Morgunblaðið - 23.05.1978, Blaðsíða 31
25 þúsund
flýja gos
Manila, Filipseyjum,
22. maí Reuter.
UM 25 ÞÚSUND manns hafa orðið
að flýja heimili sín í nágrenni við
eldfjallið Mayon, sem tekið er að
gjósa og eys eldi og eimyrju.
Mayon, sem er 2.420 metra hátt, er
um 320 km suður af Manila. Óttazt
er að gosið færist mjög í aukana
næstu daga, en eldtungurnar
teygja sig nú upp í 200 metra hæð
yfir fjallinu.
— Framkvæmdir
Framhald af bls. 32.
víkurhöfn um 80 milljónir króna.
Aætlað er að koma upp húsi til
viðgerðaraðstöðu á Ægisgarði á
þessu ári. Þá eru í gangi fram-
kvæmdir við að breyta Bakka-
skemmu í kælda fiskmóttöku og
rafvæðingu hafnarsvæðis í Gömlu
höfninni.
Unnið hefir verið að því að
fullgera 1. áfanga Sundahafnar í
Vatnagörðum. Land hefir verið
aukið og úthlutað lóðum fyrir
frystigeymslu, fóðurvinnslu og
vörugeymslustarfsemi. Götur og
hafnarbakkar hafa verið malbik-
aðir og ræsi lögð. Lenging Korn-
garðs og Sundabakka, hvors um 50
m fjölgar viðlegum úr 3 í 5, en
framkvæmdir þessar eru á loka-
stigi.
Eimskipafélag íslands h.f. hefur
tekið í notkun 6000 fermetra
vörusekmmur á Sundabakka, og
frekari framkvæmdir munu hefj-
ast á þessu ári.
Gerðar hafa verið líkantilraunir
af Sundahöfn til ákvörðunar á
gerð og legu hafnarbakka og er
hönnun Kleppsbakka á lokastigi
og áætlaðar framkvæmdir við
hann á þessu ári.
Framkvæmdir við fyllingu á
svæði S.I.S. við Holtaveg eru í
gangi og áætlaðar framkvæmdir
við dýpkun og efnisútvegun á
þessu ári.
Viðræður hafa farið fram við
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJÚDAGUR 23. MAÍ 1978
31
starfandi járniðnaðarfyrirtæki um
að koma á fót skipaviðgerðarstöð
og er skýrsla um hagkvæmisat-
hugun og staðarval væntanleg á
næstunni. Þá fer fram endurskoð-
un á fyrri athugunum um stað-
setningu olíuhafnar.
— Alfreð
Þorsteinsson
Framhald af bls. 5.
Alþýðubandalagsins heldur en
hún var á kjörtímabilinu þar á
undan, 1970—74, þegar Fram-
sóknarflokkurinn stjórnaði
samstarfinu, en þá hafði Fram-
sóknarflokkurinn einum borgar-
fulltrúa fleira en
Alþýðubandalagið.
— Nú þurfa borgarfulltrúar
að hafa töluverð samskipti við
embættismenn borgarinnar.
Hafa borgarfulltrúar minni-
hlutans eitthvað undan þeim
samskiptum að kvarta?
— Almennt held ég að það sé
ekki. A.m.k. hef ég ekki undan
neinu að kvarta. Hafi þeir verið
beðnir um upplýsingar hafa þeir
verið fljótir til svárs. Yfirleitt
eru starfsmenn Reykjaviðkur-
borgar hæfir starfsmenn, þó að
auðvitað megi segja í því
sambandi, að misjafn sauður sé
í mörgu fé. Ég vil nota tækifær-
ið og þakka embaéttismönnum
Reykjavíkurborgar, þeirra, sem
ég hef þurft að leita til, fyrir
ánægjulegt samstarf á undan
undanförnum árum.
— Nú þegar þú hættir þátt-
töku í borgarstjórn, hvað tekur
þá við?
— Borgarstjórn og allt, sem
henni er viðkomandi, hefur
tekið gífurlegan tíma. A vissan
hátt er léttir að losna undan því
fargi, hvað sem síðar verður. Ég
þarf ekki að kvarta undan
verkefnaleysi, því að fyrir utan
starf mitt sem forstjóri Sölu
varnarliðseigna, sinni ég
stjórnarstörfum í framkvæmda-
stjórn ÍSÍ, auk annarra starfa
fyrir iþróttahreyfinguna. Vænt-
anlega eykst frítíminn eitthvað
líka. Ég reisti mér sumarbústað
að Syðri-Reykjum í Biskups-
tungum fyrir tveimur árum. Ég
býst við, að ég og fjölskylda mín
munum nú hafa meiri tíma til
að dveljast þar en áður. Silungs-
veiði er uppáhaldsiðja mín og ég
er svo heppinn, að hún er við
bæjardyrnar hjá mér fyrir
austan.
XH FRAMFARIR
ALP UPPBYGCING
1 TinHf «71 mWk W. gt ■'fpi'* * 1
[Jj 1! ;í y
ALMENNUR D-LISTA FUNDUR
um bæjarmálefni i Hafnarfjarðarbíói
miðvikudaginn 24. maí kl. 20.30
Fundarsetning: Sveinn Þ. Guöbjartsson Fundarstjóri: Oliver Steinn
Ávörp flytja:
Árni Grétar Finnsson Eggert fsaksson Ellert Borgar Þorvaldsson
Guðmundur Guðmundsson Hildur Haraldsdóttir Stefán Jónsson
Auk þess koma fram:
Sieglinde Kahmann og Siguröur Björnsson undirleikari: Carl Billich
Jón Mýrdal (píanóleikur) Halli og Laddi
| raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Grindavík
Kosningaskrifstofa sjálfstæöismanna er opin aö Austurvegi 14 frá
kl. 17—22.
Sími skrifstofunnar er 8520.
Kópavogur
Geriö skil í kosningahappdrætti Sjálfstæöisflokksins á kosningaskrif-
stofu D-listans í Sjálfstæöishúsinu aö Hamraborg 1, 3. hæö.
Símar 40708, 44335 og 44855.
Seltjarnarnes
Kosningaskrifstofa
D-listans Tjarnarstíg 2
Opin: Virka daga kl. 17 til 21.
Laugardaga og helga daga kl. 14 til 18.
Sími: 23341.
Á kosningaskrifstofunni liggur frammi kjörskrá og þar eru veittai
upplýsingar um utankjörfundaratkvæöagreiöslu. X D-listinn
D-listann í Kópavogi
vantar sjálfboðaliða til
starfa á kjördag
í kjördeildir og
á kosningaskrifstofu
Hafiö samband viö skrifstofuna aö Hamraborg 1, 3. hæö. Símar
40708, 44335 og 44855.
D-listann í Kópavogi
vantar bíla á kjördag.
Hafiö samband viö kosningaskrifstofuna aö Hamraborg 1, 3. hæö,
símar 40708, 44335 og 44855.
Hafnfirðingar
Þeir stuöningsmenn Sjálfstæöisflokksins sem geta lánaö bíla á
kjördag eru beönir aö hafa samband viö skrifstofuna í síma 54592
og 50228. Ennfremur eru þeir sem geta starfaö á kjördag beönir
aö hafa samband viö skrifstofuna sem fyrst.
Happdrættið
Dregiö veröur föstudaginn 26. maí. Vinsamlegast geriö skil. Andvirði
miöanna sótt heim ef óskaö er. Sími 50228.
Fulltrúaráð sjálfstæöis-
félaganna í Reykjavík
Áríöandi fundur í Sigtúni, laugardaginn 27. maí kl. 13.
Fulltrúar mætiö stundvíslega.
Stjórn Fulltrúaráðsins.
Hafnarfjörður
kosningaskrifstofa
D-listans
er í Sjálfstæöishúsinu Strandgötu 29, skrifstofan er opin frá kl.
10—22 daglega, sími 54592:
Selfoss — Selfoss
Stuöningsfólk D-listans heröum sóknina. Hafiö samband viö
skrifstofu Sjálfstæöisflokksins aö Tryggvagötu 8, Selfossi, sími 1899.
X-D X-D X-D X-D X-D X-D X-D X-D X-D X-D X-D X-D X-D
Mosfellssveit
Frambjóöendur D-listans veröa til viötals kosningaskrifstofunni
aö Bjarkarholti 4, öll kvöld þessa viku kl. 20—22.