Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAgTjR 23. MAI 1978 Haraldnr Árnason skólastjóri: Hugmyndir Hólanefndar um eflingu Bændaskól- Hinn 27. áfíúst 1976 skipaði landbúnaðarráðherra 7 manna nefnd, að undangenginni ályktun Alþingis þar að lútandi. í skipun- arbréfi til nefndarmanna segir að nefndin eigi að gera áætlun um eflingu Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal og skyldi áætlunin við það miðuð að með framkvæmd hennar yrði minnst á myndarleg- an hátt aldarafmælis skólans 1982. í nefndina voru skipaðir þessir menn: Haraldur Árnason, skóla- stjóri á Hólum, formaður, Hjalti Pálsson, framkvæmdastj. Reykja- vík, Björn Jónsson bóndi Bæ, Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi Tjörn, frú Sigrún Ingólfsdóttir, Reykjavík, Pálmi Jónsson alþm. og Páll Pétursson alþm. Nefndin hélt sinn fyrsta fund í Arnarhvoli í Reykjavík hinn 13. nóv. 1976. Þess ber að geta að það er eini fundurinn, sem frú Sigrún hefur setið, en hún veiktist nokkru síðar og sagði sig þá frá nefndar- störfum. Tveir næstu fundir nefndarinn- ar voru haldnir heima á Hólum dagana 20. og 21. júlí 1977, en þá kynntu nefndarmenn sér bygging- ar á staðnum og gerðu sér þá þegar ljóst að uppbygging á staðnum þyrfti að verða mjög víðtæk og raunar nokkuð vandséð á hverju væri hagkvæmast að byrja. Áður en lengra er haldið frásögn af störfum nefndarinnar vil ég láta þess getið, að ég var í nokkur ár búinn að óska eftir að fá að foygRja ný fjárhús yfir allt fé skólabúsins, sem einnig hentuðu vel tilraunastarfsemi þeirri (feld- fjárræktun), sem fram fer á Hólum og staðið hefur all mörg ár við fremur erfiðar aðstæður. Féð er nú hirt á þremur stöðum, 1. á beitarhúsum (Hagakoti) í ca. 4 km fjarlægð frá Hólum, 2. í hálfum gömlu fjárhúsunum og 3. í hluta af fjósinu (gemlingar). Sá helmingur fjárhúsanna, sem féð er ekki í hefur verið gerður að hesthúsum og eru það einu hesthúsin á staðnum, nema talin sé með ein básaröð í fjósinu og lítið úthýsi við fjósið. Hafði ég í nokkur ár sett lið á fjárlagatillögur Bændaskólans (en skólabúið heyrir undir hann), sem hét ný fjárhús. í fjárlögum heitir allt sem flokkast undir fjárfest- ingu gjaldfærður stofnkostnaður og hefur sá liður ávallt verið skorinn svo mjög niður við gerð fjárlaga, að lítið hefur enn orðið úr framkvæmdum við nýju fjárhúsin. Fyrir 2—3 árum, er ég var staddur í Reykjavík, kom ég til Búnaðarfélags íslands í Bænda- höllinni. Þar hitti ég að máli dr. Halldór Pálsson, búnaðarmála- stjóra. Tókum við tal saman enda gamalkunnugir frá því er við vorum báðir ráðunautar og unnum oft saman á hrútasýningum í Skagafirði og raunar víðar. Spurði Halldór mig almennra tíðinda af Hólastað og mun ég hafa greitt úr þeim spurningum eftir bestu getu. Aðspurður um fyrirhugaðar fram- kvæmdir á staðnum lét ég þess getið að ég vonaði að brátt mundi reynast unnt að hefjast handa um byggingu nýs, fullkomins fjárhúss, sem hýsa ætti allt fé skólabúsins og ættu húsin að vera sérlega vel úr garði gerð m. tiliiti til núver- andi og vaxandi tilraunastarfsemi, “r snerti sauðfjárbúið. Svar búnaðarmálastjóra við >essum upplýsingum mínum kom mér nokkuð á óvart, ekki síst þegar haft er í huga að hann var lengi sauðfjárræktarráðunautur iíúnaðarfélags Islands og raunar mikill áhugamaður um sauðfé og sauðfjárrækt. Hann sagði eitthvað á þessa leið: Þú átt ekki að byggja fjárhús strax, þú átt að byrja á hcsthúsi, enda væri það ekki vansalaust fyrir Hrossakynbótabú ríkisins, sem rekið er á Hólum að eiga engin hesthús. Það eru orð að sönnu, að ekki er mikil reisn yfir eina hrossakynbótabúi ríkisins að þurfa að notast við lágreist, loftvond 150 kinda fjárhús, sem byggð voru árið 1927. Hrossakynbótabúið á Hólum er merk stofnun, sem starfar eftir reglugerð, sem sett var árið 1971, samkvæmt lögum nr. 21/1965. Hross búsins eru nú um 100 og að sjálfsögðu á öllum aldri. Öll folöld eru látin lifa og raunar er engum hrossum fargað fyrr en þau eru uppkomin og gengið hefur verið úr skugga um að þau henti ekki ræktunarstarfinu. Öll eru hrossin tamin og unghrossin eru mæld og skoðuð vor og haust af hrossa- ræktarráðunaut Búnaðarfélags Is- lands, þar til þau hafa náð fullum þroska. Tamninguna annast þaul- reyndir tamningamenn og raunar mest sami maðurinn. Þannig fæst raunhæfur samanburður á hrossin ár frá ári. Eg er löngu orðinn fyllilega sammála búnaðarmála- stjóra um að ófært sé að láta hrossakynbótabúið vera lengur í svo þröngu húsnæði, sem raun ber vitni. Búnaðarfélag íslands greiðir árlegt rekstrarframlag til búsins og hlýtur því að hafa a.m.k. tillögurétt um hvernig að gripun- um sé búið. Þá eru íslensk hross um áraraðir búin að vera útflutn- ingsvara og fer hlutur þeirra í útflutningi landbúnaðarins von- andi vaxandi á næstu árum. Hrossaútflutningurinn hefur mér vitanlega aldrei notið neinna útflutningsbóta og geta bændur því kinnroðalaust boðið hross til útflutnings. Margir erlendir ferðamenn, sem til Islands koma eru áhugamenn um hross og hestamennsku. Slíkir menn leggja gjarnan leið sína þangað sem þeir geta fengið að sjá hross. Er þá í mörgum tilfellum nærtækt að benda þeim á Hrossa- kynbótabú ríkisins, enda koma hingað af og til útlendingar til að skoða hrossin og er það vel. Hinsvegar væri mikið ánægju- legra að sýna gestum hrossin, ef um leið væri hægt að sýna þeim glæsilegasta hesthús landsins. Þegar Hólanefnd fór fyrir al- vöru að ræða um hvaða fram- kvæmdum hún ætti að óska eftir ans á Hólum og í hvaða röð þær skyldu koma, varð henni fljótlega ljóst að heppilegast mundi að byrja á uppbyggingu gripahúsanna. Byggingum þeim, sem nú eru á Hólum og raunar líka þeim sem koma skulu, má skipta í þrjá flokka og eru þeir þessir: bygging- ar skóla, starfsmannaíbúðir og byggingar skólabús. Þessir þrír flokkar bygginga standa nú í höfuðdráttum aðskildir, þannig að hver flokkur fyrir sig er á sér svæði og grípur hvert svæði ekki inn á annað nema með einni undantekningu, en hún er sú, að fjósið stendur raunverulega á svæði skólamannvirkja. Er fjósið raunar lengi búið að vera þyrnir í augum fjölmargra og hefur oft verið á það minnst að það ætti að víkja og nýtt fjós að byggjast á öðrum stað, innan þeirra marka þess svæðis sem ætlað verður fyrir byggingar skólabúsins. Hugmynd Hólanefndar um þetta atriði er sú að fjósið eigi að fara og á þeim stað, sem það stendur nú á eigi aö rísa nýtt heimavistarhús og mötu- neyti. Mundi sú bygging, ef vel tekst til, auka mjög reisn staðar- ins. Ég vil nú með nokkrum orðum gera grein fyrir þeim frumtillög- um, sem Hólanefnd hefur orðið sammála og raunar alveg einhuga um. Ég legg þunga áherslu á að tillögur nefndarinnar mynda eina heild, sem þýðir að hún telur að allar þær byggingar og aðrar framkvæmdir, sem tillögurnar fela í sér verði að fylgja fast hver á eftir annarri og megi fram- kvæmdahraðinn ekkert skerðast ef vel á að vera. í greinargerð með frumtillögum nefndarinnar, sem afhentar voru landbúnaðarráðherra segir svo: „Nefndin gengur út frá því í tillögugerð sinni að frumvarp til laga um búnaðarfræðslu verði lögfest. Talið er æskilegt að stærð bændaskóla sé á bilinu 50—100 nemendur. Nefndin miðar tillögur sínar við að á Hólum verði 60 nemenda skóli í þrem bekkjar- deildum. Tilraunir og kennsla markist af tengslum við hrossa- ræktarbúið, aðstöðu sem skapa verður til sauðfjárkynbótabús, en það er ekkert til á Norðurlandi og ennfremur aðstöðu til fiskiræktar og fiskibús, sem staðsett yrði á Hólum fengist nægjanlegt heitt vatn. Verkaskipting skólanna á Hól- um og Hvanneyri á jarðræktar- sviði gæti markast af norðlenskum aðstæðum t.d. jarðvegs- og veður- fars m.a. hvað varðar endurrækt- un túna og hagnýtingu búfjár- áburðar o.fl. Áfram verði lögð sérstök áhersla á góða smíða- kennslu á Hólum. Gamla skólahúsið á Hólum er fallegt og stílhreint hús, sem sjálfsagt er að varðveita og nota áfram í þágu bændaskólans. Nefndin telur að kennslustofur séu best komnar þar framvegis sem hingað til og raunar megi fjölga þeim. Að öðru leyti verði húsið hagnýtt fyrir söfn, kennarastofur, kennaraíbúð, aðstöðu til félags- og tómstundastarfa, geymslur o.fl. Á Hólum þarf að vera alhliða búskapur, ekki endilega mjög stór í sniðum, en fyrirmyndarbúskapur til kennslu, tilrauna og staðnum til virðingarauka. Hrossabúið hefur sérstöðu lögum samkvæmt. Engin skepnuhús, sem nú éru á Hólum hæfa framanskráðu hlutverki, enda eru þau mjög gömul að stofni til, frá því um og fyrir 1930. Því leggur nefndin til, að þau byggist öll á svæðinu sunnan við brekk- una, þar sem nú eru fjárhúsin. Nefndin telur mjög æskilegt að stofna og starfrækja fiskibú á Hólum (til uppeldis sleppiseiða og slátursilungs) og telur hugsanlegt að koma því fyrir í núv. fjárhús- um. Fiskibúið sé jafnframt kennslustofnun og verði sérgrein Hólaskóla. Því leyfir nefndin sér að leggja fram eftirfarandi drög að fram- kvæmdaáætlun 1978—1982. 1978. 1. Borað verði eftir heitu vatni á Reykjum. Verði árangur góður verði þegar í sumar hafist handa við framkvæmdir við aðveituæð til Hóla. 2. Byggt verði hesthús og hlaða. Stærð hússins miðist við að það rúmi hross kynbótabúsins auk um 30 hrossa, er nemendur fá að hafa á tamninganámskeiði að vetrinum. Þá verði í og við húsið aðstaða til tamninga- kennslu og tilrauna á vegum Rannsóknastofnunar landbún- aðarins. Hesthúsið verði þannig úr garði gert að verðugt megi teljast kynbótabúi ríkisins .og að því stefnt að á Hólum verði í framtíðinni höfuðból hrossa- ræktar og hestamennsku. 1979. 1. Hitaveita verði fullgerð. 2. Byggt verði 25—30 kúa fjós með hlöðu og öllum búnaði. Stærð fjóssins miðist við að þar sé aðstaða til kennslu fremur en að rekinn sé stórbúskapur. Vel sé séð fyrir tæknibúnaði. 1980. 1. Byggt verði heimavistarhús bændaskólans (á þeim stað sem fjósið er nú). Stærð miðist við að á Hólum verði 60 nemenda skóli. 1981. 1. Byggt verði fullkomið fjárhús yfir 4—500 fjár, hannað með hliðsjón af þörfum tilrauna-, og fjárræktar- og kennslubús. 2. Undirbúin verði stofnun fiski- bús, sem e.t.v. hafi aðsetur í gömlu fjárhúsunum. Stofnun og rekstur búsins veltur á því hvort heitt vatn fæst frá Reykjum og hvort tekst að afla nægilegs magns af köldu vatni (neysluvatni). 3. Núverandi skólahús verði endurbætt með þarfir kennslu- húsnæðis fyrir augum. Þar verði og sköpuð aðstaða til félags- og tómstundastarfa. 1982. Gengið verði frá framkvæmd- um. Staðurinn snyrtur vand- lega. Sögustaðir merktir, undir- búið hátíðarsvæði og haldin myndarleg afmælishátíð." Tillögur þessar eru við það miðaðar að landbúnaðarráðherra hafi verið full alvara, þegar hann skipaði nefndina og hafi raunveru- lega ætlast til að sú sveltistefna, sem fjárveitingavaldið hefur löng- um fylgt um málefni Hóla yrði rofin. Vonar nefndin að framvegis verði veitt svo ríflegu fjármagni til Hóla að framkvæmdahraði sá, sem hún gerir ráð fyrir og raunar er mjög æskilegur verði ekki minnkaður. Alþingi það, sem lauk störfum fyrir skömmu samþykkti ný lög um búnaðarnám, þar sem m.a. er gert ráð fyrir iengingu búnaðar- námsins úr einum vetri í tvo svo og verulegri aukningu á verulegu námi við skólana sjálfa og utan þeirra. Hafa skólarnir 4 ára aðlögunartíma að þessum breyttu aðstæðum. Hólanefnd gerði sér frá upphafi ljóst að taka þyrfti tillit til þeirra breytinga, sem nýju búnaðar- fræðslulög mundu hafa í för með sér fyrir Bændaskólann á Hólum. M.a. þess vegna leggur hún svo ríka áherslu á að aðstaða til verknáms við skólann verði stór- bætt hið fyrsta eins og tillögur hennar bera með sér. Það má með sanni segja að bændaskólarnir standi nú á tíma- mótum. Enginn veit með vissu hvaða áhrif lenging námsins kann að hafa á aðsókn að skólunum og kemur það varla í ljós fyrr en að því kemur. Oft hefur verið fundið að því að búnaðarnámið veiti mönnum eng- in réttindi (atvinnuréttindi) og er það rétt. Allmikið hefur þó verið rætt um hvernig úr þessu megi bæta. Helst hefur komið til orða að búfræðingar, sem hefja vilja búskap eigi greiðari leið að fyrirgreiðslu hjá lánastofnunum landbúnaðarins, eða jafnvel að búfræðipróf verði gert að skilyrði fyrir slíkum lánum. Fari svo um lánamálin liggur í augum uppi að bændaskólarnir verða að búa sig undir að taka á móti auknum fjölda nemenda. Tillögur Hóla- nefndar miða markvisst að því að efla Bændaskólann á Hólum á öllum sviðum, bæði hvað snertir aðstöðu hjá skólabúinu til aukins og bætts verknáms og tilrauna svo og bætta aðstöðu til bóklegrar kennslu og allan aðbúnað að væntanlegum némendum í skóla og heimavist. Ég vona að landsmönnum sé öllum fyllilega ljóst að þeir eru ávallt velkomnir heim að Hólum. Haraldur Árnason, skólastjóri Hólum, Hjaltadal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.