Morgunblaðið - 07.05.1978, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MAI 1978
61
'Mv g \ |« 7 I * ^ |
I ' k fi !l R
i VELVAKANDI
= SVARAR í SÍMA
Joiookl. 10— 11
1 FRÁ MÁNUDEGI
i\yiJjMn^-usi'u if
Það er jafnvel grátlegt að hlusta
á andstæða ræðumenn trúflokka.
Þeir nota sömu setninguna í
Biblíunni til að kasta hver í annan,
og allir eru þessir menn að því er
þeir segja fullir af kærleika Guðs
til náungans. En sá kærleiki er því
miður að miklu leyti bundinn
innan ramma hvers trúflokks fyrir
sig.
Það sem ég hef aðallega lært af
þessum athugasemdum mínum er
því þessi eilífi metingur milli
flokka hvað sé rétt og hvað sé
rangt.
Ef menn gætu aðeins hætt að
rífast um það hvernig fæðingu
Krists hafi borið að, hvernig
ástand mannsins sé eftir dauðann
og hætt að þræta um mál sem
manninum er ekki ætlað að vita,
myndi kristið samfélag safnast
mun betur í einn hóp þar sem
kærleikur til náungans væri meira
lifandi og einfalt, kristið trúarlíf,
sem er ávallt það bezta, ríkti.
Því er það, að elska Guð með
sínu hjarta og náungann eins og
sig sjálfan, þau orð sem útrýmt
gætu allri eymd í heiminum. Með
kærri þökk fyrir birtinguna.
Einar Ingvi Magnússon.“
Þessir hringdu . . .
• Gamli turninn
Sveinn Sveinsson.
í Morgunblaðinu 4. maí fulÞ
yrðir háttvirtur borgarstjóri, mik-
ilsvirtur og duglegur embættis-
maður, að gamli turninn verði til
frambúðar þar sem hann nú er. í
algjörri andstöðu við meirihluta
borgarbúa. Við höfum mörg borg-
arbörn lýst skoðun okkar á stað-
setningu turnsins nú og virðumst
sammála um að turninn sómi sér
ekki. Borgarstjóri segir að skiptar
séu skoðanir okkar borgarbúa á
staðsetningu turnsins. Sannleikur-
inn er sá að einn borgarbúi og áður
eigandi turnsins hefur lýst ánægju
sinni með staðsetninguna eins og
nú er. Ég hefi ekki tölu á því hve
mörg við erum á móti, en örugg-
lega mikill meirihluti. Hvernig
getur svo háttvirtur borgarstjóri
fullyrt um staðsetningu turnsins
til frambúðar að fullu þar sem
hann nú er. Ég skora á borgar-
stjóra að kynna sér málið til
hlítar.
• Klukkan
ganglausa
Klukkan á torginu er til
stórskammar borginni og hefur
staðið nú um mánaðartíma eða þar
um bil og vantað 19 mínútur í 12.
Þetta þarf að laga svo hún verði
borginni til sóma en ekki til
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Þessi einkennilega staða kom
upp á opna sænska meistaramót-
inu, sem fram fór fyrir stuttu. Það
var Gösta Svenn. sem hafði hvítt
og átti leik, en Carl-Johan Ribbe-
gren hafði svart. I fljótu bragði
virðist hvítur eiga í vök að verjast,
því að 33. Rxh4 gengur auðvitað
ekki vegna 33. ... Rh3 mát og 33.
Hd3 strandar á 33. ... Dxh2+.
Hvítur fann þó öllu snjallara
framhald:
skammar. Eg held að allir sem líta
hana nú líti hana heldur óhýru
auga.
Svo ég víki máli mínu að öðru
sem miklu máli skiptir, þá vil ég
benda öllum embættismönnum
þjóðar vorrar á að þeir eiga að
fara að vilja okkar landsmanna
sem höfum kosið þá, en ekki að
eigin vilja eða flokka. Þeir eru
þjónar okkar, ég tel að þessi
ábending sé í tíma töluð, því mér
virðast embættin ekki rækt sem
skyldi. Andmæli eru þegin. Ég er
nú lítill karl á móti embættisvald-
inu, en skyldi ég ekki eiga
skoðanabræður sem hafa máttinn
á móti valdinu. Ég býst við að vera
kominn út á hálan ís og ég vil
undanskilja háttvirtan forseta
Islands, læknastéttina alla og alla
sem sta%fa heiðarlega.
HOGNI HREKKVISI
53^ SIGGA V/GGA í *í/LVERAki
Smfðum Neon-09 piastljósaskillL
Einnig ýmiss konar hluti
úr Acríl plasti.
Neonþjónustanr hf. Smiðjuvegi 7, Sfmi 4» 3777
SUMARBUSTAÐIR
Einstaklingar - Félagasamtök
Get afgreitt nokkur hús í sumar. Vönduð hús, hönnuð
fyrir islenska veðráttu. Komið, skoðið teiknmgar og leitið
upplýsinga.
Pantið tímanlega. Veljið íslenskt.
Kristinn Ragnarsson
húsasmiður og húsgagnasmíðameistari
Melgerði 29, Kópavogi
sími 44777.
Nybóla
sem leysir gamlanvanda
Vandinn er þungt loft - eða lykt. Innilokað loft eða reyk-
mettað. Matarlykt, allskonar lykt sem angrar.
Hér er góð lausn. Lítil kúla, kölluð Airbal. Inni í henni er
lítil plata.unnin úr ferskum náttúruefnum, sem hreinsa
andrúmsloftið.
Virkni kúlunnar er hægt að stjórna meðþví að færa til
hettu ofan á henni. Þegar lyktarefnin eru þrotin er ný
plata sett í kúluna.
Einn kostur í viðbót - kúlan eródýr.
Fæst á bensínstöðvum Shell og í fjölda
verslana.
Olíuféiagið Skeljungur hf
Heildsölubirgðir: Oliufélagið Skeljungur.
Smávörudeild Sími 81722
Shell
33. Bgf.+o - IIxgG, 34. Hd7+ -
Kg8. 35. Hg7+ - Kf8. 3G. IIxgG
- Rh3+. 37. Kxg2 - Rf 1+. 38.
Dxflo - Dxf4. 39. HfG+ og
svartur gafst upp.
Jafnir og efstir á mótinu urðu
þeir Dan Cramling og Per Inge
Helmertz.
\úLLk- (WUA-SNÚUA- ) \VÚUficGÚLLtáy /\Soss/- \ l \%p\-yió^bp