Morgunblaðið - 13.05.1978, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 13.05.1978, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1978 VALUR GREIÐIR RÚMA MILLJÓN í BÍLASTYRKI STJÓRN Knattspyrnudeildar Vals hefur ákveðið að greiða leikmönnum meistaraflokks bifreiðastyrk vegna æfinga og leikja í sumar. Er áætlað að Valur greiði leikmönnum alls rúma eina milljón króna í bifreiðaafnot f sumar. Pétur Sveinbjarnarson formað- ur knattspyrn-udeildarinnar stað- festi þetta í samtali við Mbl. í gær. Sagði Pétur að leikmenn æfðu 3—4 í viku hverri auk þess sem þeir kepptu minnst einu sinni í viku. Pétur sagði að leikmennirnir hefðu óhjákvæmilega af þessu mikinn kostnað vegna ferða til og frá æfingum og leikjum og hefði stjórnin ákveðið að taka þátt í þeim kostnaði. Ef reiknað er með að 16 leikmenn leiki með Val í sumar verða þetta minnst 62,500 krónur á mann í sumar. „Við höfum mikinn áhuga á því að greiða leikmönnum einnig vinnutap, sem þeir verða fyrir vegna æfinga og keppni en við höfum ekki fjárhagslegt bolmagn ERILSAMT TÍMABIL 67. fslandsmótið í knattspyrnu er haíið. Mót þctta er stærsta og fjölmennasta iþróttamót, sem hald- ið er hér á landi og keppt er um allt land. Ekki er þvi ofsagt, að framundan sé erilsamt keppnis- tímabil. í dag fara fram fyrstu leikirnir í 1. deild, og brátt munu línurnar skýrast varðandi getu KARL SPAIR SPÁ KARLS ÞÓRÐAR- SONAR. 1. deild UBK-KA 1-1. 2. deild Ármann — Austri 3-1. 2. deild Reynir — bór 1 — 2. 2. deild Haukarbróttur 1—0. 1. deild bróttur —Akranes (vildi ekki spá). 1. deild ÍBK-FH 2-0. 1. deild ÍBV —Víkingur 1—0. liðanna. Á hverjum laugardegi í sumar munu i Morgunblaðinu birtast rabb við einn leikmann sem í eldlinunni verður þá helgina og hann beðinn um að spá um úrslit leikja. Við fengum Karl Þórðarson úr meistaraliði Akraness til að ríða á vaðið. Karl sagði að undirhúningur Skagamanna væri mjög svipaður og hann hefði verið undanfarin ár. þeir væru ákveðnir í að verja Islandsmeistaratitilinn. Allir sterk- ustu Ieikmenn liðsins leika með og engin meiðsli hafa átt sér stað. Ungir efnilegir leikmcnn hafa bæst í hópinn, en í Ijós kæmi hverju sinni hver liðsuppstilling yrði. Karl sagðist álíta að Vestmanneyingar, Valur og Fram yrðu erfiðustu mótherjarnir. Hins vegar veit ég að margt óvænt getur gerst, ég hef þá trú að mót þetta verði spennandi og skemmtilegt, sagði Karl. LEIKIK HELGARINNAR. LAUGARDAGUR 13. MAl 1. deild Vestmannaeyjarvöllur kl. 15.00 fBV — VfkinRur (Dómari l>orvardur Björnsson) 1. deild Kópavogsvöllur kl. 15.00 UBK — KA (Dómari Magnús Pétursson) 2. deild Laugardalsvöllur kl. 14.00 Ármann — Austri. 2. deild Sandgerðisvöllur kl. 15.00 Reynir — Wr 2. deild Hvaleyrarholtsvöllur kl. 16.00 Haukar — Þróttur, Neskaupstað. PRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 1. deild Laugardalsvöllur kl. 20.00 Þróttur — ÍA (Dómari Guðmundur Haraldsson) 1. deild Kellavíkurvöllur kl. 20.00 ÍBK - FH (Dómari Eysteynn Guðmundsson) MIDVIKUDAGUR 17. MAÍ 1. deild Laugardalsvöllur kl. 20.00 Valur — Fram (Dómari Grétar Norðíjörð) ám til þess í sumar. Vonandi verðum við svo vel stæðir næsta sumar að við getum þá greitt leikmönnum vinnutap," sagði Pétur. Þegar Pétur var að því spurður hvort þetta væri kannski fyrsta skrefið í átt til hálfatvinnu- mennsku í knattspyrnu hér á Islandi svaraði hann því til að hún kæmi ekki fyrr en félögin hefðu til þess fjárhagslegt bolmagn að greiða leikmönnum fyrir leiki samkvæmt bónuskerfi. Sagði Pét- ur að félögin væru ekki svo fjárhagslega sterk í dag að þau gætu slíkt en hins vegar væri það spor í rétta átt að geta greitt leikmönnum hluta af þeim kostn- aði, sem þeir verða að bera vegna þátttöku í knattspyrnunni. — SS. l£g y JW \ „4* . * Ljosm. Mbl.i Kristján Einarsson. FLESTIRSPÁ LIÐI IA SIGRI í SUMAR er ráðgert að a.m.k. sjö fréttamenn skrifi meira og minna um íslandsmótið í knattspyrnu á vegum Morgunblaðsins. Mun blaðið fjalla um leiki 1. deildarinnar á Fréttamenn blaðsins munu fylgjast með öllum leikjum í 1. deildinni eins og venjan hefur verið undanfarin ár og einnig með öðrum leikjum eins og kostur er. Verður síðan skýrt frá leikjunum í máli og myndum. Leikmönnum allra liða 1. deildar verða gefnar einkunnir frá 1—5 að loknum hverjum leik og ennfremur verður dómurum gefin einkunn eftir frammistöðu að mati þess frétta- manns, sem fylgist með leiknum. Sá leikmaður 1. deildar, sem hæsta meðaleinkunn hlýtur yfir allt mótið, fær viðurkenningu að loknu móti og hann mun hljóta hinn eftirsótta titil „Leikmaður íslandsmótsins 1978". Til þess að koma til greina í einkunnagjöfinni þarf leikmaður að hafa leikið a.m.k. 10 leiki í mótinu. Þá mun Morgunblaðið einnig veita marka- kóngi Islandsmósins styttu að mótinu loknu eins og undanarin ár. í fyrra gerðu fréttamenn Mbl. það til gamans að spá um lokaröð liða í Islandsmótinu. Voru skiptar skoðanir um þetta tiltæki þeirra og margir voru óánægðir með spána, sérstaklega þótt aðstand- endur þeirra liða, sem spáð var tveimur neðstu sætunum. En það voru líka margir, sem höfðu gaman af þessu tiltæki og í trausti þess að sá hópur sé stærri en hinn ætla fréttamennirnir að bregða aftur á leik og spá um lokaröð liða í 1. deild í sumar. Það skal ítrekað, að þessi spá er fyrst og fremst til gamans gerð. Ágúst I. Jónssoni 1. ÍA 2. ÍBV 3. Valur 4. Fram 5. ÍBK 6. Breiðablik 7. Víkingur 8. Þróttur 9. KA 10. FII Guðmundur Guð- jónssoni 1. ÍA 2. Valur 3. ÍBK 4. FH 5. Víkingur 6. Fram 7. ÍBK 8. Breiðablik 9. Þróttur 10. KA Helgi Danfelsson. 1. IA 2. Valur 3. ÍBV 4. Víkingur 5. Breiðablik 6. ÍBK 7. Fram 9. FII 8. Þróttur 10. KA Hermann Kr. Jóns- son. 1. ÍBV 2. ÍA 3. Valur 4. Víkingur 5. Breiðablik 6. ÍBK 7. Fram 8. FII 9. Þróttur 10. KA Sigtryggur Sig- tryggsson. 1. IÁ 2. Valur 3. ÍBV 4. Víkingur 5. ÍBK 6. Breiðablik 7. KA 8. Fram 9. -10. Þróttur 9.-10. FH Steinar J. Lúðvíks- son. 1. ÍBV 2. ÍA 3. Valur 4. Víkingur 5. Breiðablik 6. Fram 7. ÍBK 8. FII 9. KA 10. Þróttur Þórarinn Ragnars- son. 1. ÍA 2. Valur 3. ÍBK 4. Víkingur 5. ÍBV 6. Fram 7. Breiðahlik 8. KA 9. bróttur 10. FH

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.