-
meisturum Finna. Island várð í fjórða
sæti á mótinu 1976, en tókst hins vegar
að ná þriðja sætinu 1974.
Dagskrá mótsins er sem hér segir:
Laugardagur 22. aprfl
Kl. 13,30 Island — Danmörk
Kl. 15,15 Finnland — Noregur
fþróttahús Njarðvíkur
Kl. 19,45 ísland — Svfþjóð
Kl. 21,30 Finnland — Nöregur
Sunnudagur 23. aprfl
Kl. 10.00 Noregur — Svíþjóð
Kl. 11,35 Danmörk — Finnland
Kl. 15.00 ísland — Noregur
Kl. 16.45 Finnland - Svfþjóð
Allir leikirnir nema tveir fara fram í
Laugardalshöllinni.
Tveir leikir verða leiknir í íþrótta-
húsinu í Njarðvík á laugardagskvöld.
lslenzka liðið hefur æft mjög vei fyrir
mótið og er það mál manna að það sé
betra og jafnara nú en áður. Er óhætt
að hvetja fólk til að koma og sjá
skemmtilega leiki í mótinu.
I sambandi við mótið verður þjálf-
aranámskeið og hefst á laugardag kl.
9 f.h., og er það öllum þjálfurum opið.
- þr.
MIKIL ÞATTTAKA I
VÍÐAVANGSHLAUPI ÍR
ÚTLIT er fyrir mikla þátttöku og hörkukeppni í 63.
Vfðavangshlaupi ÍR, sem að venju verður háð í dag. Alls eru
skráðir til leiks rúmlega 100 keppendur, þar af eru rúmlega
20 konur.
Hlaupið verður með sama sniði
og undanfarin ár, að því undan-
skildu að nú verður endamarkið
við Alþingishúsið í stað þess að
vera í Austurstræti. Það hefst í
Hljómskálagarðinum klukkan 14,
og má búast við fyrstu mönnum í
mark um 12 mínútum síðar.
Vegalengd hlaupsins er um 4
kílómetrar.
Meðal þátttakenda í Víðavangs-
hlaupi ÍR að þessu sinni eru flestir
beztu hlauparar landsins. Jón
Diðriksson, UMSB, kemur heim
sveitakeppnirnar undanfarin ár og
má búast við að þeir verði einnig
aðsópsmiklir í sveitakeppninni í
frá Englandi til keppni og má
búast við spennandi viðureign
milli hans, Ágústs Þorsteinssonar,
UMSB, Ágústs Ásgeirssonar, IR,
Hafsteins Oskarssonar, IR, og
Gunnars P. Jóakimssonar, IR.
IR-ingar hafa unnið flestar
Úrslitin ráðast
í þremur flokkum
í körfuknattleik
UM HELGINA ráðast sennilega úrslit í premur flokkum ó íslandsmótinu
í körfuknattleik, Þ.e. í 2. flokki, 3. flokki og í 3. deild. í 2. flokki er aóeins
eftir hreinn úrslitaleikur milli Fram og UMFN. í 3. tlokki eru Haukar, KR
og ÍR í úrslitum ásamt annaóhvort UIA eða Tindastóli, sem eiga eftir aö
keppa um sæti í úrslitakeppninni. í 3. deild eru prjú lið í úrslitum, Hörður
trá Patreksfiröi, Tindastóll frá Sauðárkróki og ÍBK. Leikjaskráin fyrir
helgina lítur pannig út:
SKIÐAMOT
VÍKINGS Á
LAUGARDAG
SKIÐADEILD Víkings gengst fyrir
svigmóti í öllum aldursflokkum
barna og unglinga við skála félags-
ins í Sleggjubeinsskarði á laugar-
daginn. Mófiö hefst klukkan 13 og
er petta trúlega í fyrsta skipti, sem
Víkingar gangast fyrir opinberu
skíðamóti. Ef svo er ekki pá er mjög
langt síóan paö var.
SELTJARNARNES
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL.
Kl. 20.00 úrslit i 2. fl., Fram - UMFN
Júgóslavar
unnu
JÚGOSLAVAR unnu Englendinga 2:1 í
landsleik 21 árs og yngri í knattspyrnu
í Novi Sad í Júgóslavíu í gær. Petta var
fyrri leikur liðanna í undanúrslitum
Evrópukeppni pessa aldurshóps. Þaö
var Vahid Halíhodzic, sem gerði bæöi
mörk Júgóslava, en Everton-leik-
maðurinn Andy King skoraði mark
Englendinga. Seinni leikurinn fer fram
í Manchester 2. maí og ættu Englend-
ingar aö vinna pann leik miðað við að
peir voru sízt lakari í gær.
Kl. 21.30. 3. fl.t UlA - Tindastóll
ÍÞRÓTTAHÚS HAGASKÓLA
FÖSTUDAGUR 21. APRÍL.
Kl. 18.00, 3. H.i Haukar - UlA
eða Tindastóll
Kl. 19.15, 3. fl.. KR - ÍR
Kl. 20.30, 3. deild. Hörður Tindast.
ÍÞRÓTTAHÚS HAGASKÓLA
LAUGARDAGUR 22. APRÍL,
Kl. 16.00, 3. fl., Haukar - KR
Kl. 17.15, 3. fl., ÍR - UlA
cða Tindastóll
Kl. 18.30. 3. deild, Tindastóll - IBK
iÞRÓTTAHÚS HAGASKÓLA
SUNNUDAGUR 23. APRÍL.
Kl. 19.00. 3. H.i ÍR - Haukar
Kl. 20.15, 3. fl.. KR - UÍA
eða Tindastóll
Kl. 1.30, 3. deildi ÍBK - Hörður
TVO FYRSTU
GOLFMÓTIN
Á SUMRINU
TVÖ golfmót a.m.k. fara fram í dag.
Innanfélagsmót verður haldiö á
Nesvellinum og hefst klukkan 13.
Leiknar veróa 18 holur. Á Grafár-
holtsvelli hefst klukkan 14 einnar
kylfu keppni hjá GR og er pað utan
kappleikaskjár.
URSLITIN I
SKÓLAMÓTI
í FÓTBOLTA
URSLITALEIKURINN í skólakeppni
KSÍ fer fram á Kaplakrikaveili í dag (
klukkan 14. Eigast par viö lið
Armúlaskóla og Menntaskólans á
Akureyri. Akureyringar slógu meðal
ar.nars út hina snjöllu leikmenn
Háskólans, en Ármúlaskólinn bar
m.a. sigurorö af liði ipróttakennara-
skólans.
14 2 1 11 259.308 5
VALURi Brynjar Kvaran 4, Jón
Pétur Jónsson 3, Jón H. Karlsson
3, Björn Björnsson 2, Gísli
Blöndal 4, Þorbjörn Guðmunds-
son 2, borbjörn Jensson 3, Stein-
dór Gunnarsson 3, Steíán
Gunnarsson 4, Bjarni Guðmunds-
son 3.
VÍKINGURi Eggert Guðmunds-
son 3, Magnús Guðmundsson 3,
Jón G. Sigurðsson 2, Ólafur
Jónsson 3, Skarphéðinn Óskars-
son 3, Páll Björgvinsson 3, Ólafur
Einarsson 2, Árni Indriðason 3,
borbergur Aðalsteinsson 2,
Viggó Sigurðsson 2. Björgvin
Björgvinsson 4, Kristján Sig-
mundsson 2.
KRi Haukur Ottesen 3, Símon
Unndórsson 2, ólafur Lárusson 2,
Ingi Steinn Björgvinsson 2, Krist-
inn Ingason 1, Sigurður óskars-
son 1, Ævar Sigurðsson 1, Þor-
varður Guðmundsson 2, Jóhannes
Stefánsson 3. Björn Pétursson 3,
Emil Karlsson 2.
ÁRMANNi Heimir Gunnarsson 3,
Ragnar Gunnarsson 2, Björn
Jóhannesson 2, Friðrik Jóhanns-
son 3, Grétar Ingólfsson 1, Jón V.
Sigurðsson 2, Jón Ástvaldsson 2,
Þráinn Ásmundsson 2, Einar
Þórhallsson 2, óskar Ásmunds-
son 1, Einar Eiríksson 1.