Morgunblaðið - 13.05.1978, Side 14

Morgunblaðið - 13.05.1978, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAI 1978 í DAG hefst birting á fyrirspurnum til boryar- stjóra oy svör hans við þeim oy verður þessi þjónusta veitt fram að kjördeyi 28. maí . n.k. Fyrirspyrjendur geta hrinyt í síma Mbl. 10100 kl. 10—12 f.h. og borið upp fyrirspurnir sem boryarstjóri síðan svarar fljótleya á eftir. Borgarstjóri svarar...... Lóðir undir einingahús Sigríður Eyjólfsdóttir. Krummahólum 6: Mun borgin skipuleggja svæði í Breiðholti þar sem hægt verður að byggja einingahús? Spurning mín snertir bæði einingahús úr timbri og steypu. Svari Reykjavikurborg hefur út- hlutað sex lóðum til tveggja fyrirtækja til að reisa á þeim einingarhús. Annað fyrirtækið afsalaði sinni lóðarúthlutun, þar sem það taldi lóðirnar ekki henta. Aðrar umsóknir um lóðir til byggingar einingarhúsa liggja ekki fyrir og verður afstaða til málsins tekin, ef umsóknir berast. Ekkert er því til fyrir- stöðu að úthluta lóðum undir slík hús, ef þau uppfylla ákvæði byggi ngarsamþykktar. Frágangur við undir- göng Steinunn Ingólfsdóttir. Aust- urbergi 4: 1. Hvenær verður gengið frá bökkum undirganganna undir Norðurfell við Austurberg og viðlagasjóðshúsin? Þar er oft mold og aur og nánast illfært í bleytutíð. 2. Hvenær verður gengið frá svæði við Norðurfell gegnt fjölbýlishúsum við Aust- urberg, þar sem er endastöð SVR? Þetta er ómalbikað, mikil umferð er þarna um og óþrifn- aður stafar af. Svari 1. Reiknað er með að gengið verði frá bökkum undirgang- anna og svæðið snyrt nú í sumar. 2. Endastöð S.V.R. (snúnings- pláss) verður malbikuð í sumar. Baðaðstaða í Nauthólsvík Björn Guðmundsson, Skeggjagötu 16: Fyrir nokkrum árum var vinsæll baðstaður í Nauthólsvík þar til er gefnar voru út reglur um bann við böðum vegna mengunar. Nú hefur fólk not- fært sér nokkuð afrennslisvatn- ið frá hitaveitugeymunum og hefur verið vinsælt. Nú er það góðlátleg fyrirdþurn hvort ekki mætti sameina þarna tvennt: Fyrrum gerða baðaðstöðu og þennan volga læk með nýjustu hreinsitækjum, koma hér upp verulega góðri og náttúrulegrri sjóbaðssundlaug án þess að um margmilljóna fjárfestingar væri að ræða? Svari Eins og fram kemur í fyrir- spurninni er sjórinn í Nauthóls- vík talinn óhæfur til sjóbaða vegna mengunar frá Fossvogs- ræsinu og útrása frá Kópavogi. í sumar á að framlengja Fossvogsræsið fram í stór- straumsfjöruborð, en síðar er ráðgerð frekari lenging þess eða tenging við nýja útrás vestar á nesinu nálægt lögsögumörkum við Seltjarnarnes. Hvor leiðin valin verður hefur þó ekki verið ákveðið. Aðgerðin í sumar á að hindra, að mengun nái eins langt inn í voginn og nú er. Eftir þá aðgerð er samt ekki hægt að reikna með því, að mögulegt verði að opna sjóbaðsstaðinn að nýju, enda liggja enn ræsi út í Fossvoginn Kópavogsmegin. Uppsetning hreinsitækja og/ eða bygging Kvíar til að hindra mengun mun að áliti tækni- manna kosta mikið fé. Um þetta atriði liggur þó ekki fyrir kostnaðaráætlun nú. Innkaupa- stofnun Reykjavíkur Gunnar Ilauksson. Stelkshól- um 12: 1. Er ekki Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar sá aðili sem á að leita eftir hagstæðustu innkaupum fyrir stofnanir borg- arinnar? 2. Hvers vegna getur elli- málafulltrúi borgarinnar ákveð- ið kaup á gluggatjaldaefnum á eigin spýtur fyrir íbúðir aldr- aðra við Furugerð 1 á hærra verði en ann^irs staðar bauðst? Svari 1. Svarið er jákvætt, Inn- kaupastofnun á m.a. að annast innkaup á vörum og þjónustu, svo og útboð á verklegum framkvæmdum fyrir borgarsjóð og stofnanir Reykjavíkurborgar. 2. Gluggatjaldaefni í 74 íbúð- ir fyrir aldraða við Furugerði voru valin af arkitekt hússins að höfðu samráði við ellimálafull- trúa. Valið fór fram að undan- genginni athugun á efnum og verðkönnun. Félagsmálastofn- unin gerði síðan tillögu til Innkaupastofnunarinnar um kaup á efni, sem talið var vandaðra og var dýrara en sum önnur, sem stóðu til boða. Tillagan var samþykkt á stjórn- arfundi Innkaupastofnunarinn- ar og kaupin þá fyrst ákveðin. Frágangur viö Kóngsbakka Gréta Guðjohnsen, Jörvabakka 28: Gengið hefur verið frá í öllum atriðum hér í Breiðholti I eftir því sem ég bezt veit, en þó er ein spilda ófrágengin ennþá og það er svæðið milli Jörfabakka og Kóngsbakka. Hvenær má búast við að það verði lagfært, því það er fremur hvimleitt að búa við þetta. Svari Svæðið milli Jörfabakka og Kóngsbakka, þ.e. þríhyrningur sem afmarkast af þessum götum og Arnarbakka tilheyrir lóðum þeirra húsa, sem við göturnar standa en er ekki í umsjá Reykjavíkurborgar. Ef fyrirspyrjandi hefur átt við svæðið vestan Kóngsbakka þá er þar svæði á vegum borgarinnar, sem fyrirhugað er að planta í og ganga frá nú í sumar. Þarna er ennfremur ófrágengin lóð, sem tilheyrir verzlunum, sem þarna eru. Safnaðar- heimili í Laugarnesi Ingibergur Þorkelsson. Kirkjuteigi 5: Fyrir nokkrum árum stóð til að byggt yrði safnaðarheimili fyrir framán Laugarneskirkju, en hætt var við það vegna andmæla frá íbúum hverfisins, og gengu þá undirskriftalistar til að safna mótmælum. Nú hefur spurzt að búið sé að samþykkja í borgarráði að byggt verði safnaðarheimili? Er það rétt og ef svo er því er ei sinnt andmælum hverfisbúa? Svari A fundi borgarráðs þ. 12. júli s.l. var samþykkt tillaga um safnaðarheimili í Laugarnes- sókn. Tillaga þessi hafði fengið jákvæðar undirtektir í skipu- lagsnefnd. Hin nýja tillaga er í því fólgin, að byggja safnaðar- heimilið að miklu leyti neðan- jarðar. Byggingin verður tengd sjálfri kirkjunni og þannig fyrir komið, að lóðin við kirkjuna hækki ekki frá því sem nú er, en hæðarmun^-inn, sem kirkju- tröppurnar mynda, notaðar. Þar kemur vesturveggur hússins, sem verður tæpir 2 metrar upp úr jörðu og er það og tröppurnar það eina, sem sést. Þakið verður hellu- og graslagt. Samkvæmt þessari tillögu ætti safnaðarheimilið ekki að vera til ama fyrir nágrannanna, því það skyggir ekki á neitt. Rétt er að taka fram, að mótmæli íbúanna voru gegn staðsetningu á auða svæðinu framan við kirkjuna, en nú er horfið frá þeim hugmyndum. Fyrstu nemendur Söngskólans í Keykjavík sem útskrifast úr 8. stigi, en með þeim á myndinni er Garðar Cortes óperusöngvari og skólastjóri Söngskólans og Þuríður Pálsdóttir óperusöngvari og kennari við Söngskólann. Myndina tók Friðþjófur á tröppum Söngskólans við Laufásveg. Fernir tónleikar Söngskólans FIMMTA starfsári Söngskólans í Reykjavík er senn að Ijúka. í vetur stunduðu 75 nemendur nám við skólann, í söng, tónheyrn. nótnalestri. tónfræði, tónlistar- sögu og píanóleik. Nemendur skólans þreyttu í fyrsta sinn í sögu skólans próí í 8. stigi í söng, en því stigi þarf að ná til að komast í kennaradeild skólans. 12 þeirra nemenda sem tóku prófið halda tónleika dagana 15., 16., 18., og 20. maí. 15. maí klukkan 17 halda Kristín Sigtryggsdóttir, Hrönn Hafliða- Sýna á Kjar- valsstöðum í DAG kl. 15.00 verða opnaðar tvær myndlistarsýningar á Kjar- valsstöðum og verða þær opnar á morgun og annan dag hvítasunnu kl. 14—16 og síðan kl. 16—22 og lýkur þeim báðum 21. maí. Það eru þeir Hörður Karlsson og Sigurður Örlygsson sem sýna verk sín, og nefnir Hörður sýningu sína Fjórar árstíðir og eru á henni 54 verk en Sigurður sýnir 40 ve,-k flest unnin á þessu ári. Kosningahá- tíð með ungu fólki UNGIR sjálfstæðismenn í Reykja- vík efna til kosningahátíðar með ungu fólki á mánudagskvöld klukkan 20.30. Vilja ungir sjálf- stæðismenn með þessu stuðla að kynningu milli frambjóðenda D-listands til borgarstjórnar og ungra kjósenda. Borgarstjóri, Birgir Isleifur Gunnarsson, Bessí Jóhannsdóttir, Davíð Oddsson og Björgvin Björgvinsson munu mæta til hátíðarinnar. Þá verða einnig fjölbreytt skemmtiatriði og dans. Ráðstefna um sveitar- stjórnarmál SAMBAND ungra sjálfstæðis- manna gengst í dag fyrir ráð- stefnu um sveitarstjórnarmál. Ráðstefnan er fyrst og fremst ætluð fyrir unga frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins við sveitar- stjórnarkosningarnar í þessum mánuði. Á ráðstefnunni verða flutt fjölmörg erindi, en ráðstefnu- stjóri er Bessí Jóhannsdóttir. dóttir og Jóhanna Sveinsdóttir tónleika í Norræna húsinu. 16. maí klukkan 18 halda Jónina Gísladóttir, Ragnheiður E. Bjarnadóttir og Eyjólfur Ólafsson tónleika í Norræna húsinu. 18. maí klukkan 17.30 halda Sigrún Andrésdóttir, Alice Boucher og Elisabet F. Eiríksdótt- ir tónleika í Norræna húsinu. 20. maí klukkan 14.30 halda Valgerður Gunnarsdóttir, Matt- hildur Matthíasdóttir og Ásrún Davíðsdóttir tónleika í Norræna húsinu. Tónleikarnir eru opinberir og allir velkomnir. Þetta geröist 13. maí 1976 — Carter forseti hvetur til hanns við kaupum og sölu kjarnorkuvera. 1973 — Nítján þjóða viðræður í Vín um fa>kkun herja í Hvrópu. 1971 - Fawzi hermálaráðherra og fimni aðrir egypzkir ráðherr- ar segja af sér. 1968 — Viðræður um frið í Víetnam hefjast i I'arís. 1958 — 'Grjótkast á bifreið Nixons varaforseta í Caracas. 1910 — Churchill flytur ræðu um „blóð, svita og tár“ — Vilhelmína Hollandsdrottning flýr til London. 1927 — „Svarti föstudagur" í Þýzkalandi: Efnahagskerfíð hrynur. 1915 — Bandaríkin mótmæla árásinni á „Lúsitaníu". 1876 — „Berlínar-greinargerð- in“ um vopnahlé og umbætur í Tyrkjaveldi. 1871 — Páfi lýstur friðhelgur, Vatikanið lýst eign hans. 1816 — Bandaríkin segja Mexíkó formlega stríð á hendur. 1809 — Napoleon tekur Vín. 1613 — Cromwell sigrar kon- ungssinna við Grantham. 1619 — Oldenbarneveldt líflát- inn: Moritz af Óraníu allsráð- andi í Hollandi. 1607 — Fyrsta varanlega enska nýlendan i Norður-Ameriku, — Jamestown, Virginíu — stofnuð. 1503 — Spánverjar sigra Frakka og sækja inn i Napoli. Afmæli dagsisi Alphonse Daude, franskur rithöfundur (1840 — 1897) — Sir Arthur SuIIivan, brezkt tónskáld (1842 — 1900) — Sir Ronald Ross, brezkur vísindamaður (1857 — 1932) — Joe Louis, handarískur henfaleikakappi (1914 — —) — Daphne du Maurier, hrezk skáldkoná (1907 — —). Orð dagsinsi Gailinn við lógin eru lögfræðingar — Clarnece Darrow, bandarískur •lögfræð- ingur (1857 - 1938).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.