Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÖIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978 39 Sigurlaug Lárus- dóttir—Minning Fædd 31. maí 1894 Dáin 13. maí 1978 Fátt er hversdagslegra en dauði gamals fólks. Og þó er það nú svo, að þegar hún amma gamla hefur verið borin út úr Dómkirkjunni undir þessu eina blómstri látinna íslendinga, þá reikar hugurinn á vit löngu liðinna atburða. Ég var ekki hár í loftinu, enda aðeins 5 ára, þegar afi minn dó norður á Akureyri, þar sem þau hjón höfðu búið í rúma þrjá áratugi.. Eftir það lá leiðin suður, enda var amma Reykvíkingur langt aftur í aldir, aettuð úr Þingholtunum. Foreldrar hennar voru þau hjón Málfríður Jónsdótt- ir og Lárus G. Lúðvíksson skó- kaupmaður. Amma var sem sé alin upp við hugsunarhátt hinnar ungu borg- arastéttar síðari hluta 19. aldar og fram á þessa. Sigrar þessa fólks voru hennar sigrar, ósigrunum deildi hún einnig með því. En þegar hin framsækna borg- arastétt aldamótaáranna hrapaði á fluginu, með þeim afleiðingum, að arftakar hennar týndu glórunni. í stríðsbraski og landsölu, þá bar amma mín ekki gæfu til að átta sig á rás atburðanna. Upp frá þeirri stundu hætti hún að fylgjast með dagatalinu. Slík urðu örlög hennar líkra, þegar tötraborgarinn reið í hlað, menningarsnauður með gróðann einan að trú. Sú kynslóð íslenskra borgara, sem í æsku dáði Einar Ben. og bláhvíta fánann, eyddi ellinni flettandi Hjemmet og Familie journal, líkt og menn gera á biðstofum lækna. Og kannski er þetta mannlíf ekki annað en biðstofa hvort sem er. Ýmsir sem dvöldu með ömmu á þessari biðstofu eiga henni margt að þakka, en enginn þó jafn mikið og ég. Enda er ég þess fullviss, að sé einhver í herberginu innaf biðstofunni, mun hann taka henni vel. Pjetur H. Lárusson Minning — Sunna Mjöll Svavarsdóttir Hún Sunna er dáin. Nú kemur ekki lengur lítil yndisleg stúlka með stór blákornótt augu að dyrum okkar og spyr um beztu vinkonuna sína, hana Kristínu. Þær sem voru svo góðar vinkonur, að þær ætluðu að verða systur, þegar þær yrðu stórar og aldrei að skilja — en margt fer öðruvísi en ætlað er. Litla stúlkan átti við erfiðan sjúkdóm að stríða, en þrátt fyrir það naut hún oft lífsins. Hún var í eðli sínu dul og hæglát, en gat verið geislandi glöð á góðri stund. Við fullorðna fólkið, sem þekktum hana, vissum innra með okkur, að hún mundi ekki fá að dvelja lengi meðal okkar, þó að hún fullvissaði mömmu sína og pabba um að hún ætlaði ekki að missa andann, eins og þeir gerðu, sem dæju. Þroski þessa fimm ára barns var mikill, hún skildi og hugleiddi margt og hafði svör við ótrúlegustu hlutum. Við lásum gjarnan sögur og þá einkum söguna um hvolp, sem var yngstur og gat ekki hlaupið eins hratt og systur hans og bræður og varð því einn eftir og fann sér þá margt til dundurs. Þessa aðstöðu skildi Sunna vel og var þetta uppáhaldssagan hennar. Sunna Mjöll fæddist í Reykjavík 28. maí 1972 og voru foreldrar hennar Sigríður Sigurðardóttir og Svavar Benediktsson, bæði ættuð úr Dalasýslu. Hún átti 3 systkini, tvo eldri bræður og yngri systur. Foreldrarnir, systkinin og amma hennar önnuðust hana öll af einstakri alúð og gerðu allt sem þau gátu til að gera henni lífið sem léttast.___ Styrkir Norræna menningar- málasjódsins NORRÆNI menningarmála- sjóðurinn hefur úthlutað styrkjum til 53 aðila á Norðurlöndum og komu nokkrir þeirra í hlut Islend- inga. Þeir aðilar íslenzkir eða tengdir íslenzkum málefnum sem fengu styrk eru: Háskólabókasafnið, Einar Sig- urðsson, til að standa undir nokkrum kostnaði við norrænt mót bókasafnsfræðinga á íslandi, kr. 1,1 • m.; Tónlistarskólinn á Akureyri til að fara í tónleikaför til Noregs og Danmerkur, kr. 1800 þúsund; Palle Petersen Ballerup til að gefa út kennslubók um guði, hetjur og bændur í íslendingasög- unum og til íslandsferðar í því sambandi, kr. 270 þúsun,d, og Iþróttasamband íslands vegna. íþróttamóts fyrir fatlaða eins og skýrt hefur verið frá, kr. 2,3 milljónir tæpar. Mikill er söknuður þeirra og allra vina hennar nú, megi trúin og minningin um litlu stúlkuna, sem kvaddi þennan heim á hvíta- sunnudagsmorgun vera huggun í harmi. Vertu sæl. vor litla ljúfan blíða. lof sé Guði. búin ertu ad stríða. Upp til sælu sala saklaust barn án dvala. Lærdu ung viú engla GuÚs ad tala. M. Joch. Edda. ífj ÚTBOÐ Tilboö óskast í leigu á verslunar- og veitingaaö- stöðu í Áningarstað SVR á Hlemmi Leigö veröa út alls 9 rými fyrir eftirfarandi vöruflokka: a) Ljúfmeti („Delikatessen") (Ávextir, grænmeti, álegg, brauövörur, mjólkurvörur o.fl.) b) Snyrti- og hreinlætisvörur. c) Blóma- og gjafavörur. e) Leikföng. f) Blöö og bækur. g) Skyndimyndir, Ijósmyndavörur o.fl. h) Sælgæti og tóbak og aörar vörur, aö undanskildu öli og gosdrykkjum. i) ís. j) Veitingar. Teikningar af húsnæöinu ásamt líkani af því veröa til sýnis á skrifstofu Strætisvagna Reykjavíkur að Kirkjusandi mánudag 22. maí og þriðjudag 23. maí n.k. kl. 14—16. Útboösskilmálar og tilboöseyðublöö veröa afhent á sama stað og tíma. Tilboöum skal skila á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavíkurhorgar, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, fyrir kl. 12.00, fimmtudaginn 1. júní 1978 og veröa þau opnuð á skrifstofu SVR, Kirkjusandi sama dag kl. 14.00 e.h. INNKAUPASTOFNUN HEYKJAVÍKURBORGAR i Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Sonur minn er öðru hverju haldinn einhverjum ótta, þó að engin augljðs ástæða sé til að óttast. Getið þér hjálpað okkur? Ef sonur yðar er enn þá barn að aldri, má vera, að það sé aðeins ótti yðar, sem kemur fram í honum. Það er ekki víst, að hann geri sér grein fyrir, af hverju óttinn stafar, en hugsanlegt er, að hann sýni merki hræðslu, af því að þér eruð hræddur. Ef til vill skortir hann öryggiskenrtd, því að þar sem menn finna öryggi, þar hverfur óttinn. Biblían segir: „Fullkomin elska útrekur óttann.“ Ég held, að hann verði að glíma við þennan vanda, þangað til hann lærir að standa á eigin fótum, óháður yður. Uggur yðar kann að vera á rökum reistur — eða ekki. Skoðið hug yðar vandlega, svo að þér fáuð úr þessu skorið. Margt fólk óttast hið liðna, þó að vandaml þess séu þegar úr sögunni. Ég þekki marga menn, sem hafa ríka ástæðu til að óttast, af þvi að þeir hafa ekki látið sættast við Guð. Þeir eru ókunnir Guði og fráhverfir honum. Það er ekki fyrr en þeir hafa sætzt við Guð, sem þeir geta að fullu sigrazt á því, er þeir skelfast. VIÐTALSTÍMAR FRAMBJÓÐENDA Frambjóöendur Sjálfstæöisflokksins viö borgarstjórnarkosningarnar munu skiptast á um aö vera til viötals á hverfisskrifstofum Sjálfstæöismanna næstu daga. Frambjóöendurnir veröa viö milli kl. 18 og 19 e.h. eöa á öörum tímum, ef Þess er óskaö. Þriöjudaginn 23. maí veröa eftirtaldir frambjóöendur til viötals ó eftirtöldum hverfisskrifstofum: NES- OG MELAHVERFI, Ingólfsstrœti 1 a Elín Pálmadóttir, blaöamaöur. VESTUR- OG MIÐBÆJARHVERFI, Ingólfsstræti 1 a Ólafur B. Thors, forstjóri. AUSTURBÆR OG NORÐURMÝRI Hverfisgötu 42, 4. hæó Sigríöur Ásgeirsdóttir, lögfræöingur. HLÍÐA- OG HOLTAHVERFI, Valhöll, Háaleitisbraut 1 Markús Örn Antonsson, ritstjóri. LAUGARNESHVERFI, Bjarni v/Sundlauga- veg Davíö Oddsson, skrifstofustjóri. LANGHOLT, Langholtsvegi 124 Ragnar Júlíusson, skólastjóri. HÁALEITISHVERFI, Valhöll, Háaleitisbraut 1 Hulda Valtýsdóttir, húsmóöir. SMÁÍBÚÐA- BUSTAÐA- OG FOSSVOGS- HVERFI, Langageröi 21 (kjallara) Albert Guömundsson, stórkaupmaöur. ÁBÆJAR- OG SELÁSHVERFI, Hraunbæ 102 (aö sunnanveröu) Sveinn Björnsson, kaupmaöur. BAKKA- OG STEKKJAHVERFI, Seljabraut 54, 2. hæö Margrét S. Einarsdóttir, ritari. FELLA- OG HÓLAHVERFI, Seljabraut 54, 2. hæö Hilmar Guölaugsson, múrari. SKÓGA- OG SELJAHVERFI, Seljabraut 54, 2. hæö Bessí Jóhannsdóttir, kennari. -listinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.