Morgunblaðið - 13.05.1978, Qupperneq 32
AUGLÝSINGASÍMÍNN ER:
22480
JR»r0xmbTíibiö
01QgPHSlliritafrÍfr
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHar0uni>I«Ítib
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1978
veiðunum
„I>AÐ HEFUR snjóað hér yfir
okkur hréfum með mótmæíum
við hvalveiðunum,“ sagði
Matthías Bjarnason sjávarút-
vejjsráðherra ísamtali við Mhl.
í Kær.
Sagði ráðherrann að um 2000
bréf hefðu nú borizt honum,
forsætisráðherra og forseta ís-
lands, þar sem hvatt væri til
banns við hvalveiðum við ísland.
Flest bréfanna sagði Matthías
vera frá Bandaríkjunum.
Skemmti-
ferðaskip
24. maí
FYRSTA skemmtiferðaskip sum-
arsins kemur 21. maí. I>að er
Rritannia. en að sögn Steins I.árus-
sonar hjá Ferðaskrifstofunni Úr-
vali eru farþegarnir langflcstir
Ujóðverjar. Fyrsta skemmtiferða-
skipið. sem Samvinnuferðir/Land-
sýn annast fyrirgreiðslu fyrir
kemur 27. maí og er það rússncskt.
Mikael Kaiinin.
Steinn Lárusson sagði að á vegum
Úrvals kæmu 11 skemmtiferðaskip í
sumar, þar af eitt þrisvar og annað
tvisvar, þannig að komurnar verða
14. Flest skipanna koma til Reykja-
víkur, en eitt fer einnig til Isafjarðar
og Akureyrar. Steinn sagði endan-
legar tölur um farþegafjölda ekki
liggja fyrir.
Uelgi Jóhannsson hjá Samvinnu-
ferðum sagði að næsta skip á þeirra
vegum og Landsýnar kæmi 2. júlí til
Akureyrar og til Reykjavíkur tveim-
ur dögum síðar og sama skip verður
aftur á ferðinni síðar í mánuðinum.
Auk þessara þriggja skipakoma
sagði Helgi að í undirbúningi væru
tvær komur þýzks skemmtiferða-
skips.
>00 bréf
Vilja leita leiða til að
bæta kjör láglaunafólks
— en grundvallarsjónarmid aðila stangast á
Vinnuveitendur:
TVEIR sáttafundir voru haldnir í gær. Fyrst var fundur vinnuveitenda
með Alþýðusambandinu og stóð hann frá klukkan 14 til 16. en þá hófst
fundur vinnuveitenda og Vcrkamannasambandsins, sem stóð til klukkan
18. Akveðið var að boða nýjan fund á miðvikudag á sömu tímum og í gær.
Kristján Ragnarsson, formaður
samninganefndar vinnuveitenda,
sagði í gær að vinnuveitendur vildu
leita leiða til þess að bæta hag hinna
tekjulægstu og Snorri Jónsson vara-
forseti ASÍ kvað sambandið opið
fyrir hverri þeirri leið, sem sann-
gjörn yrði. Hins vegar virðist málið
mjög erfitt, þar sem vinnuveitendur
vilja bæta dagvinnukaup án þess að
hækkunin skrúfi upp allar kaupálög-
ur. Vinnuveitendur segja fyritækin
standa höllum fæti og ekki þola
meiri launakostnað, einkum fisk-
vinnslufyrirtækin, en Alþýðusam-
bandið telur að ekki megi raska
hlutfalli dagvinnu og álaga, einkum
vegna fólksins, sem vinni við sjávar-
útveginn og leggi þar oft nótt við dag
til þess að bjarga honum.
Kristján Ragnarsson, formaður
samninganefndar vinnuveitenda,
kvað vinnuveitendur ekki sjá að unnt
væri að hækka launakostnað um-
fram það sem er. „Staða fyrirtækj-
anna er veik,“ sagði Kristján, „og
sums staðar er við mikla erfiðleika
Framhald á bls. 18
Hafnarfjörður:
Fasteignagjöld ein
hin lægstu á landinu
25% afsláttur af fasteignagjöldum — 50%
afsláttur af vatns- og holræsaskatti
tekjur Hafnarfjarðarbæjar af ál-
verinu í Straumsvík nema í ár um
105 milljónum króna.
FASTEIGNAGJOLD eru hin
lægstu á landinu í Hafnarfirði. 1
Ilafnarfirði er veittur 25% afslátt-
ur af fasteignagjöldum og er það
mesti afsláttur, sem leyfður er
skv. lögum. Kemur þetta fram í
viðtali við Arna Grétar Finnsson.
hæjarfulltrúa í Ilafnarfirði. sem
birt er í Morgunhlaðinu í dag.
I viðtalinu kemur fram, að skv.
gildandi lögum beri að leggja á
fasteignagjöld, sem nema 0,5% af
fasteignamati húsa. Sveitarfélög-
um er síðan heimilt að hækka eða
lækka þessa gjaldskrá um 25%.
Dæmi munu vera um að sveitarfé-
lög hafi hækkað þessa gjaldskrá
„bað var meiningin að hafa alveg járnaga á þessu“, sagði Páll Eiríksson aðalvarðstjóri er Mbl. spurði
hann um sérstakar eftirlitsaðgerðir lögreglunnar í Reykjavík í gærkvöldi. Sagði Páll að almennt
ásigkomulag bifreiða og bflstjóra væri athugað og sérstakt auga haft á dekkjunum, ef einhverjir hefðu
ekki tekið nagladekkin undan ennþá. Þessa mynd tók Rax í gærkvöldi, þegar liigreglumenn komu með
eina bifreið til skoðunar hjá bifreiðaeftirlitinu.
Matthías Bjarnason um Norsk-íslenzka síldarstofninn:
„Verðum að vona að Norð-
menn fari mjög gætilega”
um allt að 20%.
Auk 25% afsláttar af fasteigna-
gjöldum var í ár veittur 50%
afsláttur af vatns- og holræsa-
skatti, sem er hluti fasteignagjalda.
I heild nemur þessi afsláttur
nokkuð á annað hundrað milljónir
króna.
í viðtalinu kemur einnig fram, að
SKÓLAIIÚSNÆÐI í Reykjavík
jókst um 15,2% á árunum 1974, 75,
76 og 77. I ársbyrjun 1974 voru
14.935 nemendur á grunnskólaaldri
og í forskóla í barna- og gagnfræða-
skólum Reykjavíkur og höfðu til
afnota 70.632 fermetra skóla-
húsnæðis, eða sem svarar 4,73
fermetrum á nemanda. í ársbyrjun
1978 voru 12.928 nemendur í
þessum aldursflokkum í grunnskól-
um borgarinnar og höfðu til afnota
„NORSKI sjávarútvegsráðherrann
hefur heitið mér því að við fáum að
fylgjast mcð ákvarðanatöku varð-
andi sfldveiðarnar við Norcg. Ég
hef að vísu ekkert heyrt um málið
nú en við verðum að vona að
Norðmenn fari mjög gætilega,“
sagði Matthías Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra, er Mbl. spurði hann
81.350 fermetra, eða sem svarar
6,29 fcrmetrum á hvern nemanda.
Ilúsnæðisrýmkunin á þessum árum
nam því 33% eða 1,56 fermetra á
hvern nemanda í grunnskóla. A
þcssum fjórum árum var 1958
milljónum króna varið til stofn-
kostnaðar skóla og var hlutur
borgarsjóðs þar af 1015 milljónír
og hlutur ríkissjóðs 943 miHjónir.
Árið 1974 voru teknir í notkun:
Fellaskóli — Annar áfangi 1. og 2.
i gær. hvort honum væri kunnugt
um afstöðu norskra stjórnvalda til
sfldveiðileyfa við Noreg í ár, en f
fyrra skrifaði Matthi'as sjávarút-
vegsmálaráðherra Noregs bréf og
lýsti áhyggjum íslendinga af því að
norsk íslenzki sfldarstofninn fengi
ekki að vaxa upp við Noreg.
„Ég skrifaði þetta bréf 7. marz í
hæð: 6 alm. kennslustofur, sérstofur
fyrir' handavinnu, teikningu, eðlis-
og líffræði, bókasafn með lesstofu,
samkomuskáli, sálfræðideild, helsu-
gæzla, húsnæði fyrir skólastjórn og
kennara o.fl, samtals 9.730
rúmmetrar. — Árbæjarskóli —
Þriðji áfangi húsnæði fyrir ungl-
ingadeildir (2 hæðir og kjallari). 8
alm. stofur, 4 sérgreinastofur og
kennslueldhús, samtals 6.489 rúm-
metrar. — Hólabrekkuskóli —
fyrra,“ sagði Matthías Bjarnason.
„Við höfðum þá haft spurnir af því
að norsk stjórnvöld hygðust leyfa
síldveiðar við Noreg, enda þótt
N-Atlantshafsnefndin hefði mælt
með algerri friðun. I svarbréfi
norska sjávarútvegsmálaráðherrans
Bolle kom fram, að fyrirheit hafði þá
þegar verið gefið um leyfi til veiða
Fyrsti áfangi 8 alm. stofur á efri hæð
ásamt kennslusal, samtals 3.000
rúmmetrar.
Tekið í notkun 1975«
— Fellaskóli — Þriðji áfangi
íþróttasalur (skiptanlegur) ásamt
búningsklefum og öðru fylgihúsnæði
og húsnæði fyrir heilsugæzlu, sam-
tals 7.420 rúmmetrar. —
Fjölbrautarskóli í Breiðholti —
Annar áfangi 1. byggingarstig
Framhald á bís. 18
á 10.000 tonnum og yrði ekki aftur
snúið með það. En í svarbréfinu kom
einnig fram, að norski sjávarútvegs-
ráðherrann taldi fyllilega vera
ástæðu til að hafa náið samstarf við
okkur á þessu sviði og hefur sú
skoðun verið áréttuð af hans hálfu
síðan.
Að því hefur verið spurt, hvers
vegna við íslendingar vildum ekki
láta til dæmis Alþjóðahafrann-
sóknastofnunina starfa við ísland í
sambandi við síldina. Mér finnst það
koma fyllilega til greina að þeir hafi
einhvers konar samstarf við okkar
vísindamenn, þó við höfum að
sjálfsögðu einir rétt til veiðanna,“
sagði Matthías Bjarnason.
„Ég hef haft spurnir af því að
norskir útgerðarmenn hafi farið
fram á að mega veiða 20.000 tonn af
síld við Noreg á þessu ári og það orð
leikur á að hjá norsku ríkisstjórn-
Framhald á bls. 18
Næsta blað
á miðvikudag
VEGNA hvítasunnuhelgarinn-
ar kemur næsta tölublað Morg-
unblaðsins ekki út fyrr en á
miðvikudag.
Skólahúsnæði í Reykjavík:
1958 miUjómim kr. varíð
til bygginga 1974-1977