Morgunblaðið - 13.05.1978, Page 22

Morgunblaðið - 13.05.1978, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1978 Stúdentarósin nýjasta nýtt Glæsileg stúdentagjöf. Stúdentarósin er handsmíöuö úr 14 k. gulli. Hálsmen, prjónn úr og skartgripir. JÓN OG ÓSKAR Laugaveg 70 sími 24910. Þetta er’ann SIMCA 1100 SIMCA 1100 er einn duglegasti litli fimm manna fólksbíllinn á landinu, sem eyðir 7,56 1. á 100 km. SIMCA 1100 kemst vegi sem vegleysur, enda framhjóladrifínn bfll, búinn öryggispönnum undir vél, gírkassa og benzingeymi og er u.þ.b. 21 cm. undir lægsta punkt. Þetta er blllinn sem þú ert að leita að, ekki satt? Hafíð samband við okkur strax í dag. @ Irökull hf. Ármúla 36 - 84366 Sölumenn Chrysler-sal 83330/83454. Guðrún Jónsdóttir frá Fagranesi: Athugasemdir og leiðrétting ar við bækur Tryggva Ejnilssonar — Fátæktfólk Tilefni þessa pistils, er þaö að ég skrifaði Tr\KKva Emilssyni bréf, þeKar hafði lesið bókina Fátækt fólk. Skoraði ók á hann að leiðrétta villurnar, er hann K*fi út næstu bók. Það hefur hann ekki Kert, svo að ók ætla að le.vfa mér að Kera það. Fyrst eru það þá mannanöfnin. TryKKvi seKÍr Þorstein sem bjó á Gili í Öxnadal (þeKar Emil flutti í Bakkasel) vera ManKÚsson, en hánn var Halldórsson. Guðrúnu á Bessahlöðum seKÍr hann vera Marsdóttur, en hún var Þorláks- dóttir. Stefán í Þverbrekku seKÍr hann SÍKurðsson, en hann var Guðmundsson. TryKKVi seKÍr konu SÍKvalda á Rauðalæk hafa heitið SÍKurlauKU. Hún hét Guðrún, en dóttur áttu þau, er SÍKurlauK hét. Vík éK þá að GeirhildarKörðum. Vorið 1917 fluttu þaðan börn Kristins ok Maríu, sem lenKÍ voru búin að búa þar. Þetta vor fluttu þanKað Jón Baldvinsson ok Guð- rún HallKrímsdóttir. Annan daK í páskum 1918 féll snjóflóð á bæinn. Fólkið var allt í baðstofunni, hjónin ok dóttir þeirra 5 ára. Þær mæKÖur voru að horfa út um KluKKann, sem vissi að fjallinu, ok sáu þe^ar snjóflóðið fór af stað. Fólkið flýtti sér úr baðstofunni fram KönKÍn út. Hvorki sakaði menn né skepnur, en það fór dálítil Kusa á baðstofuKluKKann og braut hann, því komst dálítill snjór inn. Aðalsnjóflóðið fór á búrið ok hesthús, sem Kekk lengra suður en baðstofan. Norðan við bæjardyrn- ar var fjós, kýr voru inni, en þær sakaði ekki. Fólkið flýði bæinn og settist ekki að aftur og var því ekki árið þar út. Jón er dáinn fyrir mörgum árum, en Guðrún er á Elliheimilinu Hlíð á Akureyri. Þá býr dóttir þeirra Þorbjörg á Akureyri. Geirhildargarðar voru í eyði í þrjú ár, en 1921 fluttust þangað roskin hjón, Kristján og Helga, sem voru búin að eiga heima á ýmsum bæjum í dalnum. Tryggvi segir þau hafa búið þar, er snjóflóðið féll, en það er ekki rétt. Kristján og Helga áttu einn son, Jóhann. Hann var þá fullroðinn og var að læra húsasmíði. Margir eldri Akureyringar og Reykvíking- ar munu kannast við hann. Þá segir í bókinni Fátækt fólk, að þegar faðir minn Jón Sigur- bjarnason fluttist að Geirhildar- görðum 1929, hafi hann orðið að stinga út af baðstofugólfinu. Ekki man ég til þess, að hann hafi mokað út af gólfinu, enda var hann þar kunnugur, að hann vissi, að þar var trégólf, en áður en hann fluttist þangað bjuggu þar annálaðar þrifnaðarkonur Guðrún Hallgrímsdóttir og Helga Bjarna- dóttir. Mér finnst gæta tilhneygingar hjá Tryggva til að gera myndina af lífi fólks á þessum árum full dökka, ekki síst þeirra, sem unnu sig upp úr fátæktinni, með dugn- aði og fyrirhyggju án þess að hafa nokkuð af öðrum, og voru fremur veitandi en þurfandi. Lýsing hans á föður mínum og okkur í Fagra- nesi er langt frá því að vera rétt. Ég ætla að bregða hér upp mynd úr Öxnadal, frá því ég var að alast upp, en ég er einu ári eldri en^ Tryggvi. Þannig stóð á hjá þeim' Elinborgu og Jónasi á Varma- vatnshólum, að þau voru mjólkur- laus um tíma að vetri, og áttu þá mörg börn. Faðir minn átti tvær fullorðnar kýr og kvígu, sem var nýborin að fyrsta kálfi. Hann selur þeim nú kvíguna á mun lægra verði en gerðist á þeim árum. Mörgum árum seinna, þegar faðir minn var búinn að kaupa Geir- hildargarða og farinn að búa þar, þá átti hann ekki kú fyrsta árið þar. En Jónas, sem þá var búinn að kaupa Hraun í Öxnadal, kom þá margoft með mjólk og smjör og gaf honum. Faðir minn fór að fárast yfir að taka við þessu nema borga fyrir það, en þá sagði Jónas: „Þú átt þetta hjá mér, ég er ekki búinn að gleyma því, þegar þú seldir mér kúna, og ég var mjólkurlaus á Varmavatnshólum, og reyndist líka mesta þarfa- skepna.“ Ég minnist líka þess, að þegar menn urðu mjólkurlausir um tíma, þá hlupu nágrannarnir undir bagga. Aldrei man ég eftir, að Öxndælingar seldu hver öðrum mjólk. Það þótti nýnæmi að fá nýjan fisk, það var ekki svo oft farið í kaupstað, og ef einhver fór og kom með nýjan fisk, þá þótti jafnsjálfsagt að gefa öðrum í soðið og borða sjálfur. Það vil ég leiðrétta í seinni bókinni, að Sigurbjörg Sigurðar- dóttir stjúpdóttir Baldvins á Hálsi hafði flutt með honum að Naust- um við Akureyri, tvítug að aldri. Það er ekki rétt, við vorum jafn gamlar og gengum til spurninga til séra Theódórs á Bægisá vorið 1915. Var hún þá lasin, með bólgna eitla á hálsinum. Aður en fermt var, veiktist hún og var flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri. Þaðan var hún send að Vífilsstöðum, og dó hún þar seint um sumarið. Guðrún Jónsdóttir. frá Fagranesi. Frá stofnfundi JC Vík. Þórhildur Gunnarsdóttir forseti situr fyrir miðju í fremri röð. Stofnað JC-félag, sem eingöngu er skipað konum JUNIOR Chamber Reykjavík hélt stofnfund fyrsta JC-félags- ins .sem eingöngu er skipað konum, að Ilótel Loítleiðum í apríl s.l. Illaut félagið nafnið JC Vík og var fyrsti forseti þess kjörinn Þórhildur Gunnarsdótt- ir. Margar konur gcngu í félagið á fyrstu fundum þess. í fréttatilkynningu frá Junior Chamber á íslandi segir að hreyfJ ingin hafi fest rætur á íslandi árið 1960. Hafi hreyfingin verið í stöðugum vexti og séu meðlimir nú um 800 áð tölu á öllu landinu. JC-hreyfingin á Islandi hefur fram til þessa eingöngu verið skipuð karlmönnum. í fréttatilkynningunni segir ennfremur: „í JC, sem nú telur um 800 félaga, er ungt fólk í þroskandi félagsstarfi. Meginstarf JC felst í kynningar- og þjálfunarnámskeið- um, t.d. ræðunámskeið, fundar- reglur, raddbeiting, stjórnþjálfun og stjórnendaþjálfun. í JC lærir ungt fólk að taka skjótar, skipu- legar ákvarðanir til að nýta betur tíma sinn og annarra. JC starfar að ýmsum framfara- málum síns byggðarlags (borgar, bæjar-, héraðs) með hagnýtum verkefnum og kynningu þjóðþrifa- mála, þar sem afstaða íbúanna ræður framgangi þeirra.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.